Morgunblaðið - 10.04.2003, Side 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 41
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghópur
undir stjórn Kára Þormar, organista. Kaffi
og með því eftir sönginn. Allir velkomnir.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12 í umsjá Lovísu Guðmundsdóttur.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14–16 í safnaðarheimilinu Lækj-
argötu 14a. www.domkirkjan.is
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Orgelleikur, passíusálmalestur. Létt-
ur málsverður í safnaðarheimili að stund-
inni lokinni.
Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20. Eldri
borgara starf. Á morgun kl. 13.30 sam-
vera í Setrinu (bridsaðstoð).
Landspítali – háskólasjúkrahús, Grens-
ás. Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Kjartan Örn
Sigurbjörnsson.
Langholtskirkja. Kl. 10–12 foreldra- og
ungbarnamorgunn. Söngstund með Jóni
Stefánssyni. Umsjón hefur Ágúst Jóns-
dóttir. Kaffisopi. Kl. 12.10 lestur Pass-
íusálma og bænagjörð í Guðbrandsstofu í
anddyri.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel
kirkjunnar frá kl. 12–12.10. Að bæna-
stund og altarisgöngu lokinni er léttur
málsverður á kostnaðarverði í safnaðar-
heimilinu. Einfalt, fljótlegt og innihalds-
ríkt. Kl. 21 AA-fundur í gamla safnaðar-
heimilinu. (Sjá síðu 650 í Textavarpi).
Neskirkja. Nedó, unglingaklúbbur, kl. 17.
10. bekkur og eldri. 8. og 9. bekkur kl.
19.30. Munda og Hans.
Félagsstarf aldraðra laugardaginn 12.
apríl kl. 14. Hugrún Gunnarsdóttir líf-
fræðingur segir frá Norðlingaölduveitu og
Þjórsárverum. Fram verður borin létt mál-
tíð. Þeir sem ætla að neyta matarins
þurfa að tilkynna þátttöku í síma
511 1560 milli kl. 10 og 13 til föstudags.
Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Friðarstund kl. 12–
12.30. Hljóð bænastund.
Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Kirkjustarf aldraðra, Leikfimi ÍAK
kl. 11.15. Bænastund kl. 12.10. Ung-
lingakór Digraneskirkju kl. 17–19.
Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og helgi-
stund í Gerðubergi kl. 10.30–12. Starf
fyrir 8–10 ára stúlkur kl. 16.30.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl.
10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam-
verustundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Allt-
af heitt á könnunni, djús og brauð fyrir
börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla fyrir
7–9 ára börn kl. 17.30–18.30. Kirkju-
krakkar í Grafarvogskirkju kl. 17.30–
18.30 fyrir 7–9 ára. Æskulýðsfélag í Graf-
arvogskirkju fyrir 8. bekk kl. 20–22.
Æskulýðsfélag í Engjaskóla kl. 20–22 fyr-
ir 9. og 10. bekk. Á leiðinni heim. Þekktir
leikarar og skáld lesa Passíusálmana kl.
18.15–18.30.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara í
dag kl. 14.30–17 í safnaðarheimilinu
Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl.
17. Fyrirbænaefnum má koma til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Gott er að ljúka deginum
og undirbúa nóttina í kyrrð kirkjunnar og
bera þar fram áhyggjur sínar og gleði.
Bænarefni eru skrá í bænabók kirkjunnar
af prestum og djákna. Boðið er upp á
molasopa og djús að lokinni stundinni í
kirkjunni.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–
18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund í dag kl.
13. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi
foreldra með ung börn að koma saman í
notalegu umhverfi og eiga skemmtilega
samverustund. Barnastarf fyrir 10–12
ára börn í dag kl. 17.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára kl. 16.30–18.
Lágafellskirkja. TTT-starf Lágfellskirkju
er í dag, fimmtudag, kl. 16. Mikið fjör,
mikið gaman. Allir krakkar á aldrinum
10–12 ára velkomnir. Safnaðarstarf
Lágafellskirkju. Æskulýðsstarfið Sound.
Æskulýðshópurinn okkar er með fundi
alla fimmtudaga kl. 17. Frábær hópur fyr-
ir frábært ungt fólk í 8.–10. bekk. Safn-
aðarstarf Lágafellskirkju.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
10.00. Mömmumorgunn í Safnaðarheim-
ilinu. Sr. Kristján Björnsson.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
AD-KFUM. Fundur í kvöld kl. 20. Biblíur í
aldanna rás. Upphafsorð: Snorri Waage.
Efni og hugleiðing: Sr. Ragnar Fjalar Lár-
usson. Allir karlar velkomnir.
Keflavíkurkirkja. Lokaæfing fyrir ferming-
arbörn 13. apríl: Hópur 5 (8. bekkur MK)
sem fermist kl. 10.30 mæti kl. 16. Hópur
6 (8. bekkur KÓ) sem fermist kl. 14,
mæti kl. 17.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á
vægu verði í Safnaðarheimili eftir stund-
ina. Æfing kl. 16 hjá þeim börnum sem
fermast eiga laugardaginn 12. apríl.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 17.15
krakkaklúbbur, 4. og 5. bekkur. Kl. 19.30
söngæfing fyrir unglinga. Kl. 20.30 ung-
lingasamvera.
Safnaðarstarf
Í KVÖLD, fimmtudaginn 10. apr-
íl, bjóða Ný dögun, samtök um
sorg og sorgarviðbrögð á höf-
uðborgarsvæðinu, til fundar í
Safnaðarheimili Háteigskirkju.
Þar ræðir sr. Birgir Ásgeirsson
sjúkrahúsprestur efnið: „Glíman
við Guð – Hvers vegna ég?“ Þessi
fundur er þrettándi fundur sam-
takanna á þessum vetri og eftir
eru tveir, hinn 8. maí um „Sum-
arið og sorgina“ og loks aðal-
fundur 22. maí.
Fundarefnið að þessu sinni er
valið með föstuna og atburði
kyrruviku í huga, en margir hafa
reynt þjáningu í lífi sínu og spurt
að tilvist Guðs undir þeim kring-
umstæðum. Sr. Birgir hefur ára-
tuga reynslu af sálgæslu við fólk
í erfiðleikum lífsins á ýmsum
vettvangi og mun miðla bæði af
reynslu sinni og faglegri þekk-
ingu. Fundurinn hefst kl. 20 og
lýkur stundvíslega kl. 22. Hann
er öllum opinn, bæði þeim sem
kjósa að koma aðeins til að hlusta
og eins hinum sem vilja taka þátt
í samtali að fyrirlestri loknum.
Háteigskirkja.
Fundur um
sorg og sorgar-
viðbrögð
✝ Geir GuðmundurJónsson var
fæddur 1. ágúst 1911
í Nýlendu í Leiru.
Hann lést 30. mars
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Guðleif
Oddsdóttir, f. 1874, d.
1968, og Jón Odds-
son, f. 1852, d. 1923.
Systir Geirs var Anna
Árnadóttir, f.
13.11.1913, d. 24.9.
1993.
Geir kvæntist 21.
nóvember 1937 Sól-
veigu Jónsdóttur, f.
15.9. 1911, d. 10. mars 2000. Börn
þeirra eru: 1) Marín Sjöfn, kennari
og húsmóðir í Reykjavík, f. 16.12.
1940. Sonur hennar er Örvar
Omrí Ólafsson háskólanemi, f. 4.1.
1979. 2) Jón Örvar, læknir á Ak-
ureyri., f. 2.2. 1947,
d. 12.8. 1976 á Spáni.
Sonur Örvars er Jón
Örvar Geirsson Jóns-
son, f. 21.4. 1977.
Unnusta hans er
Þóra Sigurðardóttir,
f. 31.8. 1978 og eiga
þau dótturina Sigur-
rósu, f. 23.5. 2002.
Geir var lengst af
stórkaupmaður í
Reykjavík. Hann var
ræðismaður Mexíkó
á Íslandi á árunum
1975 til 1985. Einnig
var hann stjórnar-
maður og endurskoðandi Alliance
Francaise í fjölda ára.
Útför Geirs verður gerð frá Að-
ventkirkjunni í Reykjavík, Ing-
ólfsstræti 19, í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Hjartans, elsku, ástkæri pabbi
minn.
Nú ert þú farinn frá okkur. Við
stöndum eftir hnípin og hrygg litla
fjölskyldan þín. Þú varst okkur svo
kær, alltaf svo jákvæður og ljúfur,
svo duglegur eftir að elsku mamma
dó, fórst út að ganga klukkutíma á
dag, bjóst til þinn eigin mat, alltaf
var svo hreint og fallegt á heim-
ilinu þínu. Þú tókst strætisvagninn
til mín og ég tók á móti þér á
stoppistöðinni eða ég fór til þín og
við höfðum það svo yndislegt sam-
an. Það var svo dásamlegt að ræða
við þig, þú varst afburða vel gefinn,
við ræddum um tilveruna og lífið,
Guð, fórnfæringu Krists, þú sagðir:
„Við vitum svo lítið, en það er bara
að halda fast við Krist og Guð, ann-
að vitum við ekki, við getum ekki
fullyrt neitt.“ Við ræddum heim-
speki, alheiminn, sköpunina,
hversu jörðin og lífið á henni væri
okkur hulið, hversu hún og alheim-
urinn væru okkur torskilin að aldri
til, því Guð væri eilífur og væri
ávallt að skapa.
Aldrei kvartaðir þú. Við ræddum
saman daglega, stundum oft á dag.
Þú barst hag minn og litlu fjöl-
skyldunnar þinnar svo mjög fyrir
brjósti. Þú varst svo góðum gáfum
gæddur, að faðir þinn hét því, að
hann skyldi styrkja þig til náms.
En ellefu ára gamall varst þú úti á
túni að raka í Leirunni, þá var
komið til þín og þér sagt að faðir
þinn væri látinn. Þú settist í grasið
og grést, en stóðst síðan upp og
hélst áfram vinnu þinni. Þú varst
ákveðinn í að komast áfram, gekkst
í barnaskólann í Keflavík, fórst síð-
an í Verzlunarskólann, gekkst í
skóm, sem voru götóttir, en settir
dagblöð inn í þá svo að þú gætir
gengið. Þú útskrifaðist með sóma
úr Verzlunarskólanum, vannst hjá
Nathan og Olsen en síðar stofnaðir
þú þitt eigið fyrirtæki „Jónsson og
Júlíusson“ ásamt skólabróður þín-
um úr barnaskólanum, Sverri Júl-
íussyni. Þú lagðir stund á rómönsk
mál, auk annarra tungumála. Þú
varst tungumálasnillingur. Ávallt
minntist þú með hlýhug og þakk-
læti, Einars Jósefssonar, fyrir það,
sem hann var þér, en þið voruð
systkinabörn. Þú stóðst þig eins og
hetja, þegar sonur þinn Jón Örvar
læknir, fórst í bílslysi á Spáni 29
ára gamall, slepptir aldrei úr
vinnu, þótt sársaukinn væri mikill.
Mikið mun ég sakna þín.
Þú eignaðist sonarson Jón Örvar
og dótturson, Örvar Omrí, yndis-
lega drengi, ég trúi því að þeir hafi
verið Guðs gjöf til okkar.
Nú hefur þú fengið hvíld og frið
frá þjáningum þessa jarðlífs.
Ég vil þakka öllum ættingjum og
vinum sem hafa hjálpað og hug-
hreyst okkur, starfsfólki Borgar-
spítala fyrir yndislega umönnun og
hlýju á erfiðri stund. Og síðan en
ekki síst, prestinum okkar og vini,
Jóni Hjörleifi Jónssyni, sem hefur
verið okkur ómetanlegur styrkur
og hjálp, jafnt að nóttu sem degi.
Guð blessi ykkur öll og launi.
Elsku pabbi, ég, Örvar Omrí,
Jón Örvar, Þóra og litla langafa-
barnið þitt, Sigurrós, sem þú
gladdist svo yfir, þökkum þér allt.
Vertu Guði falinn og ég veit, að við
hittumst aftur á morgni lífsins
ásamt ástvinum okkar, sem farnir
eru. Guð blessi minningu þína, ást-
kæri pabbi. Lífið verður tómt án
þín. Guð gefi þér góða nótt.
Þín dóttir
Marín (Marsí).
Í köldu tunglskininu húkir lítill
torfbær niður við fjöruborðið. Des-
emberrokið næðir af hafi og hélar
fjörusteinana á hlaðinu. Inni í bæn-
um er fjölskyldan; maður, kona og
tvö börn sest að borðum. Fram-
undan er stærsta veisla ársins.
Veislan sem börnin biðu með til-
lhlökkun allt árið og minntust síðan
alla ævi sem einhverrar stórkost-
legustu veislu sem þau hefðu nokk-
urn tíma setið.
Strákurinn hét Geir Guðmundur
Jónsson og er jarðsettur í dag.
Stúlkan, systir hans Anna Árna-
dóttir, var amma mín og sagði hún
mér þessa sögu. Þau ólust upp á
bænum Nýlendu í Leirunni úti á
Reykjanesi.
Fjölskyldan átti eina kind, sem
var lógað að hausti og étin yfir ár-
ið. Á jólunum var veislan, þá borð-
aði fjölskyldan sviðahausinn. Einn
sviðahaus handa fjórum í jólamat-
inn. Þvílík veisla, þvílík sælutíð!
Þetta var á árum fyrri heims-
styrjaldarinnar en þá geisaði
ennþá sú mannskæðasta orusta
sem Íslendingar höfðu háð allt frá
landnámstíð. Baráttan um hitaein-
ingarnar, baráttan um að fá fleiri
en þú misstir. Svona er stutt síðan
að lítið var mikið.
En Geiri frændi og samtímafólk
hans lifði ótrúlega breytingu á lífs-
kjörum og í dag hefur taflið snúist
við og lífsbarátta margra snýst um
að falla ekki í valinn af of stórum
skammti af hitaeiningum. En óhóf-
ið var ekki stíll Geirs Jónsonar.
Hann var hófsamur, vandaður og
fjölfróður.
Við krakkarnir „Jónubörn“ köll-
uðum hann aldrei annað en frænda
á Spáni, enda var hann stórkaup-
maður í verslun við Spán, Mexíkó
og fleiri ríki. Það er stutt síðan
hann var enn að störfum í innflutn-
ingsfyrirtæki sínu á Ægisgötunni
og hittumst við alloft þegar hann
var að ganga heim um vesturbæ-
inn. Tignarlegur í fasi eins og ensk-
ur lord, eineygður eins og Óðin og
ekkert nema ljúfmennskan.
Það er margt gott hægt að læra
af ljúfmenni og heimsmanni eins og
Geira frænda. Á níræðisaldri fór
Geiri frændi að sækja tíma í grísku
við Háskóla Íslands, og sýndi okk-
ur í verki að ferðin sjálf er tak-
markið, en ekki áfangastaðurinn.
Toppmaður „frændi á Spáni“. Takk
fyrir samveruna.
Sverrir Björnsson.
GEIR G.
JÓNSSON
Dagar líða, hverfa hljóðir,
horfinn ert þú hér.
Litli bróðir, litli bróðir,
ljúfur varst þú mér.
FRIÐRIK ÓLAFUR
ÓLAFSSON
✝ Friðrik ÓlafurÓlafsson fæddist
í Reykjavík 11.
september 1956.
Hann varð bráð-
kvaddur á heimili
sínu í Laos 12. febr-
úar síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Kópavogskirkju
14. mars.
Ég þess bið að Guð þig
geymi,
gleðistundir áttum við.
Þeim ég aldrei, aldrei
gleymi,
allar þær mér veita frið.
Friðrik kæri, ég kveð þig
hér,
kyssi þig í anda á kinn.
Þú bíður eflaust eftir
mér,
elskulegi bróðir minn.
Ásta.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
EVA JÓNSDÓTTIR,
Klapparstíg 5,
Sandgerði,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugar-
daginn 12. apríl kl. 13.30.
Ármann Heiðar Halldórsson,
Anna Jonna Ármannsdóttir, Kári Andreassen,
Halldór Ármannsson, Ásdís E. Jónsdóttir,
Ingibjörg S. Ármannsdóttir, Ásbjörn Pálsson,
barnabörn og langömmubörn.
KIRKJUSTARF