Morgunblaðið - 10.04.2003, Side 50
ÍÞRÓTTIR
50 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Haukar – Stjarnan 23:16
Ásvellir, Hafnarfirði, úrslitakeppni kvenna,
Essodeild, fyrsti leikur í undanúrslitum,
miðvikudaginn 9. apríl 2003.
Gangur leiksins: 1:0, 1:2, 6:2, 9:5, 12:6, 13:6,
13:9, 14:11, 17:12, 18:14, 19:15, 22:15, 23:16.
Mörk Hauka: Nína K. Björnsdóttir 8,
Harpa Melsted 4/1, Brynja Dögg Steinsen
3, Sonja Jónsdóttir 2, Erna Halldórsdóttir
2, Hanna G. Stefánsdóttir 2/1, Erna Þráins-
dóttir 1, Inga Fríða Tryggvadóttir 1.
Varin skot: Lukresija Bokan 12 (þar af 1
sem fór aftur til mótherja), (9 úr langskot-
um, 2 úr horni og 1 af línu) Bryndís Jóns-
dóttir 2 (þar af 1 sem fór aftur til mótherja),
(1 úr langskoti og 1 úr víti).
Utan vallar: 12 mínútur.
Mörk Stjörnunnar: Amela Hegic 10/2,
Hind Hannesdóttir 3, Margrét Vilhjálms-
dóttir 1, Anna Einarsdóttir 1, Rakel Dögg
Bragadóttir 1.
Varin skot: Jelena Jovanovic 23/2 (þar af 1
sem fór aftur til mótherja), (7 úr langskot-
um, 5 úr hraðaupphlaupum, 5 eftir gegn-
umbrot, 2 úr horni og 2 úr vítaköstum).
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Bjarni Viggósson og Valgeir
Ómarsson, lélegir.
Áhorfendur: 230.
Staðan er 1:0 fyrir Hauka.
ÍBV – Valur 27:17
Íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum:
Gangur leiksins: 1:0, 3:1, 4:3, 6:4, 6:6, 8:6,
9:7, 11:8, 12:9, 13:10, 15:11, 19:11, 21:11,
22:12, 23:14, 25:14, 26:16, 27:17.
Mörk ÍBV: Alla Gokorian 11/1, Anna Yak-
ova 9/1, Birgit Engl 2, Ingibjörg Jónsdóttir
2, Björg Ó. Helgadóttir 1, Edda Eggerts-
dóttir 1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 19/1 (þar
af 3 aftur til mótherja.)
Utan vallar: 10 mínútur.
Mörk Vals: Arna Grímsdóttir 5, Díana Guð-
jónsdóttir 4/4, Drífa Skúladóttir 2, Kolbrún
Franklín 2, Elfa Hreggviðsdóttir 1, Anna
Guðmundsdóttir 1, Svanhildur Þorbjörns-
dóttir 1, Hafrún Kristjánsdóttir 1.
Varin skot: Berglind Hansdóttir 15 (þar af
2 aftur til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur
Ö. Haraldsson.
Áhorfendur: 550.
Staðan er 1:0 fyrir ÍBV.
Þýskaland
Magdeburg – Pfullingen...................... 38:30
Flensburg – Eisenach.......................... 37:23
Essen – Kiel .......................................... 27:25
Lemgo – Wilhelmshavener ................. 29:26
Göppingen – Nordhorn........................ 26:29
Staða efstu liða:
Lemgo 27 25 0 2 919:745 50
Flensburg 27 22 0 5 862:709 44
Magdeburg 27 20 1 6 860:748 41
Essen 27 19 2 6 780:717 40
Nordhorn 27 16 1 10 807:767 33
Gummersb. 27 14 3 10 803:759 31
Kiel 26 12 3 11 730:703 27
Wallau 27 10 6 11 792:798 26
Hamburg 27 12 2 13 709:719 26
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
8-liða úrslit, fyrri leikir:
Inter Mílanó – Valencia .......................... 1:0
Christian Vieri 14. Rautt spjald: Emre
(Inter) 56., David Albelda (Valencia) 56. –
52.500.
Juventus – Barcelona.............................. 1:1
Paolo Montero 16. – Javier Saviola 77. –
48.500.
England
1. deild:
Stoke – Rotherham .................................. 2:0
Staða neðstu liða:
Walsall 40 12 7 21 51:65 43
Stoke City 41 9 14 18 40:64 41
Brighton 41 10 10 21 42:60 40
Grimsby 41 9 11 21 45:76 38
Sheff. Wed. 41 7 14 20 44:68 35
Skotland
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Dundee – Falkirk ......................................4:1
Eftir framlengdan leik.
Rangers – Dunfermline ........................... 3:0
Frakkland
Auxerre – Sedan....................................... 3:1
Deildabikarkeppni kvenna
EFRI DEILD:
Stjarnan – Breiðablik.............................. 0:7
Anna Þorsteinsdóttir 2, Greta Mjöll Sam-
úelsdóttir 2, Inga Lára Jónsdóttir, Hildur
Einarsdóttir, Bjarnveig Birgisdóttir.
Staðan:
Valur 3 3 0 0 15:4 9
Breiðablik 3 2 0 1 10:6 6
ÍBV 2 1 0 1 6:5 3
KR 2 1 0 1 6:9 3
Stjarnan 4 1 0 3 4:15 3
Þór/KA/KS 2 0 0 2 2:4 0
Canela-bikarinn
Æfingamót í Canela á Spáni
A-riðill, um 1. sæti:
KR – Grindavík ........................................ 1:0
Veigar Páll Gunnarsson 65.
A-riðill, um 3. sæti:
FH – Úrvalslið ÚÚ ................................... 7:6
Atli Viðar Björnsson 8. – Arnljótur Ást-
valdsson (KR) 78.
FH sigraði, 6:5, í vítaspyrnukeppni.
Atli Viðar skoraði mark FH gegn KR á
mánudag, ekki Allan Borgvardt eins og
sagt var í blaðinu á þriðjudag.
B-riðill, um 1. sæti:
Fylkir – ÍA ................................................ 2:0
Theódór Óskarsson 59., 76.
B-riðill, um 3. sæti:
ÍBV – Afturelding.................................... 3:0
Pétur Runólfsson 64., Gunnar Heiðar Þor-
valdsson 66., Bjarni R. Einarsson 88.
Á morgun leika KR og Fylkir til úrslita í
mótinu, Grindavík og ÍA um 3. sætið, ÍBV
og FH um 5. sætið og Afturelding og Úr-
valslið Úrvals–Útsýnar um 7. sætið.
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Philadelphia – Detroit.......................... 91:74
Miami – Toronto ................................... 89:83
Cleveland – Washington ................... 91:100
Chicago – Indiana............................. 115:103
Houston – Portland ............................. 66:81
Memphis – LA Clippers................... 111:108
Denver – Phoenix ................................ 78:98
Sacramento – Seattle ......................... 107:85
LA Lakers – Dallas ............................ 108:99
Golden State – Utah......................... 128:102
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni karla, úrvalsdeild, Inter-
sportdeildin, þriðji leikur í úrslitum:
Grindavík: UMFG - Keflavík ...............19.15
Keflvíkingar verða Íslandsmeistarar
með sigri.
HANDKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni karla, 1. deild, Essodeild,
annar leikur í 8-liða úrslitum:
Akureyri: Þór - ÍR.................................19.15
Framhúsið: Fram - Haukar .................19.15
Kaplakriki: FH - Valur .........................19.15
Digranes: HK - KA ...............................19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikarkeppni kvenna:
Reykjaneshöll: Fjölnir - RKV...................20
BLAK
Undanúrslit karla, annar leikur:
Hagaskóli: Þróttur R. - HK..................21.50
Í KVÖLD
ÓLAFUR Stefánsson skoraði 7
mörk, þar af eitt úr vítakasti, þegar
lið hans, Magdeburg, vann Pfull-
ingen örugglega, 38:30, í þýsku 1.
deildinni í handknattleik í gær-
kvöldi, en leikið var í Magdeburg.
Sigfús Sigurðsson skoraði 2 mörk
fyrir heimaliðið sem heldur þriðja
sæti deildarinnar, hefur 41 stig.
Essen fylgir Magdeburg sem
skuggi, er í fjórða sæti með 40 stig
eftir tveggja marka sigur á Kiel,
27:25, á heimavelli. Patrekur Jó-
hannesson skoraði tvö mörk fyrir
Essen og Guðjón Valur Sigurðsson
eitt.
Gylfi Gylfason skoraði eitt mark
fyrir Wilhelmshavener þegar liðið
tapaði fyrir Lemgo á útivelli, 29:26.
Lemgo er sem fyrr með örugga for-
ystu í deildinni, hefur 50 stig.
Flensburg er í öðru sæti með 44
stig eftir sigur á Eisenach, 37:23, á
heimavelli. Wilhelmshavener er í
13. sæti af 18 liðum með 20 stig.
Ólafur skor-
aði 7 mörk
Morgunblaðið/Sverrir
Ólafur Stefánsson
ALFREÐ Gíslason, þjálfari þýska
handknattleiksliðsins Magdeburg, á
frekar von á því að hann framlengi
þjálfarasamning sinn við liðið, en
núgildandi samningur hans rennur
út eftir næsta tímabil. „Við fjöl-
skyldan erum búin að koma okkur
vel fyrir hérna og mér þykir líklegra
en ekki að ég geri nýjan samning.
Tímabilið hefur kannski ekki gengið
eins og við vildum en takmarkið
núna er að verja þriðja sætið sem
gefur sæti í meistaradeild Evrópu,“
sagði Alfreð við Morgunblaðið.
Alfreð
framlengir
líklega við
Magdeburg
Juventus var sterkari aðilinnlengst af gegn Barcelona og
Paolo Montero skoraði snemma
leiks. Þrettán mínútum fyrir leiks-
lok náði argentínski sóknarmað-
urinn Javier Saviola að jafna met-
in, 1:1, og litlu munaði að Patrick
Kluivert stæli sigrinum fyrir
Barcelona skömmu síðar.
Marcelo Lippi, þjálfari Juvent-
us, var afar ósáttur við úrslitin en
sagði að lið sitt hefði ekki getað
spilað betur, miðað við þau meiðsli
sem hrjá það. „Við gerðum allt
sem við gátum og hefðum átt skilið
að sigra. Ég sætti mig hreinlega
ekki við þessi úrslit, þau eru svo
ósanngjörn. Spánverjarnir unnu
ekki fyrir þessu jafntefli með
frammistöðu sinni. En nú verðum
við að fara á Nou Camp til að
sigra, og við eigum góða mögu-
leika á því,“ sagði Lippi. Hann gat
ekki notað David Trezeguet vegna
meiðsla og aðrir sóknarmenn liðs-
ins eru ekki heilir heilsu.
„Við þurftum að verjast talsvert
og Juventus nýtti ekki góð færi í
leiknum, en þið munuð sjá gjör-
breytt Barcelonalið í seinni leikn-
um, þó ekki væri nema vegna þess
að þá verða 120 þúsund áhorf-
endur á okkar bandi,“ sagði Ra-
domir Antic, þjálfari Barcelona.
Christian Vieri skoraði sigur-
mark Inter gegn Valencia með
skalla af markteig eftir tæpan
stundarfjórðung. Leikurinn var
með rólegu yfirbragði og Inter var
með undirtökin þar til upp úr sauð
milli Emre hjá Inter og Albelda
hjá Valencia snemma í síðari hálf-
leik en þeim var þá báðum vikið af
leikvelli. Eftir það gerði spænska
liðið oft harða hríð að marki Inter,
en án árangurs.
Hector Cuper, þjálfari Inter og
fyrrum þjálfari Valencia, sagði að
sínir menn yrðu að sýna allar sínar
bestu hliðar til að verja þetta for-
skot á Spáni. „Þetta er galopið en
ég er bjartsýnismaður að eðlisfari
og segi því að við eigum 100 pró-
sent möguleika á að komast áfram.
Að sjálfsögðu verður þetta ekki
auðvelt,“ sagði Cuper.
„Sætti mig ekki
við þessi úrslit“
BARCELONA er enn ósigrað í 15 leikjum sínum í meistaradeild Evr-
ópu í vetur eftir að liðið náði jafntefli gegn Juventus, 1:1, í fyrri leik
liðanna í 8-liða úrslitunum á Ítalíu í gærkvöld. Staða Barcelona er
vænleg fyrir síðari leik liðanna sem verður á Nou Camp eftir tvær
vikur. Þá vann Inter sigur á Valencia, 1:0, í öðru ítalsk/spænsku ein-
vígi sem fram fór í Mílanó.
Reuters
Frank De Boer fagnar jöfnunarmarki Barcelona gegn Juventus
af mikilli innlifun, ásamt Javier Saviola (númer 7) sem skoraði
og Michael Reiziger. Barcelona stendur nú vel að vígi.
Opið golfmót
Rafþjónustu Birgis
Golfklúbbur Grindavíkur stendur fyrir opnu móti
laugardaginn 12. apríl. Leikinn verður höggleikur
en viljum við hafa fyrirvara á því að ef veður verður slæmt,
þá breytum við keppni í 7/8 punktakeppni.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu 3 sætin með og án forgjafar.
Skipting verðlauna er þessi:
1. sæti m. og án forgjafar: 15.000 kr.
2. sæti m. og án forgjafar: 10.000 kr.
3. sæti m. og án forgjafar: 5.000 kr.
Einnig verða veitt námundarverðlaun á 2 par 3 holur,
5.000 kr. gjafabréf á hvora holu.
Verðlaun verða í formi gjafabréfa frá Golfbúðinni
á Strandgötu í Hafnarfirði.
Þátttökugjald er 2.500 kr. Skráning fer fram á www.golf.is
út föstudag og í síma 426 8720 á mótsdag.
Golfklúbbur Grindavíkur
Stoke
komst úr
fallsætinu
STOKE City komst í gær-
kvöld úr fallsæti í ensku 1.
deildinni í knattspyrnu með
því að sigra Rotherham, 2:0,
frammi fyrir 20 þúsund
áhorfendum á heimavelli sín-
um, Britannia Stadium.
Stoke er nú stigi á undan
Brighton þegar fimm um-
ferðum er ólokið en þar fyrir
neðan eru Grimsby og Shef-
field Wednesday. Paul War-
hurst skoraði fyrra markið
eftir hornspyrnu á 21. mín-
útu og Andy Cooke gerði það
síðara með skoti af 30 metra
færi, fimm mínútum fyrir
hlé. Brynjar Björn Gunn-
arsson lék allan leikinn með
Stoke, Bjarni Guðjónsson sat
á varamannabekknum en
Pétur Marteinsson var ekki í
leikmannahópnum.