Morgunblaðið - 10.04.2003, Qupperneq 51
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 51
Taugatitringur var talsverðurhjá báðum liðum í upphafi
leiks. Leikmenn gerðu sér góða
grein fyrir mikil-
vægi leiksins og
fyrstu mínúturnar
báru þess merki.
Haukar voru mun
fljótari að ná úr sér hrollinum og
þegar hálfleikurinn var nær hálfn-
aður höfðu þær tekið afgerandi for-
ystu 6:2. Þessa forystu létu þær
ekki af hendi út hálfleikinn heldur
hlóðu ofan á hana og höfðu sex
marka forskot í hálfleik, 12:6.
Matthías Matthíasson, þjálfari
Stjörnunnar hefur sjálfsagt reynt
að blása sínum stúlkum baráttu-
anda í brjóst í leikhléinu og á upp-
hafsmínútum seinni hálfleiks áttu
þær ágætan kafla sem skilaði þeim
fimm mörkum gegn tveimur og ör-
lítilli von um að snúa leiknum sér í
hag. Þar átti markvörður Stjörn-
unnar, Jelena Jovanovic, stærstan
hlut en hún varði 13 skot í seinni
hálfleik og 23 skot alls í leiknum.
En í sókninni lék Stjarnan sérlega
illa. Að sama skapi var vörn Hauk-
anna firnasterk, sérstaklega í fyrri
hálfleik og Stjarnan náði aldrei að
ógna forystu Haukanna af neinu
viti.
„Mér fannst við ekki vera að
spila 100% leik en við bjuggumst
við meiri mótspyrnu frá þeim, ég
verð að viðurkenna það. Þetta
small ágætlega hjá okkur í fyrri
hálfleik þá vorum við að leika
ágætlega, en við misstum þetta nið-
ur í seinni hálfleik án þess að sig-
urinn væri í neinni hættu,“ sagði
Harpa Melsted fyrirliði Hauka.
„Vörnin var mjög lek hjá þeim og
Jelena varði ekki eins vel og hún er
vön að gera. Hjá okkur hitti Nína
vel og það munar um minna. Vörn-
in var mjög góð hjá okkur og við
náðum að halda þeim vel niðri. Sex
mörk í einum hálfleik er náttúrlega
ekki neitt. Við skoruðum ekki eins
mikið úr hraðaupphlaupum og
venjulega og okkur tókst ekki að
halda hraðanum eins mikið uppi og
við viljum gera. Úr því verðum við
að bæta á laugardaginn. Það er
auðvitað draumurinn hjá okkur að
klára þetta einvígi í tveimur leikj-
um en ég býst við þeim sterkari í
Garðabæ á laugardaginn,“ sagði
Harpa Melsted.
„Þetta var bara ömurlegt. Ég
sagði um daginn að handbolti væri
auðveldur og skemmtilegur en
maður verður að hafa fyrir hlut-
unum til að ná árangri. Það þarf að
mæta í leiki og skila sínu starfi,
það gerðum við ekki í dag,“ sagði
Margrét Vilhjálmsdóttir fyrirliði
Stjörnunnar og var verulega ósátt
við leik liðsins. „Það þýðir ekki að
spila á tveimur leikmönnum, heild-
in verður að vinna saman þegar
komið er svona langt í keppninni.
Þessi leikur var okkur til skammar
og ég vil biðja áhorfendur afsök-
unar á frammistöðu okkar. Ef við
ætlum að gera það sem stendur til
að gera þá verðum við að vinna á
laugardaginn. Við verðum og við
ætlum okkur,“ sagði Margrét.
Stjörnuliðið lék eflaust einn sinn
slakasta leik í vetur og aðeins tveir
leikmenn sýndu að hluta til sitt
rétta andlit. Það voru Amela Hegic,
sem hélt liðinu á floti sóknarlega
og Jelena Jovanovic sem bjargaði
því sem bjargað varð í vörninni.
Haukarnir hafa oft leikið betur
en þær gerðu í þessum leik. Segja
má að leikmenn hafi gert nákvæm-
lega það sem þeir þurftu að gera til
að sigra í þessum leik og ef mót-
spyrnan hefði verið meiri er enginn
vafi á að meiri kraftur hefði komið í
leik þeirra. Nína K. Björnsdóttir
átti stórgóðan leik og skoraði mörg
glæsileg mörk en þær Harpa Mel-
sted, Inga Fríða Tryggvadóttir og
Brynja Dögg Steinsen áttu góðan
dag í vörninni.
DAÐI Hafþórsson leikur
með handknattleiksliði
Gróttu/KR næstu tvö árin,
samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Morgunblaðs-
ins. Daði hefur undanfarin
tvö ár leikið með Aftureld-
ingu en var laus mála hjá
félaginu þegar deild-
arkeppninni lauk á dög-
unum, en hefur nú sam-
þykkt tilboð Gróttu/KR.
Hann hefur áður leikið með ÍR,
Fram, Bayer Dormagen í Þýska-
landi og Skjern í Danmörku.
Daða er ætlað að koma í stað Al-
exanders Petersons sem leikur að
öllum líkindum í Þýska-
landi á næstu leiktíð.
Reynir Þór til Víkings?
Daði er ekki eini leik-
maðurinn sem er á leið úr
herbúðum Aftureldingar
því allt bendir til þess að
Reynir Þór Reynisson,
markvörður, rói einnig á
önnur mið. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins
hefur Reynir átt í viðræðum við sitt
gamla félag Víking en þær við-
ræður hafa ekki leitt til neinnar
niðurstöðu ennþá eftir því sem næst
verður komið.
Daði Hafþórsson
til Gróttu/KR
Daði
Hafþórsson
SVEINN Margeirsson, lang-
hlaupari úr UMSS, tekur þátt í 10
km hlaupi í Aþenu á laugardaginn,
svokölluðu Áskorendahlaupi Evr-
ópu, sem er haldið á vegum Evr-
ópska frjálsíþróttasambandsins
sem heldur þing sitt í borginni um
helgina. Einnig verður keppt í 10
km hlaupi kvenna en Íslendingar
verða ekki með í þeirri grein.
ALLS eru 39 hlauparar skráðir
til leiks í 10 km hlaupi karla frá 19
þjóðum. Sveinn á best 30.47,06 mín.
í greininni en Íslandsmetið á Sigfús
Jónsson, ÍR, 30.10,00, er það orðið
nærri 27 ára gamalt.
FÓTFRÁASTA par heims, Mar-
ion Jones og Tim Montgomery frá
Bandaríkjunum, á von á barni síð-
ar á þessu ári. Af þeim sökum hefur
Jones aflýst allri þátttöku á frjáls-
íþróttamótum ársins, þar með töldu
heimsmeistaramótinu í París í
ágúst, en þar stóð til að hún keppti
í a.m.k. fjórum greinum. Jones mun
vera komin þrjá mánuði á leið.
LEIF Mikkelsen, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Dana í handknatt-
leik, hefur tekið við þjálfun danska
úrvalsdeildarliðsins Ajax/Farum,
sem Elvar Guðmundsson mark-
vörður leikur með. Mikkelsen er
þrautreyndur þjálfari og var m.a.
landsliðsþjálfari Dana frá 1976 til
1987 og tók síðan tímabundið aftur
við landsliðinu á árunum 1999 til
2000 eftir slakan árangur danska
landsliðsins á HM í Egyptalandi.
HLYNUR Jóhannesson og fé-
lagar í Stord töpuðu á heimavelli
fyrir Sandefjord, 20:33, í fyrri und-
anúrslitaleik liðanna í baráttunni
um norska meistaratitilinn í hand-
knattleik í gærkvöld. Hlynur lék
vel í markinu í fyrri hálfleik og
staðan í hléi var 14:16, en í síðari
hálfleik stóð ekki steinn yfir steini
hjá liði hans og síðari viðureign fé-
laganna í Sandefjord er nú aðeins
formsatriði.
TJÖRVI Ólafsson skoraði 4 mörk
og Róbert Gunnarsson eitt þegar
lið þeirra Århus GF vann Team
Helsinge, 27:25, á útivelli í dönsku
úrvalsdeildinni í handknattleik í
gærkvöldi. Þar með eru Århus og
Aalborg HSH jöfn að stigum í 4.
sæti fyrir síðustu umferðina á
næsta miðvikudag en þá mætast
liðin í Árósum. Verður þar um
hreinan úrslitaleik að ræða um sæti
í fjögurra liða úrslitum um danska
meistaratitilinn.
RÚNAR Sigtryggsson skoraði
eitt mark þegar lið hans, Ciudad
Real, vann Barakaldo, 32:17, í
spænsku 1. deildinni í handknatt-
leik í gærkvöldi. Staðan í hálfleik
var 15:14 en í síðari hálfleik tóku
Rúnar og félagar öll völd og unnu
hálfleikinn, 17:3. Ciudad Real er í
2. sæti deildarinnar með 40 stig, 5
stigum á eftir Barcelona.
FÓLK
Guðríður Guðjónsdóttir, þjálfariVals, reyndi hvað hún gat að
brjóta upp leikinn og tók m.a. tvær
Eyjastúlkur úr um-
ferð en skildi þó
Öllu Gokorian eftir
og það nýtti hún sér
vel og raðaði inn
mörkum gegn fámennri vörn Vals.
Tíu marka sigur, 27:17, og alveg
ljóst að Valsstúlkur geta mikið mun
betur en þær sýndu í gærkvöldi.
Alla Gokorian var í miklum ham í
Eyjaliðinu og þó sérstaklega í síðari
hálfleik.
Vigdís Sigurðardóttir markvörð-
ur var einnig í miklu stuði og varði
19 skot. Hún sagði eftir leikinn að
þær hefðu búist við miklum baráttu-
leik enda hefur Valsliðið verið á
mikilli uppleið undanfarið. „Enda
mættu þær grimmar til leiks í fyrri
hálfleik en ég veit ekki hvað klikkaði
hjá þeim í síðari, það var engu líkara
en að þær hafi verið búnar, þær
virtust ekki hafa kraft í að halda í
við okkur allan leikinn.“
Þær koma dýróðar
til leiks á heimavelli
Vigdís sagði ennfremur er hún
var spurð um næsta leik að stefnan
væri að sjálfsögðu sett á að komast í
úrslitarimmuna þá. „Þær munu
koma dýróðar til leiks þá og þær eru
með mjög góðan heimavöll þannig
að þetta verður rosalega erfiður
leikur en við ætlum okkur að vinna.“
Hjá Val má segja að Berglind
Hansdóttir hafi verið þeirra besti
leikmaður en hún varði 15 skot.
Aðrir leikmenn Vals náðu sér engan
veginn á strik og ljóst að ef þær ætla
ekki að fara í sumarfrí á laugardag
verða þær að taka sig virkilega á.
Morgunblaðið/Jim Smart
Nína K. Björnsdóttir lyftir sér upp fyrir framan vörn Stjörnunnar og skorar eitt átta marka sinna.
Fyrirhafnarlaust
hjá Haukum
HAUKASTÚLKUR þurftu ekki að hafa mikið fyrir sigri á afspyrnu-
slöku liði Stjörnunnar þegar liðin mættust að Ásvöllum í Hafnarfirði
í gærkvöld. Leikurinn var fyrsti leikur liðanna í undanúrslitum úr-
slitakeppni kvenna í handknattleik og miðað við fyrri leiki þessara
liða áttu flestir von á hörkuviðureign. Af því varð þó ekki, mót-
spyrna Stjörnunnar var mjög takmörkuð og Haukar unnu fyrirhafn-
arlausan sigur, 23:16.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
ÍBV tók
öll völd
eftir hlé
EYJASTÚLKUR unnu öruggan
sigur á Val, 27:17, í fyrstu við-
urreign liðanna í undan-
úrslitum Íslandsmótsins í
handknattleik kvenna. Leik-
urinn var þó fjörugur og spenn-
andi allan fyrri hálfleik og gríð-
arlega sterkar varnir liðanna
og góð markvarsla var í aðal-
hlutverki. Eyjastúlkur náðu þó
þriggja marka forystu rétt fyrir
leikhlé, 11:8. Í síðari hálfleik
tók ÍBV öll völd á vellinum og
hreinlega valtaði yfir Vals-
stúlkur og var engu líkara en
að þær gæfust upp eftir að
Eyjastúlkur juku forystu sína.
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar