Morgunblaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 1
Hoshyar Zebari, embættismaður
í heimastjórn Kúrda í Norður-
Írak, sagði að sérsveitarmenn
Bandaríkjahers og kúrdískar
sveitir hefðu handsamað al-Tikriti
norðvestur af borginni Mosul í
gærmorgun. Var al-Tikriti sagður
hafa verið að reyna að komast yfir
til Sýrlands þegar hann náðist, en
Bandaríkjastjórn hefur ítrekað
varað Sýrlendinga við því að
skjóta skjólshúsi yfir embættis-
menn Saddam-stjórnarinnar.
Annar hálfbróðir Saddams,
Barzan al-Tikriti, beið bana í
sprengjuárásum bandamanna sl.
föstudag. Watban og Barzan voru
bræður en báðir eru nefndir sem
ráðgjafar Saddams á lista Banda-
ríkjamanna yfir háttsetta einstak-
linga innan Saddam-stjórnarinnar
sem talið er mikilvægt að klófesta.
Gáfu sig fram
í Bagdad
Þá var haft eftir bandarískum
embættismanni í gærkvöldi að
einn af helstu kjarnorkuvísinda-
mönnum Íraks, Jaffar al Jaffar,
hefði gefið sig
fram. Er von-
ast til að hann
geti veitt upp-
lýsingar um
kjarnorkuáætl-
anir Saddam-
stjórnarinnar.
Kemur þetta
í kjölfar þess
að Amer al-
Saadi hers-
höfðingi, sem
var helsti ráðgjafi Saddams í víg-
búnaðarmálum, gaf sig fram við
Bandaríkjaher í Bagdad á laug-
ardag.
Engar fregnir hafa borist af
Saddam sjálfum, sonum hans og
öðrum helstu ráðamönnum Íraka.
Tommy Franks, yfirmaður herliðs-
ins við Persaflóa, skýrði hins veg-
ar frá því í gær að Bandaríkja-
menn réðu yfir lífsýnum úr
Saddam sem gerðu þeim kleift að
framkvæma DNA-rannsóknir á
líkum til að athuga hvort þar væru
jarðneskar leifar forsetans fyrr-
verandi.
Hálfbróðir
Saddams
handsamaður
BANDARÍKJAMENN handsömuðu hálfbróður Saddams Husseins,
Watban Ibrahim al-Tikriti, í norðurhluta Íraks í gær, nærri landa-
mærunum að Sýrlandi. Frá þessu var skýrt á kúrdísku sjónvarps-
stöðinni KTV og hafa bandarískir embættismenn staðfest fréttina.
Al-Tikriti er sagður hafa verið ráðgjafi Saddams og gegndi hann m.a.
á sínum tíma embætti innanríkisráðherra í stjórn Saddams.
Arbil, Washington. AFP, AP.
Watban Ibrahim
al-Tikriti
Stríð í Írak: Ómetanlegir munir eyðilagðir
eða þeim stolið Eiga lífsýni úr Saddam 12
STOFNAÐ 1913 102. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
BANDARÍKJASTJÓRN veittist í gær harka-
lega að Sýrlendingum, sakaði þá um að ráða yfir
efnavopnum og varaði þá við því að hleypa hátt-
settum, íröskum ráðamönnum á flótta inn í
landið.
Bandarískir ráðamenn hótuðu ekki að grípa
til aðgerða gegn Sýrlendingum en ummæli
þeirra voru höfð til marks um að spenna í sam-
skiptum ríkjanna hefði aukist snögglega nú þeg-
ar fyrirsjáanlegt væri að herförinni í Írak lyki
brátt.
„Sýrlenska ríkisstjórnin verður að starfa með
okkur og bandamönnum okkar,“ sagði George
W. Bush Bandaríkjaforseti og tók fram að ekki
yrði liðið að fyrrum ráðamenn í Írak og leiðtog-
ar Baath-flokksins fengju að komast undan með
því að fara um sýrlenskt land.
Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra gekk
lengra því hann fullyrti að hátt settir Írakar
hefðu flúið til Sýrlands. Einhverjir þeirra væru
þar enn en aðrir hefðu haldið þaðan til annarra
landa.
Sýrlendingar hafa neitað þessum ásökunum.
Skoruðu þeir í gær á Bandaríkjamenn að leggja
fram sannanir fyrir máli sínu.
Í máli Rumsfelds kom og fram að margir Sýr-
lendingar hefðu fallið í bardögum í Bagdad, höf-
uðborg Íraks, og fjölmargir verið teknir til
fanga. Mjög margir Sýrlendingar hefðu komið
til Íraks til að berjast gegn innrásarliði Breta
og Bandaríkjamanna.
Efnavopn og hryðjuverkatengsl
Bush forseti vék einnig að meintri gjöreyð-
ingarvopnaeign Sýrlendinga. „Við teljum að
efnavopn sé að finna í Sýrlandi,“ sagði forset-
inn. Bandaríkjamenn hafa áður greint frá því að
Sýrlendingar eigi efnavopn og fullyrt að þar sé
jafnframt unnið að þróun lífefnavopna. Donald
Rumsfeld hefur sagt að eitthvað af meintum
gereyðingarvopnum Íraka hafi hugsanlega verið
flutt til „annars lands“ án þess að nefna það.
Þessum ásökunum neituðu Sýrlendingar einn-
ig í gær og kváðust tilbúnir til að heimila eftirlit
í landinu til að sanna að þar væri engin gereyð-
ingarvopn að finna. Bandaríska vikuritið Time
birtir í dag grein þar sem fram kemur að leið-
togi hryðjuverkasamtaka sem tengd hafa verið
Osama bin Laden haldi til í Sýrlandi.
Bardagar í Tikrit
Bandarískar hersveitir héldu í gær inn í Tikr-
it, heimaborg Saddams Husseins, fyrrverandi
Íraksforseta. Fregnir hermdu að mótstaða
Íraka væri heldur lítil þar og óskipulögð. Ljóst
varð fyrr í gær að sveitir Lýðveldisvarðarins
sem áttu að verja borgina höfðu flúið af hólmi
eftir að hafa orðið fyrir þungum loftárásum á
undanliðnum dögum og vikum. Um 250 banda-
rískir brynvagnar voru sagðir hafa haldið inn í
borgina og hermdu fregnir að 15 Írakar, hið
minnsta, hefðu verið felldir. Virtist sem „Písl-
arvottar Saddams“ og sveitir Baath-flokksins
héldu uppi vörnum í borginni en hugsanlegt
hafði verið talið að Saddam Hussein og und-
irsátar hans væru í felum þar.
Sýrlendingar sagðir
hjálpa Írökum á flótta
Bush segir Sýrlendinga eiga efnavopn Bandarískt herlið komið til Tikrit
GERHARD
Schröder, kansl-
ari Þýskalands,
hefur ákveðið að
halda sérstaka
ráðstefnu í maí
um umdeildar
umbótatillögur í
efnahagsmálum
sem hann hefur
lagt fram. Er
markmið ráð-
stefnunnar að tryggja að sátt ríki inn-
an Jafnaðarflokks Schröders (SPD)
um tillögurnar.
Umbótatillögur Schröders fela m.a.
í sér lækkun bóta til þeirra sem lengi
hafa verið án atvinnu og að reglum
verði breytt þannig að atvinnurek-
endur eigi auðveldara með að segja
verkafólki upp störfum, en sumir telja
slíkar ráðstafanir eina ráðið til að
blása lífi í efnahag Þýskalands. Marg-
ir í vinstri armi SPD eru hins vegar
alfarið á móti þessum hugmyndum.
Næstum 4,7 milljónir manna eru
nú án atvinnu í Þýskalandi, meira en
11% landsmanna.
Berlín. AFP.
Gerhard
Schröder
Vill ræða
efnahags-
umbætur
BANDARÍKJAHER hefur heitið því að reyna að binda
enda á það öngþveiti sem hefur ríkt í borgum Íraks
undanfarna daga, eða frá því að stjórn Saddams Huss-
eins féll. Hafa hundruð manna, sem störfuðu fyrir hið
opinbera og í lögreglunni í valdatíð Saddams, svarað
kalli Bandaríkjahers um að gefa sig fram í því skyni að
aðstoða við að koma á lögum og reglu í Bagdad.
Á stærri myndinni sést hvar bandarískir land-
gönguliðar aðstoða Írakann Ayyad Talal í gær en hann
sagði ræningja í Bagdad hafa skotið sig í handlegginn.
Bar Talal sig illa eins og margir íbúa Bagdad sem vart
hafa þorað út á götu vegna ástandsins undanfarna daga.
Á minni myndinni getur hins vegar að líta Shoshana
Johnson (fyrir miðju) en hún var í hópi sjö bandarískra
hermanna sem fundust heilir á húfi í gær eftir að hafa
verið í haldi Írakshers frá 23. mars sl.
AP
AP
Reyna að koma
böndum á öngþveitið