Morgunblaðið - 14.04.2003, Page 10

Morgunblaðið - 14.04.2003, Page 10
FRÉTTIR 10 MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga Aðalfundur KEA verður haldinn í Ketilhúsinu á Akureyri þriðjudaginn 29. apríl nk. Auk aðalfundarstarfa verður á fundinum fjallað um samgöngumál á félagssvæðinu Dagskrá 18.00 - Þema fundarins - samgöngumál. 1. Bættar samgöngur - sem liður í eflingu byggðar. 2. Vaðlaheiðarjarðgöng - Greið leið ehf. 3. Viðhorf íbúa í Norðausturkjördæmi til úrbóta í samgöngumálum - niðurstöður könnunar Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri. Nánar auglýst síðar 19.15 - Fundargestum boðið upp á léttan kvöldverð 20.00 - Venjuleg aðalfundarstörf samkv. samþykktum KEA svf. Stjórn KEA svf. FYRIRHUGAÐ heiti hins samein- aða banka er Kaupþing Búnaðar- banki hf. Skiptihlutfall hefur verið ákveðið þannig að hluthafar Kaup- þings banka fá um 51,77% í hinum sameinaða banka en hluthafar Bún- aðarbanka Íslands um 48,23%. Bankinn verður skráður í Kauphöll Íslands og í Kauphöllinni í Stokk- hólmi í Svíþjóð (Stockholmsbörsen). Sameinaður banki muni verða stærsti banki landsins og leiðandi afl á nær öllum sviðum íslensks fjár- málamarkaðar. Kaupþing Búnaðar- banki hf. verður verðmætasta skráða fyrirtækið í Kauphöll Íslands og í hópi 10 stærstu banka á Norð- urlöndum. „Með sameiningunni verður til öfl- ugt fjármálafyrirtæki, banki sem veita mun alhliða þjónustu á sviði viðskipta- og fjárfestingarbanka- þjónustu. Alls mun bankinn reka 36 útibú vítt og breitt um landið sem koma til með að starfa undir merkj- um Búnaðarbankans. Áformað er að efla verulega viðskiptabankastarf- semi bankans á næstu misserum og má ætla að umfang þeirrar starfsemi muni aukast. Hins vegar verður hag- rætt í þeim hluta rekstursins þar sem núverandi starfsemi Búnaðar- banka og Kaupþings banka skarast,“ segir í fréttatilkynningu frá bönkun- um. Bæði Búnaðarbani Íslands hf. og Kaupþing banki hf. eru með starf- semi í Lúxemborg og er stefnt að því að sameina þá starfsemi. „Þá gefur aukinn fjárhagsstyrkur bankans færi á frekari yfirtökum eða samein- ingum við banka og fjármálafyrir- tæki utan Íslands, en stefna Kaup- þings Búnaðarbanka hf. er að efla enn frekar starfsemina erlendis og komast í hóp leiðandi fjárfestingar- banka á Norðurlöndum. Við ákvörðun á skiptihlutfalli hef- ur markaðsverð á hlutabréfum í báð- um bönkunum verið haft til hliðsjón- ar auk fjárhagslegrar stöðu, afkomu, markaðsstöðu og framtíðarhorfa. Þá hefur verið litið til ársreikninga bankanna og annarra upplýsinga um rekstur þeirra og fjárhagsstöðu. Bankaráð Búnaðarbanka Íslands hf. og stjórn Kaupþings banka hf. hafa komist að samkomulagi um eft- irfarandi skiptihlutfall milli bank- anna: Heildarhlutafé í hvorum banka fyrir sig er metið þannig að hluthaf- ar í Búnaðarbanka Íslands hf. fá um 48,23% hlutafjár í hinum sameinaða banka en hluthafar Kaupþings banka hf. um 51,77%. Hlutafé hins sameinaða banka verður allt að 4.155.000.000 króna að nafnvirði eða 415.500.000 hlutir. Hluthafar Búnað- arbanka Íslands munu fá 0,0369863 hluti í Kaupþingi Búnaðarbanka hf. fyrir hvern hlut sinn í Búnaðarbanka Íslands hf., eða samtals allt að 200.425.000 hluti í Kaupþingi Bún- aðarbanka hf.“ Stefnt skal að því að niðurstaða áreiðanleikakönnunar liggi fyrir eigi síðar en 28. apríl 2003. Stærsta skráða félag- ið í Kauphöll Íslands SIGURÐUR Einarsson, núverandi stjórnar- formaður Kaupþings banka, sagði að með sameiningu Kaupþings banka og Búnaðar- banka Íslands væri verið að sameina tvo mjög öfluga banka, sem báðir hefðu leiðandi stöðu á íslenskum fjármálamarkaði. „Úr verður, að því er við teljum, mjög öflug fjármálastofnun, sem á að geta sinnt viðskiptavinum sínum af ennþá meiri kostgæfni en hvor banki fyrir sig hefur getað hingað til. Gæði þjónustunnar verða meiri og hugsanlega verður hún á sam- keppnishæfara verði en hingað til. Jafnframt teljum við að þessi sameining geri bankann betur í stakk búinn til að hasla sér völl annars staðar en á Íslandi,“ sagði Sigurður, „en sam- einaður banki er nú þegar með starfsemi í níu löndum.“ Hjörleifur Jakobsson, formaður bankaráðs Búnaðarbanka og verðandi varaformaður stjórnar sameinaðs banka, lýsti yfir ánægju sinni með sameininguna. „Við lítum svo á að framundan sé mjög skemmtilegur tími fyrir hinn sameinaða banka, til að þróa starfsemina frekar á erlendri grund og á Íslandi. Við telj- um að það verði fullt verkefni fyrir stjórn- arformanninn, Sigurð Einarsson, að leiða þá vinnu,“ sagði Hjörleifur. Jákvæð áhrif á lánshæfismat Sigurður sagði að sameiningin krefðist sam- þykkis Fjármálaeftirlitsins, sem þegar hefði verið upplýst um gang mála. „Jafnframt er ljóst að Samkeppnisstofnun mun fara yfir mál- ið, en hún hefur einnig verið upplýst um gang mála,“ sagði hann. Spurður um hver áhrif sameiningarinnar gætu orðið á lánshæfismat Búnaðarbankans segist Hjörleifur telja að þau verði engin til skamms tíma. „Við teljum hins vegar að þau verði jákvæð, þegar litið er til lengri tíma.“ Sólon R. Sigurðsson, bankastjóri Búnaðar- banka, segir að Moody’s matsfyrirtækið hafi nýlokið við að bæta lánshæfismat Búnaðar- bankans. „Fyrirtækið vissi þá að þessi sam- runi stæði fyrir dyrum og hækkaði matið fyrir skammtímaskuldbindingar.“ Aðspurður segist Sigurður Einarsson ekki eiga von á að starfsemi Kaupþings í Svíþjóð taki breytingum við sameininguna. „Auðvitað eflir þetta starfsemina í Svíþjóð, til lengri tíma, og gerir okkur kleift að taka enn frekari þátt í samrunum og breytingum á norrænum fjármálamarkaði.“ Sigurður segir að mikil vinna sé fyrir hönd- um. „Þar þarf meðal annars að skilgreina starfsemina og skipta verkefnum milli manna,“ segir hann. Hjörleifur segir að ákveð- ið hafi verið að skipa sérstaka samrunanefnd, skipaða þremur fulltrúum úr hvorum banka. „Við stefnum að því að fyrsti starfsdagur sam- einaðs banka verði 30. maí. Menn munu nota tímann þangað til vel, til að undirbúa bankann sem best undir framtíðina.“ Samlegðaráhrif þar sem starfsemin skarast Sólon segir að viðskiptavinir Búnaðarbank- ans eigi ekki að finna fyrir sameiningunni. „Nema þá helst þannig að þeir verði varir við enn betri þjónustu en áður.“ Að sögn Hjörleifs verða mestu samlegð- aráhrif sameiningarinnar á þeim sviðum sem starfsemi bankanna skarast. Búnaðarbankinn reki fjárfestingabankasvið, sem skarist við starfsemi Kaupþings, auk þess sem báðir bankar hafi starfsemi í Lúxemborg. Hann segir að ekki sé hægt að segja fyrir um hversu mörg störf muni skerðast við sameininguna. Betur í stakk búinn til að hasla sér völl erlendis Morgunblaðið/Kristinn. Stjórnendur Búnaðarbanka og Kaupþings kynntu samrunann á blaðamannafundi í fyrradag. F.v. Sólon R. Sigurðsson, verðandi forstjóri sameinaðs banka, Sigurður Einarsson, sem verður stjórnarformaður, Hjörleifur Jakobsson, sem verður varaformaður stjórnar, og Hreiðar Már Sigurðsson, verðandi forstjóri sameinaða bankans. Bankaráð Búnaðarbanka Íslands hf. og stjórn Kaup- þings banka hf. hafa samþykkt að leggja til við hlut- hafafundi bankanna að þeir verði sameinaðir.  !       "     !      !    #  $    %      & '(')         *  + (  ,    %    -  !   ../0 1.1/ 2233 2031 40&005 26&705 607.7 86712 367.7 /6146 /8266 /88002 //106 4121 6311 6688 14&805 /8&605 /.763 /84880 22278 46.0 /1/.6 671.71                                                 HINN sameinaði banki verður verðmætasta fyrirtækið sem skráð er í Kauphöll Íslands og með meira eigið fé en nokkurt annað skráð fyrirtæki í Kauphöllinni.  Samanlagt markaðsverðmæti bankanna er 61,7 milljarðar króna miðað við lokaverð í við- skiptum með hlutabréf 28. mars 2003.  Samanlagt eigið fé bankanna miðað við síðustu áramót er 33,5 milljarðar króna og heildareignir um 434 milljarðar króna.  Samtals skiluðu bankarnir tæp- lega 5,4 milljarða króna hagnaði á síðasta ári og var arðsemi eigin fjár 24,3%.  Samtals námu hreinar rekstr- artekjur bankanna rúmum 21,4 milljörðum króna. Markaðs- verðmæti 61,7 milljarðar BANKARÁÐ Búnaðarbanka Íslands hf. og stjórn Kaupþings banka hf. segja í sameiginlegri yfirlýsingu, að sameining bankanna muni auka arð- semi fyrir hluthafa og tryggja við- skiptavinum enn betri og víðtækari þjónustu. „Sameinaður banki getur náð aukinni hagkvæmni í rekstri og rekstrartengdum fjárfestingum, dregið úr fjármagnskostnaði og nýtt sér hagkvæmni stærðarinnar á margvíslegan annan máta. Samein- aður banki getur enn fremur veitt fjölbreyttum hópi viðskiptavina sinna alþjóðlega samkeppnishæfar lausnir á öllum sviðum fjármálaþjónustu. Samkeppni í bankaþjónustu fer síharðnandi. Sameining Búnaðar- banka Íslands hf. og Kaupþings banka hf. er rökrétt framhaldi af þeim samrunum og umbreytingum sem átt hafa sér stað á íslenskum sem og erlendum fjármálamörkuðum á undanförnum árum. Stækkun og al- þjóðavæðing fyrirtækja kallar á stærri og öflugri banka sem veitt geta sérhæfðari þjónustu og heild- stæðari lausnir. Með sameiningu Búnaðarbanka Íslands hf. og Kaup- þings banka hf. er verið að svara slíku kalli. Sameinaður banki mun enn fremur verða betur í stakk búinn til að laða að og halda í hæfa starfsmenn og byggja þannig upp trausta liðsheild, sem er forsenda góðrar afkomu og árangurs. Hjá bönkunum starfar nú öflugur hópur sérfræðinga, sem eru í fremstu röð, bæði hér á landi og er- lendis. Með aukinni stærð skapast frekari tækifæri fyrir starfsmenn sameinaðs banka til að nýta enn frek- ar sérfræðiþekkingu sína, viðskipta- vinum til hagsbóta.“ Meiri hagkvæmni í rekstri bankans

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.