Morgunblaðið - 14.04.2003, Page 14

Morgunblaðið - 14.04.2003, Page 14
LISTIR 14 MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJULISTAHÁTÍÐ verður haldin í Hallgrímskirkju í Reykjavík 29. maí – 9. júní. Yfirskrift hátíð- arinnar er: „Ég ætla að gefa regn á jörð“, en tilvitnunin, sem er úr síðari Konungabók tengist aðalverki hátíð- arinnar, Elía eftir Mendelssohn, sem flutt verður 30. maí af sér- stökum afmæliskór Mótettukórs Hallgrímskirkju og Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Með því er minnt á hlutverk listarinnar í því að gera jarðveg trúar og kirkju frjóan og uppskera með listinni von og auðga trúarlíf, að því er segir í kynningu á hátíðinni. Fjölbreytni, nýsköpun og gæði eru einkunnarorð Kirkjulistahátíðar. Hörður Áskels- son organisti og kórstjóri í Hall- grímskirkju er listrænn stjórnandi hátíðarinnar, en framkvæmdastjóri hennar er Inga Rós Ingólfsdóttir, sem segir að hátíðin verði óvenju fjölbreytt í ár, og taki til margra list- greina. „Einn stærsti viðburðurinn verð- ur flutningur Mótettukórsins á óratoríunni Elía eftir Mendelssohn með einsöngvurum og Sinfóníu- hljómsveit Íslands. Móettukórinn fagnar líka 20 ára afmæli sínu um þessar mundir og þess vegna munu gamlir kórfélagar syngja með og kórinn stór. Við erum afar stolt af einsöngvurunum. Elín Ósk Ósk- arsdóttir hefur óskað þess í mörg ár að syngja sópranhlutverkið undir stjórn Harðar Áskelssonar. Alina Dubik syngur althlutverkið, en hún er söngkona sem heyrist allt of sjaldan í. Við vorum mjög lengi að finna tenór, en það náðust loks samningar við Anthony Rolfe John- son sem er æðislegt og gaman að fá mann í þetta með svo mikla sögu og reynslu. Hann er eitt stærsta tenór- nafnið í dag og er í toppformi. Það var Andreas Schmidt sem syngur hlutverk Elía, sem mælti með Anth- ony Rolfe Johnson. Andreas Schmidt söng þetta hlutverk með kórnum síðast þegar við fluttum verkið, árið 1989, og við erum mjög stolt af því að fá hann aftur. Þetta verður fjölmennasti viðburðurinn, um 200 flytjendur.“ Annar stórviðburður að sögn Ingu Rósar er koma kammersveitarinnar Das Neue Orchester frá Köln, sem Kirkjulistahátíð flytur hingað alfarið á eigin kostnað. „Okkur var mikið í mun að kynna hér enn betur vand- aðan flutning á barokkhljóðfæri. Á lokatónleikunum verða allar mót- ettur Bachs fluttar, og þær krefjast þessara skrýtnu, gömlu hljóðfæra sem Íslendingar hafa lítið spilað á til þessa. Hljómsveitin leikur á tvenn- um tónleikum, á mótettutónleik- unum með Mótettukórnum, en einn- ig á tónleikum með Schola cantorum þar sem flutt verður Hvítasunnu- kantatan eftir Bach og Gloria eftir Vivaldi sem hefur oft verið flutt hér á landi, en ekki með upprunalegum hljóðfærum.“ Það vekur athygli að meðal gesta Kirkjulistahátíðar er organistinn Olivier Latry í Notre Dame-kirkjunni í París. „Það er bú- ið að taka okkur mörg ár að fá hann, því hann er einn eftirsóttasti kons- ertorganisti í heiminum í dag. Loks- ins núna tókst það, og við hlökkum mikið til.“ Trúarleg ljóð og Bachbrýr Inga Rós segir það mikilvægt fyr- ir Kirkjulistahátíð að erlendir lista- menn sem hingað koma skapi tengsl við íslenska kollega sína og skilji eitthvað meira eftir sig en bara spilamennskuna. Þannig munu til dæmis nokkrir íslenskir tónlist- armenn leika með Neue Orchester frá Köln, og sérstakt námskeið verð- ur haldið fyrir íslenska organista í túlkun barokktónlistar. Það verður barokksérfræðingurinn Jon Lauk- vik sem sér um það, en hann mun jafnframt halda fyrirlestur með tón- dæmum við barokkorgel Langholts- kirkju, og tónleika. „Orgelið þar hentar þessari tónlist vel, og með því erum við líka að víkka hátíðina út, þannig að hlutirnir geti notið sín sem best á hverjum stað. Annar samstarfsaðili verður Salurinn, en þar verða ljóðatónleikar með Andr- easi Schmidt og Helmut Deutsch, þar sem þeir flytja prógramm með trúarlegum ljóðum, sem þeir hafa flutt í Austurríki og fengið góða dóma fyrir. Okkur fannst kjörið fyrst Andreas kemur á Kirkju- listahátíð, að fá hann til að flytja líka annars konar prógramm.“ Það er líka áhersla á nýsköpun á hátíðinni eins og endranær. Á loka- tónleikunum, þar sem mótettur Bachs verða fluttar heyra tónleika- gestir einnig Bachbrýr, – en brúa- smiðurinn er Atli Heimir Sveinsson. Brýrnar tengja saman þessi sex verk og það verður Einar Jóhann- esson klarinettuleikari sem leikur. Í hátíðarmessu við upphaf Kirkju- listahátíðar verður einnig frumflutt nýtt verk eftir Elínu Gunnlaugs- dóttur, Guðspjallamótetta fyrir uppstigningardag, og jafnframt frumsýnt nýtt dansverk eftir Ólöfu Ingólfsdóttur. Trúlega Bergman Hátíðin í ár sækir reyndar mjög til fleiri listgreina, og þar er margt forvitnilegt. „Kvikmyndir hafa til dæmis ekki verið sýndar á Kirkjulistahátíð áður, en við efnum til samstarfs við Kvik- myndasafn Íslands og verðum með málþing um trúarstef í kvikmyndum Ingmars Bergmans. Tvær mynda hans verða sýndar í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Ég held að fyrirlestr- arnir verði mjög spennandi og áhugaverðir og sem dæmi um um- ræðuefni er Bach og Bergman. Hingað kemur Maaret Koskinen sem er einn fremsti Bergmanfræð- ingur heims.“ Passíusálmaplús er uppákoma sem dr. Sigurður Árni Þórðarson hefur umsjón með, en þar hafa fimmtán íslensk skáld verið fengin til að yrkja í framhaldi af, eða til hliðar við Passíusálma Hallgríms Péturssonar. Enn er ónefnd sýning á verkum Guðjóns Ketilssonar í for- dyri Hallgrímskirkju, en sýningin er gerð sérstaklega fyrir hátíðina. Norski karlakvartettinn Quattro stagioni syngur með Karlakórnum Fóstbræðrum á tónleikum með and- legri tónlist, og segir Inga Rós það nýtt að bjóða upp á karlakórssöng á hátíðinni. Á hverjum degi verður svo tónlistarandakt í hádeginu í Hall- grímskirkju og ókeypis aðgangur. Inga Rós segir að þótt tónlistin sé plássfrek á Kirkjulistahátíð sé stefn- an að ná til fleiri listgreina og víkka sjóndeildarhringinn. „Ég held að við höfum svolitla sérstöðu með þetta, – kirkjulistahátíðir eru yfirleitt tón- listarhátíðir, en okkar metnaður stendur til þess að hafa allar list- greinar með.“ Kirkjulistahátíð hefst í Hallgrímskirkju í lok maí Nýtur sérstöðu með fjölda listgreina Morgunblaðið/Jón Svavarsson Elía æfður. Hörður Áskelsson og Mótettukór Hallgrímskirkju. SJÖTTA kirkjulistahátíð Seltjarn- arnarneskirkju verður sett við guðs- þjónustu í kirkjunni kl. 8 á páska- dagsmorgun. Yfirskrift hátíðar- innar að þessu sinni er Hirðir og hjörð og verður sérstök áhersla lögð á 23. sálm Davíðs, Drottinn er minn hirðir. Leifur Breiðfjörð sýnir verk sín á hátíðinni og dr. Pétur Péturs- son prófessor flytur erindi um kirkjulist Leifs. Þann 26. apríl kl. 17 verða tónleikar Kammerkórs Sel- tjarnarneskirkju undir stjórn Vieru Manasek organista og Pavels Man- asek. Þar verða flutt tvö af stór- virkjum tónlistarsögunnar, Magnif- icat eftir Bach og áttunda sinfonía Dvoraks. Hinn 3. maí kl. 13:30 verður mál-, tón- og sjónþing í kirkjunni þar sem Sálmur 23 verður í brennidepli. Þar munu skáld flytja ljóð sem þau hafa ort út af sálminum, skáldin eru Árni Þ. Árnason fyrrv. ráðuneytisstjóri, Ingvar Gíslason fyrrv. menntamála- ráðherra og Matthías Johannessen fyrrv. ritstjóri Morgunblaðsins. Þrjú stutt erindi verða flutt um sálminn af cand. theol. Árna Svani Daníelssyni, dr. Gunnlaugi A. Jóns- syni prófessor og dr. Kristni Óla- syni. Einnig verður flutt tónlist tengd sálminum, m.a. frumflutt nýtt tónverk eftir Arnþór Helgason. Dagskráin verður innrömmuð af myndum gerðum undir áhrifum frá sálminum, af börnum úr Mýrar- húsa- og Valhúsaskóla. Ljósmynda- sýning verður einnig, tengd sálm- inum. Fundarstjóri á þinginu verður Ásgerður Halldórsdóttir, forseti bæjarstjórnar Seltjarnarness. Formaður kirkjulistanefndar Sel- tjarnarneskirkju er dr. Gunnlaugur A. Jónsson prófessor. Sjötta kirkjulistahátíðin í Seltjarnarneskirkju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.