Morgunblaðið - 14.04.2003, Page 28
DAGBÓK
28 MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ak-
ureyrin, Goðafoss og
Víðir koma í dag. Sel-
foss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Selfoss kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, vinnu-
stofa kl. 13, söngstund
á morgun kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
kl. 11 boccia, kl.13–
16.30 opin smíðastofa/
útskurður, opin handa-
vinnustofa, kl. 13.30 fé-
lagsvist, kl. 16 mynd-
list.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–16 handavinna, kl. 9–
12 bútasaumur, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 10–
11 samverustund, kl.
13.30–14.30 söngur við
píanóið, kl. 13–16 búta-
saumur.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Mosfellsbæ, Kjal-
arnesi og Kjós. Fé-
lagsstarfið opið mánu-
og fimmtudaga. Mánu-
dagur kl. 16 leikfimi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð frá kl. 10.
Skrifstofan Gullsmára
9 er opin kl. 16.30–18,
s. 554 1226.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, og mynd-
list, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10, leikfimi,
kl. 13 brids.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 9–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 myndlist, kl. 13–
16 körfugerð, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13–16
spilað, kl. 10–13 versl-
unin opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–
12, handavinna kl.
9–16.30, félagsvist kl.
14, kl. 9–14 hár-
greiðsla.
Félag eldri borgara
Garðabæ. Æfing hjá
Garðakórnum, kór
eldri borgara Garða-
bæ, mánudaga kl 17.30
í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli. Söngfólk
er hvatt til að koma og
taka þátt í starfi með
kórnum. Stjórnandi
kórsins er Kristín Pjet-
ursdóttir.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Pútt kl.
10 billjard og kóræf-
ingar kl. 10.30 tré-
skurður kl. 13, fé-
lagsvist kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids kl. 13
Línudanskennsla kl.
18. Danskennsla í
samkvæmisdönsum
framh. kl. 19 og byrj-
endur kl. 20.30. S.
588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Á morgun
vinnustofur opnar kl.
9–16.30 m.a. gler-
skurður kl. 13 boccia.
S. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.30 gler og
postulínsmálun, kl.
10.50, leikfimi, kl. 13
skák og lomber, kl. 20
skapandi skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 leikfimi, kl. 9.55
stólaleikfimi, kl. 10
ganga, kl. 13 brids, kl.
20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
perlusaumur og fótaað-
gerð, kl. 10 bænastund,
kl. 13.30 sögustund og
spjall, kl. 13 postulíns-
málun og hárgreiðsla.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 föndur, kl. 9 og kl. 10
jóga, kl. 13 spilað, kl.
14.15 spænska. fótaað-
gerðir.
Norðurbrún 1. Kl. 10–
11 ganga, kl. 9–15 fóta-
aðgerð, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 13–16.45 opin
handavinnustofa.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
postulínsmálun. kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 9.30–10.30 boccia,
kl.11–12 leikfimi, kl.
12.15–13.15 dans-
kennsla, kl. 13–16 kór-
æfing.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 9.30 bókband, búta-
saumur og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerð og boccia, kl. 13
handmennt, gler-
bræðsla og spilað, kl.
15.30 jóga.
Gullsmárabrids. Brids
að Gullsmára. Skrán-
ing kl. 12.45, spil hefst
kl. 13.
Félag eldri borgara
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu Vallarbraut 4,
Njarðvík öll mánudag-
kvöld kl. 20.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Kl. 19
brids.
Minningarkort
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í
blómabúðinni Burkna,
hjá Sjöfn s. 555 0104 og
hjá Ernu s. 565 0152
(gíróþjónusta).
Í dag er mánudagur 14. apríl,
104. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: Sé því líkami þinn allur
bjartur og hvergi myrkur í
honum, verður hann allur í birtu,
eins og þegar lampi lýsir á
þig með loga sínum.
(Lúk. 11, 36.)
Baldvin Þór Bergssonfjallaði um sigur
bandamanna á Írökum í
pistli á Deiglunni á föstu-
daginn. Hann segir að
þótt fagna megi endalok-
um harðstjórans Sadd-
ams Husseins hafi nú
tekið við mikið óvissu-
tímabil í Írak. Uppbygg-
ing landsins sé margra
ára verkefni.
Baldvin Þór segir:„Þjóðir sem ekki
tóku ábyrgð á eigin
ákvörðunum í Örygg-
isráði sameinuðu þjóð-
anna hafa síðustu daga
keppst um að fagna sigri
Bandamanna á Saddam.
Jafnframt hafa margir
boðist til að taka þátt í
uppbyggingunni undir
fána Sameinuðu þjóð-
anna. Þótt nauðsynlegt
sé að sem flestir taki þátt
í starfi næstu mánaða
hlýtur sú spurning að
vakna hvort Frakkar og
Rússar séu ekki bara að
tryggja olíuhagsmuni
sína í Flóanum?“
Ennfremur segir hann:„Stríðinu er þó alls
ekki lokið. Heimabær
Saddams er næsta verk-
efni en jafnvel er talið að
um 80.000 hermenn verji
bæinn. Auk þess má bú-
ast við því að fámennir
skæruliðahópar muni
næstu árin ráðast gegn
alþjóðlegu herliði sem og
nýrri stjórn Íraks. Með
markvissum aðgerðum
og uppbyggingarstarfi er
þó hægt að lágmarka
slíkar árásir.
Hvað tekur við í Íraker óljóst á þessari
stundu. Ógnaröld ríkir í
landinu en lögregla hef-
ur ekki verið starfhæf
síðustu vikur. Reynsla
bresku hersveitanna af
löggæslu frá Norður-
Írlandi getur komið sér
vel enda nauðsynlegt að
tryggja það að friður
komist á sem fyrst og að
nauðsynleg hjálpargögn
berist fólkinu.
Matur, vatn og raf-magn ætti því að
vera forgangsverkefni
næstu vikna ásamt því að
koma í veg fyrir frekari
þjófnaði. Það krefst þess
hins vegar að stór hluti
heraflans fari í önnur
verkefni en eiginlega
framrás og beinan hern-
að.
Þótt mannfall í stríði séávallt óæskilegt
verður varla hjá því kom-
ist. Óvíst er hversu
margir hefðu horfið í
Írak ef ógnarstjórn
Saddams hefði fengið að
halda áfram óáreitt eins
og margir vildu.
Við hljótum þó að fagnaþví í sameiningu að
búa í landi þar sem fólk
er frjálst til að vera á
móti aðgerðum stjórn-
valda. Þetta frelsi er dýr-
mætara en við áttum
okkur á, frelsi sem allir
ættu að hafa, frelsi sem
íraska þjóðin mun öðlast
innan skamms.“
STAKSTEINAR
Nú tekur við uppbygg-
ing í Írak
Víkverji skrifar...
isútvarpsins í gær: „Dimitering, það
er þegar stúdentsefni gera sér glað-
an dag í síðasta sinn fyrir prófa-
lestur, fór úr böndunum í Mennta-
skólanum við Sund í gær þegar hluti
nemenda lét dólgslega í miðbæ
Reykjavíkur og þrír skólapiltar
handteknir fyrir líkamsárás.“
Víkverji dimitteraði sjálfur á sín-
um tíma, en hann man ekki betur en
sú hátíð hafi verið kölluð dimissjón.
Íslenzk orðabók segir að dimissjón
eða dimmissjón sé „gleðihátíð þeirra
sem dimittera“ en getur hvergi um
dimitteringu. Til fróðleiks má geta
þess að þeir, sem dimittera, eru sam-
kvæmt orðabókinni kallaðir dimitt-
endar, dimittentar eða dimittantar.
MS-ingarnir, sem lentu í steininum,
voru með öðrum orðum bæði dimitt-
entar og delinkventar.
x x x
VARLA verða haldnar nema þess-ar einu kosningar, þar sem
Reykjavíkurkjördæmi er skipt í
tvennt. Nú hefur verið ákveðið að
Grafarholtshverfið, sem er sunnan
þeirra viðmiðunarmarka, sem rætt
var um að nota við afmörkun suður-
og norðurkjördæmis, verði engu að
síður í norðurkjördæminu til að íbúa-
fjöldi sé sem jafnastur í kjördæm-
unum tveimur. Ef það fjölgar meira
á næstu fjórum árum í nýju hverf-
unum í Grafarvogi en í Grafarholt-
inu, er því líklegt að Grafarholtið
færist í suðurkjördæmið. Víkverji
veltir því fyrir sér hvað verði þá orð-
ið um sjónarmið um lýðræðislega
ábyrgð. Grafarholtsbúar munu ekki
geta sagt skoðun sína á þingmönnum
sínum með því að kjósa þá eða fella,
af því að þeir verða komnir í annað
kjördæmi. Þar geta þeir kosið eitt-
hvert annað fólk, en geta ekki dæmt
fólkið, sem hefur starfað fyrir þá í
fjögur ár, af verkum þess.
ENN fækkar bönkunum með sam-einingu Kaupþings og Bún-
aðarbankans. Nú velta menn því að
sjálfsögðu fyrir sér hvað nýi bankinn
verði látinn heita. Nafn Bún-
aðarbankans á sér langa sögu og
nýtur væntanlega enn nokkurs
trausts, en þykir kannski svolítið
hallærislegt í hinum alþjóðlegu
bankakreðsum. Kaupþing er nafn,
sem hæfir verðbréfafyrirtæki, en
passar ekki á viðskiptabanka.
Kannski verður bankinn kallaður
Búnaðarbankinn-Kaupþing, a.m.k.
fyrst um sinn, en væntanlega kæm-
ust menn fyrr en síðar að þeirri nið-
urstöðu að slík nafngift væri harla
óþjál – skemmst er að minnast þess
er FBA var aftur skorið aftan af
nafni Íslandsbanka, sjálfsagt með til-
heyrandi kostnaði við að breyta
skiltum, bréfsefnum o.s.frv. Hvaða
bankanafn væri nú stutt, þjált og
laggott? Einhver stakk upp á því í
eyru Víkverja að nýi bankinn yrði
bara kallaður Búnaðarþing.
x x x
VÍKVERJA kemur spánskt fyrirsjónir þegar menn tala um „dim-
itteringu“. Þannig sagði á vef Rík-
Morgunblaðið/Ómar
Þessir dimittentar eru til fyrir-
myndar.
MIG langar til að vekja at-
hygli á ferðaþjónustustað á
landsbyggðinni sem heitir
Langamýri í Skagafirði.
Ég gisti þar fyrir stuttu
ásamt fleira fólki. Staðsetn-
ingin er mjög falleg og hús-
næði og umhverfi sérlega
skemmtilegt, heitur pottur
og verði mjög í hóf stillt.
En það eru þó ekki aðal-
lega þessir hlutir sem eru
mér minnisstæðir, þó svo að
þeir væru mjög góðir. Það
var ekki síst það hlýja og
góða viðmót sem mætti okk-
ur af hálfu starfsfólksins og
mjög góður og vel útilátinn
matur. Starfsfólkið lét sér
mjög annt um okkur og lét
það mjög greinilega í ljós að
það skipti það miklu máli að
okkur liði sem allra best.
Ég gleymdi nokkrum
smáhlutum þegar ég fór
heim og hringdi ég í stað-
arhaldarann og bað hann
um að senda mér það og
myndi ég að sjálfsögðu
greiða sendingarkostnað-
inn. Hann tók því mjög vel
og sagði að það skipti ekki
máli með sendingarkostnað-
inn, ég fékk þessa hluti
strax daginn eftir, mjög
vandlega pakkaða inn í góð-
an kassa og fallega kveðju
með, og búið að greiða send-
ingarkostnaðinn.
Ég vil því þakka þessu
frábæra fólki kærlega fyrir
mig.
Ingibjörg.
Til að bæta
kjör almennings
NÚ þegar líða fer að kosn-
ingum keppast forystumenn
flokkanna við að lofa bætt-
um kjörum til almennings
sem er gott, það er kominn
tími til að hinir almennu
borgarar þessa lands fái að
njóta þess góðæris sem sí-
fellt er verið að tala um.
Mig furðar hins vegar á
að allir leiðtogar flokkanna
tala einungis um skatta-
lækkun og nefna það ekki að
afnema verðtryggingu lána
sem er hið eina raunveru-
lega vandamál almennings.
Allir vita að sú kjarabót sem
komið hefur í hægri vasa al-
mennings hefur verið tekin
úr þeim vinstri með ein-
hverjum hætti, t.d. með
hækkun vaxta vegna auk-
innar þenslu eða á einhvern
annan hátt. Það sem mér
býr í brjósti er: hefur enginn
stjórnmálaflokkur það á
sinni stefnuskrá að afnema
verðbætur á lánum? Það er
alveg sama hvað verður gert
til að bæta kjör almennings
ef þetta hróplega óréttlæti
fær viðgengist.
Við Íslendingar erum
eina þjóðin í Evrópu ef ekki í
öllum heiminum sem lætur
slíka kúgun ganga yfir
þegna sína. Við berjumst
fyrir launahækkunum,
skattalækkunum o.fl. en það
er alveg ljóst að um leið og
einhver árangur næst í að
bæta kjör almennings í
landinu þá er það tekið af
okkur með okurvöxtum og
verðtryggingu lána.
Ég velti því fyrir mér
hverjir stjórna landinu. Eru
það stjórnmálamenn eða
auðvaldið? Ég skora á for-
ystumenn flokkanna að
koma með alvöru loforð um
bætt kjör landsmanna og af-
nema verðtryggingu lána.
Ég er alveg sáttur við að
borga þá skatta sem ég hef
gert, en hef fengið nóg af
verðbótum og okurvöxtum.
Kristinn Ingi Jónsson.
Dýrahald
Kasper er týndur
KASPER er 8 ára fress,
svartur og hvítur, með
svarta leðuról. Hann er
mjög mikil mannafæla og
gæti verið í felum. Hann
týndist í lok febrúar frá Álf-
heimum þar sem hann var í
pössun og gæti því verið
hvar sem er.Þeir sem hafa
orðið hans varir eða vita um
afdrif hans hafi samband í
síma 554 6730.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Langamýri
í Skagafirði
Morgunblaðið/Golli
LÁRÉTT
1 allhvassan vind, 8
óskertar, 9 blossar, 10
slæm, 11 heimskingjann,
13 líkamshlutann, 15
troðningur, 18 metta, 21
sár, 22 eftirskrift, 23
gyðja, 24 óáleitnar.
LÓÐRÉTT
2 álíta, 3 lági tanginn, 4
sívalningur, 5 endist til, 6
skipa niður, 7 hugsvala,
12 eyktamark, 14 fugl, 15
þjark, 16 býður byrginn,
17 opið, 18 sýkja, 19
látna,
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hagur, 4 gauða, 7 lítri, 8 rabba, 9 táp, 11 aðal,
13 æðin, 14 áferð, 15 bjór, 17 agða, 20 agg, 22 útlæg, 23
umráð, 24 auður, 25 túrar.
Lóðrétt: 1 halda, 2 gutla, 3 reit, 4 garp, 5 umboð, 6
akarn, 10 ágeng, 12 lár, 13 æða, 15 bjúga, 16 óglöð, 18
gárar, 19 arður, 20 agar, 21 gust.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16