Morgunblaðið - 14.04.2003, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003 31
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 5.50 og 10. B.i 12. Ísl. texti.
Sýnd kl. 8. B.i 12
HK DV
Kvikmyndir.com
SV MBL
HJ MBLHK DV
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i 14.
COMEDIAN
Sýnd kl. 6. enskt. tal.
GOOD GIRL
sýnd kl. 8. ísl. texti.
GAMLE MÆND I NYE BILER
sýnd kl. 8. ísl. texti.
EL CRIMEN DEL PADRE AMARO
sýnd kl. 6. enskur texti.
HEAVEN
Sýnd kl. 10.20. enskur texti.
SPIDER
Sýnd kl. 10.20. ísl. texti.
NAQOYQATSI
Sýnd kl. 6. enskt tal.
Sýnd kl. 8. B.i 12.
ÓHT Rás 2
BESTA HEIMILDARMYNDIN
ÓSKARSVERÐLAUN
HK DV
Sýnd kl. 4. Ísl. tal. 400 kr. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. 700 kr
Sýnd kl. 5.45. Tilboð 700 kr.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Tilboð 700 kr.
Sýnd kl. 8 og 10. Tilboð 700 kr.
400
kr
Miða
verð
700
kr
700
kr
700
kr
700
kr
PÁSKATILBOÐ: 700 KR Í ALLA SALI
FRAMLEIÐENDUR vin-
sælasta mynddisksins á
landinu, hasarmynd-
arinnar xXx, hömruðu á
því að myndin skartaði arf-
taka njósnara hennar há-
tignar, Bond nýrrar aldar.
Það tókst þeim, því flestir
löptu upp fullyrðinguna,
jafnt lærðir sem leikmenn,
gagnrýnendur og áhorf-
endur, og menn hafa verið
í því að bera saman þessa
njósnara tveggja alda,
vega þá og meta, og reynd-
ar flestir komist að því að
sá nýi eigi nokkuð langt í
land til að geta staðist gamla Mart-
ini-svolgraranum snúninginn.
Svo skemmtilega vill til að nú eru
þessir njósnarar tveggja alda á
toppi beggja mynddiskalistanna.
Það sem meira er þá eru sem fyrr
fleiri en ein Bond-mynd á gull-
molalistanum Dr. No, Octopussy og
Goldfinger.
Önnur tíðindi af þessum listum yf-
ir söluhæstu mynddiskana eru þau
að Köngulóarmaðurinn er enn og
aftur kominn sterkur inn á topplist-
ann, fyrstu tvær Die Hard-
myndirnar saman í pakka taka og
stórt stökk upp listann og eina nýja
myndin á listanum er gamanmyndin
um partíljónið Van Wilder, sem sýnd
var í bíó ekki fyrir alls löngu við þó-
nokkrar vinsældir.
010
/ 2
4 /& &
* -
2#5,
6, : ;'("<6=6
= > > #
"
/
/
/
/
/
2
?#@
/
2
2
/
/
"# "
6=6
A (+" "# -- " 'B- " /
- " ,
$ + - -
6 $ +
!""#$! #%%$ + - -
6 $ +
6 +$
;#
""
A "#8#(A
"
2 6 "
: ;
2 # #
/# > "##
,
"4$C
/
/
/
/
/
/
/
/
/
2
9
9
9
! (
:; "
skarpi@mbl.is
Menn þreytast seint á að horfa á Bruce Willis
berja á hryðjuverkamönnum.
Njósnarar tveggja alda
ILLA er komið fyrir leyniþjón-
ustu hennar hátignar. Ókunnir und-
irróðurssmenn róa að því öllum árum
að velta drottningunni úr sessi og
senda í þeim tilgangi alla hæfustu
njósnara leyniþjónustunnar inn í ei-
lífðina. Pegasusi (Tim Biggot Smith),
yfirmanni stofnunarinnar er því
vandi á höndum, einhver verður að
finna samsærismennina. Tvær blæk-
ur, Johnny English (Rowan Atkin-
son) og John Bough (Ron Miller),
eru eini vonarpeningurinn til að
hleypa nýju blóði í spæjaradeildina.
Þó svo að tvímenningarnir geri flest
öfugt, tekst þeim að komast á spor
höfuðpaursins, sem er enginn annar
en Pascal Sauvage (John Malkovich),
franskur auðkýfingur. Haldinn mik-
ilmennskubrjálæði og Bretahatri.
Enginn fæst til að trúa flónunum
tveim annar en hið íðilfagra njósna-
kvendi, Loma (Natalie Imbruglia).
Enn ein skopútgáfan af Bond-
myndunum þar sem Atkinson fer á
sinn persónulega hátt með lánlaus-
asta flón sem sést hefur innan veggja
MI7. Myndin er skrifuð í kringum
látbragðsleik Atkinsons, sem margir
þekkja úr myndinni og enn frekar
sjónvarpsþáttunum um herra Bean.
Atkinson er bestur í litlum skömmt-
um þáttanna og á mörkunum að fett-
ur hans og brettur dugi til að halda
uppi kvikmynd í fullri lengd. Að auki
er Johnny English losaraleg, líkt og
hún sé ekki fullfrágengin og ber þess
merki, ekki síst handritið, að hafa átt
strembna fæðingu. Sveiflast frá því
að vera bærilegur Atkinson-farsi
með nokkrum meinfyndnum atriðum
niður í flatneskjulega hugmynd-
aneyð þar sem Malkovich verður
sérstaklega illa úti. Aðrir leikarar,
einkum Miller og Imbruglia, skapa
mun spaugilegri persónur. Hápunkt-
arnir, einkum endirinn, virka ekki
sem skyldi þar sem þeir hafa verið
margauglýstir í sýnishorninu. Fyrir
forfallna Atkinson-aðdáendur.
Spæjari núll, núll og nix
KVIKMYNDIR
Háskólabíó, Laugarásbíó og
Sambíóin
Leikstjóri: Peter Howitt. Handrit: William
Davis, Neal Purvis og Robert Wade. Kvik-
myndatökustjóri: Remi Adifarasin. Tón-
list: Ed Shearmur. Aðalleikendur: Rowan
Atkinson, John Malkovich, Natalie
Imbruglia, Ben Miller, Douglas McFerran.
90 mín. UIP. Bretland 2003.
Jói enski/Johnny English Sæbjörn Valdimarsson
Í umsögn segir að Jói enski sé
fyrst og fremst fyrir harða
fylgjendur Rowans Atkinsons.
AÐDÁENDUR Alien-myndanna
geta farið að hugsa sér gott til glóð-
arinnar því innan tíðar lítur dagsins
ljós hreint tröllvaxinn kassi. Um er að
heila níu diska sem innihalda mynd-
irnar fjórar og haug af aukaefni sem
fyllir fimm diska.
Enn hvílir mikil leynd yfir innihaldi
kassans en áreiðanlegar innanbúðar-
heimildir hjá 20th Century Fox
herma að með hverri mynd verði
diskur með aukaefni tengdu viðkom-
andi mynd og svo verði níundi disk-
urinn fullur af efni sem tengist þeim
öllum. Nokkuð víst þykir að mynd-
irnar verði allar í nýjum og lengri út-
gáfum, með atriðum sem aldrei hafa
sést áður. Hins vegar mun verða
hægt að velja á milli, hvort horft sé á
nýju lengri útgáfuna eða gömlu
„góðu“ sem var í bíó á sínum tíma.
Mestur fengur ku hér vera í mun
lengri útgáfu á Alien3, en hinn ungi
David Fincher lenti í mikilli rimmu
við framleiðendur sína út af þessari
fyrstu mynd sinni og var aldrei sáttur
við þá útgáfu sem rataði í kvikmynda-
hús. Hefur verið fleygt að þessi nýja
útgáfa sé næstum helmingi lengri, og
því klárlega um allt, allt aðra mynd að
ræða.
Allir leikstjórarnir eru og sagðir
hafa fallist á að lýsa myndum sínum,
en það yrði þá í fyrsta sinn sem James
Cameron gerði slíkt. Auk þess munu
margir leikarar lýsa sínum þættti í
myndunum og munar þar auðvitað
mest um Ripley sjálfa, Sigourney
Weaver, en það verður mjög fróðlegt
að heyra hana lýsa myndunum.
Aukadiskarnir verða víst 4 klukku-
stunda langir hver og munu innihalda
fjölda heimildarmynda, viðtala og enn
fleiri senur sem lentu í ruslinu hjá
klippurunum. Níundi diskurinn mun
síðan innihalda hina 68 mínútna Alien
Legacy heimildarmynd, sem helguð
er fyrstu myndinni og var í þriggja
diska kassanum frá 1999. Einnig
verður á níunda disknum fín heimild-
armynd frá BBC um allar myndirnar
sem heitir Alien Evolution.
Þessi risavaxni Alien-kassi gæti
komið út seint á þessu ári eða
snemma á því næsta.
Ófreskjan
stækkar
Haldið ykkur fast því væntanlegar
eru góðar 30 klukkustundir af
kvenskörungnum Ripley.
ÍRAFÁR er án allra tvímæla vinsæl-
asta hljómsveit landsins, skartar
vinsælustu söngkonu landsins, átti
vinsælasta lag síð-
asta árs „Ég sjálf“
og langsöluhæstu
plötuna Allt sem ég
sé. Samkvæmt upp-
lýsingum útgefenda
hefur platan sú nú
selst í hvorki fleiri
né færri en 16 þús-
und eintökum. Allt
útlit er nú fyrir að sú
tala eigi enn eftir að
hækka nokkuð, eftir
að gefin var út sér-
stök útgáfa af plöt-
unni þar sem með
fylgir aukamynd-
diskur, siður sem orðinn er nokkuð
algengur úti í heimi. Þar er þó
vanalega um stutta kynningardiska
á ræða, oftast með myndbandi við
fyrstu smáskífu sem tekin er af við-
komandi plötu. Írafársdiskurinn er
mun veglegri en það því hann inni-
heldur öll myndbönd sem gerð hafa
verið við lög af plötunni og ekki
nóg með það heldur er á mynd-
disknum einnig að finna tvær heim-
ildarmyndir, eina langa sem gerð
var um sveitina og sýnd á Stöð 2
fyrir jólin síðustu og aðra stutta
sem fjallar um gerð myndbandsins
Allt sem ég sé.
Ætla má að þeir
sem á annað borð
kunna að meta Íra-
fár eigi nú þegar
plötuna, enda nátt-
úrlega 16 þúsund
eintök farin. Það
væri því kannski
réttara að líta svo á
að út sé kominn
mynddiskur með
Írafári þar sem í
kaupbæti er annað
eintak af plötunni.
Sumum þykir það
kannski súrt að
neyðast til að eiga tvö eintök af
henni, ef þá langar til að eignast
mynddiskinn nýja, en aðrir munu
örugglega fagna því, það gamla
kannski orðið lúið eftir margítrek-
aða spilun, eða þá bara hægt að
gefa það nýja. Bót er í máli að við-
hafnarútgáfa þessi er ekki seld á
mynddiskaverði heldur á verði
plötunnar, sem er 2.399 kr. fullt
verð en t.a.m. 1999 kr. í netverslun
Skífunnar.
Írafár á mynddiski
Metsöluplata í hljóði og mynd –
Allt sem þið sjáið.