Morgunblaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 36
!"
#$
%
"
&
'
"
(
"
)
$!
!
"
#
$%
& '
( !)
"
* #
( #
+
,-
./01
2303
104
305
.04
.06
207
207
203
205
208
607
601
605
NÆRRI sex af hverjum tíu kjósend-
um telja að skatta- og velferðarmál
ráði mestu um hvaða flokk þeir kjósa
í komandi þingkosningum, sam-
kvæmt skoðanakönnun Félagsvís-
indastofnunar Háskóla Íslands sem
gerð var fyrir Morgunblaðið dagana
6. til 11. apríl síðastliðinn. Rúm 30%
svarenda í könnuninni nefndu skatta-
mál og tæp 28% nefndu félagslega
velferð, þ.e. húsnæðismál, mennta-
mál, heilbrigðismál, velferðarkerfið
og málefni aldraðra, öryrkja og ungs
fólks.
Næstu málefni þar á eftir eru sjáv-
arútvegsmál og kvótakerfið, sem
8,5% svarenda nefndu, efnahagsmál
nefndu 7,6%, atvinnumál 3,5%,
frammistöðu ríkisstjórnar og stjórn-
málaflokka nefndu 3,1% og athygli
vekur að einungis 1,9% nefndu utan-
ríkismál og 1,8% Evrópumál.
Í könnuninni var spurt: Hvaða
málefni mun ráða mestu um hvaða
flokk eða lista þú munt kjósa í næstu
alþingiskosningum? Nefndu rúm
80% svarenda eitthvert málefni en
rúm 10% voru óákveðin.
Séu svör fólks skoðuð eftir stuðn-
ingi við flokka, og þau þrjú málefni
sem oftast voru nefnd, kemur í ljós að
meðal kjósenda Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks nefndu hlutfalls-
lega flestir skattamál, eða 40,5%
sjálfstæðismanna og 26,9% fram-
sóknarmanna. Meðal kjósenda Sam-
fylkingarinnar og Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs, VG, nefndu
flestir félagslega velferð, eða rúm
42% samfylkingarfólks og 41,3%
kjósenda Vinstri grænna. Nærri sex
af hverjum tíu kjósendum Frjáls-
lynda flokksins nefndu oftast sjávar-
útvegsmál og kvótakerfið, eða 57,1%.
Könnunin var sem fyrr segir gerð
dagana 6. til 11. apríl. Félagsvísinda-
stofnun studdist við 1.200 manna
slembiúrtak úr þjóðskrá sem náði til
allra landsmanna á aldrinum 18–80
ára. Nettósvörun var 66,5%, 20%
neituðu að taka þátt í könnuninni og
ekki náðist í 13,5% úrtaksins.
Könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið
Skatta- og velferðarmál
skipta kjósendur mestu máli
Áhersla á/6
LÁRA Diego Martin sem búsett er á Írlandi en
hefur fram að þessu haft íslenskt vegabréf fær
það ekki endurnýjað þar sem faðir hennar, sem
er bandarískur ríkisborgari, og móðir, sem er
íslensk, voru gift þegar hún fæddist. Samkvæmt
lögum sem í gildi voru þá tilheyrir hún ríkis-
fangi föður en hefðu þau ekki verið gift væri
hún íslenskur ríkisborgari. Íslenskt vegabréf
Láru rennur út í maí á þessu ári og verður hún
þá án ríkisfangs, að eigin sögn. Sjálf segist hún
aldrei hafa haft annað ríkisfang en íslenskt.
Lára flutti til Bandaríkjanna þegar hún var
kornabarn en bjó síðar um árabil hér á landi,
giftist íslenskum manni og eignaðist tvö börn
sem eru íslenskir ríkisborgarar. Undanfarna
tæpa tvo áratugi hefur hún búið erlendis, fyrst í
Bandaríkjunum og nú síðast á Írlandi þar sem
hún býr ásamt bandarískum eiginmanni.
Þegar Lára spurðist fyrir um endurnýjun á
vegabréfi í gegnum sendiráð Íslands í Lund-
únum í febrúar fékk hún þau svör frá dóms-
málaráðuneyti að hún gæti ekki fengið íslenskt
vegabréf þar sem hún hefði ekki íslenskan rík-
isborgararétt. Faðir hennar væri bandarískur
ríkisborgari og hún því með bandarískan rík-
isborgararétt. Lára segist hafa haft atvinnu- og
dvalarleyfi í Bandaríkjunum (Græna kortið) en
aldrei verið með bandarískan ríkisborgararétt
og aldrei annað ríkisfang en íslenskt.
Fanney Óskarsdóttir, lögfræðingur hjá dóms-
málaráðuneytinu, segir að svo virðist að það
hafi viðgengist á árum áður að fólk fengi ís-
lenskt vegabréf, t.a.m. út á móður, án þess að
það væri kannað sérstaklega hvort viðkomandi
ætti rétt á því. Í dag séu allar skráningar hjá
Hagstofu fullkomnari og hægt að rekja hvort
foreldrar hafi verið í hjúskap og hvort viðkom-
andi hafi fengið íslenskan ríkisborgararétt á
grundvelli laga hverju sinni. Hún segir þó að
nokkur slík mál komi upp af og til í ráðuneytinu
þar sem fólki sé synjað um ríkisborgararétt á
grundvelli laga sem voru í gildi við fæðingu við-
komandi.
Fanney segir að Lára geti hugsanlega sent
Alþingi umsókn um ríkisborgararétt.
Á íslenska móður og tvö íslensk börn en fær ekki endurnýjun á vegabréfi
Ekki íslensk því móðirin var gift
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 14. APRÍL 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Smáralind - Glæsibæ
ÞEIR voru ekki háir í loftinu listamennirnir
sem handmáluðu páskaegg að sænskum sið í
kjallara Norræna hússins á laugardaginn. Þar
bauð Sænska félagið krökkum sem eiga
sænska foreldra í páskaföndur og var afrakst-
urinn ýmiss konar skreytingar. Þær eiga síðan
eflaust eftir að prýða heimili krakkanna í
páskavikunni.
Agnes Davíðsdóttir var ein þeirra sem mál-
uðu páskaegg í Norræna húsinu. Sjálf var hún
fallega máluð í andliti og brosti sínu blíðasta
til ljósmyndarans.
Morgunblaðið/Kristinn
Ungir listamenn mála páskaegg
LÖGREGLAN í Reykjavík
kannar nú ásakanir sem komið
hafa fram gegn einum einka-
reknum leikskóla í borginni um
að forsvarsmenn hans hafi látið
líta svo út að börn hafi verið
fleiri tíma í leikskólanum en
þau voru í raun og veru. Með
þeim hætti fékk skólinn hærri
greiðslur en honum bar.
Þetta staðfesti Bergur Felix-
son, framkvæmdastjóri Leik-
skóla Reykjavíkur, í gær en
stofnunin lét lögreglu vita af
ásökununum. Hann segir rann-
sókninni ekki lokið og í raun lít-
ið hægt að segja um málið á
þessu stigi. Slíkar ásakanir séu
einsdæmi í Reykjavík. Hugsan-
lega sé einungis um að ræða
óreiðu í bókhaldi en ekki með-
vituð svik.
Lögregla
kannar
meint svik
á leikskóla
BILUN varð í orkustöð Orkuveitu
Húsavíkur í síðustu viku er rafmagn
fór af bænum aðfaranótt þriðjudags
og standa viðgerðir enn yfir. Á meðan
fá Húsvíkingar rafmagn frá RARIK.
Að sögn Sigurpáls Ásgeirssonar
stöðvarstjóra bilaði túrbína vegna
mikillar tæringar og verður ákvörðun
tekin á næstu dögum til hvaða úrræða
verður gripið. Gæti sá kostnaður
numið frá nokkrum milljónum upp í
nokkra tugi milljóna króna, allt eftir
því hvað orkustöðinni verður ætlað að
afkasta miklu í framtíðinni.
Orkustöðin á Hrísmóum er varma-
aflsstöð og á sér vart hliðstæðu á
heimsvísu. Þangað er leitt yfirhitað
vatn, um 120°C, í 16 km langri pípu
frá Hveravöllum í Reykjahverfi og er
það svo „kælt“ niður í 80°C til afhend-
ingar á hitaveitukerfi bæjarins. Við
kælinguna er varminn nýttur til raf-
orkuframleiðslu fyrir bæjarbúa.
Þessari tækni hefur verið beitt síðast-
liðin ár og segir Sigurpáll nokkra
„barnasjúkdóma“ hafa komið upp
vegna tæringarvandamála, sem von-
andi verði nú endanlega ráðin bót á.
Hann segir viðgerðina hafa gengið vel
en nú sé komið að ákvarðanatöku um
framhaldið.
Tjón vegna
bilunar í
orkustöð
Húsvíkinga
ÍSLENDINGAR taka þátt í
uppbyggingarstarfinu í Írak
þegar það hefst og er gert ráð
fyrir að allt að fimm manns
verði sendir þangað til
skemmri tíma. Finnbogi Rútur
Arnarson, sendifulltrúi í utan-
ríkisráðuneytinu, segir að ekki
standi til að senda íslenskt frið-
argæslulið til Íraks alveg strax.
Verið sé að vinna á þeim nótum
í samvinnu við alþjóðastofnan-
ir. Bandaríkjamenn segja að
mikil þörf sé m.a. á lögreglu-
mönnum, læknum, hjúkrunar-
fræðingum og verkfræðingum.
Ísland að-
stoðar Íraka