Morgunblaðið - 23.04.2003, Page 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Allt frá grunni að góðu heimili
Allt í pallinn og girðinguna
Nú er rétti tíminn til að komu öllu í lag fyrir vorið. Verslanir okkar eru hlaðnar af vörum á frábæru verði, málningu, gólfefnum,
hreinlætistækjum og öllu því sem til þarf þegar gefa á heimilinu nýtt og ferskt yfirbragð. Við höfum líka í huga að margir ætla að
halda fermingarveislu á næstunni og ekki má gleyma fermingargjöfunum: Þær eru frábærar í Húsasmiðjunni.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
20
78
7
0
4/
20
03
Muna:
klára pa
llinn
og girða
Pallaolía 3 lítrar
Verð 1.290 kr.
Pallaefni, a-gagnvarin fura
Vörunúmer Stærð Verð áður Verð nú
628600 28x95mm 168 kr. 134 kr.
648600 48x98mm 210 kr. 164 kr.
648800 48x148mm 316 kr. 258 kr.
698600 98x98mm 427 kr. 348 kr.
Sívalir girðingarstaurar, gagnvarðir
Vörunúmer Þvermál Lengd Verð
600002 50 mm 120 sm 144 kr./stk.
600004 50 mm 150 sm 179 kr./stk.
600006 50 mm 180 sm 188 kr./stk.
600008 70 mm 180 sm 215 kr./stk.
600010 120 mm 2.7 m 1.147 kr./stk.
600011 140 mm 2.7 m 1.848 kr./stk.
Gjörið svo vel, nú er komið að bláu höndinni að veita kosningaráðgjöfina.
Vatnaskógur áttræður
Vatnaskógur er
strákastaður
UM þessar mundireru áttatíu ár síð-an sumarbúðir
KFUM í Vatnaskógi voru
stofnsettar og síðan hef-
ur mikið vatn runnið til
sjávar og þeir skipta
mörgum þúsundum Ís-
lendingarnir sem tengst
hafa Vatnaskógi órofa
böndum. Eitt og annað er
á döfinni í tilefni þessara
tímamóta og til að for-
vitnast um sitthvað af því
ræddi Morgunblaðið við
Ólaf Sverrisson formann
stjórnar Vatnaskógar.
– Segðu okkur fyrst að-
eins forsöguna að stofnun
Vatnaskógar og sam-
tvinnun við KFUM.
„KFUM-drengir úr
Reykjavík komu fyrst í
Vatnaskóg fyrir áttatíu árum
eða árið 1923 en þá var gist í
tjöldum og aðbúnaður allur hinn
frumstæðasti. Fljótt vaknaði þó
áhugi á að bæta aðstöðuna og
þess vegna var stofnuð deild
innan KFUM sem kallast Skóg-
armenn KFUM. Stjórn þeirrar
deildar heldur utan um alla
starfsemina í Vatnaskógi.“
– Hvað hefur helst breyst á
áttatíu árum?
„Árið 1943 var vígður 700 fer-
metra skáli sem enn stendur
fyrir sínu. Síðan hafa bæst við
mörg mannvirki í Vatnaskógi
sem öll miða að því að gera að-
stöðuna enn betri. Þar má nefna
stórt íþróttahús, íþróttasvæði
með frjálsíþróttaaðstöðu og
þremur grasvöllum, bátaskýli,
matskála, kapellu, nýja svefn-
skála og fyrir nokkrum árum
fengum við hitaveitu á staðinn
sem gjörbreytti aðstöðunni. Í
fyrsta hópnum sem kom í
Vatnaskóg voru 19 drengir. Þeir
dvöldu þar í tvær vikur. Nú
dvelja liðlega 6.000 manns í
Vatnaskógi á hverju ári og er
starfsemin í gangi allt árið.
Fyrst í stað takmarkaðist
starfsemin við lítinn skika í
Vatnaskógi, svonefnt Lindar-
rjóður. Með samningi við Skóg-
rækt ríkisins árið 1949 fengum
við afnot af öllum skóginum, alls
220 hekturum. Þá hófst líka
skipulögð skógrækt í Vatna-
skógi og þess njótum við í dag.“
– Hvað á að gera í tilefni af-
mælisins?
„Árlega gefum við út blað sem
heitir Lindin og er það sent til
allra Skógarmanna en svo nefn-
ast þeir sem dvalið hafa í flokki í
Vatnaskógi. Í ár er blaðið til-
einkað afmælinu og er það
óvenju glæsilegt fyrir vikið.
Um verslunarmannahelgar
höldum við útihátíð í Vatnaskógi
sem við köllum Sæludaga. Á
Sæludögum 2003 verður 80 ára
afmælisins minnst sérstaklega
sunnudaginn 3. ágúst, en þann
dag eru nákvæmlega 80 ár síðan
fyrsti flokkurinn lagði
af stað fótgangandi í
Vatnaskóg.“
– Hvað eru Skógar-
menn margir í dag?
„Þeir eru um 17.000
talsins.“
– Hvað eru margir í
Vatnaskógi á hverju sumri?
„Um eitt þúsund drengir eru í
hefðbundnum dvalarflokkum
sem eru yfirleitt vikulangir, um
80 unglingar, strákar og stelpur,
taka þátt í unglingaflokki og um
300 feðgar eða feðgin í sérstök-
um helgarflokkum. Svo koma
iðulega yfir þúsund manns á
Sæludaga. Þess utan koma í
Vatnaskóg á hverju ári liðlega
2.000 fermingarbörn ásamt
prestum sínum, um 500 leik-
skólabörn á vorin og aðrir gestir
skipta hundruðum.“
– Eru dæmi um að sömu
krakkar komi ár eftir ár?
„Já, það er mjög algengt. Það
er ekki bara staðurinn sem
heillar. Starfsfólkið okkar er yf-
irleitt á aldrinum 18 til 25 ára og
er vant að umgangast börn og
unglinga í starfi KFUM og
KFUK. Starfsfólkið nær yfir-
leitt mjög vel til krakkanna. Það
er líka mörgum drengjum
skemmtileg nýlunda að leiðbein-
endur þeirra skuli vera ungir
karlmenn.“
– Koma eldri Skógarmenn
saman þarna á góðum stundum?
„Já, eldri Skógarmenn koma
gjarnan í Vatnaskóg til að vinna
þar í sjálfboðavinnu en staður-
inn hefur að lengmestu leyti
verið byggður upp af sjálfboða-
liðum og fyrir framlög vel-
unnara. En svo koma eldri
Skógarmenn líka í Vatnaskóg til
þess að njóta staðarins og eiga
uppbyggilegar stundir með
gömlu félögunum í karlaflokki,
með sonunum í feðgaflokki, með
dætrunum í feðginaflokki og
með fjölskyldunni í fjölskyldu-
flokki, nú eða á Sæludaga um
verslunarmannahelgi.“
– Hvað er það sem gerir
Vatnaskóg svo sérstakan í hug-
um Skógarmanna?
„Vatnaskógur er
strákastaður. Það er
fjölbreytt dagskrá á
hverjum degi, leikur,
grín og gaman. En
kannski er það fyrst
og fremst það, að í
Vatnaskógi eru kristin
gildi í hávegum höfð og það mót-
ar daglegt líf þar. Við kennum
krökkum að biðja til Guðs og að
nota Nýja testamentið sitt. Það
reynist mörgum vel síðar á lífs-
leiðinni. Við höfum fáar og ein-
faldar reglur sem eiga að
tryggja að öllum líði vel á staðn-
um en hefta orkuríka krakka
sem minnst. Í Vatnaskógi fá
drengir að vera strákar!“
Ólafur Sverrisson
Ólafur Sverrisson fæddist í
Reykjavík 1965. Hann er véla-
verkfræðingur frá Háskóla Ís-
lands með meistaragráðu frá
Tækniháskólanum í Kaupmanna-
höfn. Starfar nú hjá Jarðbor-
unum hf. en þar áður hjá verk-
fræðideild Flugleiða. Maki er
Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir
sjúkraþjálfari og tölvunarfræði-
nemi. Þau eiga þrjú börn, Grímu,
Dag og Mirru. Ólafur hefur tekið
þátt í starfi KFUM í Vatnaskógi
frá unga aldri og verið formaður
stjórnar Vatnaskógar frá 1999.
… í Vatna-
skógi eru
kristin gildi í
hávegum
höfð