Morgunblaðið - 23.04.2003, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 9
Forsala mi›a og bor›apantanir alla virka daga
kl. 13:00-19.00.
Sími 533 1100 - fax 533 1110
www.broadway.is - broadway@broadway.is
Hvítar síðbuxur
Stuttbuxur - margir litir
Kvartbuxur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Opið lauardag kl. 10-16
www.oo.is
0-3ja ára
Ungbarnafötin
fást hjá okkur
BARNAVÖRUVERSLUN
Eftirlit með Kárahnjúkavirkjun
Bauð 1,6 milljarða
LANDSVIRKJUN hefur opnað til-
boð í eftirlit með byggingarfram-
kvæmdum við Kárahnjúkavirkjun.
Tvö tilboð bárust og var lægra til-
boðið frá Mott McDonald, Norcon-
sult AS, Sweco International AB,
Línuhönnun hf., Hnit hf., Fjarhitun
hf. og Coyne et Bellier. Tilboðsupp-
hæð var 1.648 milljónir.
Eftirlitið nær yfir verk sem varða
stíflurnar við Kárahjúka, aðrennsl-
isgöng og göng að Jökulsá í Fljóts-
dal. Tvö tilboð bárust frá fyrirtækja-
hópum sem tóku þátt í útboðinu að
undangengnu forvali í vetur. Nefnd á
vegum Landsvirkjunar hefur undan-
farnar vikur farið yfir gögn um
hæfni og reynslu bjóðendahópanna
og tillögur um mönnun eftirlitsins og
gefið þeim einkunn fyrir.
Mott McDonald, Norconsult AS,
Sweco International AB, Línuhönn-
un hf., Hnit hf., Fjarhitun hf. og
Coyne et Bellier fengu 88 stig í ein-
kunn, en fyrirtækjahópur sem
myndaður er af Lahmeyer Inter-
national, VSÓ, Almenna verkfræði-
stofan, Hönnun hf. og Rafhönnun hf.
fékk 85 stig í einkunn. Tilboð seinni
hópsins var upp á 1.985 milljónir.
Kínaferðinni aflýst
KÍNAKLÚBBUR Unnar hefur af-
lýst ferð sem fyrirhuguð var með níu
ferðamenn til Kína hinn 8. maí sökum
bráðalungnabólgu (HABL) þar í
landi. Í gær staðfestu kínversk yfir-
völd að heilbrigðiskerfi landsbyggð-
arinnar ætti í erfiðleikum með að ráða
við sjúkdóminn.
„Ég aflýsti í gærmorgun [fyrradag]
og fólkið tók því vel. Það sem gleður
mitt vesæla hjarta núna er að enginn
úr hópnum hafði hætt við. En þótt
fólkið mitt hefði viljað fara hefði það
kannski ekki slappað almennilega af.
Það væri uggur í því. Eins og málin
eru orðin fannst mér ekki annað koma
til greina en að slá af,“ sagði Unnur
Guðjónsdóttir hjá Kínaklúbbnum.
Unnur sagði enn fremur að allir
sem áttu pantað í ferðina hefðu
ákveðið að skella sér til Kína í haust í
staðinn en önnur ferð verður farin
hinn 5. september.
Unnur sagðist hafa spjallað við
ferðafélaga sína á kínverskum nótum
og allir hefðu samþykkt að aflýsa.
„Nú lítum við á björtu hliðarnar og
eyðum vorinu hér á Íslandi og hlökk-
um til sumarsins í Kína í september,“
Unnur hefur lagt mikla vinnu í und-
irbúning og til að mynda pantað
hverja einustu máltíð þá 23 daga sem
ferðin átti að standa yfir. Unnur sagði
að henni hefði þó tekist að aflýsa öllu
með tölvupósti.
Polyolverksmiðja
Hráefni nýtt
m.a. í plast-
framleiðslu
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að
kannað skuli hvort unnt sé að reisa
verksmiðju á Húsavík þar sem svo-
kallað polyol verður unnið úr sykri en
30 milljónir króna verða lagðar í verk-
efnið. Polyol er samnefnari yfir nokk-
ur efni sem unnin eru úr sykri. Aðal-
lega er um að ræða efnin Etýlen
glýcól, Própýlen glýcól og Glýceról.
Efnin eru meðal annars nýtt sem hrá-
efni fyrir plastframleiðslu, einnig er
unninn úr þeim frostlögur og ýmis-
konar pólíesterþræðir auk þess sem
þau eru notuð í matvæli, lyf og snyrti-
vörur. Efnin hafa hingað til ekki verið
unnin úr sykri en það hefur til dæmis
þá kosti að þá er unnið með endurnýt-
anlegt hráefni. Glýseról hefur til
þessa aðallega verið framleitt úr
jurta- og dýrafitu en Etýlen glýcól og
Própýlen glýcol eru fyrst og fremst
framleidd úr jarðgasi.
alltaf á föstudögum