Morgunblaðið - 23.04.2003, Page 16

Morgunblaðið - 23.04.2003, Page 16
Morgunblaðið/RAX BJÖRN Steinbjörnsson, héraðsdýralæknir í Austurlandsumdæmi nyrðra og doktor í dýra- lækningum, segir nauðsynlegt að vinna að rannsóknum á íslenska hestinum á breiðum grundvelli, einkum á sumarexemi, áður en veitt sé frekari fjámunum í markaðssetningu hans. Þá sé afar mikilvægt að grípa í taumana hvað markaðssetningu snerti og að íslenski hesturinn verði fyrst og fremst markaðs- settur sem fjölskylduvænn, eins og áður tíðk- aðist, en ekki sem keppnishestur. Stjórnvöld kynntu á dögunum samkomulag um átaksverkefni til kynningar og markaðs- setningar á íslenska hestinum. Stefnt er að því að ráða í stöðu umboðsmanns íslenska hestsins, í tengslum við verkefnið. Björn Steinbjörnsson segir að búið sé að eyðileggja ímynd íslenska hestsins á erlendri grund vegna þess að ekki hafi verið gripið til ráðstafana vegna sumarexems. Þar sé um að kenna stjórnvöldum og hrossaræktendum og embætti umboðsmanns breyti þar litlu um. „Staðan er þannig í dag erlendis að þar er vöntun á fjölskylduhestum. Það væri hægt að selja þúsundir hrossa frá Íslandi ef við gætum tekið okkur saman í andlitinu og leyst þessi vandamál sem hefur verið sópað undir tepp- ið.“ Björn bendir á að rannsóknir á sumarexemi séu mjög langt komnar í Þýskalandi en þar er komið á markað ofnæmispróf sem segir fyrir um hvort hesturinn geti fengið sumarexem, bronkítis og fleiri ofnæmistengda sjúkdóma. Hann segist hafa bent á það í nokkurn tíma að hægt væri að þróa prófið hér á landi einnig. Jón Albert Sigurbjörnsson, stjórnar- formaður Landssambands hestamannafélaga, segir hestamenn sammála um að miklir at- vinnumöguleikar séu fólgnir í hestatengdri ferðaþjónustu og sölu á hestum. Nær væri þó að styðja betur við bakið á því markaðsátaki sem fyrir sé þar sem unnið sé að svipuðum verkefnum og þeim sem umboðsmanni ís- lenska hestsins sé ætlað að inna af hendi. Þannig séu mörg verkefni unnin innan ein- stakra félagasamtaka; átakaverkefni í hrossarækt ásamt öðrum verkefnum á vegum Hestamiðstöðvar Íslands í Skagafirði. Björn Steinbjörnsson dýralæknir um markaðssetningu íslenska hestsins Búið að eyðileggja ímynd íslenska hestsins FRÉTTIR 16 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ LÁGGJALDAFLUGFÉLAGIÐ Iceland Express hefur sent alvarleg- ar athugasemdir til samgönguráð- herra vegna afgreiðslu Ferðamála- ráðs ásamt stjórnsýslu ferðamálastjóra vegna samstarfs- verkefnis um markaðs- og kynning- armál erlendis. Iceland Express sótti um 41 millj- ónar króna framlag á móts við 50,5 milljóna króna framlag frá fyrirtæk- inu sjálfu vegna markaðsstarfs á Norðurlöndum, Bretlandi og Ítalíu. Umsókn fyrirtækisins var hafnað án sérstakra skýringa. Flugleiðir fengu hins vegar 159 milljónA króna styrk, sem eru 86% fjárhæðarinnar sem af- hent var. Samstarfsverkefnið var auglýst 7. febrúar og var umsóknarfrestur til 21. febrúar. Á þeim tíma áttu fyr- irtæki í ferðaþjónustu að skila áætl- unum um ráðstöfun rúmlega 400 milljóna króna í kynningarstarfsemi erlendis. Í erindi Iceland Express til sam- gönguráðherra kemur fram að fyr- irtækinu hafi þótt tímaramminn óeðlilega þröngur til að vinna að um- sókn eftir þeim kröfum sem farið var fram á. Sérstaklega með tilliti til þess að Flugleiðir hafi fengið upplýs- ingar um verkefnið í nóvember 2002. Þar með telur Iceland Express að Flugleiðir hafi haft forskot til að vinna umsókn sína í samræmi við af- ar strangar kröfur. Að auki hafi sfor- stöðumaður hjá Flugleiðum setið fund ferðamálaráðsins hinn 23. jan- úar þegar útfærsla markaðssam- starfsins var kynnt, tveimur vikum áður en aðrir umsækjendur fengu að heyra skilyrðin. Iceland Express telur einnig ámælisvert að framkvæmdastjóri ásamt forstöðumanni hjá Flugleið- um hafi tekið virkan þátt í undirbún- ingi og ákvarðanatöku varðandi samstarfsverkefnið með ferðamála- stjóra. Iceland Express telur tortryggi- legt að ferðamálastjóra skuli einum falið að meta umsóknir um samtals 400 milljóna króna ráðstöfun fjár- muna og ákveða einhliða með hverj- um yrði gengið til samstarfs. Á sama tíma hafi ferðamálstjóri ákveðið að úthluta tveimur aðilum, þýska flug- félaginu LTU og markaðsráði Norð- urlands, samtals 15 milljónum króna til flugferða yfir sumartímann, en þau uppfylli ekki ákvæði auglýsing- arinnar um að styrkja ferðaþjónustu um allt land á heilsárgrunni. Iceland Express tekur einnig fram að þrátt fyrir ósk um rökstuðn- ing vegna höfnunarinnar hafi ferða- málastjóri aðeins veitt almenn og ófullnægjandi svör. Ferðamálastjóri hafi einnig hundsað ítrekaðar óskir Iceland Express um upplýsingafund um verkefnin þar til tveir dagar voru eftir af upprunalegum umsóknar- fresti. Á sama tíma hafi ferðamála- stjóri átt samtöl við fjóra starfsmenn Flugleiða vegna umsókna fyrirtæk- isins, að því er hann hafi sjálfur upp- lýst í svarbréfi til Iceland Express. Iceland Express segist hafa byrj- að skipulag markaðssóknar í byrjun mars. Hinn 24. mars hafifyrirtækið sent Ferðamálaráði stutta saman- tekt um stöðu mála. Aðeins tveimur dögum síðar hafi Ferðamálaráð til- kynnt að Flugleiðir hefðu fengið mótframlög upp á 159 milljónir króna, en Iceland Express ekkert. Samkvæmt athugasemdum Ice- land Express óskar fyrirtækið nú eftir því að samgönguráðherra taki þessar athugasemdir til skoðunar, tryggi að farið sé að góðum stjórn- sýsluháttum og að tekið sé tillit til heildarhagsmuna íslensku ferða- þjónustunnar við ákvarðanir um samstarf í markaðsmálum. Erindi Iceland Express er til með- ferðar í samgönguráðuneytinu en lit- ið er á það sem stjórnsýslukæru. Iceland Express gagnrýnir afgreiðslu Ferðamálaráðs á styrkjum til markaðsmála Umsókn um styrk hafnað án skýringa FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ gerir í nýlegu áliti alvarlegar athuga- semdir við ýmis atriði er varða rekst- ur Þróunarfélags Vestmannaeyja, ÞV, og tengsl þess við Vestmanna- eyjabæ. Ekki er þó talin ástæða til að beita viðurlögum á grundvelli sveit- arstjórnarlaga en þess vænst að bæj- arstjórn Vestmannaeyja tilkynni ráðuneytinu hvaða aðgerðir hún muni fara í til að koma betra lagi á rekstur félagsins. Einnig er þess vænst að ráðuneytinu verði tilkynnt um leið- réttingar sem gerðar verði í ársreikn- ingi bæjarins fyrir árið 2002 vegna greiðslna, sem ráðuneytið hefur gert athugasemdir við, frá félagsíbúðum Vestmannaeyjabæjar til ÞV. Að sögn Andrésar Sigmundssonar, forseta bæjarstjórnar Vestmanna- eyja, íhugar meirihlutinn að fara með málið til efnahagsbrotadeildar ríkis- lögreglustjóra. Lesa megi út úr álit- inu að fara eigi þá leið í næsta skrefi. Andrés segir ákvörðun um þetta væntanlega verða tekna á fundi bæj- arráðs nk. mánudag þegar álitið kem- ur til umfjöllunar. Félagsmálaráðuneytið ákvað að taka málefni ÞV til skoðunar í árs- byrjun og tengsl félagsins við Vest- mannaeyjabæ. ÞV hóf starfsemi árið 1996 og var ætlað að efla jákvæða þróun atvinnustarfsemi í Eyjum. Vestmannaeyjabær á nú 80% hlut í félaginu en Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Eyjum 20%. Félagsmálaráðuneytið segir m.a. í áliti sínu að rekstur ÞV hafi verið í „verulegum ólestri“ árið 2001 og þó að kröfur hafi komið fram um úrbæt- ur hafi ekki verið gripið til aðgerða fyrr en síðla árs 2002. Voru þá gerðar úrbætur í bókhaldi félagsins og geng- ið frá ýmsum lausum endum í rekstr- inum, m.a. uppgjöri vegna vangold- inna vörsluskatta og launatengdra gjalda árin 2001-2002. Óheimilar ábyrgðir og bókhald ekki í samræmi við lög Athugun ráðuneytisins leiðir m.a. í ljós að bókhaldsmál ÞV hafi ekki ver- ið í samræmi við ákvæði laga um bók- hald. Jafnframt telur ráðuneytið að ársreikningur Vestmannaeyjabæjar hafi ekki verið í samræmi við ákvæði laga um ársreikninga og reglugerð um bókhald og ársreikninga sveitar- félaga, stofnana þeirra og fyrirtækja. Þá kemst ráðuneytið að þeirri niður- stöðu að bæjarstjórn Vestmannaeyja hafi verið óheimilt, samkvæmt sveit- arstjórnarlögum, að samþykkja ábyrgðir fyrir skuldbindingum ÞV. Félagsmálaráðuneytið gerir „al- varlega athugasemd“ við það að á ár- unum 2001 og 2002 hafi Vestmanna- eyjabær greitt 1,2 milljónir hvort ár til ÞV í gegnum félagslegar íbúðir bæjarins. „Ráðuneytið telur með öllu óeðlilegt að umræddar greiðslur hafi verið inntar úr bæjarsjóði án þess að sýnilegt framlag kæmi á móti. Þá hef- ur engin skýring verið gefin á því að greiðsla var einnig innt af hendi árið 2002, önnur en sú að heimild hafi ver- ið til þess í fjárhagsáætlun. Telur ráðuneytið ástæðu til að finna veru- lega að þessari framkvæmd og er nauðsynlegt að viðeigandi leiðrétting- ar verði gerðar hið fyrsta.“ Ráðuneytið bendir á að breytingar hafi orðið á eignarhaldi Þróunar- félagsins undanfarna mánuði og nýr meirihluti Vestmannaeyjalista og framsóknarmanna tekið við stjórn bæjarins. Samkvæmt því sem fram hafi komið sé óvíst hvort rekstri fé- lagsins verði haldið áfram í óbreyttri mynd. Telur ráðuneytið eðlilegt að sveitarfélagið fari vandlega yfir þá stöðu sem ÞV sé í, hugi að nauðsyn- legum breytingum og kanni afstöðu meðeiganda til þess hvort rekstrinum verði haldið áfram eða leyst upp. Andrés Sigmundsson segir álitið sýna berlega hversu alvarlegt mál sé á ferðinni. Kanna þurfi nánar við- skipti Þróunarfélagsins við ýmis fyr- irtæki og hvernig þeim peningum var ráðstafað sem komu úr félagslegu íbúðakerfi bæjarins til félagsins. Ekki sé heldur vitað nákvæmlega um fjár- streymið þar sem bókhaldið hafi týnst. Andrés telur eðlilegt að stærsti eigandi félagsins, Vestmannaeyja- bær, óski eftir frekari rannsókn þar sem mörgum spurningum sé enn ósvarað. Bæjarbúar eigi einnig kröfu á að vita með nákvæmari hætti hvern- ig fjármunum þeirra var varið. Félagsmálaráðuneytið skilar áliti um Þróunarfélag Vestmannaeyja Alvarlegar athugasemdir en viðurlögum ekki beitt Meirihluti bæjarstjórnar íhugar að leita til ríkislögreglustjóra 112 ÖKUMENN voru teknir fyrir of hraðan akstur í umferð- arátaki lögregluembættanna á Vesturlandi um páskana. Eng- inn var þó á ofsahraða að sögn lögreglunnar í Borgarnesi. Seg- ir hún jafnframt að fjöldi þeirra sem teknir voru hafi ekki verið meiri en búist hafði verið við. Átakið stóð yfir frá 16. til 21. apríl og urðu engin teljandi um- ferðaróhöpp á umræddu tíma- bili. Lögreglubílum við eftirlit var fjölgað úr tveimur í sex og tók á annan tug lögreglumanna þátt í átakinu. Ríkislögreglu- stjóri og lögreglan í Reykjavík lögðu verkefninu lið, auk lög- reglunnar á Akranesi, Snæ- fellsbæ, í Borgarnesi og Dölum. 112 teknir fyrir hrað- akstur UNGUR ökumaður, sem nýlega var kominn með bílpróf, velti bifreið á Norðausturvegi við bæinn Háls í Köldukinn í gærmorgun með þeim afleiðingum að hún lenti í skurði og skemmdist mikið. Bifreiðin fór að hluta ofan í vatn en piltinum og 9 ára gömlu barni, sem með honum var, tókst að komast út án teljandi meiðsla. Valt út í skurð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.