Morgunblaðið - 23.04.2003, Side 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 23
DUGA ÞÉR LAUN
11 MÁNUÐI ÁRSINS?
Samkvæmt gildandi reglum þurfa flestir sem tekið hafa lán hjá Lánasjóði íslenskra náms-
manna að greiða til baka sem nemur einum útborguðum mánaðarlaunum á ári til sjóðsins.
Lántakendur eru um 13% kjósenda og sá hópur fer stækkandi. Þeir munu hugsa um
ráðstöfunartekjur þegar þeir ákveða hvernig þeir verja atkvæði sínu á kjördag 10. maí.
Eftirfarandi samtök hafa tekið höndum saman um að berjast fyrir
léttari endurgreiðslubyrði námslána:
HVAÐ ÆTLAR ÞINN FLOKKUR
AÐ GERA Í MÁLINU?
Svör við þessari spurningu verða birt hér í blaðinu 5. maí.
• Bandalag háskólamanna (BHM)
• Bandalag íslenskra sérskólanema (BÍSN)
• BSRB
• Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH)
• Félag prófessora
• Félag unglækna
• Iðnnemasamband Íslands (INSÍ)
• Kennarasamband Íslands (KÍ)
• Kjarafélag Tæknifræðingafélags Íslands (KTFÍ)
• Lyfjafræðingafélag Íslands
• Prestafélag Íslands
• Samband íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE)
• Starfsmannafélag Ríkisendurskoðunar
• Stéttarfélag verkfræðinga (SV)
• Tannlæknafélag Íslands (TFÍ)
• Vélstjórafélag Íslands (VSFÍ)
ÓTTAST er, að veiran, sem veldur
bráðri lungnabólgu, muni stökk-
breytast mjög ört og vegna þess
verði það enn erfiðara en ella að
finna við henni bóluefni. Er það haft
eftir kínverskum vísindamönnum að
því er fram kemur á fréttavef BBC,
breska ríkisútvarpsins.
Það eru vísindamenn við Erfða-
fræðistofnunina í Peking, sem telja
ástæðu til að ætla, að veiran muni
stökkbreytast ört og aðrir óttast að
tilraunir til að hindra útbreiðslu
hennar mistakist. Talið er víst, að
veiran sé afbrigði af svokölluðum
„coronavirus“ og hafi hún „stokkið“
úr dýrum í menn í kínverska hér-
aðinu Guangdong. Hefur hún nú orð-
ið meira en 200 manns að bana, að-
allega í Kína, Kanada og Singapúr.
Smitleiðum hefur fjölgað
Dr. Adrin Mockett, sem hefur
unnið að framleiðslu bóluefnis fyrir
fugla, segir, að í dýrum hafi veiran
breyst þannig, að hún dreifist ekki
lengur bara með hósta, heldur einnig
með saur. Vegna þess getur mengað
vatn eða fæða einnig valdið sýkingu.
Vísindamenn óttast, að það sama
verði uppi á teningnum með lungna-
bólguveiruna í mönnum. Þar að auki
gæti hún stökkbreyst eða þróast
með ólíkum hætti í Ameríku, Asíu
eða Afríku og hugsanlegt bóluefni
við henni virkaði þá aðeins sums
staðar en annars staðar ekki.
Talið að erfitt verði að koma í veg fyrir útbreiðslu bráðrar lungnabólgu
AP
Kínverskur kennari brýnir fyrir börnum mikilvægi þess að þvo sér vel um hendur. Ljóst er nú orðið, að bráða
lungnabólgan er miklu útbreiddari í Kína en áður var talið og daglega er greint frá nýjum tilfellum þar og víðar í
Suðaustur-Asíu og á Indlandi. Í Kína er fjórðungur þeirra, sem sýkst hafa, starfsmenn heilsugæslunnar.
Óttast öra stökkbreytingu
lungnabólguveirunnar CHANDRIKA Kumaratunga, forsetiSri Lanka, skipaði í gær öryggissveit-
um landsins að vera við öllu búnar en
þá höfðu fulltrúar skæruliða, Tam-
ílsku tígranna, slitið viðræðum við
stjórnvöld um frið í landinu.
Tamílsku tígrarnir tilkynntu í
fyrradag, að þeir hefðu hætt viðræð-
um við stjórn Ranil Wickremesinghe
forsætisráðherra og sökuðu hana um
að hafa ekki staðið við gefin fyrirheit.
Er nú búist við að ekkert verði af
næstu lotu viðræðnanna en hún átti
að fara fram í Taílandi 29. apríl.
Erlendir sendimenn í Colombo,
höfuðborg Sri Lanka, telja margir, að
Tígrarnir hugsi yfirlýsinguna um
viðræðuslitin sem leikfléttu en óttast,
að hún geti haft alvarlegar afleiðing-
ar. Hugsast geti, að ríkisstjórnin taki
þá á orðinu auk þess sem þeir muni
glata þeirri alþjóðlegu velvild, sem
þeir áunnu sér er þeir féllust á við-
ræður í september síðastliðnum.
Norðmenn, sem hafa haft milligöngu í
viðræðunum, vonast til að þær geti
hafist aftur og þeir benda á, að Tígr-
arnir hafi ekki rofið eða sagt upp
vopnahléinu sem er í gildi.
Kumaratunga forseti, sem hefur
ekki verið alls kostar sátt við viðræð-
ur ríkisstjórnarinnar við skæruliða,
bendir á, að þetta sé raunar í fjórða
sinn sem Tamílsku tígrarnir slíta frið-
arviðræðum frá árinu 1985 og það
hafi þeir alltaf gert af lítilli ástæðu.
Þótt vopnahlé ríki enn á milli Tígr-
anna og stjórnarhersins þá hafa verið
vaxandi átök milli þeirra og múslíma,
sem eru annar stærsti minnihluta-
hópurinn á eftir Tamílum.
Viðræðu-
slit á Sri
Lanka
Colombo. AFP.