Morgunblaðið - 23.04.2003, Síða 28

Morgunblaðið - 23.04.2003, Síða 28
LISTIR 28 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ „MAÐUR verður eitthvað að lesa – annars verður maður ekki nema magi og munnur“, ritaði Stephan G. Stephansson í bréfi til vinar síns. Í þessu felst sá skilningur á bókinni að hún sé lífsnauðsyn og beri auk þess í sér verðmætin sem taka við þegar brýnustu þörfum til lífs er fullnægt. Bókin er tilfinningum okkar og vitsmunum það sem fæð- an er líkamanum. Við lesum til að mennta okkur og fræðast um hvað sem okkur dettur í hug. En við les- um líka til að hverfa inn í annan heim, næra tilfinningar okkar, komast til skilnings á okkur sjálf- um, ná tökum á flóknum veru- leikanum sem við hrærumst í. Þessi Dagur bókarinnar er helg- aður ævisögum og barnabók- menntum, sem virðast í fljótu bragði ekki eiga margt sameig- inlegt, nema það hvað bernskan er fyrirferðarmikil í mörgum ævisög- um, ekki síst sjálfsævisögum. Bókin er sá miðill sem menn leita til þegar þeir vilja gera upp liðna ævi, rétta hlut sinn, skýra breytni sína fyrir sjálfum sér og öðrum. Nýjasta af- brigði ævisögunnar er „bloggið“ eða vefdagbókin, þar sem fólk skrifar á netið lýsingu á ævi sinni og hugleiðingum svo að segja jafn- harðan. Þetta er vitanlega ósam- bærilegt við listræna ævisögu á bók, þar sem sérstökum heimi er brugðið upp fyrir lesendum og hið almenna speglað í hinu einstaka. Dæmi um slíkt verk sem hefur ný- lega verið endurútgefið, að vísu nokkuð stytt, er Fátækt fólk eftir Tryggva Emilsson verkamann. Þetta er lýsing á bernsku fátæks drengs á Akureyri á fyrstu áratug- um síðustu aldar. Einkenni þess- arar ævilýsingar, svo átakanleg sem hún er, er ríkur mannsskilningur, líka gagnvart þeim sem beita drenginn hörðu, og einstök skáldskap- arlist í atburða- og náttúrulýsingum. Það eru þessi skáldskap- artök sem brúa bilið í næstum heila öld til okkar sem nú lifum og valda því að fólk við allt aðrar aðstæður, jafnvel hinum megin á hnettinum, getur sett sig í spor persónanna. Margar barnabækur hafa líka skírskotun langt út fyrir hið þrönga söguefni. Bestu barnabækurnar eru þær sem gleðja unga lesendur og skemmta þeim, koma til móts við þá á sínum eigin forsendum en ganga um leið á hólm við veruleikann, jafnvel það sem erfitt er að festa hönd á eða horfast í augu við. Eitt nafn kemur upp í hugann öðrum fremur: Astrid Lindgren, barnabókahöfundurinn ástsæli sem lést 28. janúar á síðasta ári. Bækur hennar eru gerðar með þeim galdri að þær höfða til barna á öllum sviðum: til lífsgleði þeirra, kímnigáfu, nýjungagirni og fróð- leiksþorsta. Þær víkja sér ekki heldur undan því sem er erfitt: ein- semd, ástleysi, veikindum, því að horfast í augu við dauðann. Þarna kem- ur líka til skjalanna galdur hins vandaða skáldskapar, sem er þess megnugur að draga fram úr djúp- unum efni sem verða ekki höndluð með öðru móti. Það er ein- mitt einkenni þessa höfundar að hún virð- ir unga lesendur þess að leika fyrir þá á allt tónsvið ímyndunar- afls og dramatískrar framsetningar. Bæk- ur hennar veita einnig sýn á hið félagslega umhverfi, höfða til réttlætiskenndar hinna ungu lesenda og gefa þeim, án þess að einfalda um of, tilfinningu þess að hægt sé að breyta veröldinni. Margir hafa talað um að dagar bókarinnar séu taldir. Aðrir, mynd- rænir miðlar séu komnir í hennar stað og muni leysa hana af hólmi. En þessu meginhlutverki bókanna sem ég hef drepið á getur enginn annar miðill gegnt. Endursögn á efni þeirra á öðrum vettvangi verð- ur eins og hvert annað flatt og hjá- róma bergmál. Gamla spakmælið „Bók er best vina“ er enn í fullu gildi. Og ég vil bæta öðru við: „Ekki kemur blogg í bókar stað!“ Alþjóðadagur bókarinnar, 23. apríl, er hald- inn hátíðlegur víða um heim að frumkvæði UNESCO, Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Þorleifur Hauksson íslenskufræð- ingur hefur samið Ávarp Dags bókarinnar 2003 að beiðni Bókasambands Íslands. Þorleifur Hauksson Á Degi bókarinnarTúlípanafallhlífarer ný ljóðabók eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sem kemur út í dag á Degi bók- arinnar hjá JPV- útgáfu Túlípana- fallhlífar skiptist í fjóra kafla og er 73 blaðsíður að stærð. Þetta er þriðja ljóðabók Sigurbjargar en fyrsta bók hennar, Blálogaland, kom út árið 1999, en fram að því hafði hún hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir ljóð sín og sögur, m.a. hjá Ríkisútvarpinu og Stúdentablaðinu. Ári síðar kom út ljóðabókin Hnattflug sem hlaut góðar viðtökur og var valin „besta ljóðabók vertíðarinnar“ af starfsfólki bókaversl- ana. Þýðingar á ljóðum Sigurbjargar hafa birst í skoskum, ítölskum og þýskum bókmenntatímaritum, auk ljóðasafna í Svíþjóð og Tékklandi. Hún var skáld Skírnis í hausthefti 2001 og á meðal annars ljóð í safnbókunum Bók í mannhafið og Líf í ljóðum. Ljóðamyndverk eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur eru nú til sýnis í gall- eríinu Project Room í Glasgow. Þar stendur yfir Vistas II, samsýning ungra listamanna frá Danmörku, Kan- ada, Svíþjóð og Skotlandi, og var Sig- urbjörgu boðið að taka þátt í sýning- unni með verkum byggðum á eigin textum. Um er að ræða ljóð á stólpa og handunna bók með enskum þýð- ingum frumsaminna ljóða. Fyrsta skáldsaga Sigurbjargar, Sól- ar saga, kom út haustið 2002 og fjallar um unga stúlku sem gengur í gegnum erfiða lífsreynslu á Ítalíu en reynir að finna öryggið aftur á sér- stæðan hátt. Fyrir handrit bókarinnar hlaut Sigurbjörg Bókmenntaverðlaun Reykjavíkurborgar, sem kennd eru við Tómas Guðmundsson, árið 2002. Leikfélag Akureyrar frumsýndi leik- verkið Maður & kona: Egglos eftir Sig- urbjörgu fyrr á þessu ári. Sigurbjörg Þrastardóttir (1973) er fædd og uppalin á Akranesi og starfar sem blaðamaður á Morgunblaðinu meðfram ritstörfum. Jón Ásgeir hannaði útlit ljóðabók- arinnar og kápu en Svansprent prent- aði. Ljóð Ristavél er eftir danska rithöfund- inn Jan Sonner- gaard í þýðingu Hjalta Rögnvalds- sonar. Ristavél er smá- sagnasafn sem lýsir lífi ungs und- irmálsfólks í Kaupmannahöfn samtímans, rót- leysi, óstöðugu umhverfi og þrá þess eftir sambandi og merkingu. Þegar bókin kom út í Danmörku árið 1999 hlaut hún afbragðsgóðar viðtökur og hefur selst í óvenjustóru upplagi þar í landi, segir í fréttatilkynningu. Útgefandi er bókaútgáfan Bjartur og kemur bókin út í neon-flokki for- lagsins. Bókin er prentuð í Gutenberg hf. en kápuna hannaði Snæbjörn Arn- grímsson. Verð: 1.880 kr. Smásögur NÚ standa yfir vortónleikar hjá tónlistardeild Listaháskóla Íslands og eru tónleikar eftir- farandi: Fimmtudagur: Hráisalur kl. 20 Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðla, Melkorka Ólafsdóttir, flauta, Ragnheiður Bjarnadóttir, pí- anó. Föstudagur: Flyglasalur kl. 16 Barokktónleikar. Nemendur tónlistardeildar leika og syngja verk frá barokktímanum. Sunnudagur: Hráisalur kl. 20 Hafdís Vigfúsdóttir, flauta, Sigrún Erla Egilsdóttir, selló, Páll Ivan Pálsson, tónsmíðar, Guðmundur Steinn Gunnars- son, tónsmíðar. Vortón- leikar í LHÍ má þar meðal annars nefna lög eins og The Pink Panther, Moonlight Serenade og Do nothin’ till you hear from me (sem Robbie Williams vakti aftur til lífsins fyrir skömmu). Stjórnandi lúðrasveitarinnar er Stefán Ómar Jakobsson. Tónleikarn- ir hefjast klukkan 20 og aðgangur er ókeypis. LÚÐRASVEIT Hafnarfjarðar ætl- ar að kveðja veturinn með stórsveit- artónleikum og ekta kaffihúsa- stemmningu síðasta vetrardag, miðvikudaginn 23. apríl. Tónleikarn- ir verða haldnir í veislusalnum Turn- inum á 7. hæð í verslunarmiðstöðinni Firði (Norðurturni). Á dagskránni verða nokkrar sígildar jazzperlur, Vortónleikar Lúðra- sveitar Hafnarfjarðar VIKA bókarinnar hefst í dag, miðvikudag, á Alþjóðadegi bók- arinnar, og stendur til þriðju- dagsins 29. apríl. Yfirskrift vikunnar er að þessu sinni Ævisögur en Börn og bæk- ur eru einnig fyrirferðarmikil í dagskrá vikunnar. Bókin Skáld um skáld kemur út í tilefni Viku bókarinnar. Bókin geymir tutt- ugu greinar eftir jafnmörg skáld og fræðimenn um íslenska rithöf- unda og verk þeirra. Í viku bók- arinnar bjóða Edda útgáfa og Strætó farþegum upp á aðgang að Syrpum, tímaritinu Galdra- stelpum og kiljum á öllum leiðum Strætó. Flugfélag Íslands í samvinnu við Eddu útgáfu gefur öllum börnum, sem ferðast með félag- inu á sumardaginn fyrsta, Syrpu í sumarglaðning. Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum kynnir Edda útgáfa barnabækur um dýrin og umhverfi þeirra. Vakin verður at- hygli á ævisögum og endurminn- ingum í öllum söfnum Borgar- bókasafns og á Bókmenntavef safnsins, www.bokmenntir.is þar sem lesa má umsagnir um slíkar bókmenntir auk þess sem gestir síðunnar eru hvattir til að senda inn pistla um bækur sem þeir hafa lesið. Í Kringlusafni verður yfirskrift vikunnar „Manstu ekk’ eftir mér?“ Ævisögur verða dregnar fram og rifjuð upp kynni af gömlum „seríubókum“ eins og Nancy-bókunum og bókunum um Bob Moran. Í máli og myndum verða sagðar sögur af samskipt- um kattarins Kvasa og Júlíu og einnig ævisaga Patreks Orra sem er nýkominn í heiminn. Kosið er um bestu barna- og unglingabækur síðasta árs í Bókasafni Kópavogs. Alla vikuna gefst gestum Bókasafns Hvera- gerðis kostur á að fá lánaðar ævisögur sem starfsfólk safnsins velur, pakkar inn og afhendir óséð. Í Bókasafni Mosfellsbæjar verður kynning á listamönnum í Mosfellsbæ, einum í senn, alla vikuna. Listamenninrnir velja sjálfir það listaverk sem þeir vilja kynna sig með á safninu. Fyrsti listamaðurinn er Hildur Margrétardóttir með olíumál- verkið „Bóndinn á Helgafelli“. Þá verður safnið með sýningu á lit- skrúðugum hænsnfuglastyttum. Dagskráin er eftirfarandi: Listasafn Reykjanesbæjar kl. 11: Verkefninu Lestrarmenningu í Reykjanesbæ ýtt úr vör. Barnabókarúta SÍUNG Nokkrir barnaókahöfundar heim- sækja grunnskóla á staðnum og lesa fyrir nemendur úr verkum sínum. ReykjavíkurAkademían, Hringbraut 121, kl. 16.30–18: Hagþenkir efnir til málþings undir yfirskriftinni: „Höfundar Íslands. Frumleiki, sæmd og eignarréttur.“ Bókasafn Akraness kl. 16.30: Sigurbjörg Þrastardóttir rithöf- undur les úr verkum sínum, m.a. úr nýrri ljóðabók, Túlípanafall- hlífar. Gagnagrunnur Eddu útgáfu kl. 11: Gagnagrunnur Eddu formlega opnaður með aðgangi almennings að Laxness-lyklinum. Nánari upplýsingar á www.edda- .is. Bókasafn Hveragerðis kl. 13.30: Sögustund fyrir 3–5 ára börn. Besta barnabókin 2002 að mati 6–12 ára barna í Hveragerði og lesið verður úr bestu bók- unum. Happdrættisvinningar af- hentir. Kl. 16-18.30: Safngestir lesa ljóð að eigin vali á heila og hálfa tímanum. Bókasafn Grindavíkur kl. 17: Verðlaun í Bókasafnsgetraun aprílmánaðar afhent. Upplestur grunnskólabarna og tónlist leikin af nemendum Tónlistarskóla Grindavíkur, auk þess sem Rósa- lind Gísladóttir, Gunnar Krist- mannsson og Valgerður Guðrún Guðnadóttir munu flytja söngat- riði við undirleik Franks Herluf- sens. Súfistinn, Laugavegi 18, kl. 20.30: Af skinni yfir á skjá – Njálukvöld í tilefni nýrrar útgáfu af Brennu-Njáls sögu sem bóka- forlagið Bjartur gefur út. Gunnarshús, Dyngjuvegi 8, kl. 20.30: Fjölísviðurkenningar Rit- höfundasambands Íslands verða veitt. Að afhendingu lokinni verð- ur lesið úr verkum þeirra höf- unda sem viðurkenningar hljóta en þeir eru: Gylfi Gröndal, Krist- ín Steinsdóttir, Ólafur Haukur Símonarson, Óskar Árni Óskars- son, Sindri Freysson og Steinunn Sigurðardóttir. Vika bókarinnar KRISTINN ÁRNASON gítarleik- ari heldur einleikstónleika í Saln- um í kvöld. Efniskráin er fjölbreytt og spannar allt frá 16. öld til nú- tímans og verkin eru af ýmsum toga. „Hugmyndin að baki efnis- skránni er að sýna klassíska gít- arinn í sem víðustu ljósi,“ segir Kristinn um tónleikana. Kristinn lauk burtfararprófi í klassískum gítarleik frá Tónskóla Sigursveins árið 1983. Hann stund- aði síðan framhaldsnám í Englandi og á Spáni hjá José Tomas og í New York þaðan sem hann lauk B.M. gráðu frá Manhattan School of Music árið 1987. Kristinn hefur komið fram á fjölmörgum tónleik- um bæði hér heima og erlendis og leikið inn á fjóra hljómdiska og hlaut hann Íslensku tónlistarverðlaunin 1996 fyrir hljómdiskinn með verkum eftir Sor og Ponce. „Ég ætla að hefja tónleikana á 4 pavönum eftir spænska 16. aldar tón- skáldið Lois Milan sem upphaflega voru samdir fyrir hið forna hljóðfæri vihuela. Þessi verk birtust fyrst í kennslubók fyrir vihuela sem kom út 1535. Síðan ætla ég að leika svítu í E-dúr eftir J.S. Bach sem hann samdi fyrir barokklútu. Eftir það stekk ég fram til 20. aldar og leik Drei Tentos, fantasíur eftir Hans Werner Henze frá 1958. Þetta eru 3 gítarsólókaflar sem Henze samdi fyrir gítar og söng- rödd við ljóðabálk eftir skáldið Höld- erlin. Eftir hlé leik ég svo Grand overture eftir spænska 19. aldar tón- skáldið Mouro Guiliani, verk sem er í anda óperuforleikja Rossinis. Þá fylgja nokkur þjóðlög frá Katalóníu í útsetningu Llobet og síðan leik ég verk eftir Granados, La Maya de Goya sem er innblásið af málverki eft- ir Goya. Þetta verk var upphaflega samið fyrir söngrödd og píanó og er í mjög þjóðlegum spænskum anda eins og var svo vinsæll í kringum aldamót- in 1900. Tónleikunum lýkur svo á Draumi í frumskógi, verki eftir Ag- ustin Barrios frá Paraguy en hann lést árið 1944,“ segir Kristinn og bæt- ir því við að við tónleikana núna sé of- arlega í huga sér að heiðra minningu tveggja vina sinna og samkennara sem létust báðir langt fyrir aldur fram á síðasta ári; gítarleikararnir Einar Kristján Einarsson og Kristján Eldjárn. „Það er nú liðið um það bil ár síðan þeir létust og þó gítarinn sé fyrst og fremst einleikshljóðfæri þá vorum við miklir félagar og áttum fjölmargar góðar stundir saman.“ Tónleikar Kristins eru hluti af röð tónleika tónlistarkennara við Tónlist- arskóla Kópavogs og fluttir með stuðningi Kópavogsbæjar. Fjórar aldir af gítartónlist Kristinn Árnason Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.