Morgunblaðið - 23.04.2003, Side 32

Morgunblaðið - 23.04.2003, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. NAUÐSYNLEGT er að Íslendingar horfi berum augum á þær gríðarlegu breytingar sem hafa orðið í íslensku þjóðfélagi á síðustu árum. Völd, áhrif og fjármunir hafa verið að færast á fárra manna hendur. Taflmennska með sjóði sem þjóðin á er orðin atvinnugrein, sjálfseign- arsjóði, tjónasjóði og lífeyrissjóði. Ríkisstjórn og löggjaf- arvald hafa ekki sinnt skyldum sínum að setja nauðsyn- leg lög og reglur á fjármálamarkaði. Lífeyrissjóðir Á síðustu áratugum hafa safnast upp gríðarlegir lífeyr- issjóðir í eigu landsmanna. Lífeyriskerfi okkar sam- anstendur því annars vegar af lífeyrissjóðum með upp- söfnun sjóða og hins vegar af almannatryggingakerfi sem er gegnumstreymiskerfi þ.e. ríkissjóður greiðir árlega inn í tryggingakerfið af tekjum sínum. Þessi kerfi eru ólík vegna þess að almannatryggingakerfið greiðir lífeyri án tillits til ævitekna, er nokkurs konar öryggisnet, og bæt- ur taka til lengri tíma litið mest mið af launaþróun. Líf- eyrissjóðirnir greiða bætur eftir ævitekjum, því meira sem menn hafa haft hærri laun, og ráðstöfunarfé þeirra er háð ávöxtun á fjármagnsmarkaði. Lífeyrissjóðirnir hafa nú til ráðstöfunar um 700 millj- arða króna, en fjöldi sjóðanna er margir tugir. Ávöxtun fjár er talsvert mismunandi eftir sjóðum og rekstrar- kostnaður þeirra smærri er hlutfallslega meiri en hinna stærri og ávöxtun þeirra þá verri. Hér er um alvarlegt mál að ræða því flestir menn ráða ekki í hvaða lífeyrissjóði þeir eru. Menn verða að greiða í þann sjóð sem þeim er skipað til, hvort sem ávöxtun hans er góð eða slæm, hvort sem hann er fær um að greiða góðan lífeyri eða lélegan. Þannig ákveður löggjafinn í reynd hver lífeyrir hinna ýmsu þegna þjóðfélagsins verð- ur. Menn verða greiða í sjóð sem þeir vita að gefur ekki eins góðan lífeyri og þeir vita að þeir geta fen staðar. Nú er ljóst að margir lífeyrissjóðir ha neikvæða ávöxtun nokkur ár og þá brennur félaga upp. Sjóðirnir hafa keypt talsvert af e hlutabréfum og tapað miklu fé. Lífeyrissjóðu unarmanna er með neikvæða ávöxtun af erle festingum um 12% frá 1994. Þetta gerist me er mikið af húsbréfum með ríkisábyrgð og ve ingu. Lífeyrissjóðirnir juku í reynd afföll hús með því að kaupa heldur erlend verðbréf. Ek heldur juku þeir vaxtabyrði sjóðfélaganna se selja sín húsbréf með miklum afföllum. Alva lækkun lífeyris vegna neikvæðrar ávöxtunar vikum, dæmi: Lífeyrissjóður Austurlands, o vaxta á húsnæðismarkaði. Hins vegar eru lífeyrissjóðirnir með sína 7 orðnir eigendur margra stærstu fyrirtækja l með banka. Eigendur sjóðanna, greiðendur hins vegar litlu um stjórn þeirra. Stjórn í næ skipuð fulltrúum vinnuveitenda og stéttarfél stéttarfélaga, oft valdar á fámennum félagaf nefna stjórnarmenn í lífeyrissjóð. Þannig myndast fámennir hópar sem ráða fé landsmanna, sækja iðgjöld með dráttarvö fræðikostnaði ef þau dragast en bera litla áb Ný lög um fjármagn Eftir Guðmund G. Þórarinsson „Nýtt afl vill að he fjármagnsmarkað taki tillit til ofang fækkun sjóða þan bærilegum réttind SJÁLFSTÆÐISMENN bregðast ókvæða við gagnrýni Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Samfylkingarnnar á það hvernig núverandi ríkisstjórn og oddviti hennar fara með vald. Þetta eru persónuárásir, hrópa þeir hver af öðrum, dylgjur, rógur, hálfkveðnar vísur. Og svo þetta: Af hverju tala samfylkingarmenn ekki um mál- efni? En það gerum við einmitt, tölum um málefni og ekk- ert annað. Við höfum rætt um menntamálin, um nýju fá- tæktina, um gjafakvótann, um skattaumbætur, um jafn- rétti. Og við tölum líka um frammistöðu hinna kjörnu fulltrúa, um afstöðu þeirra til borgaranna, um gangvirki stjórnkerfisins, og um það hvort valdhafarnir fara vel eða illa með vald. Um hvað á að ræða fyrir kosningar ef ekki einmitt stjórnarfarið í landinu? Við höfum sett lýðræðismálin á dagskrá með sam- stæðum úrbótatillögum á þeim hugmyndagrunni að við teljum Íslandi henta best frjálslynt lýðræði með virð- ingu fyrir mannréttindum og persónuhelgi. Við viljum að það leysi af hólmi stjórnlyndi og samtryggingu, þar sem valdhafar hegða sér einsog hér séu ennþá tímar einvaldskonungs úr Kaupinhafn. Frá Bermúda til Kanarí Davíð Oddsson og samstarfsmenn hans verða að una því að þeir starfa þrátt fyrir allt í lýðræðislegu sam- félagi þar sem frammistaða þeirra og ferill er öllum til umræðu. Þeir verða að una því að fyrir kosningar sé rætt til dæmis um skoðanir forsætisráðherra, oddvita framkvæmdavaldsins, á dómum Hæstarétta um þykja sér ekki hagstæðir. Að fjallað sé u efnalegu viðbrögð Davíðs Odssonar við dóm dóms um fiskveiðikerfið að nú geti Íslendin flutt til Kanaríeyja. Að spurningar kvikni u stöðu hans eftir smásögu séra Arnar Bárða Að minnst sé á þau afskipti hans af eignarh irtækja sem lýst var í greinum Agnesar Bra Að menn muni árásir hans á Bjarna Felixso fréttamann fyrir að útvarpa ræðunni góðu s við Bermúda. Að rifjuð séu upp þau viðbrög ópukönnun á vegum Samtaka iðnaðarins að stundi ólöglega gjaldheimtu á ríkisvegum se grafast fyrir um. Að nefnd séu ummæli han arskýrslu Rauða kross Íslands og þá skýrin skjólstæðinga hjá Mæðrastyrksnefnd að all ókeypis mat og leikföng. Að höfð sé í huga h rannsókn sem útvarpsstjóri var látinn fyrir fréttaflutning í Ríkisútvarpinu eftir kosning Reykjavíkurlistans 1998. Að spurt sé hvort Árni Johnsen hafi borið ábyrgð á Árna John Kosið um stjórnarfar Eftir Mörð Árnason „Við viljum að frjá hólmi stjórnlyndi sem valdhafar heg séu ennþá tímar e Kaupinhafn.“ ÞAÐ vekur athygli þegar stefnuskrá Frjálslynda flokks- ins er lesin á heimasíðu flokksins að flokkurinn hefur enga stefnu í efnahagsmálum. Hann hefur heldur enga stefnu í ríkisfjármálum. En hann hefur stefnu í skattamálum. Dýrasta reikningsskekkja stjórnmálasögunnar Formaður flokksins útlistaði skattastefnu sína í Kast- ljósþætti í Sjónvarpinu nýlega. Stefnan er sú að hækka persónuafslátt um 10.000 krónur. Formaður flokksins hélt að þetta kostaði 10 milljarða króna. Halldór Ásgríms- son, formaður Framsóknarflokksins, gat hins vegar upp- lýst formann Frjálslyndra um að tillögur hans muni í raun og veru kosta 22 milljarða króna. Sem sagt: stefna Frjáls- lynda flokksins í skattamálum er ábyrgðarlaust gaspur, skot út í loftið, án þess að hugsað sé fyrir því hvað hlut- irnir kosta ríkissjóð. Tólf milljarða skekkja, þetta er örugglega dýrasta reikningsskekkja stjórnmálasögunnar á Íslandi. Hverjum treystir þú? Í framhaldi af þessari afhjúpun á flaustri og ábyrgð- arleysi formanns Frjálslynda flokksins vakna spurningar: Er Frjálslynda flokknum treystandi fyrir ríkissjóði? Er líklegt að fólk, sem ekki þekkir muninn á persónuafslætti og skattleysismörkum hafi þá yfirsýn yfir ríkisfjármál og efnahagsmál að það geti haldið um stjórnartaumana hér á landi? Þessar spurningar svara sér sjálfar. Það v við efnahagslegan stöðugleika og hagvöxt í ís hagslífi að leiða Guðjón A. Kristjánsson og fé valda í íslensku samfélagi. Frjálslyndi flokku vera að því að staldra við og hugsa yfirlýsing enda. Hann umgengst stærðfræði og aðrar s miklu frjálslyndi. Íslenska þjóðin hefur ekki lynda flokknum. Réttsýna, vandaða og reynda forystu Þegar í kjörklefann er komið vita kjósendu um þeim hvílir ábyrgð. Það er auðvelt að kva læti heimsins og Frjálslyndi flokkurinn er á h því hlutverki. Það er hins vegar sjaldgæft að kvarta hæst séu bestir til þess að leiða mál til Íslenska þjóðin þarf umfram allt réttsýna, va reynda forystumenn. Undanfarin átta ár hafa verið samfellt hag Frjálslynd stærðfræði Eftir Árna Magnússon „Frjálslyndi flokku staldra við og hug Hann umgengst s miklu frjálslyndi. Í Frjálslynda flokkn ÚTGÁFA Á ÍSLENSKUM TÓNVERKUM Öll sönglög dr. Páls Ísólfssonar voruflutt í heild sinni á tónleikum í Salnum í Kópavogi nú fyrir páska, en flytjendur voru söngvararnir Hanna Dóra Sturludóttir og Finnur Bjarna- son, ásamt Nínu Margréti Grímsdóttur píanóleikara sem átti frumkvæði að tón- leikunum. Við þetta tækifæri var einnig afhjúpuð brjóstmynd af Páli – gjöf ætt- ingja hans til Salarins – en hún stendur þar við hlið brjóstmyndar af öðru þjóð- þekktu tónskáldi, Sigvalda Kaldalóns. Eins og fram kemur í umsögn Jóns Ásgeirssonar um tónleikana hér í blaðinu á sunnudag, undir fyrirsögninni „Söngvar sem þjóðin geymir hjarta sér nær“, var þarna um merkisviðburð að ræða. Jón segir á „engan hallað, þó Páll sé nefndur til sögu sem einn fyrsti al- þjóðlega menntaði tónlistarmaður okk- ar Íslendinga“, en bendir jafnframt á hversu erfiðar aðstæður hér á landi voru til tónlistariðkunar þegar Páll var að vinna sitt brautryðjendastarf, þar sem „allt vantaði til alls, bæði hljóðfæri og kunnáttu“. Tónleikar á borð við þá sem hér er getið – þegar reynt er að gera heilum þætti í höfundarverki ákveðins lista- manns skil á einu bretti – leiða hugann óhjákvæmilega að því hversu mikið hef- ur verið samið af framúrskarandi tón- list hér á landi, á þeim tiltölulega stutta tíma sem liðinn er síðan atvinnu- mennska ruddi sér braut á tónlistar- sviðinu. Og einmitt vegna þess verður jafnframt að huga að því hvernig varð- veislu þessara helstu verka bestu tón- skálda þjóðarinnar er nú háttað. Ljóst er að þau íslensku tónlistarsöfn sem mestu hafa safnað af íslenskum tónverkum, þ.e.a.s. Íslensk tónverka- miðstöð og safnadeild Ríkisútvarpsins, hafa hvorugt haft fjárhagslega burði til þess að sinna útgáfu á þeim íslensku verkum sem brýnt er að verði aðgengi- leg. Lítið hefur því verið gefið út af tón- list á prenti og á hljómdiskum, en að sjálfsögðu ætti það að vera eitt af for- gangsverkefnum þjóðarinnar á menn- ingarsviðinu að sjá til þess að öll helstu verk merkustu tónskálda þjóðarinnar, svo sem verk Páls Ísólfssonar og Jóns Leifs, svo dæmi séu nefnd, séu aðgengi- leg bæði á prenti og hljómdiskum. Hafa verður í huga að tónverk eiga sér tæpast langra lífdaga auðið ef þeim er nær einvörðungu ætlað að geymast í minni þjóðarinnar. Forsenda fyrir því að tónverk séu flutt bæði hér heima og erlendis er að hægt sé að fá þau á prenti, en hljóðritanir þjóna að sjálf- sögðu sama kynningarhlutverki gagn- vart íslenskum sem erlendum tónlistar- unnendum. Ólíklegt má telja að nokkur sjái sér fært að standa í svo viðamiklu verkefni sem hér um ræðir nema með stuðningi ríkisins, en fjárveiting til slíkrar útgáfu væri verðug afmælisgjöf í tilefni ein- hverra þeirra tímamóta í íslenskri sögu sem þjóðin vill minnast með veglegum hætti. Í því sambandi má benda á að á næsta ári verða liðin 100 ár frá því að Ís- lendingar fengu heimastjórn og það væri svo sannarlega vel við hæfi að leggja drög að útgáfuröð er hæfist af því tilefni. NÝR KOSTUR Í MENNTAKERFINU Nýr einkarekinn framhaldsskóli,Menntaskólinn Hraðbraut,mun taka til starfa á komandi hausti. Menntamálaráðuneytið hefur veitt faglega viðurkenningu á náminu, sem fer fram samkvæmt aðalnámskrá fyrir framhaldsskóla, og hefur verið gerður samningur við ráðuneytið um fjárstuðning, að því er fram kom í Morg- unblaðinu á páskadag. Aðalaðdráttarafl Hraðbrautar er, eins og nafnið gefur til kynna, að hægt er að ljúka náminu á miklu skemmri tíma en í hefðbundnum framhaldsskól- um, þ.e. á tveimur árum í stað fjögurra. Þannig eiga nemendur að geta útskrif- azt átján ára en ekki tvítugir eins og venjan er. Skólaárið verður lengra en hjá öðrum framhaldsskólum og skipulag námsins talsvert ólíkt því sem almennt gerist, m.a. er stefnt að því að sameina kosti bekkjakerfis og áfangaskiptingar. Í frétt Morgunblaðsins kemur fram í máli skólastjórans, Ólafs Hauks John- son, að talið sé að námið geti hentað um 15% nemenda í hverjum árgangi. Af því má ljóst vera að skólinn höfðar fyrst og fremst til beztu námsmannanna. Þeir munu þurfa að greiða um 190 þúsund krónur í skólagjöld fyrir hvort ár, en fyrir þeirri upphæð geta þeir fengið lán í viðskiptabönkum, sem þeir þurfa ekki að endurgreiða fyrr en þeir hafa lokið háskólanámi. Til þessa hefur nemendum sumra fjölbrautaskóla staðið til boða að ljúka námi á skemmri tíma en fjórum árum, en þá yfirleitt skemmst á þremur árum. Í bekkjakerfisskólum hafa menn átt þann kost að hlaupa yfir bekk. Dugleg- um námsmönnum þykir eflaust mörgum freistandi að spara sér eitt eða tvö ár í framhaldsskólanum, hefja þannig há- skólanám yngri og komast sem því nem- ur fyrr út á vinnumarkað. Þær 380 þús- und krónur, sem greiða þarf í skóla- gjöld, eru ekki há upphæð miðað við þær tvennar árstekjur, sem fólk fær þannig á tíma sem það hefði ella varið á skólabekk. Menntaskólinn Hraðbraut er þannig þörf viðbót og fjölgar kostunum í menntakerfinu. Hann stuðlar að því að duglegir námsmenn nýti tíma sinn bet- ur og eins og Ólafur H. Johnson bendir á, er það þjóðhagslega hagkvæmt að ungt fólk komi fyrr út í atvinnulífið. Tilkoma þessa einkarekna fram- haldsskóla mun vafalaust ýta undir það að skólarnir, sem til þessa hafa reynt að laða til sín beztu námsmennina, breyti námsskipulagi til að gera þeim kleift að ljúka námi á skemmri tíma. Jafnframt hlýtur þetta þarfa framtak að herða á þeim umræðum, sem lengi hafa farið fram, um að tími íslenzkra námsmanna sé illa nýttur og fólk út- skrifist of seint með stúdentspróf, að jafnaði tveimur árum síðar en tíðkast í samkeppnislöndum Íslands. Það er ekki einvörðungu á framhaldsskólastiginu, sem nota má tímann betur, heldur einn- ig og ekki síður í grunnskólanum. Er ekki t.d. orðið fyllilega tímabært að ræða það að skólaskyldan hefjist við fimm ára aldur, þannig að sá tími sé bet- ur nýttur, sem ung heilabú eru hvað móttækilegust fyrir lærdómi?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.