Morgunblaðið - 23.04.2003, Side 40

Morgunblaðið - 23.04.2003, Side 40
MINNINGAR 40 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Helga Ásgríms-dóttir fæddist á Stóra-Ási í Reyk- holtsdal í Borgarfirði hinn 5. mars 1912. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 12. apríl síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Krist- ín Steinunn Davíðs- dóttir, f. 20.5. 1878, d. 2.8. 1952, og Ásgrím- ur Jónsson, f. 16.6. 1882, d. 11.9. 1957. Systkini Helgu voru Sigurður og Guðrún, þau eru bæði látin. Árið 1931 giftist Helga Halldóri Magnússyni, f. 5. júlí 1913, d. 27. júní 1977. Þau eignuðust 16 börn, auk þess að ala upp eina dóttur dóttur. Börn Helgu og Halldórs eru Júlíus Gígjar, f. 3.11. 1933; Helgi Gunnar, f. 12.12. 1934, d. 1.4. 1945; Valdís Erna, f. 31.5. 1936, d. 4.6. 2001; Fanney Sig- munda, f. 2.5. 1938; Ásgrímur Kristinn, f. 19.9. 1939 d. 13.10. 1965; Óskar Reykdal, f. 14.10. 1940, d. 17.6. 1964; Valgerður, f. 18.10. 1941; Magnús, f. 7.12. 1942, d. 18.2. 1989; Sigmundur, f. 30.11. 1943; Gylfi, f. 13.10. 1944; Helga Guðrún, f. 14.10. 1945; Sigrún, f. 18.1. 1947, d. 6.4. 1994; Halldór, f. 14.4. 1948; Elsa, f. 27.8. 1949; Adam Smári, f. 4.11. 1950; Kristín Steinunn, f. 8.3. 1952; Sveinbjörg Dóra, f. 12.1. 1960. Útför Helgu fer fram frá Akra- neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku mamma, amma og langamma. Nú þegar komið er að leiðarlokum viljum við þakka þér fyr- ir allar góðu stundirnar sem við áttum með þér. Það er alltaf sárt að kveðja þann sem okkur hefur þótt svo und- urvænt um, en við vitum að þú varst orðin þreytt og hvíldinni fegin, eða eins og Mikael Máni sagði: „Já, en mamma, allt gamalt fólk deyr.“ Og Aron Ingi bætti um betur þegar hann sagði: „Já, en amma, hún er samt raunveruleg.“ Það voru forréttindi fyrir þá að fá að eiga þig sem langömmu, enda allt- af til í að heimsækja ömmu-löngu á sjúkrahúsinu ásamt Marvin Darra sem sótti sér alltaf stól til að standa á svo hann gæti haldið í höndina á þér. Þín verður sárt saknað. Ég veit að lífið var ekki alltaf dans á rósum en hver ætlast til þess, stóri barna hópurinn var ekki alltaf sam- stíga og enginn ætlast til þess. Stóran hóp af barnabörnum áttu sem þú getur verið stolt af og barst mikla umhyggju fyrir og af henni átt- irðu nóg, þú spurðir alltaf frétta af öll- um hópnum sem ég svaraði eftir bestu getu. Ég vil þakka ömmustelpunum þín- um sem voru vakandi og sofandi yfir þér síðustu þrjár vikur, þær stóðu sig eins og hetjur og sakna þín sárt núna. Ég veit að sjö ár á sjúkrastofnun er langur tími, en veit líka að þar leið þér vel og varst eins sátt og hægt er að vera í þeirri stöðu. Þar naust þú frá- bærrar umönnunar þar sem var dekr- að við þig á allan hátt. Eitt sem þú þoldir alls ekki voru gráu hárin, og sannaðist það nokkrum dögum áður en þú kvaddir, er ég kom til þín. Mér fannst mikið af þér dregið og orðaði það þannig að þú værir nú ansi drusluleg, og þú svaraðir: „Já, ég verð að fá Guðnýju til að lita á mér hárið.“ Já, þetta varst þú. Elsku mamma, það voru orðnir fast- ir liðir síðustu árin að ég fengi mér göngutúr yfir á E-deild á hverjum degi. Vonandi hef ég getað gert þér þetta bærilegra, fyrir mig voru þetta forréttindi. Ég vil þakka starfsfólki á E-deild fyrir frábæra umönnun. Hvíl í friði. Elsa og fjölskylda. Elsku besta amma mín, ég kveð þig nú í hinsta sinn, og minningarnar um yndislega ömmu eru mér efst í huga. Sorgin er mikil, og mér finnst ég hafa misst svo mikið. Það varð allt svo tóm- legt, er fréttin barst mér að morgni 12. apríl, að hún amma mín væri farin, búin að kveðja okkur, eftir veikindi síðustu vikur. Ég veit að afi, mamma og öll börnin sem þú hefur misst, amma, hafa tekið þig í faðm sinn, um- vafið þig hlýju og ást og leiða þig nú áfram á nýrri braut. Þú varst svo ynd- isleg amma, sú besta sem hægt er að hugsa sér, mér leið alltaf svo vel í ná- vist þinni. Ég dvaldi oft hjá þér á mín- um yngri árum, í Suðurgötunni. Ég var ekki há í loftinu er ég ferðaðist á milli heimila okkar á þríhjólinu mínu með náttföt í poka. Ég fann svo mikið öryggi hjá ykkur afa. Er ég flutti suð- ur með sjó, dvaldi ég á sumrin hjá þér og um helgar. Þú varst oft bjargvætt- urinn minn, og átt mínar bestu þakkir HELGA JÓNÍNA ÁSGRÍMSDÓTTIR ✝ Helga Tryggva-dóttir fæddist í Reykjavík 19. júlí 1920. Hún lést á líknardeild Landa- kotsspítala 11. apríl síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Tryggvi Sig- geirsson, f. 19. júní 1892, d. 14. mars 1967, og Lára Katrín Guðlaugsdóttir, f. 12. janúar 1897, d. 17. mars 1972. Helga átti einn bróður, Agnar Grétar Tryggvason, f. 23. júní 1927. Helga giftist Loga Einarssyni árið 1946. Þau slitu samvistum. Eftir nám í Verslunarskólan- um fór Helga í klausturskóla í Kaupmannahöfn. Stuttu síðar lá leiðin til Bandaríkjanna þar sem hún meðal annars stundaði nám í Mills Collage í Kaliforníu. Helga starfaði um árabil hjá flugmála- stjóra á Keflavíkur- flugvelli sem hlað- freyja. Síðan hjá Borgarfógetaemb- ættinu þar til að hún lét af störfum vegna aldurs. Helga verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Helga Tryggvadóttir var föður- systir mín og frá því að ég man eftir mér bjó hún hjá ömmu og afa á Smiðjustígnum og annaðist hún ömmu í mörg ár eftir að afi dó þar sem hún var mikill sjúklingur. Þegar ég var lítil þá var fátt skemmtilegra en að fá að fara á Smiðjustíginn og fá að gista hjá Helgu frænku og var hún óþreytandi að finna eitthvað fyrir okkur að gera. Á kvöldin áður en við fórum að sofa las hún þjóðsögur Ólafs Davíðssonar, H.C. Andersen og Grimms ævintýri og var oft lesið langt fram á nætur. Einnig gat hún setið tímunum saman með mér og lit- að í litabók og skipti litasamsetningin miklu máli þar og ekki mátti lita út fyrir. Helga var mikill dýravinur og mátti hún ekkert aumt sjá og ófáir pokarnir af brauði voru bornir niður á Tjörn til að gefa fuglunum og þar var í engu til sparað. Alla tíð bar hún hag okkar systkinanna fyrir brjósti og ef hún gat greitt götu okkar þá gerði hún það. Ótrúlegasta fólk þekkti hún og var hún mjög ættrækin. Ófá skiptin fór hún með okkur systkinin í leikhús eða í bíó og var ósjaldan setið í stúku, því að Helga var hefðarkona fram í fingurgóma. Á sínum yngri árum þótti hún óvenjulega falleg og glæsi- leg og var alls staðar eftir henni tekið. Fyrir jólin greindist hún með blóð- sjúkdóm og þurfti að fá blóðgjafir. Í lok janúar fór hún á spítala og var þar í fimm vikur. Þá fékk hún að fara heim og bjó ég hjá henni í tíu daga áð- ur en hún var lögð inn á líknardeild Landakotsspítala þar sem hún lést eftir viku legu. Elsku Helga, þakka þér fyrir allar góðar stundir í gegnum árin. Megi guð geyma þig. Hvíl þú í friði. Lára Guðrún. Helga frænka mín var dóttir hjónanna Tryggva Siggeirssonar, föðurbróður míns, og Láru Guðlaugs- dóttur sem ættuð var frá Skarðs- strönd, systur Jónasar Guðlaugsson- ar skálds og þeirra systkina. Afi okkar, Siggeir Torfason, reisti um aldamótin verslunar- og sláturhús á Laugavegi 13, þar sem hann rak umfangsmikla sveitaverslun um ára- tuga skeið. Þar var allt á sama stað, verslun, sláturhús og heimili afa og ömmu, Helgu Vigfúsdóttur, ættaðrar úr Suður-Þingeyjarsýslu, en Helga frænka mín bar hennar nafn. Heimili afa og ömmu var í okkar ungdæmi samkomustaður fjölskyldunnar, jafnt við lítil sem stór tækifæri. Minnis- stæðar eru stórveislur á jólum þar sem gleðin ríkti og margradda söngur hljómaði um húsið. Ættir afa Siggeirs eru héðan úr Reykjavík, en hann var sonur Torfa Þorgrímssonar prentara sem bjó neðst á Skólavörðustíg. Helga Tryggvadóttir var Reykvíkingur í fimmta ættlið. Amma Helga var ætt- uð úr Suður-Þingeyjarsýslu, dóttir Vigfúsar Kristjánssonar trésmiðs og Jakobinu Nielsen. Leiðir þeirra ömmu og afa lágu saman í Húsinu á Eyrarbakka, þar sem húsfreyja var Sylvia Thorgrímsen, móðursystir ömmu okkar, en þar var þá fyrir afi Siggeir, bókhaldari við Lefoliisversl- unina. Helga ólst upp við mikið ástríki for- eldra sinna sem báru hana á höndum sér. Stundaði hún um tíma nám við Verzlunarskóla Íslands. Hennar aðal- starfsvettvangur var hjá Flugmála- stjórn á Keflavíkurflugvelli, en síð- ustu starfsár sín vann hún hjá Borgarfógetanum í Reykjavík, þar sem hún endaði sinn starfsferil. Hvar sem vegir hennar lágu kom hún sér vel, enda einkar fróm í allri sinni hugsun og gerð, kát og samviskusöm. Helga giftist Loga Einarssyni, síðar hæstaréttardómara. Þau skildu. Það má til sanns vegar færa að við Helga vorum alin upp á sömu torfunni sem afmarkast af Laugavegi, Smiðju- stíg og Hverfisgötu. Fyrir utan nokk- ur ár sem hún dvaldist í Bandaríkj- unum við nám og störf átti hún nær alla ævi heimili sitt á þeim sama stað. Það er því með trega að ég kveð þessa góðu frænku mína, sem öllum vildi gott gera. Hún setti sinn svip á sam- félagið, og skal því ekki gleymt hví- líkur dýravinur hún var. Það var ósjaldan, hvernig sem viðraði, að hún fór niður á Tjörn í þeim tilgangi að gefa þeim fuglum sem þar dvöldu eitt- hvað að borða. Þetta var hennar hjartans mál. Helga frænka mín var flott kona. Smekkleg í klæðaburði, og sómdi sér vel hvar sem hún fór. Hún var í miklu uppáhaldi hjá skyldfólki sínu, bæði móður- og föðurfjölskyldum. Það var hennar hlutskipti að sinna mjög vel öllu skyldfólki sínu, og enginn, sem átti við veikindi að stríða, fór varhluta af umsjá hennar og umhyggju. For- eldra sína annaðist hún af stakri ást- úð. Þegar ég kveð nú Helgu frænku mína, vil ég ekki gleyma að nefna um- hyggjusemi hennar fyrir nágrenni sínu og vel vaktaði hún öll húsin sem tilheyrðu okkur við Laugaveg, Smiðjustíg og Hverfisgötu. Hún var í eðli sínu íhaldssöm. Ég man eftir því hversu henni mislíkaði, þegar Síminn breytti símnúmerum okkar, sem gerðist á nokkurra ára fresti, eða öðru því sem hún var orðin vön og búin að taka ástfóstri við. Helga bjó við mikið ástríki foreldra sinna. Þau voru tvö systkinin, Helga og Agnar Grétar, kvæntur Láru Þor- steinsdóttur, og eiga þau fjögur börn. Bjuggu þau lengst af í sama húsi á Smiðjustíg 4. Agnar Grétar og Lára voru henni einstök í allri umhyggju sinni og væntumþykju. Þeirra börn voru einnig mjög tengd frænku sinni, og sýndu henni mikla hlýju í hvívetna. Helga naut góðrar heilsu um æv- ina. Þegar heilsa Helgu brást fyrir fáum mánuðum, voru þau Agnar Grétar og Lára vakin og sofin yfir vel- ferð hennar. Þau sinntu henni hvort sem var heima á Smiðjustíg eða á sjúkrahúsum, þar sem hún þurfti að dvelja. Vildi hún sjálf helst vera heima í íbúð sinni, eins lengi og unnt væri. Hefði það ekki verið hægt nema fyrir umhyggju þeirra, Agnars Grét- ars og Láru. Nú að leiðarlokum vil ég þakka Helgu frænku minni samfylgdina, þakka henni fyrir allt sem hún var okkur í fjölskyldunni. Við vottum Agnari Grétari, Láru og öllum, sem henni þótti vænt um, innilega samúð. Blessuð sé minning Helgu Tryggvadóttur. Hjalti Geir Kristjánsson. Frænka mín Helga Tryggvadóttir er fallin frá 82 ára að aldri, ein glæsi- legasta kona sem Reykjavík hefur átt. Við þau tímamót rifjast allmargir hlutir upp, sérstaklega frá því ég var að alast upp. Þá var alltaf gaman að koma niður á Smiðjustíg til ömmu og afa en Helga bjó alla tíð hjá þeim meðan þau lifðu og og á Smiðjustígn- um alla tíð síðan. Og að gista þar var alltaf mikil upplifun, að sofa hjá Helgu í fína rúminu. Fá að skoða alla leyndardóma sem leyndust í snyrti- borðinu sem mér fannst bera af öllum fallegu hlutunum sem voru hjá henni. Síðan var hún alltaf tilbúin að lesa fyr- ir mig ævintýri og sögur, sérstaklega Grimmsævintýri. Og þolinmæði hennar var mikil því að oftar enn ekki vorum við Lára systir bæði hjá henni í einu og þá lenti ég oftast í að sofa til fóta. Og ekki má gleyma þegar ég fékk að fara með henni út á Keflavík- urflugvöll þar sem hún hafði unnið einhverjum árum áður og minning- unni um heimsókn í sjónvarpsstöðina þar og sjá teiknimyndir og barna- þætti sem í þá daga voru ekki daglegt brauð. Ferðalögin voru ógleymanleg með Helgu frænku vestur í Dali, þá sérstaklega Búðardal á Skarðsströnd þar sem eldri systkini mín voru í sveit og ég og yngri systir mín vorum síðar, og áhugi á dýrum kom vel í ljós því annar eins dýravinur er líklega ekki til. Athyglin á öllum dýrum sem sáust út um glugga á rútunni var mikil, einu sinni sá hún þrjá kálfa standa hlið við hlið þá talaði hún um bræðurna og minnti hún mig á þá regulega og síð- ast viku fyrir andlátið. Ekki má gleyma að henni var mjög umhugað um tannheilsu okkar systk- ina og minnti hún á tannburstun að manni fannst stundum í tíma og ótíma, úti á götu og hvar sem var. Ég kveð Helgu frænku með sökn- uði því ég er sannfærður um að heim- urinn er fátækari eftir hennar daga. Það er og var til bara ein Helga frænka. Tryggvi Þór. Elsku Helga frænka. Við viljum þakka þér allar góðu stundirnar sem við áttum með þér. Við vildum gjarn- an að þær hefðu verið fleiri. Þú varst ekki veik lengi en þú hefðir heldur ekki viljað vera lengi á sjúkrahúsi. Við söknum þín. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Megi guð geyma þig. Sigurður Orri, Lára og Agnes Björg. HELGA TRYGGVADÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Helgu Tryggvadóttur bíða birt- ingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengda- móður og ömmu, MARGRÉTAR LILJU ÓLAFSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Sveinn Herjólfsson, Ólöf Zóphóníasdóttir, Margrét Ólöf Sveinsdóttir, Soffía Björg Sveinsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýj- ar kveðjur vegna andláts og útfarar ÓLAFS PÉTURSSONAR frá Vakursstöðum, Vopnafirði. Sérstakar þakkir fær Baldur Friðriksson læknir og starfsfólk Sundabúðar fyrir umönnun og alúð. Sigurður Þór Ólafsson, Stefanía Sigurjónsdóttir, Elísabet S. Ólafsdóttir, Eva Hrönn og Stefán Óli. LEGSTEINAR Mikið úrval af legsteinum og fylgihlutum Sendum myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960 Marmari Granít Blágrýti Gabbró Líparít

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.