Morgunblaðið - 23.04.2003, Page 46

Morgunblaðið - 23.04.2003, Page 46
46 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I JT veitingar Matreiðslumann (vaktstjóra) vantar sem fyrst. Upplýsingar í síma 897 4778, Reynir, eða á reynirm@icehotel.is R A Ð A U G L Ý S I N G A R FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur fyrir árið 2002 hjá Ísfélagi Vestmannaeyja hf. verður haldinn í húsi Akóges við Hilmisgötu 15 í Vestmannaeyjum, miðvikudaginn 30. apríl 2003 og hefst kl. 16.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. KENNSLA Vilt þú rifja upp enskukunnáttuna fyrir sumarfríið?  4ra vikna hraðnámskeið í talmáli.  Hefst 5. og 6. maí.  Pantaðu tíma í viðtal — frítt. Hringdu í síma 588 0303 Næstu kyrrðardagar í Skálholti Kyrrðardagar við sumarkomu 24.–27. apríl Áhersla á útivist og lífsgöngur um ríki vorsins. Leiðsögn: Hjalti Hugason prófessor og Ragn- heiður Sverrisdóttir djákni. Kyrrðardagar tengdir tólf spora starfinu 1.–4. maí Leiðsögn sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. Kyrrðardagar hjóna 15.–18. maí Leiðsögn: Þorvaldur Halldórsson tónlistar- maður og Margrét Scheving sálgæsluþjónn. Sr. Gunnlaugur Garðarson og Sigríður Hall- dórsdóttir prófessor. Upplýsingar og skráning í Skálholtsskóla, sími 486 8870, netfang: rektor@skalholt.is . TILBOÐ / ÚTBOÐ Ýmis verk fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli Forval Forvalsnefnd utanríkisráðuneytisins f.h. varn- arliðsins á Keflavíkurflugvelli, auglýsir hér með eftir aðilum til að taka þátt í forvali vegna út- boðs á eftirfarandi verkum á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli: 1. Verk N62470-03-B-1263: Viðgerð á byggingu 632: Verkið felst í fjarlægingu tveggja katla og eldsneytistanks ásamt stálpíp- um þeim tengdum sem liggja um alla bygging- una. Verktakinn skal einnig lagfæra skemmdir sem framkvæmd þessa verks veldur á lýsingu, innveggjum, gólfefnum og lofti. 2. Verk N62470-03-B-1265: Viðgerð innan- húss í byggingu 771: Verkið felst í endurnýj- un loftræstikerfis og -rása í lofti fyrir keiluspils- braut og endurnýjun snyrtiherbergis í keilusal. Í verkinu gæti falist endurnýjun á salernum, vöskum, afgreiðsluborðum, básum, speglum og lýsingu. Verktakinn á að sjá um viðgerðir á burðarvirki, vélbúnaði og rafmagni sem þessu verki fylgja. 3. Verk N62470-03-B-1262: Útvegun og uppsetning á Mylar filmu á gler í bygging- um 1106-1109 og 1112: Verkið felst í útveg- un og uppsetningu á glerbrotahindrandi örygg- isfilmu í ofangreindum byggingum. 4. Verk N62470-03-B-1267: Standsetning í byggingu 885: Verkið felst í algjörri endur- nýjun annarrar hæðar byggingar 885, þ.m.t. fjarlægingu á búnaði og veggjum sem þar eru og útvegun nýrra úðunar-, hita- og loftræsti- kerfa auk salerna og veggja. 5. Verk N62470-03-B-1268: Viðgerð á hita- kerfi og lýsingu í byggingu 781: Verkið felst í útvegun hitakerfis og viðgerðar á lýsingu í flugskýli, auk betrumbóta á dyraopnun. Tilkynning þessi tekur einungis til íslenskra lögaðila. Forvalsgögn og upplýsingar um kröfur til um- sækjenda fást á heimasíðu utanríkisráðuneytis- ins: www.utanrikisraduneyti.is . Einnig fást þessi gögn hjá utanríkisráðuneytinu á Rauðar- árstíg 25, 150 Reykjavík eða hjá ráðningarstofu varnarmálaskrifstofu á Brekkustíg 39, 260 Njarðvík. Gögnin ber að fylla út af umsækjend- um og er sérstaklega bent á nauðsyn framlagn- ingar ítarlegra fjárhagslegra upplýsinga og ársskýrslna. Forvalsnefnd utanríkisráðuneytis- ins áskilur sér rétt til að hafna forvalsgögnum sem ekki eru fullnægjandi. Ekki verður tekið við upplýsingum frá þátttak- endum eftir að forvalsfrestur rennur út. Umsóknum skal skilað til utanríkisráðuneytis- ins, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík eða til ráðn- ingardeildar varnarmálaskrifstofu á Brekkustíg 39, 260 Njarðvík, fyrir kl. 16:00 þriðjudaginn 6. maí nk. Ekki er tekið við umsóknum á rafrænu formi. Forvalsnefnd vekur einnig athygli á því að ýmis smærri verk og verkefni fyrir varnarliðið eru auglýst á eftirfarandi heimasíðu: http://www.naskef.navy.mil/template5.asp?PageID=239 Forvalsnefnd utanríkisráðuneytisins. TILKYNNINGAR SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar- laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að breytingum á deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík: Rafstöðvarsvæði í Elliðaárdal. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Elliðaár- dals, reits sem nær yfir umhverfi Ártúns í Elliðaárdal. Markmið með deiliskipulaginu er að byggja upp á hentugum stað í Elliðaárdal þjónustu og fræðslu fyrir almenning og notendur dalsins. Til grundvallar tillögunum eru hugmyndir um frekari uppbyggingu orkuminjasafns og bygg- ingu fornbílasafns ásamt fræðslustofu fyrir Elliðaársvæðið og aðstöðu fyrri Stangaveiði- félag. Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að afmarkaðar verði lóðir fyrir hinar ýmsu byggingar sem nú eru á skipulagssvæðinu. Jafnframt er markmið skipulagsins að tryggja ráðstöfun lands fyrir almenna útivist, skíðalyftu og lyftuhús, púttvöll og aðstöðu fyrir kastæfingar stangveiði- manna. Einnig gerir tillagan ráð fyrir lóðum fyrir veiðihús og félagsaðstöðu fyrir stangveiði- menn að Rafstöðvarvegi 1 og lóð fyrir orku- minjasafn, fræðslustofu, fornbílasafn og skrif- stofur að Rafstöðvarvegi 5-9. Nánar vísast í uppdrætti og tillögur. Spöngin. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Spangar- innar, sem afmarkast af Borgarvegi, Spöng- inni, Móavegi og Mosavegi. Tillagan tekur til allra lóða við Spöngina með lóðanúmer 1 og 7-47 (nefndar A, B, D, E og F í staðfestu skipulagi dags. 17.03.1997) með áorðnum breytingum. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að lóðarhluti F er sameinaður lóðar- hlutunum A og B þannig að stök númer frá 7- 41 við Spöngina verði á sameiginlegri lóð. Heimiluð er er stækkun á verslunarhúsi á lóð nr. 9 en niður fellur byggingarréttur á lóð nr. 7. Lóð D (Spöngin 1) er stækkuð úr ca. 1000 í ca. 1850 m2 og nýtingu breytt þannig að að þar megi byggja allt að 350 m2 veitingastað með allt að 35 bílastæðum og möguleika á af- greiðslu á skyndibitum um lúgu. Séð verður fyrir stæðum fyrir leigubíla á sameiginlegu bílastæði verslunarmiðstöðvar. Lóð F er skipt upp þannig að vestur hluti hennar (nr. 47-E1) verður sjálfstæð lóð með óbreyttri notkun (bensínafgreiðsla). Engar byggingarverða á lóðinni. Einnig gerir tillagan ráð fyrir að lóðir nr. 43 og 45 (F2) verði ætlaðar fyrir útibú Borgar- bókasafns eða skylda starfsemi. Gert er ráð fyrir stækkun lóðarinnar til austurs í ca. 3.600m2 og að nýtingarhlutfall geti orðið allt að 0,5. Nánar vísast í uppdrætti og skilmála. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 – 16.00 og fimmtudaga til 18.00, frá 23.04.2003 - til 04.06. 2003. Einnig má sjá tillögur á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athuga- semdum við þær skal skila skriflega til skipu- lagsfulltrúa eigi síðar en 4. júní 2003. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan til- skilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 23. apríl 2003. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.