Morgunblaðið - 23.04.2003, Blaðsíða 48
48 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!
" #
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í MORGUNBLAÐINU 26. mars
sl. fjallar Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra um markmið innrás-
arinnar í Írak. Þar nefnir hann að
þúsundir Íraka hafi láti lífið vegna
vannæringar og skorts á lyfjum á
meðan Saddam Hussein og fjöl-
skylda hans hafi rakað saman auði
af því fé sem aflað var með olíusölu
Íraka á vegum áætlunar Samein-
uðu þjóðanna. Ráðherrann veit bet-
ur. Allar tekjur af þessari olíusölu
Íraka eru undir stjórn öryggisráðs
SÞ og fóru ekki til Saddams Huss-
ein og fjölskyldu hans. Tekjurnar
hafa meðal annars verið notaðar til
kaupa á nauðsynjavörum, farið í
stjórnunarkostnað og í stríðskaða-
bætur til Kúveit. Með öðrum orð-
um, fyrrum forseti Íraks hafði ekki
aðgang að þessu fé.
Í Morgunblaðinu þennan sama
dag skrifar Kristján Jónsson blaða-
maður einnig um viðskiptabannið á
Írak og segist ekki skilja þanka-
gang manna sem taka undir blaðrið
um að viðskiptaþvinganir SÞ hafi
beinlínis valdið barnadauða. Eftir
skrifum hans að dæma virðist hann
ekki hafa mikla þekkingu á við-
skiptabanninu og áætlun SÞ um ol-
íusölu. Kristján segir að slakað hafi
verið á viðskiptaþvingunum árið
1996. Það er ekki rétt. Þegar þetta
er skrifað eru þvinganirnar enn í
fullum gangi. Áætlun SÞ sem leyfir
sölu á olíu til kaupa á matvælum og
öðrum nauðsynjavörum hófst hins
vegar árið 1996 og er sú áætlun
ekki í gangi þessa dagana. Þessi
áætlun, olía fyrir mat, jafngildir því
ekki að slakað hafi verið á við-
skiptabanninu. Öll olíuviðskipti
Íraka á vegum SÞ hafa farið fram
fyrir utan íraska hagkerfið. Blaða-
maðurinn heldur því fram að sök-
ina á barnadauðanum í Írak eigi
Íraksforseti og nefnir máli sínu til
stuðnings að lífskjör Kúrda í Írak
séu mun betri þar, þar sem þeir
hafi ekki eytt sínum tekjum í ger-
eyðingarvopn.
Ástæðan fyrir betri lífskjörum í
Norður-Írak er sú að ekki allir
landshlutar Íraks hafa hlotið sömu
meðhöndlun hvað áætlun SÞ snert-
ir. Kúrdarnir í Norður-Írak fá
hluta af olíusölunni í reiðufé og er
það eina undantekningin hvað
reiðufé af olíusölunni varðar. Kúrd-
ar fá einnig hlutfallslega, eða 22%
meira, á hvern íbúa af varningi
áætlunarinnar en aðrir landsmenn.
Ekki eru öll dauðsföll yngstu
kynslóðarinnar í Írak síðastliðin 12
ár rakin til sjálfs viðskiptabanns-
ins. Þau 90.000 tonn af sprengjum
sem varpað var á landið í fyrra
Persaflóastríðinu eyðilögðu meðal
annars 18 af 20 rafmagnsveitum
sem gerði vatnsdælur og hreinlæt-
iskerfi óvirk. Óhreinsað skólp rann
í ár. Úr ánum var tekið drykkjar-
vatn sem leiddi til hraðrar út-
breiðslu á smitsjúkdómum. Við-
skiptabannið gerði svo erfiðara
fyrir að endurreisa þessi kerfi. Með
banninu bættist við skortur á nauð-
synjavörum, þar á meðal lyfjum.
Meðal þeirra sem „taka undir
blaðrið að viðskiptaþvinganirnar
hafi beinlínis valdið barnadauða“
eru fyrrum starfsmenn SÞ sem
sögðu störfum sínum lausum í mót-
mælaskyni við viðskiptabannið.
Þeir eru Denis Halliday, Hans von
Sponeck og Jutta Burghardt.
Mikið af áreiðanlegum heimild-
um er að finna um viðskiptabannið
og áætlun SÞ. Því er ástæðulaust
að skrifa greinar í Morgunblaðið
um þetta mál sem innihalda rangar
upplýsingar.
(Byggt aðallega á skrifum dr.
Richards Garfield, prófessors við
Columbia-háskólann í New York.)
ÞÓRDÍS B.
SIGURÞÓRSDÓTTIR,
Dofrabergi 9, Hafnarfirði.
Olíutekjur fóru ekki
til Íraksstjórnar
Frá Þórdísi B. Sigurþórsdóttur
SKILABOÐIN frá kjósendum eru
einföld, Þessi ríkisstjórn á að fara frá.
Hún er búin að sitja of lengi. Það er
kominn tími til að breyta vegna þess
að vald spillir og því meir sem menn
sitja lengur við völd. Það þýðir ekkert
fyrir Davíð að segja að Ingibjörg Sól-
rún sé með dylgjur þegar hún nefnir
að bæði biskup og forseti séu teknir til
bæna af forsætisráðherra. Þetta og
margt annað höfum við lesið um t.d. í
Morgunblaðinu og það má nefna
fleira. Hver man ekki eftir atlögunni
að Þjóhagsstofnun, sú stofnun var
hreinlega lögð niður vegna þess að
hún spáði ekki rétt! Eða þá snupr-
urnar sem rithöfundurinn og prest-
urinn í Garðabæ, Örn Bárður, fékk á
sínum tíma fyrir að dirfast að skrifa
smásögu þar sem hann gagnrýndi
einhvern forsætisráðherra í smásögu
í lesbók Morgunblaðsins. Davíð Odds-
son hefur nefnilega einkarétt á því að
skrifa skemmtisögur eða hvað? Það
er því miður af nógu að taka ef vel er
að gáð.
Það er hverri þjóð mikil gæfa að
eiga hugrakka stjórnmálamenn sem
láta ekki kveða sig í kútinn. Það gerir
Ingibjörg Sólrún heldur ekki. Það er
mikill happafengur að hún gefur kost
á sér í það mikilvæga starf að stýra
landinu. Ingibjörg Sólrún er góður
verkstjóri, hún stýrði borginni með
sóma, þess bera vitni stöndug borg-
arfyrirtæki sem hafa aldrei blómstrað
eins og nú samanber Orkuveitu
Reykjavíkur það mikla fyrirtæki.
Þegar Ingibjörg Sólrún var kosin
borgarstjóri fyrir 9 árum héldu marg-
ir að hún myndi taka rækilega til í
embættismannakerfinu í borginni og
reka þá sem væru með „bláar hend-
ur“. Það gerðist ekki vegna þess að
það var metið meira hvernig fólk var
sem starfsmenn en hvaða stjónmála-
skoðanir það hefði. Ef Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir verður næsti forsætis-
ráðherra landsins er það álíka
mikilvægt fyrir okkur öll og þegar
Vigdís Finnbogadóttir var kjörin for-
seti Íslands.
MARGRÉT
SÆMUNDSDÓTTIR,
Hvassaleiti 77, Reykjavík.
Ingibjörg verður góður
forsætisráðherra
Frá Margréti Sæmundsdóttur