Morgunblaðið - 23.04.2003, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 49
Laugavegi 101, sími 552 8222.
Við
skrúfum niður
verðið
Opið kl. 13.00-18.00
Kaupum
og seljum
Allt
á að
seljast
Lagersala
Laugavegi!
Tæmum af lager
og úr búðPakkhúsið flytur
Skipholti 17
Antik-Pakkhúsið
HÁÞRÝSTI
ÞVOTTATÆKI
Verð frá kr.
8.900,-
AFMÆLI
Sigurbjörg Gísla-
dóttir fæddist í Dalbæ
í Flóa síðasta vetrar-
dag, 23. apríl, 1913.
Nú á hún 90 ára af-
mæli á síðasta degi
vetrar 2003 og gengur
beint inn í sumarið
næsta dag, ef Guð lof-
ar. Foreldrar hennar
voru ung hjón í
Dalbæ, Margrét Jóns-
dóttir frá Sandlækjar-
koti í Gnúpverjahreppi
og Gísli Hannesson frá
Skipalóni á Stokks-
eyri.
Margrét missti mann sinn frá
fjórum ungum börnum, elstur var
Jón á fimmta ári, næst Margrét,
þriðja barn Bjarni og fjórða Sig-
urbjörg yngst, eins árs gömul.
Valgerður móðursystir Sigur-
bjargar tók hana til fósturs. Val-
gerður var þá nýlega gift Krist-
birni Hafliðasyni á Birnustöðum á
Skeiðum. Margrét fór til foreldra
sinna, Jóns og Margrétar í Sand-
lækjarkoti. Þar ólust hin þrjú
börnin upp.
Margrét var lærður skreðari í
Reykjavík. Sigurbjörg vinkona mín
minnist enn fallegu kápunnar, sem
móðir hennar saumaði og gaf
henni, þegar hún var tíu eða ellefu
ára. Börnin nutu móður sinnar
ekki lengi. Hún hjúkraði berkla-
sjúklingi, en smitaðist sjálf. Þá var
Margrét 15 ára – fór suður í vinnu,
til þess að geta heimsótt móður
sína.
Móðir hennar dó á Vífilsstöðum
1930.
Við Sigurbjörg áttum samleið í
Barnaskóla Skeiðahrepps. Skólinn
var í þinghúsi hreppsins, sem stóð í
bæjarröðinni á Húsatóftum. Þang-
að var klukkustundar langur gang-
ur frá Vörðufellsbæjum. Við Sig-
urbjörg, mættumst á
Vorsabæjarhlaði og urðum sam-
ferða þaðan í skólann sem byrjaði
kl. 10 f.h.
Við sátum á sama bekk, við sama
borð í skólanum. Skólinn var tví-
skiptur, 10 og 11 ára börn í yngri
deild en 12 og 13 ára börn í eldri
deild. Við vorum aðra vikuna í
skólanum, en hina lásum við heima.
Skólinn stóð frá 1. október til apríl-
loka. Kennari okkar var Helga
Þorgilsdóttir. Mjög prýðileg.
Vinátta okkar Sigurbjargar var
djúp og innileg. Við höfðum nóg að
masa um á langri leið. Það stytti
gönguna. Sigga vinkona var flug-
læs, stóð sig vel í öllum fögum,
skrifaði fallega hönd, var góð í
réttritun. Við lærðum mikið af
sálmum og kvæðum. Hún kunni öll
skólaljóðin utan að. Ég minnist
hennar, sem „litlu stúlkunnar ljúfu
með ljósu flétturnar tvær“. Lokkar
hrukku við hátt og fallegt enni,
augabrúnir voru bogadregnar, löng
uppbrett augnahár,
blágrá falleg augu,
horfðu gegnum þykk
gleraugu. Sigurbjörg
hafði líka mikla söng-
rödd. Syngur enn í
eldrisöngvarakór. Sig-
urbjörg var elst í
stórum hópi fóstur-
systkina, sem urðu 15.
Ekki sást það samt á
námi hennar. Þegar
við urðum 19 ára vor-
um við báðar síðast í
heyvinnu hjá fóstur-
foreldrum okkar.
Þá hafði hún hjálp-
að fóstru sinni líka alla vetur. Hún
fór suður að vinna fyrir kaupi. Hún
vann við ýmislegt sem til féll. Síðar
lengst við fatapressun í Lindinni.
Alls staðar var hún vel látin í
vinnu. Árið 1948 eignaðist hún
yndislega dóttur, Margréti, með
Friðbergi Guðmundssyni járnsmið.
Hana ól hún upp sem einstæð móð-
ir, þar til þau Friðberg gengu í
hjónaband árið fyrir fermingu
Margrétar. Friðberg átti hús í
Hafnarfirði og þar varð heimili
þeirra.
Sigurbjörg naut sín vel sem
ágæt húsmóðir. Hún prýddi heim-
ilið sínum listrænu hannyrðum.
Skemmtilegt var að heimsækja
þau. Dóttirin Margrét, var sett til
mennta. Hún varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík.
Margrét fór síðan í Myndlistar-
skólann í Reykjavík. Hún útskrif-
aðist þaðan, sem myndlistarkenn-
ari. Margrét hefur nú kennt við
Myndlistarskólann í Reykjavík í
meira en 20 ár. Hún er afbragðs
kennari í myndlist og alveg sér-
staklega að kenna unglingum,
segir fyrrum skólastjóri Myndlist-
arskólans í Reykjavík og sam-
starfsmaður Margrétar í fjölda
mörg ár. Margrét er gift Bergþóri
Halldórssyni símaverkfræðingi.
Þau eiga þrjú börn, þau eru,
Högni, rafmagnsverkfræðingur
sem lengi bjó hjá afa og ömmu við
nám. Tvær dætur Sigurbjörg Hlín
og Halldóra, þær eru stúdentar.
Báðar farnar að búa með mönnum
sínum. Þær eiga sína dótturina
hvor.
Sigurbjörg hefur misst mann
sinn og öll systkini. En hvorki
ströng vinna né ástvinamissir hafa
kælt hið heita hjarta vinkonu
minnar. Ég veit að þú hefur verið
ástrík móðir. Og býrð nú í eigin
íbúð í sama húsi og dóttir þín. Gott
er að heimsækja ykkur mæðgur.
Við höfum horft yfir 20. öldina frá
1913 og lifað merkustu aldamót,
síðan árið 1000 á Þingvöllum og
enn eina páskana.
Megi geislar páskasólar lýsa upp
þitt ævikvöld.
Ástarkveðja.
Rósa B. Blöndals.
SIGURBJÖRG
GÍSLADÓTTIR
SNORRI Guðjón Bergsson (2.285)
vann sannfærandi sigur í áskorenda-
flokki Skákþings Íslands sem lauk á
páskadag. Snorri fékk 7½ vinning í
níu umferðum.
Hann fór taplaus
í gegnum mótið,
en gerði jafntefli í
þremur skákum í
sjöttu, sjöundu og
áttundu umferð.
Hann klykkti svo
út með sigri í
lokaumferðinni. Í
2.-4. sæti á
mótinu urðu þeir
Davíð Kjartansson (2.275), Róbert
Harðarson (2.230) og Ingvar Þór Jó-
hannesson (2.190). Þessir fjórir
skákmenn unnu sér allir rétt til þess
að tefla í landsliðsflokki síðar á
árinu. Röð efstu manna varð sem hér
segir:
1. Snorri Bergsson 7½ v.
2.-4. Davíð Kjartansson, Róbert
Harðarson, Ingvar Jóhannesson 6½
v.
5. Kjartan Maack 6 v.
6. Páll Agnar Þórarinsson 5½ v.
7.-15. Guðmundur Kjartansson,
Páll Sigurðsson, Jóhann Ragnars-
son, Hilmar Þorsteinsson, Sigurður
Ingason, Magnús Gunnarsson,
Sverrir Sigurðsson, Arnar Ingólfs-
son, Aron Ingi Óskarsson 5 v.
16.-19. Dagur Arngrímsson, Hall-
dór Pálsson, Atli Freyr Kristjáns-
son, Svanberg Már Pálsson 4½ v.
Hörð keppni var um sigur í flokki
skákmanna undir 2.000 skákstigum.
Páll Sigurðsson (1.745) hafði þar
nauman sigur, en verðskuldaðan.
Páll hlaut 5 vinninga og var jafn Jó-
hanni H. Ragnarssyni (1.995), Hilm-
ari Þorsteinssyni (1.690), Sigurði
Ingasyni (1.775), Sverri Sigurðssyni
(1.825), Arnari Ingólfssyni (1.730) og
Aroni Inga Óskarssyni (1.505). Páll
varð hins vegar efstur í þessari jöfnu
keppni eftir stigaútreikning. Aron
Ingi Óskarsson er meistari skák-
manna með minna en 1.600 skákstig.
Ekki fengu úrslit í keppninni um
unglingameistara Íslands. Þar verð-
ur haldin aukakeppni milli þeirra
Arons Inga, Guðmundar Kjartans-
sonar (2.040) og Hilmars Þorsteins-
sonar. Keppnin fer fram á
laugardag.
Eftirfarandi skák var tefld í sjöttu
umferð áskorendaflokksins. Hinn
ungi og efnilegi Hilmar Þorsteins-
son, sem stóð sig frábærlega á
mótinu, mætir hér ofjarli sínum í
skemmtilegri skák.
Hvítt: Kjartan Maack
Svart: Hilmar Þorsteinsson
Pircvörn
1.e4 d6 2.d4 Rf6 3.Rc3 g6 4.Be2
Bg7 5.h4!? Rbd7
Svartur bregst nokkuð rólega við
óvenjulegri leið hvíts. Best er að
svara af krafti með 5...c5 6.dxc5 Da5,
t.d. 7.Bd2 (7.cxd6 Rxe4 8.dxe7 Rxc3
9.bxc3 Bxc3+ 10.Kf1 Bxa1 11.Bg5
Rc6 12.Dxa1 Hg8 13.Rf3 Be6 14.a4
a6 15.g3 Rxe7) 7.-- Dxc5 8.h5 gxh5
9.Rh3 Rc6 10.Rf4 Rg4 11.Rd3 Dd4
12.Rd5 Rce5 13.0–0 Kf8 14.R5f4 Rf6
15.Bxh5 Rxh5 16.Dxh5 Dxe4 17.Bc3
Hg8 18.Bxe5 Bxe5 19.Hfe1 Df5
20.Dxf5 Bxf5 21.Rxe5 dxe5 22.Hxe5
Bxc2 23.Hc1 Hg4 24.Rd5 He4
25.Hxe7 Hxe7 26.Rxe7, með jöfnu
tafli (Malaniuk-Azmajparashvili,
Kiev/1986).
6.h5 h6
Með þessum leik veikir svartur
hvítu reitina í sínum herbúðum.
Hann hefði getað drepið á h5, eða
leyft hvíti að leika 7.h6, t.d. 6...e5
7.Be3 c6 8.h6 Bf8 9.Rh3 b5 10.Rg5
Be7 11.Dd2 b4 12.Rb1 0–0 o.s.frv.
7.hxg6 fxg6 8.Rf3 e5 9.Rh4 Rf8
10.d5 De7 11.Be3 g5
Betra er að koma í veg fyrir skák-
ina á b5 með því að leika 11...a6
o.s.frv.
12.Bb5+! Bd7?!
Svartur hefði betur leikið
12...Kd8, t.d. 13.Rf5 Bxf5 14.exf5
R8d7 15.De2 Rb6 16.0–0–0 Df7
o.s.frv.
13.Rf5 Df7 14.Dd3 a6 15.Bxd7+
R6xd7 16.b4 Rg6 17.Dc4 Rf6 18.Kd2
Kd7
Það er erfitt að benda á gott fram-
hald fyrir svart í stöðunni. Hann
gæti reynt að flækja taflið með
18...Re7!? 19.Rxg7+ Dxg7 20.Dxc7
Hc8 21.Da5 Hxc3 22.Kxc3 Rxe4+
23.Kb2 0–0 24.f3 Rg3 25.Hhd1, en
það virðist ekki duga, þrátt fyrir
ýmsa möguleika, sem ekki verður
farið nánar út í hér.
Sjá stöðumynd 1.
19.b5 axb5
Svartur getur ekki haldið stöðunni
lokaðri með 19...a5, vegna 20.b6
Hhc8 21.bxc7 Hxc7 22.Da4+ Kd8
23.Bb6 o.s.frv.
20.Dxb5+ Kc8 21.Hab1 Rxe4+
Svartur getur ekki valdað peðið á
b7 með 21...Hb8, vegna 22.Ba7.
22.Rxe4 Dxf5
Sjá stöðumynd 2
23.Rxd6+! cxd6 24.Dxb7+ Kd8
25.Dxa8+ Ke7 26.Hb7+ Kf6 27.Da7
Hf8 28.Hxg7
og svartur gafst upp.
Sævar Bjarnason á færeyska
meistaramótinu
Sævar Bjarnason (2.258) tefldi í
landsliðsflokki á færeyska meistara-
mótinu, sem fram fór 12.-19. apríl.
Sævar hlaut sex vinninga í ellefu um-
ferðum og hafnaði í 4.-7. sæti. Danski
alþjóðlegi meistarinn Kim Pilgaard
(2.440) sigraði á mótinu og hlaut 9
vinninga. Titilinn Skákmeistari
Færeyja hlaut Martin Poulsen
(2.245). Hann var jafn Ólav Simon-
sen og Flóvin Þ. Næs, en var úr-
skurðaður meistari eftir stigaút-
reikning. Röð efstu manna:
1. Kim Pilgaard (2.440) 9 v.
2. John Shaw (2.440) 8½ v.
3. Eirik T. Gullaksen (2.354) 7 v.
4.-7. Sævar Bjarnason (2.258),
Martin Poulsen (2.245), Olavur Sim-
onsen (2.250) og Flóvin Þór Næs
(2.317) 6 v.
Neckar-skákmótið í Þýskalandi
Opna Neckar-skákmótinu lauk á
sunnudag í Deizisau í Þýskalandi.
Þrír Íslendingar voru með á mótinu.
Sigurbjörn Björnsson stóð sig best
þeirra, hlaut 5½ vinning og hækkar
talsvert á stigum. Sigurður Daði Sig-
fússon og Jón Garðar Viðarsson
fengu 5 vinninga.
Klúbbakeppni Hellis og TR
Taflfélagið Hellir og Taflfélag
Reykjavíkur halda klúbbakeppni í
sameiningu föstudaginn 25. apríl.
Keppnin verður haldin í húsnæði
TR, Faxafeni 12. Höfðað er sérstak-
lega til klúbba í heimahúsum sem
eru ekki skipaðir hinum venjulegum
mótaskákmönnum. Sérstök verð-
laun verða veitt þeirri sveit sem hef-
ur minna en 1.800 skákstig (stiga-
lausir reiknast með 1.200 stig) að
meðaltali. Borðaverðlaun verða veitt
fyrir 1.-4. borð bæði fyrir hina stiga-
hærri og stigalægri.
Keppt verður í fjögurra manna
sveitum. Tefldar verða 9 umferðir
með 7 mínútna umhugsunartíma.
Klúbbakeppnin var haldin í fyrsta
sinn fyrir sex árum og fór þátttakan
þá fram úr björtustu vonum, en 23
klúbbar með yfir 100 manns innan-
borðs tóku þátt í keppninni. Í fyrra
voru 19 sveitir með. Tekið er á móti
skráningum í mótið í síma 861 9416
(Gunnar). Einnig er hægt að skrá sig
með tölvupósti: hellir@hellir.is.
Mótshaldarar vilja hvetja klúbba
til að skrá sem fyrst en hægt verður
að fylgjast með skráningu í mótið á
Hellir.is
Þátttökugjald er kr. 1.000 fyrir
hverja sveit og verða léttar veitingar
seldar á skákstað
Öruggur sigur Snorra Bergs-
sonar í áskorendaflokki
SKÁK
Skáksamband Íslands
SKÁKÞING ÍSLANDS,
ÁSKORENDAFLOKKUR
12. – 20. apríl 2003
Daði Örn Jónsson
Snorri Guðjón
Bergsson
Stöðumynd 1. Stöðumynd 2.
dadi@vks.is