Morgunblaðið - 23.04.2003, Blaðsíða 50
DAGBÓK
50 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Dettifoss Þerney og
Brúarfoss koma og
fara í dag. Alboran,
Skógafoss, Richmond
Park, Bremon og
Mánafoss fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Bremon fer til Reykja-
víkur í dag. Ludvig
Andersen kom í gær,
L. Novaspassky kom
og fór í gær. Brúarfoss
fer til Straumsvíkur í
dag.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
opin handavinnustofa,
kl. 13–16.30 opin
smíða- og handa-
vinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–12 glerlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–
10.30 Búnaðarbankinn,
kl. 13–16.30 bridge/
vist, kl. 13–16 glerlist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 10
leikfimi, kl. 14.30
bankaþjónusta, kl.
14.40 ferð í Bónus.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl. 9
silkimálun, kl. 13–16
körfugerð, kl. 10–13
opin verslunin, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. kl.
13.30 bankaþjónsuta.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
postulínsmálun, kl. 13–
16.30 módelteikning.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 9.30 hjúkr-
unarfræðingur á
staðnum, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30–18.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
tréútskurður kl. 9,
myndlist kl. 10–16,
línudans kl. 11, gler-
skurður kl. 13, pílukast
kl. 13.30, kóræfing kl.
16.30 Dansleikur í
kvöld síðasta vetr-
ardag kl. 20.30 Cabrí
Tríó leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Söngfélag
FEB kóræfing kl. 17.
Línudanskennsla kl.
19.15.
Félag eldri borgara,
Suðurnesjum Selið,
Vallarbraut 4, Njarð-
vík. Í dag kl. 14 fé-
lagsvist.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, kl.
10.30 helgistund, kl.
10.30 gamlir leikir og
dansar, frá hádegi
spilasalur opinn kl.
13.30 kóræfing, 25.
apríl kl. 16. opnuð
myndlistarsýning Jóns
Ólafssonar, m.a. syng-
ur Gerðubergskórinn.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.30 boccia og
glerlist, kl. 13 glerlist
og félagsvist, kl. 16
hringdansar, kl. 17.
bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
10 ganga, kl. 13–16
handavinnustofan op-
in.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, búta-
saumur, útskurður, kl.
11 banki, kl. 13 bridge,
kl. 14 bingó, kaffiveit-
ingar.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9 föndur, kl. 9 og kl. 10
jóga, kl. 14 dans, kl. 15
frjáls dans, kl. 15
teiknun og málun.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
10–11 samverustund,
kl. 13–13.30 banki, kl.
14 félagsvist.
Vesturgata 7. Kl.
8.25–10.30 sund, kl.
9.15–16 myndmennt,
kl. 12.15-14.30 versl-
unarferð í Bónus, kl.
13–14 spurt og spjall-
að, kl. 13–16 tréskurð-
ur.
Vitatorg. Kl. 8. 45
smíði, kl. 9 bókband og
bútasaumur, kl. 13
handmennt og kóræf-
ing, kl. 13–16 föndur,
kl. 13.30 bókband, kl.
12.30 verslunarferð.
Hana-nú Kópavogi Í
kvöld kl. 20 spjallkvöld
í Gjábakka. Gestur
kvöldsins Magnús D.
Baldursson heimspek-
ingur. Ekkó-kórinn
syngur undir stjórn
Jóns Hjörleifs Jóns-
sonar.
Barðstrendinga-
félagið félagsvist í
kvöld kl. 20.30 í
Konnakoti, Hverf-
isgötu 105.
Breiðfirðingafélagið
Faxafeni 14. Vorfagn-
aður verður síðasta
vetrardag miðvikudag-
inn 23. apríl frá kl. 22–
03.
Söngvinir, Kór aldr-
aðra í Kópavogi verður
með tónleika í Digra-
neskirkju fimmtud. 24.
apríl kl. 17.
Félag harm-
ónikkuunnenda Suð-
urnesjum, dansleikur á
Ránni 24. apríl, sum-
ardaginn fyrsta frá kl.
21.
Slysavarnadeild
kvenna í Reykjavík.
Afmælisfundurinn er
25. apríl kl. 20 í Höllu-
búð.
Í dag er miðvikudagur 23. apríl,
113. dagur ársins 2003, síðasti
vetrardagur. Orð dagsins:
Kærleikurinn er langlyndur,
hann er góðviljaður.
Kærleikurinn öfundar ekki.
(I.Kor. 12, 4.)
Í síðustu viku barst fjöl-miðlum minnisblað frá
ríkisskattstjóra þar sem
lagt var mat á áhrif þeirra
skattkerfisbreytinga sem
Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur heitið að framkvæma
verði hann í ríkisstjórn á
næsta kjörtímabili. Höfðu
þessar upplýsingar verið
teknar saman að beiðni
formanns Sjálfstæð-
isflokksins. Þar kom m.a.
fram að 4% lækkun skatt-
hlutfalls kemur betur út
fyrir einstaklinga með 104
þúsunda króna mán-
aðarlaun en 10 þúsund
króna hækkun skattleys-
ismarka.
Samfylkingin hefureinnig boðað skatt-
kerfisbreytingar í kosn-
ingabaráttunni og raunar
er tillagan um hækkun
skattleysismarka eitt af
kosningaloforðum flokks-
ins. Í byrjun vikunnar
barst fjölmiðlum frétta-
tilkynning þar sem fram
kom svar ríkisskattstjóra
vegna fyrirspurnar frá
Samfylkingunni.
Þar hafði hins vegar
ekki verið beðið um mat á
því hver áhrif skattkerf-
isbreytinga Samfylking-
arinnar yrðu á hag al-
mennings. Nei. Í
fyrirspurn Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur, tals-
manns Samfylkingarinnar
var óskað „eftir því við
Ríkisskattsstjóra að skoð-
að yrði hvernig mismun-
andi leiðir til skattalækk-
unar kæmu út ef
stærðargráða breyting-
anna væri sambærileg.“
Með öðrum orðum:Hver yrðu áhrifin á
hag almennings ef Sam-
fylkingin myndi lækka
skatta jafnmikið og Sjálf-
stæðisflokkurinn ætlar að
gera? Þetta hlýtur að telj-
ast forvitnileg nýjung.
Samfylkingin ætlar nefni-
lega ekki að lækka tekju-
skatt almennings jafn-
mikið og Sjálfstæðis-
flokkurinn, raunar munar
þar átta milljörðum, að
sögn talsmanna Samfylk-
ingarinnar sjálfra. Út-
reikningar ríkisskatt-
stjóra segja því ekkert til
um það hver áhrifin verða
af skattalækkunartillög-
um flokksins heldur ein-
ungis hver áhrifin yrðu
EF Samfylkingin myndi
lækka skatta jafnmikið og
Sjálfstæðisflokkurinn
hyggst gera. Þar sem
Samfylkingin ætlar ekki
að lækka skatta jafnmikið
– að eigin sögn – er vand-
séð hvaða upplýsingagildi
þessir útreikningar hafa.
Þessi samanburðarfræðier með ólíkindum. Í
kennslubókum í hagfræði
er stundum brýnt fyrir
nemendum að það þýði
ekki að bera saman epli og
appelsínur. Þessi að-
ferðafræði Samfylking-
arinnar virðist hins vegar
einmitt ganga út á það.
Nú geta væntanlega all-
ir flokkar tekið tillögur
hinna flokkanna, hvort
sem þær varða skatta eða
önnur mál og velt því fyrir
sér hver áhrifin yrðu ef
þeirra loforð yrðu yf-
irfærð á stefnu hinna
flokkanna.
STAKSTEINAR
Epli og appelsínur
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur legið meðflensu yfir páskana. Fyrir vikið
fylgdist hann með metnaðarfullri
dagskrá sjónvarpsstöðvanna. Það
sem stóð upp úr myndarlegri flóru
bíómynda var íslenska dag-
skrárgerðin, og ber þá helst að
nefna vandaðan viðtalsþátt Krist-
jáns Kristjánssonar við rithöfund-
inn Þórarin Eldjárn, þar sem Þór-
arinn talaði um þá óbærilegu raun
að missa tvo syni sína. Í þættinum
upplýsti Þórarinn að þó sumir
segðu hann vera af fyndnu kynslóð-
inni, þá hefði Kristján sonur sinn
verið af stórfyndnu kynslóðinni.
x x x
Á MÁNUDAGSKVÖLD voru ein-mitt haldnir minningar-
tónleikar um Kristján, sem hafði
ekki aðeins skopskynið í lagi, held-
ur ótrúlega hæfileika á mörgum
sviðum. Bæði í sjónvarpsþættinum
og á tónleikunum kom bersýnilega
í ljós hve vinmargur Kristján var.
Betri vitnisburð um upplag manna
er ekki hægt að hugsa sér.
Allur ágóði af tónleikunum rann í
minningarsjóð Kristjáns Eldjárns.
Tekur sjóðurinn við minning-
argjöfum og frjálsum framlögum
(bankareikningur: 0513-18-430830,
kt. 650303-3180).
x x x
EN jafnvel um páskana er stjórn-málabaráttan í algleymingi. Á
Norðurlandi mættust fulltrúar allra
flokka á hagyrðingakvöldi, sem
íþróttafélagið Þór efndi til á skír-
dag, og var margt um manninn.
Þar orti Steingrímur Sigfússon um
Borgarnesræðu Ingibjargar Sól-
rúnar hina síðari:
Mæðist Solla í moldarbyl
við mannorðsrofabörðin.
Hún ætti að fara „en gang til“
og oftar í Borgarfjörðinn.
x x x
FRÁ þessu segir í ÞankabrotumJóns í Grófinni sem birtast dag-
lega á Íslendingur.is. Ennfremur
að Halldór Blöndal hafi fengið
skotleyfi á Samfylkinguna:
Yfir kaldan eyðisand
örlagastjörnur skinu
Ingibjörg fór út á land
með Össur í farteskinu.
FLEIRI hafa ort um Borg-arnesræðuna síðari og er
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur
þar á meðal:
Í Borgarnesi heyrast hróp,
hærri en í fyrra sinn
Bónusfeðga fylla hóp
forsetinn og biskupinn.
x x x
Á LAUGARDAGSKVÖLD verð-ur hagyrðingakvöld í Valaskjálf
á Egilsstöðum haldið af Félagi
ljóðaunnenda á Austurlandi. Þar
stjórnar Hákon Aðalsteinsson og
hagyrðingar verða Björn Ingólfs-
son frá Grenivík, Snorri Aðal-
steinsson frá Höfn í Hornafirði,
Þorsteinn Bergsson frá Unaósi,
Stefán Bragason frá Egilsstöðum
og Hjálmar Freysteinsson frá Ak-
ureyri, sem orti þessa lýsandi limru
um Akureyri:
Bærinn minn fegursti og besti
býður velkomna gesti;
þar er mannfólkið dús,
þar er menningarhús
reist á fjögurra ára fresti.
Ítrekun til fíkniefna-
lögreglunnar
MORGUNBLAÐIÐ birti
laugardaginn 15. mars sl. á
bls. 49 „Opið bréf til fíkni-
efnalögreglunnar“ frá mér.
Ég óskaði eftir svari á sama
vettvangi sem ekki hefur
enn borist. Ítreka ég því
hér með þessa beiðni mína
og bið dómsmálaráðherra,
frú Sólveigu Pétursdóttur,
að fylgja málinu eftir.
Gísli Óskarsson.
Að láta lokk
úr hári sínu
HALLÓ stelpur! Ætlar
einhver ykkar að klippa hár
sitt á næstunni? Ef einhver
ykkar vildi vera svo góð og
láta af hendi lokk úr hári
sínu til öryrkja sem langar
að búa til eitthvað fallegt úr
því væri það vel þegið. Hár-
ið þyrfti að vera allt að 30–
40 sm að lengd. Kannski á
einhver eldri kona fléttu
niðri í kommóðuskúffu sem
liggur undir skemmdum
því ekki geymast svona
hlutir lengi þar. Þeir sem
gætu liðsinnt mér hafi sam-
band við Pálínu í síma
587 1714.
Frábær grein
MIG langar að þakka fyrir
frábæra grein sem Páll Sig-
urðsson prófessor í lög-
fræði við Háskóla Íslands
skrifar í Mbl. 3. apríl. Vil ég
þakka honum fyrir þessa
grein sem var eins og
græðandi smyrsl á hjarta-
sár móður. Bendi ég fólki á
að lesa þessa grein.
Móðir.
Dýrahald
Hver á kisuna?
ÞESSI svarta og hvíta kisa
hefur verið í Löngumýri í
Garðabæ síðustu mánuði
og alltaf verið mjög svöng,
virðist vera týnd. Kisan er
hvorki með ól né eyrna-
merkt og er að við höldum
fress. Upplýsingar í síma
565 6519 eða 847 6671.
Terta er týnd
TERTA, sem er ársgömul
læða, týndist frá Laufengi í
Grafarvogi 9. apríl sl. Hún
sást síðast í Gufuneskirkju-
garði. Þeir sem vita um
ferðir Tertu eru beðnir að
hafa samband í síma
587 5609. Fundarlaun.
Páfagaukur í óskilum
GRÁHVÍTUR páfagaukur
með bláum lit í stéli fannst
að kvöldi 16. apríl við Litla-
gerði 4. Eigandi getur vitj-
að hans þar. Síminn er
553 7920.
Högni í óskilum
SVARTUR högni, frekar
lítill, ólarlaus og ómerktur,
er í óskilum að Vífilsgötu 11
í Reykjavík. Þeir sem
kannast við kisa geta haft
samband í síma 849 3006.
Hvítur páfagaukur
í óskilum
HVÍTUR páfagaukur
fannst 16. apríl. Þeir sem
kannast við fuglinn geta
haft samband í síma
557 7958 og 699 2651.
Gulur páfagaukur
týndist
GULUR dísarpáfagaukur
týndist í Mosfellsbæ 16.
apríl sl. Finnandi hafi sam-
band í síma 561 0476 og
698 8965. Fundarlaun.
Hvar er Katý?
KATÝ er þrílit læða sem
hvarf af heimili sínu í Kópa-
vogi miðvikudaginn 16.
apríl sl. Hún er að mestu
leyti hvít en með svarta og
gulbrúna bletti um stóran
hluta líkamans, hún er með
svart nef, svört og gul ofan
á höfði, með gulan blett á
stærð við tíkall á miðju
bakinu og með svart/gul-
yrjótt skott. Þegar hún fór
að heiman var hún með gult
beisli utan um sig og ætti
því að vera auðþekkjanleg.
Þeir sem vita hvar hún er
niðurkomin eru beðnir að
hafa samband við Sóley í
síma 867 6331.
Tapað/fundið
Bíllykill týndist
í Hafnarfirði
BÍLLYKILL á hring
ásamt þremur húslyklum
týndist líklega í Hafnarfirði
í síðustu viku. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
849 7862.
Hálsmen með
krossi týndist
HÁLSMEN með stórum
krossi í þykkri keðju týnd-
ist 12. apríl, líklega í Ásbúð
eða Lækjarási í Garðabæ.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 557 1714 eða
695 2930.
Hvítir markhanskar
týndust
GUNNAR Valur, sem er 6
ára, týndi týndi hvítum
Barthez-markmanns-
hönskum við nýja róló við
Háaleitisbraut. Hann er
mjög svekktur því hann
fékk þá daginn áður og ekki
hafði gefist tími til að
merkja þá. Ef einhver hef-
ur fundið þá hafðu endilega
samband við pabba Gunn-
ars í síma 861 9416.
Gleraugu í óskilum
KVENGLERAUGU fund-
ust í Heiðmörk 18. apríl.
Uppl. í s íma 555 3970.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 tónverkið, 8 lífga, 9 fyr-
irgefning, 10 gyðja, 11
tákn, 13 samsafn, 15
dæld, 18 sanka saman, 21
rödd, 22 úthluti, 23 útlit
yfirborðs, 24 málvenju.
LÓÐRÉTT
2 truflun, 3 sorp, 4 lands,
5 vondur, 6 misgáningur,
7 hræðslu, 12 ílát, 14 hita,
15 slæpast, 16 hamingju,
17 ásynja, 18 lítið, 19
smánarblett, 20 nabbi.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hlúir, 4 hanki, 7 tafls, 8 gengi, 9 púl, 11 arra,
13 bann, 14 gubba, 15 hífa, 17 klár, 20 fat, 22 nefna, 23
urtum, 24 ilina, 25 trauð.
Lóðrétt: 1 hátta, 2 útför, 3 rasp, 4 hagl, 5 nenna, 6 iðinn,
10 útbúa, 12 aga, 13 bak, 15 hendi, 16 fífli, 18 litla, 19
rómuð, 20 fala, 21 tukt.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16