Morgunblaðið - 23.04.2003, Page 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 53
Aðalfundur
knattspyrnudeildar Breiðabliks
verður haldinn í Smáranum
miðvikudaginn 30. apríl kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin
samning við Nike sem er ríflega
helmingi hærri en sá upphaflegi eða
um 7 milljarðar ísl. kr.
Sports Illustrated
Forsíðumynd af Jordan hefur
ávallt gert það að verkum að stærsta
íþróttatímarit vestanhafs hefur selst
vel. Í 52 tölublöðum hefur forsíðu-
mynd af Jordan prýtt blaðið en til
samanburðar er hnefaleikakappinn
Muhammad Ali þar næstur í röðinni
en 15 sinnum hefur hann verið á for-
síðu blaðsins.
Abe Pollin
Eigandi Wizards hefur aðeins
greitt Jordan um 156 millj. ísl. í laun
fyrir að leika með liðinu s.l. tvö ár.
Liðinu hefur ekki gengið eins vel og
menn áttu von á en þrátt fyrir það
hefur verið uppselt á alla 82 heima-
leiki þess í MCI höllinni. Aðeins 3 lið
af alls 29 í NBA náðu 20 þúsund
áhorfendum að meðaltali á heima-
leiki sína s.l. tvö ár og fékk Pollin um
1,8 milljarða í sinn hlut vegna auk-
innar miðasölu á leiki Wizards.
Jordan
Á næstu vikum mun það ráðast
hvort Jordan tekur að sér fyrra starf
sitt hjá Wizards – að stjórna því
hverjir leika með liðinu og hverjir
þjálfa liðið. Jordan hefur hvað eftir
annað gagnrýnt samherja sína hjá
Wizards undanfarin ár þar sem hann
hefur m.a. sagt að Kwame Brown
hafi ekki rétta hugarfarið, Larry
Hughes hafi ekki hugmynd um eitt
eða neitt, Brendan Haywood sé eng-
inn harðjaxl og að Jerry Stackhouse
sé ekki hinn sanni sigurvegari.
Spekingar vestanhafs búast hins-
vegar við því að Jordan muni starfa
áfram hjá Wizards og ætli sér stóra
hluti í framtíðinni með liðið.
Reuters
Michael Jordan kveður áhorfendur í síðasta heimaleik sínum með Washington Wizards.
FÓLK
ARNAR Grétarsson skoraði eitt
marka Lokeren sem tapaði fyrir
Charleroi, 4:3, í belgísku 1. deildinni
í knattspyrnu í fyrrakvöld. Arnar,
Rúnar Kristinsson, Arnar Þór Við-
arsson og Marel Baldvinsson voru
allir í byrjunarliði Lokeren en Rúnar
fór meiddur af velli um miðjan síðari
hálfleik en hann fékk þungt högg á
höfuðið í fyrri hálfleik og fór alblóð-
ugur út af.
ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, vonar að Dennis
Bergkamp ljúki sínum knattspyrnu-
ferli hjá Arsenal og mun bjóða hon-
um nýjan samning við liðið, þegar sá
gamli rennur út í sumar. „Dennis er
stórkostlegur leikmaður, sem leggur
sig alltaf fram. Það er heiður að hafa
hann áfram hjá Arsenal,“ sagði
Wenger. Bergkamp kom til Arsenal
frá Inter Milanó 1995 og var þá borg-
uð metupphæð fyrir hann, 7,5 millj.
punda.
BRASILÍSKI leikmaðurinn Edu,
miðvallarleikmaður Arsenal, mun að
öllum líkindum ekki leika meira með
liðinu á keppnistímabilinu. Hann
meiddist á æfingu á föstudag langa.
Edu hafði það hlutverk að taka stöðu
Patrick Vieira, sem er meiddur á
hné. Ray Parlour hefur tekið við
miðjuhlutverkinu og ber fyrirliða-
band Arsenal er þeir Vieira og Dav-
id Seaman eru frá vegna meiðsla.
ALAN Smith framherjinn óstýr-
láti í liði Leeds hefur verið sektaður
um 50.000 pund eða andvirði tveggja
vikna launa vegna rauða spjaldsins
sem hann fékk að líta á í ósigri Leeds
á móti Southampton. Peter Ried,
stjóri Leeds, var mjög óhress með
framkomu Smiths sem nú yfir höfði
sér þriggja leikja bann en þetta var
níunda rauða spjaldið sem Smith fær
á ferli sínum.
FRAMHERJI enska úrvalsdeildar-
liðsins Newcastle, Craig Bellamy,
var í gær úrskurðaður í leikbann og
gert að greiða 600 þúsund ísl. kr. í
sekt vegna atviks sem átti sér stað í
leik liðsins gegn Middlesbrough hinn
5. mars sl. Bellamy missir hins vegar
aðeins af einum leik Newcastle.
Bellamy réðst þar harkalega að
dómara leiksins, Andy D’Urso, eftir
að leiknum lauk og þótti hegðun hans
og orðaval ekki vera til fyrirmyndar
en Newcastle tapaði leiknum 1:0.
ar.) Minnesota átti aldrei mögu-
leika í fyrsta leik liðanna í Minnea-
polis á páskadag. Lakers hreinlega
lék sér að „Úlfunum“ og ætti að
eiga greiða leið í 2. umferð.
Sacramento Kings virðist einnig
á leið í aðra umferð eftir tvo
örugga sigra á Utah Jazz. Þeir
John Stockton og Karl Malone
gætu því verið að leika síðustu
leiki sína með Utah. San Antonio
vann annan leikinn gegn Phoenix
og ætti að komast í aðra umferð,
og myndi þá mæta Lakers. Tvö
bestu liðin voru þar á ferðinni.
Loks getur allt gerst í viðureign
Portland og Dallas þrátt fyrir
öruggan sigur Dallas, 96:86, í
fyrsta leiknum.
Í Austurdeildinni kom sigur Or-
lando í Detroit á páskadag á óvart.
Tracy McGrady setti þar 43 stig
fyrir Orlando og saknar Detroit nú
miðherjans Ben Wallace, sem ætti
að vinna kosninguna um besta
Sem dæmi er tap San AntonioSpurs gegn Phoenix Suns á
heimavelli á laugardaginn eftir
framlengingu, 95:96.
Sá sigur hefði gefið
Phoenix tækifæri til
að klára dæmið á
sínum eigin heima-
velli samkvæmt
styttri útgáfunni en nú dregst
fyrsta umferðin á langinn og ekk-
ert ræðst í þessari viku.
Aðalfjörið verður sem fyrr í
Vesturdeildinni en þaðan mun
meistaraliðið koma, að venju. Fyr-
ir mánuði síðan hefðu fæstir sér-
fræðingar gefið Los Angeles Lak-
ers möguleika á að vinna titilinn
fjórða árið í röð en eftir frábæran
endasprett liðsins í deildakeppn-
inni er allt opið. Lakers virðist enn
á ný komið í meistaraform eftir
góða stjórnun Phils Jacksons, eina
ferðina enn. (Hann hlýtur að vera
besti þjálfarinn í sögu deildarinn-
varnarmanninn í deildinni. New
Jersey virðist hafa yfirburði gegn
Milwaukee og Philadelphia, sem
kom inn í úrslitakeppnina á góðum
dampi, ætti að ganga frá New Or-
leans Hornets. Í viðureign Boston
Celtics og Indiana Pacers virðist
allt geta gerst eftir að liðin unnu
sinn leikinn hvort í Indiana um
páskahátíðina.
Ef allt fer sem horfir, verður
viðureign San Antonio og Lakers í
2. umferðinni æsispennandi. Á
meðan verðum við að bíða á meðan
fyrsta umferðin dregst á langinn.
Allt til þess að eigendur liðanna
geti aflað meiri peninga.
Meistararnir eru
komnir á skrið
EIGENDUR NBA-liðanna náðu loks í vetur að lengja fyrstu umferð
úrslitakeppninnar. Nú þarf að vinna fjóra leiki til að komast áfram,
ekki þrjá eins og áður. Því miður tókst þeim þetta, því það sem hef-
ur gert fyrstu umferðina svo spennandi í gegnum árin er að flest lið-
in í hærri sætunum hafa komið skjálfandi af hræðslu í fyrsta leikinn
– um að tapa öðrum af tveimur fyrstu heimaleikjunum. Þetta gerði
hvern leik í fyrstu umferð mikilvægari en það hefur nú breyst.
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Bandaríkjunum
DAMON Johnson, leikmaður
Íslands- og bikarmeistaraliðs
Keflvíkinga í körfuknattleik,
mun leika með spænsku liði
á næstu vikum eða þar til
keppnistímabilinu lýkur þar
í landi. Damon samdi við lið-
ið Aracena sem leikur í 3.
deild en félagið á ágæta
möguleika á því að tryggja
sér sæti í 2. deild. Damon lék
um tveggja ára skeið með
spænskum liðum, Los Barr-
ios og Badajoz Caja Rural,
áður en hann snéri aftur til
Keflavíkur á ný árið 2001.
Damon er með tvöfalt rík-
isfang þar sem hann fékk ís-
lenskan ríkisborgararétt um
sl. áramót en hann hefur hug
á því að reyna fyrir sér sem
atvinnumaður á meginlandi
Evrópu á næstu leiktíð.
Damon
Johnson
samdi við
Aracena
GUÐMUNDUR Þ. Guðmundsson,
landsliðsþjálfari karla, heldur fyr-
irlestur á þjálfararáðstefnu hjá
danska handknattleikssambandinu
þann 17. maí. Danirnir buðu honum
á ráðstefnuna sem er eingöngu ætl-
uð dönskum þjálfurum en þeir
verða um 50-60 talsins. „Það er
mikill heiður að fá svona boð og
mjög spennandi. Ég mun ræða um
uppbyggingu landsliðsins frá því ég
tók við því, fara yfir hugmynda-
fræði og aðferðir, og þá mun ég
sýna mínar bestu æfingar í verki en
til þess fæ ég til umráða leikmenn
danska 20 ára landsliðsins,“ sagði
Guðmundur við Morgunblaðið.
Danir buðu
Guðmundi
MATS Olsson, fyrrverandi mark-
vörður sænska landsliðsins í hand-
knattleik, kemur hingað til lands
helgina 10.–11. maí. Hann heldur
fyrirlestra um markvarðaþjálfun
og leiðbeinir þjálfurum og efnileg-
um markvörðum. Olsson var um
árabil talinn besti markvörður
heims en hann er nú aðstoðarþjálf-
ari portúgalska landsliðsins. Hand-
knattleikssamband Íslands stendur
fyrir komu Olssons og nýtir til þess
styrk sem það fékk frá Alþýðu-
sambandi Íslands vegna frammi-
stöðu karlalandsliðsins í Evr-
ópukeppninni í Svíþjóð á síðasta
ári.
Mats kennir
markvörðum