Morgunblaðið - 23.04.2003, Page 54

Morgunblaðið - 23.04.2003, Page 54
ÍÞRÓTTIR 54 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT KNATTSPYRNA Deildabikarkeppni kvenna: Neðri deild: Ásvellir: FH - Þróttur/Haukar ............19.30 Í KVÖLD KNATTSPYRNA Meistaradeild Evrópu 8 liða úrslit, seinni leikir: Barcelona – Juventus ........................... 1:2 Hernandez Xavi 66. – Pavel Nedved 53., Marcelo Zalayeta 114. Rautt spjald: Edg- ar Davids (Juventus) 79. – 98.000.  Eftir framlengingu. Barcelona: Bonano, Andersson (Mendieta 61.), de Boer, Puyol, Reiziger (Gerard 91.), Luis Enrique, Motta, Overmars (Riquelme 85.), Xavi, Kluivert, Saviola. Juventus: Buffon, Ferrara, Montero, Thuram, Camoranesi (Birindelli 46.), Davids, Nedved, Tacchinardi, Zambrotta, Del Piero (Tudor 83.), Di Vaio (Zalayeta 46.)  Juventus vann samtals 3:2 og mætir Real Madrid eða Manchester United í undanúrslitum 6./7. og 13./14. maí. Valencia – Inter Mílanó........................ 2:1 Pablo Aimar 6., Ruben Baraja 51. – Christian Vieri 4. – 48.000. Valencia: Canizares, Ayala, Carboni (Aurelio 79.), Marchena, Reveillere, Aim- ar (Mista 83.), Baraja, Vicente, Angulo, Carew (Rufete 72.), Sanchez. Inter: Toldo, Cordoba, Gamarra, Mater- azzi, Pasquale (Adani 46.), J. Zanetti, Dalmat, Di Biagio (Okan 74.), C. Zanetti, Crespo, Vieri (Recoba 31.)  Jafnt, 2:2, en Inter vann á marki á úti- velli og mætir AC Milan eða Ajax í undan- úrslitum. Vináttuleikur U19 karla Skotland – Ísland .................................. 1:2 Jamie Winter 71. – Kjartan Finnbogason 75., Ívar Björnsson 90. (víti). Ísland: Andreas Lúðvíksson – Jón Orri Ólafsson (Ágúst Örlaugur Magnússon), Kári Ársælsson, Jón Guðbrandsson, Gunnar Þór Gunnarsson – Gunnar Örn Jónsson (Kjartan Finnbogason), Eyjólfur Héðinsson, Andri Ólafsson (Baldur Sig- urðsson), Steinþór Þorsteinsson (Ólafur Páll Johnson) – Hjálmar Þórarinsson, Ív- ar Björnsson. England Úrvalsdeild: Leeds – Fulham..................................... 2:0 Mark Viduka 4., 49. – 37.220. Staðan: Man. Utd 35 22 8 5 66:32 74 Arsenal 34 21 8 5 71:36 71 Chelsea 35 18 9 8 65:35 63 Newcastle 35 19 5 11 59:46 62 Liverpool 35 17 10 8 53:37 61 Everton 35 16 8 11 45:44 56 Blackburn 35 14 11 10 44:40 53 Tottenham 35 14 8 13 50:51 50 Southampton 34 12 12 10 40:38 48 Man. City 35 14 6 15 45:51 48 Middlesbro 35 12 10 13 42:38 46 Charlton 35 13 7 15 42:50 46 Birmingham 35 12 8 15 36:46 44 Aston Villa 35 11 9 15 39:42 42 Leeds 35 12 5 18 50:51 41 Fulham 35 11 8 16 37:49 41 Bolton 35 9 12 14 37:48 39 West Ham 35 8 11 16 38:57 35 WBA 35 6 6 23 26:56 24 Sunderland 35 4 7 24 21:59 19 2. deild: Bristol City – Cardiff ............................ 2:0 Noregur Brann – Rosenborg ............................... 1:6 Staða efstu liða: Rosenborg 2 2 0 0 7:1 6 Sogndal 2 2 0 0 3:1 6 Viking 2 1 1 0 5:2 4 Tromsö 2 1 1 0 5:4 4 Molde 2 1 0 1 4:1 3 Stabæk 2 1 0 1 5:3 3 Svíþjóð Hammarby – AIK.................................. 1:1 Austurríki Sturm Graz – Austria Vín ..................... 0:3  Austria er með 19 stiga forystu og þarf aðeins þrjú stig í síðustu 6 leikjunum til að verða meistari. KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin Úrslitakeppnin, 16 liða úrslit: Vesturdeild: San Antonio – Phoenix .......................84:76  Staðan er 1:1. Sacramento – Utah...........................108:95  Staðan er 2:0 Austurdeild: Indiana – Boston.................................89:77  Staðan er 1:1. FIMLEIKAR Sveit Fimleikafélagsins Bjarkar í Hafn- arfirði varð í sjöunda sæti af tíu á Norð- urlandamóti í hópfimleikum sem haldið var í Hróarskeldu í Danmörku laugardag- inn 20. apríl. Sveit Stjörnunnar í Garðabæ varð í áttunda sæti. Dönsk sveit varð sig- urvegari með þónokkrum yfirburðum. LOKAHÓF Körfuknattleikssam- bands Íslands, KKÍ, var haldið fyr- ir páskahátíðina þar sem leikmenn, þjálfarar, stjórnarmenn og stuðn- ingsmenn gerðu sér glaðan dag að venju í lok keppnistímabilsins. Veturinn var gerður upp þar sem leikmenn og þjálfarar kusu bestu leikmenn deildarinnar, þjálf- ara ársins, lið ársins, bestu ungu leikmennina, bestu varnarmennina og besta dómarann. Kjör þetta fór fram áður en úr- slitakeppnin hófst. Auk þess voru veittar viðurkenn- ingar fyrir ýmsa þætti leiksins þar sem tölfræðin var látin ráða auk þess sem dómarar útnefndu prúð- ustu leikmenn deildarinnar í karla- og kvennaflokki. Í gegnum tíðina hefur valið á bestu leikmönnum deildarinnar, liði ársins og þjálfurum ársins ver- ið umdeilt og á lokahófi KKÍ í Stapanum var engin breyting þar á. Sá sem þetta skrifar efast ekki um hæfileika eða getu þeirra Helga Jónasar Guðfinnssonar, Grindavík, og Hildar Sigurðardótt- ur úr KR sem voru valin sem leik- menn ársins. Né um þjálfarahæfi- leika Reynis Kristjánssonar sem stýrði liði Hauka í vetur og Einars Árna Jóhannssonar sem var valinn þjálfari ársins eftir ágætan árang- ur með kvennalið Njarðvíkur. Hins vegar er það ljóst að kosn- ing þessi er ekki gallalaus þrátt fyrir að „lýðræðið“ sé haft að leið- arljósi og aðeins leikmenn sem og þjálfarar hafi atkvæðisrétt. Læðist að manni sá grunur að margir hverjir noti atkvæði sitt til þess að „kjósa ekki“ vissa leikmenn eða þjálfara til þess að „þeirra“ leik- menn og þjálfarar eigi meiri mögu- leika í kosningunni. En í reglum þeim sem farið er eftir mega leikmenn ekki velja samherja sína í þessu kjöri. Já, ég tel að margir fari afar illa með atkvæði sín og gefi þar með brenglaða mynd af því sem í raun og veru er flestum ljóst. Hvernig má það vera að þjálfari sem skilar öllum titlum nema ein- um í hús er ekki valinn besti þjálf- ari ársins? Í þessu tilviki Sigurður Ingi- mundarson, þjálfari karlaliðs Kefl- víkinga. Sömu sögu má segja um Önnu Maríu Sveinsdóttur, þjálfara Íslandsmeistaraliðs Keflavíkur í kvennaflokki? Sigurður stýrir liði sínu til sigurs í 44 leikjum af 52, sem gerir 87% vinningshlutfall, Kjörísbikarmeist- arar, Doritosbikarmeistarar og þegar ísinn og snakkið var búið skilaði hann þeim stóra, Íslands- meistaratitlinum í hús. Anna María stýrir liði sínu í 38 leikjum og vinnur 33 þeirra, sem gerir 85% vinningshlutfall. Þrátt fyrir að lið þeirra beggja sé vel skipað er enginn vafi um að þau eru þeir þjálfarar sem ná besta ár- angri vetrarins. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem gengið er framhjá Sigurði í slíku kjöri en árið 1997 skilaði hann öllum titlum í hús en var ekki valinn þjálfari ársins. Að mínu mati ræður öfundin ríkjum þegar þeir aðilar sem standa að þessu kjöri setja ekki X fyrir framan nöfn þeirra sem ná Þeir bestu úti í kuldanum? Það kann því að fara svo að þaðverði Mílanóslagur í undan- úrslitum keppninnar því Inter mætir annaðhvort AC Milan eða Ajax í næstu umferð. Hvort liðið það verður kemur í ljós í kvöld þegar Ajax sækir AC Milan heim á San Síró í kvöld. Juventus mætir aftur á móti sigurvegaranum í við- ureign Evrópumeistara Real Madrid og Manchester United sem einnig mætast öðru sinni í kvöld í keppni um sæti í undanúrslitum. Barcelona var sókndjarfari að- ilinn gegn Juventus í gærkvöldi, en Katalóníu-liðinu gekk illa að brjóta sterka vörn Juventus á bak aftur. Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Pavel Nedved gest- unum yfir á 53. mínútu. Aðeins þrettán mínútum síðar jafnaði Xavi fyrir heimamenn sem von- uðust þar með eftir að hafa brotið ísinn. Sú varð ekki raunin. Ellefu mínútum fyrir lok venjulegs leik- tíma var Edgar Davids rekinn af leikvelli þegar hann fékk annað gula spjald sitt í leiknum. Einum leikmanni fleiri tókst liðsmönnum Barcelona ekki að skora markið sem þeir þurftu svo sannarlega á að halda og Zalayeta sá til þess að strá salti í sár leikmanna og stuðn- ingsmanna Barcelona þegar hann skoraði laglegt mark fimm mín- útum fyrir lok framlengingarinnar. Nokkrum andartökum áður hafði Gianluigi Buffon, markvörður Juv- entus, varið frá Patrick Kluivert í opnu færi upp við markið hinum megin vallarins. Fyrsta og eina tap Barcelona í Meistaradeildinni á þessari leiktíð var ekki umflúið. Um leið var þetta fyrsti sigur Juventus á spænsku liði á Spáni í 33 ár en þá vann Juventus einnig liðsmenn Barcelona. „Draumi okkar er lokið á ósann- gjarnan hátt,“ sagði Radomir Ant- ic, þjálfari Barcelona, vonsvikinn í leikslok. „Leikmenn mínir lögðu sig alla fram í leikinn en því miður nægði það ekki, besta liðið stendur ekki alltaf uppi sem sigurvegari. Gæfan var okkur ekki hliðholl,“ sagði Antic ennfremur. Félagi hans hjá Juventus, Marc- ello Lippi, var af skiljanlegum ástæðum í sjöunda himni þegar flautað var af. „Ítölsk knattspyrna er að endurheimta sinn stall í evr- ópskri knattspyrnu, það sannar niðurstaða kvöldsins.“ Stórsókn leikmanna Valencia nægði þeim ekki nema til eins marks sigur á Inter, 2:1, og það nægði ekki þar sem Inter vann fyrri leikinn, 1:0. Alls áttu leikmenn Valencia 27 skot á mark Inter á móti þremur hjá en eins og í hinum leik gær- kvöldsins þá voru heilladísirnar ekki með spænsku leikmönnunum. Hetja Inter í leiknum var tvímæla- laust Francesco Toldo markvörður sem varði hvað eftir annað hreint meistaralega. Rafael Benitez, þjálfari Val- encia, gat ekki leynt vonbrigðum sínum í leikslok, ekki síst vegna hins varnarsinnaða leikskipulags Inter-liðsins. „Ef öll lið lékju eins og Inter væru áhorfendapallarnir tómir. Við lékum hins vegar afar vel og það er í meira lagi ósann- gjarnt að við skulum ekki vera í undanúrslitum Meistaradeildar- innar,“ sagði Benitez. Reuters Gianluigi Buffon, markvörður Juventus, fagnaði ákaflega þeg- ar Marcelo Zalayeta skoraði sigurmarkið gegn Barcelona. Ítölsku liðin höfðu betur ÍTÖLSKU félögin Juventus og Inter Mílanó höfðu ástæðu til að fagna í gærkvöldi þegar þau tryggðu sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Þetta er í fyrsta sinn sem tvö ítölsk lið komast í undanúrslit keppninnar. Marcelo Zalayeta var hetja Juventus þegar hann tryggði sigur, 2:1, á Camp Nou í Barce- lona á 115. mínútu í einu sókn Juventus í framlengingunni. Inter komst áfram þrátt fyrir tap í Valencia, 2:1, eftir 1:0 sigur í fyrri leiknum, en mark Christian Vieri í Valenciu í gærkvöldi reyndist dýr- mætt því mark á útivelli hefur tvöfalt vægi í keppninni. FRAMARAR hafa ákveðið að semja ekki við hollenska knattspyrnumanninn Jer- oen van Wetten. Hann kom til móts við þá í æfingabúðum í Danmörku fyrir páskana en meiddist eftir tvo daga og sýndi lítið. „Þetta er stór sóknarmaður sem við gætum eflaust notað í okkar hópi, en ekki af þeim styrkleika að við förum að leggja í kostnað til að fá hann í okkar raðir,“ sagði Brynjar Jóhann- esson, formaður meistaraflokksráðs Fram, við Morgunblaðið. Hann sagði að Framarar væru að skoða málin en ekki lægi ljóst fyrir hvort reynt yrði að fá annan sóknarmann í staðinn. Framarar léku einn leik í ferðinni en þeir gerðu markalaust jafntefli við vara- lið úrvalsdeildarfélagsins Farum. Vildu ekki van Wetten FIMM spor voru saumuð í hnakka Rúnars Kristinssonar, landsliðsfyr- irliða í knattspyrnu, eftir að hann var skallaður harkalega í leik Lok- eren gegn Charleroi í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu um helgina. „Ég stökk upp og var að taka bolt- ann á brjóstkassann þegar ég var skallaður aftan frá,“ sagði Rúnar við Morgunblaðið en kvaðst alls ekki vera slæmur í höfðinu. „Ég hef verið með hálsbólgu en verð vonandi orðinn góður af henni fyrir næsta leik,“ sagði Rúnar. Lok- eren mætir Anderlecht á sunnudags- kvöldið en liðin tvö heyja einvígi um annað sætið og þátttökurétt í Meist- aradeild Evrópu næsta vetur. Fimm spor saumuð í hnakka Rúnars Rúnar Kristinsson HILMAR Þórlindsson leikur að öllu óbreyttu með Gróttu/KR í 1. deild karla í handknattleik næsta vetur. Hann er kominn heim og byrjaður að æfa með liðinu eftir að hafa spil- að með Cangas á Spáni en þar missti hann af stórum hluta tíma- bilsins vegna meiðsla. „Hilmar á eitt ár eftir af samningi sínum og við reiknum alfarið með því að hann spili með okkur,“ sagði Krist- ján Guðlaugsson, formaður Gróttu/ KR, við Morgunblaðið. Hilmar varð markahæsti leikmaður 1. deildar fyrir tveimur árum en hefur síðan spilað sem lánsmaður með Modena á Ítalíu, þar sem hann varð næst- markahæstur í 1. deild, og Cangas. Hilmar með Gróttu/KR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.