Morgunblaðið - 23.04.2003, Blaðsíða 55
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 55
bestum árangri.
Helgi Jónas Guðfinnsson og
Hildur Sigurðardóttir skiluðu sínu
fyrir lið sín í vetur en hvorugt
þeirra fagnaði titli.
Það er í raun illskiljanlegt hvers
vegna Damon Johnson, leikmaður
Keflvíkinga, var ekki valinn leik-
maður ársins. Hann tryggði liði
sínu Kjörísbikarinn gegn Grinda-
vík og var lykilmaður í bikarmeist-
aratitli liðsins sem og Íslands-
meistaratitli. Hvað er hægt að
biðja um meira – Damon er ís-
lenskur ríkisborgari og í mínum
huga sá besti í deildinni.
Sömu sögu má segja um Birnu
Valgarðsdóttur í liði Keflavíkur.
Einn slakur leikur varð liðinu að
falli í bikarkeppninni en í deild-
arkeppninni voru yfirburðir liðsins
miklir og þar fór Birna fremst í
flokki í annars jöfnu liði sem land-
aði Íslandsmeistaratitlinum.
Það er því umhugsunarefni
hvort ekki eigi að skipa nefnd á
vegum KKÍ sem hefur a.m.k. helm-
ingsvægi á móts við leikmenn og
þjálfara í slíku kjöri – að mínu mati
verður að gera breytingar í þá átt
til þess að hefja útnefningarnar á
hærra stig. Að mínu mati voru þeir
bestu hafðir úti í kuldanum að
þessu sinni.
Sigurður Elvar Þórólfsson
Guðni segir að Allardyce hafirætt við sig og spurt sig
hvort hann ætlaði virkilega að
segja þetta gott í
vor. „Ég hef stað-
fest það við stjór-
ann að ég ætla að
hætta eftir tímabil-
ið. Ég er fyrir löngu búinn að taka
ákvörðun um að koma heim og
þeirri ákvörðun verður ekki snúið.
Ég lít svo að þetta sé góður tími til
að leggja skóna á hilluna, allra
hluta vegna.
Á bólgueyðandi verkja-
stillandi töflum
Fjölskyldan hefur verið tvístruð
á milli landa og ég finn það líka á
sjálfum mér líkamlega og andlega
að það sé góður tímapunktur að
hætta á meðan maður er enn að
standa fyrir sínu og í góðu formi.
Það er farið að taka á fyrir
mann að standa í þessari baráttu.
Ég er búinn að vera á bólgueyð-
andi verkjastillandi töflum meira
og minna síðustu þrjú árin og í
undanförnum leikjum hef ég þurft
að fá sprautur. Það er ekkert létt
að komast í gegnum svona lagað
þegar maður er kominn á þennan
aldur og þegar allt er tekið saman
þá finnst mér rétti tíminn kominn
fyrir mig að segja þetta gott. Ég
vona bara innilega að ég geti kvatt
liðið í úrvalsdeildinni og takist það
get ég hætt mjög sáttur.“
Guðni, sem verður 38 ára gamall
í júlí, gekk í raðir Bolton frá Tott-
enham árið 1995. Hann hefur leik-
ið yfir 300 leiki með Bolton og hef-
ur undanfarin ár verið fyrirliði og
leiðtogi liðsins og í miklum metum
hjá stuðningsmönnum félagsins.
Guðni hefur verið útnefndur leik-
maður ársins í tvígang og tekið við
fjölda annarra viðurkenninga fyrir
framúrskarandi leik með liðinu.
Bolton á þrjá leiki eftir í deild-
inni. Liðið tekur á móti Arsenal og
Middlesbrough á heimavelli og í
millitíðinni mætir það Southamp-
ton á St. Marys.
„Við erum ekki búnir að tryggja
tilverurétt okkar í deildinni og því
megum við alls ekki slaka á þó svo
að staðan líti vel út í dag. Við tök-
um á móti meisturum Arsenal
næsta laugardag og það yrði gam-
an að klára dæmið með því að
leggja þá að velli á sama tíma og
West Ham tapaði sínum leik.“
Markatala getur skorið
úr um meistaratitil
Spurður út í baráttu Arsenal og
Manchester United um meistara-
titilinn segir Guðni: „Það er erfitt
að segja til um það en ég vona
bara að við í Bolton getum sett
eitthvert strik í reikninginn með
því að stríða Arsenal um næstu
helgi.
Mér finnst eins og meðbyrinn sé
með Manchester United þessa
stundina en það má ekki gleyma
því að Arsenal á kannski heldur
þægilegra leikjaprógramm. Það
kæmi mér samt ekkert á óvart þó
svo að úrslitin um titilinn réðust á
markatölu.“
AP
Í loftköstum. Guðni Bergsson, fyrirliði Bolton, og Andy Cole, sóknarleikmaður Blackburn,
í viðureign á Ewood Park í Blackburn á annan í páskum sem endaði 0:0.
Guðni Bergsson, fyrirliði Bolton, staðráðinn í að leggja
skóna á hilluna í vor, þrátt fyrir þrýsting um annað
Ætla að kveðja í
úrvalsdeildinni
„ÞAÐ er ekki laust við að maður sé ansi lúinn eftir helgina enda
tveir leikir að baki rúmum tveimur dögum,“ sagði Guðni Bergsson,
fyrirliði Bolton, í samtali við Morgunblaðið í gær en uppskera Bolt-
on um páskahelgina var fjögur stig og liðið á góða möguleika á að
halda sæti sínu í deildinni. Guðni hefur eins og jafnan áður átt góðu
gengi að fagna með Bolton á leiktíðinni. Hann hefur verið einn al-
besti leikmaður liðsins og það er ekkert skrýtið að Sam Allardyce,
knattspyrnustjóri liðsins, er eins og undanfarin ár byrjaður að viðra
þá hugmynd að Guðni verði um kyrrt hjá Bolton.
Eftir
Guðmund
Hilmarsson
LIÐIN í fallhættu – eitt af þeim fellur, sjá
stöðu á bls. 54, eiga eftir þessa leiki:
Birmingham: Middlesbrough (H),
Newvastle (Ú), West Ham (H).
Aston Villa: Everton (Ú), Sunderland (H),
Leeds (Ú).
Leeds: Blackburn (H), Arsenal (Ú),
Aston Villa (H).
Fulham: Chelsea (Ú), Everton (H),
Charlton (Ú).
Bolton: Arsenal (H), Southampton (Ú),
Middlesbrough (H).
West Ham: Man. City (Ú), Chelsea (H),
Birmingham (Ú).
Fallbarátta
HERMANN Hreiðarsson leikur
hugsanlega fyrsta leik sinn í
búningi Charlton í kvöld og það
á gamla heimavellinum, Port-
man Road, heimavelli Ipswich.
Varalið félaganna eigast þá
við en Hermann hefur ekkert
leikið síðan hann meiddist illa á
hné í leik með Ipswich á móti
Stoke um miðjan síðasta mánuð.
Hermann, sem gekk í raðir
Charlton í síðasta mánuði, er á
góðum batavegi og hóf æfingar
á fullu með Charlton í síðustu
viku eftir fimm vikna hlé. Her-
mann segist ekki finna til
neinna eymsla og vonast til að
geta spilað á Portman Road.
Hann má hins vegar ekki leika
með aðalliði Charlton fyrr en á
næstu leiktíð.
Hermann
á Portman
Road?
FJÓRIR íslenskir kylfingar taka
þátt í opna þýska áhugamanna-
mótinu sem hefst þann 25. apríl á
velli nálægt Köln en mótinu lýkur
þann 27. apríl. Um er að ræða ein-
staklings- og sveitakeppni. Ís-
lensku sveitina skipa þeir Heiðar
Bragason, GKJ, Helgi Birkir Þór-
isson, GS, og Örn Ævar Hjart-
arson, GS, en auk þeirra tekur
Helgi Dan Steinsson, GS, þátt í
einstaklingskeppninni.
OLEG Velyky frá Úkraínu, stór-
skyttan sem leikur með Patreki
Jóhannessyni og Guðjóni Vali Sig-
urðssyni hjá þýska liðinu Essen
hefur öðlast þýskan ríkisborgara-
rétt. Velyky er því gjaldgengur í
þýska landsliðið og hafa forráða-
menn þess sýnt áhuga á að fá hann
í sínar raðir og eins hefur leikmað-
urinn lýst því yfir að hann hafi
mikinn áhuga á að reyna fyrir sér
með þýska landsliðinu og leika
með því á Ólympíuleikunum í
Aþenu á næsta ári.
RÚNAR Sigtryggsson skoraði 2
mörk fyrir Ciudad Real þegar liðið
sigrað Cantabria, 26:23, í spænsku
1. deildinni í handknattleik í fyrra-
kvöld. Ciudad Real er í öðru sæti,
þremur stigum á eftir Barcelona.
NORÐMENN eru allt annað en
hrifnir af því að enski dómarinn
Graham Poll hefur verið settur á
leik Dana og Norðmanna í und-
ankeppni EM í knattspyrnu í
Parken 7. júní nk. Þjóðirnar eiga í
harðri baráttu um efsta sætið í 2.
riðli undankeppninnar. Norðmenn
segja að Poll sé ekki þekktur sem
einn af betri dómurum Evrópu, en
toppdómari sé nauðsynlegur á svo
mikilvægan leik.
HAFSTEINN Ægir Geirsson
hafnaði í 19. sæti af 130 kepp-
endum á Laserbáti á sterku sigl-
ingamóti í Frakklandi um
páskana. Mótið var hluti af Evr-
ópumótaröðinni. Hafsteinn náði
best sjötta sæti í þeim sex umferð-
um sem sigldar voru á mótinu.
ÁRNI Gautur Arason sat á vara-
mannabekknum hjá Rosenborg
sem lék Brann grátt á útivelli í
norsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gær. Rosenborg sigraði,
6:1, frammi fyrir rúmlega 18 þús-
und áhorfendum í Bergen og er á
toppi deildarinnar eftir tvær um-
ferðir með 6 stig.
GUÐMUNDUR Viðar Mete lék
allan leikinn með Norrköping sem
gerði jafntefli á útivelli, 1:1, við
Västerås í sænsku 1. deildinni í
knattspyrnu í gærkvöld. Fyrrum
leikmaður KA, Patric Feltendahl,
gerði mark Västerås í leiknum.
GRÓTTU hefur verið úrskurð-
aður sigur gegn Sindra, 3:0, í
deildabikar KSÍ. Sindri vann leik-
inn, 4:2, en tefldi fram ólöglegum
leikmanni, Sævari Gunnarssyni úr
Njarðvík.
FÓLK
ÁSTRALSKI sóknarmaðurinn
Mark Viduka tryggði Leeds dýr-
mæt stig í fallbaráttu ensku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu í
gærkvöld. Viduka skoraði bæði
mörkin þegar Leeds lagði Ful-
ham, 2:0, á Elland Road og hann
hefur nú skorað 11 mörk í síðustu
7 leikjum liðsins og 19 mörk alls
á tímabilinu. Með þessum sigri er
Leeds með sex stigum meira en
West Ham, þriðja neðsta liðið,
þegar þremur umferðum er ólok-
ið og það bendir því allt til þess
að liðið nái að halda sæti sínu í
deildinni.
Viduka að
bjarga
Leeds
ÍSLAND sigraði Skotland, 2:1, í vin-
áttulandsleik unglingalandsliða í
knattspyrnu í gærkvöld en leikið
var í Stirling. Skotar komust yfir 20
mínútum fyrir leikslok en Kjartan
Finnbogason jafnaði rétt á eftir, ný-
kominn inn á sem varamaður.
Kjartani var vísað af leikvelli
skömmu síðar en manni færri
knúðu íslensku strákarnir fram sig-
ur. Ólafur Páll Johnson var felldur í
vítateig Skota á síðustu mínútu
leiksins og úr vítaspyrnunni sem
dæmd var skoraði Ívar Björnsson
sigurmarkið. Liðin mætast aftur á
morgun.
Strákarnir
skelltu
Skotum