Morgunblaðið - 23.04.2003, Síða 59
Rólegur, alveg rólegur. Nicholson
leiðbeinir Sandler í Skapstjórnun.
ÞEIR eru orðnir alveg bálreiðir Jack
Nicholson og Adam Sandler, eða
þannig. Málið er að Skapstjórnun,
mynd þeirra félaga, er langvinsæl-
asta myndin vestanhafs, aðra vikuna
í röð og gengur framar vonum.
Myndin var frumsýnd í 19 borgum
um helgina og er nú sýnd í 3570 kvik-
myndahúsum, um gervöll Bandarík-
in. Bendir nú margt til þess að hún
haldi líka toppsætinu um næstu helgi
en þá verða frumsýndar gaman-
myndin Þetta er í blóðinu (It Runs In
The Family) og spennumyndin
Kennimark (Identity).
Almennt jókst bíóaðsóknin frá því
um síðustu helgi en þrjár nýjar
myndir röðuðu sér í sætin á eftir
toppmyndinni Skapstjórnun. Hæst
þeirra er fjölskyldumyndin Holur
(Holes), sem fjallar um unglinga á
heimili fyrir vandræðaunglinga sem
finna fjársjóð þegar þeir eru neyddir
til að grafa holur í betrunarskyni.
Myndin hefur fengið ágætis umsagn-
ir hjá gagnrýnendum en leikstjóri
hennar var Andrew Davis (Flótta-
maðurinn) og þekktustu leikararnir
Jon Voigt og Sigourney Weaver.
Í þriðja sætinu er gamanmyndin
Malibu’s Most Wanted þar sem Jam-
ie Kennedy úr Jamie Kennedy Ex-
perience leikur vonlausan hvítan
rappara. Í fjórða sætinu lenti svo
Skotheldi munkurinn, bardagagam-
anmynd með Chow Yun-Fat og Sean
William Scott (American Pie). Báðar
liðu þessar myndir fyrir neikvæðar
umsagnir fjölmiðla.
Bíóaðsókn í Bandaríkjunum
!
!"
#$%
&%'
#%&
(%)
$%)
*%$
'%'
#%(
#%$
#%$
( %
&%'
#%&
%(
'$%
#)%#
##%)
##%)
)%
& %)
Reiðin ræð-
ur ennþá
ríkjum
skarpi@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2003 59
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
Traust, svik og blekkingar
Í heimi leyniþjónustunnar er ekki allt
sem sýnist.
Frábær spennumynd sem fór
beintá toppinn í Bandaríkjunum.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. Sýnd kl. 8. B.i 12
HK DV
Kvikmyndir.com
SV MBL
HJ MBL
HK DV
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 8. B.i 12.
HOURS
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 5.50 og 8. B.i 12.
BESTA HEIMILDARMYNDIN
ÓSKARSVERÐLAUN
www.regnboginn.is
HK DV
X-97,7
HJ MBL
Kvikmyndir.com
GAMLE MÆND I NYE BILER
sýnd kl. 10.10. ísl. texti.
EL CRIMEN DEL PADRE AMARO
sýnd kl. 6. enskur texti.
GOOD GIRL
sýnd kl. 6. ísl. texti.
COMEDIAN
sýnd kl. 10.20. enskt. tal.
RABBIT PROOF FENCE
sýnd kl. 10.20. enskt tal.
BOWLING FOR COLUMBINE
sýnd kl. 8 og 10.10. ísl. texti.
400
kr
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Miðaverð 750 kr.
Þetta
var hin
fullkomna
brúðkaups-
ferð...
þangað til
hún
byrjaði!
Þrælfyndin og skemmtileg mynd með
Ashton Kutcher úr Dude Where´s
My Car og Brittany Murphy úr 8 Mile.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 4. Ísl. tal. 400 kr.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
www.laugarasbio.is
ÞAÐ hefur staðið styr um útgáfu á
nýjustu plötu poppdrottningar-
innar einu og sönnu, Madonnu. En
var við öðru að búast? Frá því að
hún kom fyrst fram á sjónarsviðið í
upphafi níunda áratugarins hefur
hún verið meistari í því að nýta fjöl-
miðlana sér í hag, verið snillingur í
að koma af stað hvers kyns
hneyksli og halda sér þannig stöð-
ugt í sviðsljósinu sem persónunni
Madonnu. Látum vera með sjálfa
tónlistina sem hefur átt það til að
vera brokkgeng. Engu að síður
hafa tvær síðustu plötur, Music
(’00) og Ray of Light (’98) verið afar
boðlegar afurðir og sýnt að lista-
maðurinn Madonna er býsna lunkin
við að bregðast við straumum og
stefnum poppsins. Eins og áður
segir kom nýjasta breiðskífan, Am-
erican Life, út í gær og hefur með-
gangan verið í erfiðara lagi og alls
kyns vesen verið í kringum hana,
m.a. vegna ótímabærs leka út á
Netið.
Steliþjófar
Ekkert virðist geta stöðvað tón-
listaráhugamenn með áhuga á tölv-
um og stafrænni tækni. American
Life er búin að vera á sveimi í net-
heimum um nokkra hríð en sum
lögin hafa verið gervi – skrárnar
hafa verið tómar utan þess að Ma-
donna sjálf heyrist segja: „Hvern
skrambann ertu að gera?“ Var
þetta að undirlagi hennar og War-
ner Brothers og gert til að snúa að-
eins upp á steliþjófana.
Á ferlinum hefur Madonna náð
að selja yfir 130 milljónir platna. En
eins og vanalega eru nú uppi efa-
semdaraddir um að hún eigi mögu-
leika í yngri „keppendur“ eins og
Pink, Shakira, Christinu Aguilera
að ekki sé nú talað um Britney. En
strax í fyrsta leik hefur hún þó náð
að gera allt vitlaust, eins og hún á
vanda til. Hún dró nefnilega mynd-
bandið við titillagið til baka þar
sem henni þótti það innihalda við-
kvæmar tilvísanir í stríðið í Írak.
Sko! hún kann þetta enn!
Það olli hins vegar vonbrigðum í
herbúðum Madonnu að lagið sjálft
fór einvörðungu í annað sæti
breska listans þegar það kom út, en
ekki beint í fyrsta sætið. Það vantar
því ekki væntingarnar og pressuna.
Sá er sér um takkastjórn á Am-
erican Life er hinn sami og stýrði
síðustu plötu, Music. Hann er
franskur, heitir Mirwais Ahmadzai
og er Madonna fyrsti „stóri“ lista-
maðurinn sem hann vinnur með.
Spennandi verður nú að sjá – og
heyra – hvort Madonna nær enn og
aftur að sölsa undir sig krúnuna
sem hin eina og sanna poppdrottn-
ing með þessari nýjustu afurð sinni.
Ný plata Madonnu – American Life – kom út í gær
Poppdrottning snýr aftur
Steven Klein
Madonna: Enn drottning?
arnart@mbl.is