Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ sinni þannig að það er í verkahring stjórn- málamannanna að ráða þeim hlutum. Ég var sjö ár umdæmisverkfræðingur á Austurlandi. Mest áberandi þingmenn á þeim tíma voru Eysteinn Jónsson og Lúðvík Jós- epsson. Jónas Pétursson var líka drjúgur þótt hann færi hægar. Lúðvík og Eysteinn voru báðir skapmiklir og nokkuð ráðríkir. Fljótlega eftir að ný kjördæmaskipun komst á 1959 var farið að gera vegaáætlanir til fjög- urra ára. Þetta var heilmikið verkefni og menn tókust á. Þingmennirnir helguðu sér dálítið sín svæði innan kjördæmisins, sérstaklega fyrst. Einn var kominn sunnan úr Skaftafellssýslu, annar norðan úr Vopnafirði og sá þriðji af Hér- aði. Þeir þekktu vel sína heimahaga og þarfir fólksins þar. Það þurfti því heilmikla umræðu og málamiðlun til að koma vegaáætlun saman. Auk þess sem þarfirnar voru margfalt meiri en var hægt að sinna. Ég man þó aldrei eftir því að menn kæmust ekki að niðurstöðu sem allir studdu þegar upp var staðið. Aðkoma stjórnmálamanna að vegamálum hefur orðið sífellt markvissari eftir því sem tíminn hefur liðið. Nú eru gerðar áætlanir til langs tíma, tólf ára, og þá er litið á landið sem eina heild. Mannvirkjagerð á Skeiðarársandi Þegar ég hætti sem umdæmisverkfræð- ingur fór ég alfarið í að hanna brýr og hafa um- sjón með framkvæmdum. Þá var Árni Pálsson, yfirverkfræðingur brúardeildar, kominn að starfslokum en hann hætti 1967. Undir hans handleiðslu hannaði ég Jökulsárbrú á Breiða- merkursandi auk þess sem ég hafði umsjón með framkvæmdum við hana. Með þeirri brú má segja að Öræfasveitin hafi verið tengd í fyrsta skipti. Við vígslu Jökulsárbrúar er í fyrsta skipti byrjað að tala um að nú sé kominn tími til að brúa árnar á Skeiðarársandi. Undirbúningur fór hægt af stað og tók nokkur ár með hjálp ýmissa manna eins og Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings og fleiri vísindamanna. Þegar menn áttuðu sig á því að framundan væri 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar vaknaði sú hugsun að æskilegt væri að opna hringveginn á þjóðhátíðarárinu. Mannvirkjagerð á Skeiðarársandi var mjög dýr og það vafðist því fyrir mönnum hvernig ætti að fjármagna hana. Jónas Pétursson kom fram með þá hugmynd að efna til happdrættis. Það var svo gert og mikil þátttaka var í því. Haustið 1971 vorum við beðnir að gera frumáætlun um framkvæmdir. Í janúar 1972 sendum við hana til samgönguráðherra, sem þá var Hannibal Valdimarsson. Það liðu ein- ungis nokkrir dagar uns kom svar frá ráðherra og hljóðaði efnislega þannig: „Drífið ykkur af stað, það á að opna hringveginn 1974.“ Þá voru rúmlega tvö ár til stefnu. Þessar forsendur voru ákaflega skemmti- legar til að vinna að þessu verkefni. Svo kom hlaup rétt í þessu svo við gátum gert nauðsyn- legar mælingar auk þess sem það auglýsti vel happdrættið. Eitt af því sem var erfitt við hönnun brúa og varnargarða var að ákveða hvaða stærð af jök- ulhlaupum þessi mannvirki ættu að þola. Það höfðu verið í gangi tvenns konar hlaup á þess- um slóðum. Annað sem mætti kalla venjuleg hlaup og hins vegar stór hlaup. Þegar þarna var komið sögu höfðu ekki komið stór hlaup í 35 ár. Samt var öllum ljóst að stór hlaup gætu komið. Það var líka ljóst að það var utan seil- ingar fjárhagslega að ráðast í mannvirkjagerð sem var hægt að gera sér vonir um að gætu staðist þessi stóru hlaup. Markmiðið var sett að þau stæðust venjuleg hlaup. Engir vissu heldur hvenær þessi stóru hlaup kæmu aftur. Jökullinn hafði minnkað og menn báru vonir í brjósti um að þau væru búin í bili en síðan yrðu menn að taka áföllin ef kæmu stórhlaup. Þegar gaus í Vatnajökli 1996 kom hlaup sem jöklafræðingar segja að sé líklega það stærsta sem hafi komið á sögulegum tíma og þá hlaut eitthvað undan að láta. Hugmyndafræðin var sú, sérstaklega við Skeiðará, að varnargarð- arnir færu og vegurinn líka en brúin, sem er langdýrust, hefði einhverja möguleika á að standa. Henni var skipt niður í búta, þannig að einn bútur gat farið án þess að öll brúin skemmdist. Það var einmitt það sem gerðist í síðasta hlaupi. Ég var nokkuð sáttur við hvað brúin stóðst álagið vel frá þessum gríðarlegu náttúruhamförum. Það er auðvitað sérstæð lífsreynsla að sjá stór mannvirki sem maður hefur litið á sem sín á vissan hátt verða fyrir svona kárínum. En það var tvennt sem hjálpaði manni og það er að gert var ráð fyrir frá upphafi að þetta gæti gerst og að hugmyndin hvað varðar Skeið- arána gekk upp í verulegum mæli. Brúin á Sandgígjukvísl fór reyndar alveg en þar voru þessi skilyrði ekki fyrir hendi. Þar var þröngur farvegur sem gróf sig niður og vatnsflaum- urinn með sínum gífurlega jakaburði tók brúna. Framkvæmdir hófust haustið 1972. Menn áttuðu sig fljótt á því að það var á vissan hátt verið að breyta landafræðinni með því að tengja hringveginn og því þurfti að vera lokið fyrir þjóðhátíðina. Allt þetta stuðlaði að því að þarna skapaðist gríðarleg stemmning með fólkinu sem vann að byggingu brúa og gerð vega og varnargarða að drífa verkin áfram. Ég held ég hafi aldrei upplifað aðra slíka. Þarna var unnið meira og minna allan veturinn en tekið gott jólafrí. Auðvitað voru aðstæður stundum harkalegar, sem sköpuðust af óblíð- um vetrarveðrum og sandbyljum sem eru þarna þegar þannig áttar, en menn létu það ekki á sig fá. Verkinu lauk á tilsettum tíma og mannvirkin voru vígð í ágúst 1974. Frá byrjun til enda Hönnun og bygging Borgarfjarðarbrúar- innar tók nánast beint við af brúnni yfir Skeið- arársand. Það var á vissan hátt eins og dagur og nótt að fást við þessi tvö verkefni. Austur á Skeiðarársandi höfðu menn fast land undir fót- um og vatninu var veitt í burtu meðan á fram- kvæmdum stóð. Að þessu leyti var vinnu- staðurinn hentugur og þægilegur. Í Borgarfirðinum þurfti að vinna alla brúar- smíðina af sjó og þurftum við að byrja á því að skipuleggja byggingaraðferðirnar og hanna og smíða hjálparbúnað til að byggja brúna og var það í sjálfu sér meira verk en hönnunin á sjálfri brúnni. Við urðum fyrir áfalli fyrsta sumarið þegar skip sem við notuðum við framkvæmdirnar sökk hjá okkur í byrjun september 1975. Það olli því að það varð ekkert úr því að okkur tæk- ist að byggja fyrsta stöpulinn þetta haust. Við höfðum ætlað okkur að reyna að komast í gegnum einn stöpul svo við gætum lært af því og endurbætt aðferðarfræðina yfir veturinn. Veturinn notuðum við engu að síður til að þróa og smíða hjálparbúnað og byrjuðum af krafti um vorið úti á firðinum. Eftir það gekk þetta tæknilega séð ágætlega. Hins vegar tók bygg- ing brúarinnar lengri tíma en vera þurfti vegna þess að það vantaði fjármagn til fram- kvæmdanna. Ég hafði óskaplega gaman af þessum tím- um. Tilhögunin var þá önnur en núna. Við hönnuðum, undirbjuggum verkið og byggðum brýrnar. Var það nánast sama gengið sem vann öll þessi verk. Það þykir ekki gott í dag að sami aðili hanni og byggi en mér fannst þetta mjög skemmtilegt fyrirkomulag. Maður hafði frá byrjun hugmynd um hvað maður vildi gera og þurfti að aðlaga þær hugmyndir eftir því sem verkinu miðaði áfram. Ég tel mig afar heppinn að hafa lifað þessa tíma að fá að sjá um mannvirkjagerð, frá byrjun til enda. Það skipulag sem nú gildir, að fá verktaka til að annast framkvæmdina, á auðvitað sín rök líka. Þau felast einkum í því að sérhæfingin hefur vaxið það mikið að engum er ætlandi að vera góður bæði í hönnun og framkvæmdum. Svo er talið að verktakar byggi ódýrar. Á móti kemur að það tapast reynsla og þekking á framkvæmdum sem væri gott að hafa inni í hönnunarvinnunni. Allt hefur þetta sína kosti og galla. Vegakerfið svolítið frímerkjalegt Árið 1977 varð ég forstjóri tæknideildar Vegagerðarinnar. Snæbjörn Jónsson, sem ver- ið hafði í því starfi, varð þá vegamálastjóri. Þá dró mjög úr þessari beinu aðild minni að fram- kvæmdum og hönnun. Ég fór meira í skipu- lags- og stjórnunarstörf. Sá þáttur varð síðan enn fyrirferðarmeiri þegar ég varð vega- málastjóri í árslok 1991. Ég sá svolítið eftir þessari beinu aðild að mörkinni. Ég var reyndar búinn að gera mér grein fyrir umskiptunum og það var því ekkert sem kom á óvart. Stærsta verkefnið á þessum áratug hefur verið slitlagavæðing veganna, en hún hófst upp úr 1980. Fyrir 1980 voru einungis 200–300 kílómetr- ar af íslenskum vegum með bundnu slitlagi, hitt voru allt malarvegir. Sú tegund slitlags sem við notum mest er þróuð í Noregi og er mjög ódýr í framkvæmd. Hún dugir ágætlega á megnið af okkar vega- kerfi, þar sem umferð er ekki mikil. Það var ákveðið að dreifa slitlögum út um landið þannig að allir fengju einhvern smjör- þef af þeim. Slitlagið var fyrst og fremst sett á þá kafla sem voru sterkir og þurftu lítils undirbúnings við. Þannig vorum við að reyna að ná sem lengstum köflum fyrir sem minnst fé. Auðvitað varð þetta svolítið frímerkjalegt allt saman. En menn gagnrýndu þetta ekki svo mjög og voru ánægðir með hvern kafla sem bættist við. Þegar meirihlutinn af stofnvegum landsins var kominn með bundið slitlag heyrðum við hins vegar gagnrýnisraddir sem sögðu: „Af hverju drífið þið ykkur ekki og ljúkið við þessa kafla sem eftir eru?“ Þótt það hafi gengið vel að setja bundið slit- lag á vegina er furðumikið eftir og verður ekki komið bundið slitlag á allan hringveginn fyrr en eftir 4–6 ár. Á Vestfjörðum og á norðaust- urhorninu á eftir að setja bundið slitlag á langa kafla stofnvega. Bundna slitlagið hefur reynst ótrúlega vel og raunar betur en við þessir bjartsýnustu þorðum að vona. Auk slitlaganna hefur mikil áhersla verið lögð á vegagerð á höfuðborgarsvæðinu á und- anförnum árum, þar sem umferðin er orðin mjög mikil og biðraðir myndast á ákveðnum tímum sólarhringsins. Ef smáóhöpp verða er allt í hers höndum. Við höfum verið að breikka vegina innan borgarmarkanna og byggja nýjar akreinar og ný gatnamótamannvirki en þetta er allt mjög kostnaðarsamt. Það er aðeins um 4% af ferðum fólks á höf- uðborgarsvæðinu sem fer fram með almenn- ingssamgöngum. Er þetta tengt því hvað byggðin er dreifð og gisin og vegalengdir mikl- ar. Menn hafa ekki ennþá komið auga á hvern- ig hægt er að breyta þessu hlutfalli mikið. Við erum mikil bílaþjóð, komin með 560 einkabíla á hverja 1000 íbúa og er það með því mesta sem þekkist. Þetta er almennt talið bera vott um öflugt efnahagslíf og það er því ekki æskilegt að skrúfa einkabílismann niður heldur draga úr neikvæðum afleiðingum hans, þar á ég eink- um við umferðarslys og mengunina, og bíða mikil verkefni á báðum þessum sviðum. Þriðji verkefnahópurinn eru þessi stóru, dýru verkefni eins og jarðgöng en með þeim er verið að tryggja vetrarsamgöngur, stækka at- vinnusvæði og stytta vegalengdir. Allir þessir þrír verkefnaflokkar verða ofarlega á baugi enn um langt skeið. Hálendisvegir af hinu góða Það hefur verið mín skoðun lengi að við yrð- um að komast nokkuð langt í byggðavegunum áður en við færum að eyða miklum fjármunum í hálendisvegi. Í nýsamþykktri samgönguáætl- un var í fyrsta skipti sett inn það markmið að fjórir hálendisvegir skuli teknir fyrir og lagðir bundnu slitlagi. Þ.e. Kaldidalur, Kjölur, Sprengisandur og Fjallabaksleið nyrðri. Mér hefur alltaf fundist að hálend- isvegakerfið ætti að vera niðurskipt. Aðalleið- irnar eiga að vera nokkuð góðar eins og þessir fjórir vegir sem ég nefndi. Síðan eigi að vera malarvegir eða malarslóðir og torfærir vegir, þá fyrst og fremst fyrir jeppa og slíka bíla. All- ir verði að hafa eitthvað við sitt hæfi. Ég tel að markmiðið með verndun hálendis sé að ein- hverjir njóti þess. Því eigi að opna hálendið að vissu marki en auðvitað á að hafa það eftir ákveðnu skipulagi. Það hálendisskipulag sem var unnið hér fyrir nokkrum árum var fyrsti áfanginn í því og mjög góð byrjun á því máli. En nauðsynlegt er að finna meðalhófið milli friðunar og nýtingar. Það hefur verið mjög áhugavert að starfa að vegamálum í þessu landi vegna þess að verk- efnin hafa verið mjög fjölbreytileg og krefj- andi. Við höfum verið á eftir nágrannaþjóðum okkar í vegamálum og erum enn. Því lætur þjóðin sig vegamál alltaf miklu varða. Það er skemmtilegt að fást við málaflokk sem hefur hljómgrunn. Ég held að það sé gæfa hvers manns, ef hann hefur gaman af vinnunni, og þannig hef- ur það verið með mig. Hjá Vegagerðinni hefur ríkt góður starfsandi og þar er mikið af góðu fólki, sem hefur mikinn metnað í starfi. Ég hef einnig verið gæfumaður í einkalífinu. Konan mín heitir Margrét Gunnarsdóttir Schram, leikskólakennari, og eigum við fjögur börn. Elstur er Hallgrímur, rithöfundur, þá Nína, mannfræðingur og verkefnastjóri hjá Rauða krossi Íslands. Tvíburarnir Ásmundur, markaðsfræðingur, og Gunnar, leikari, eru yngstir. Barnabörnin eru níu. Það er mikið ríkidæmi að eiga stóra og góða fjölskyldu. Af áhugamálunum má nefna að við höfum lengi stundað útivist. Á veturna eru það skíðin en ferðalög um landið á sumrin. Við eigum einnig sumarbústað og þar eru alltaf næg verkefni á boðstólum. Ferðalög um landið kveikja áhuga á staðfræði og sögu og ég hef dálítið grúskað í þeim hlutum eftir því sem tími hefur gefist. Áhugamálin eru næg og meiri tími verður til að sinna þeim nú þegar vinnuskyldunni er lokið.“ Hér má sjá Helga ásamt stálbitum úr Skeiðarárbrú sem lentu í hlaupinu í Vatnajökli 1996. Helgi ásamt börnum sínum og eiginkonu, Margréti Gunnarsdóttur Schram. Börnin eru, talið frá vinstri, Ásmundur, Nína, Hallgrímur og Gunnar. he@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.