Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 64
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, formaður vinstri grænna, er andsnúinn hugmyndum Samfylk- ingarinnar um breytingar á úthlut- un aflaheimilda. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, talsmaður Samfylk- ingarinnar, sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að hún vildi að strax í haust yrði sú aukning á afla- heimildum, sem talað hefur verið um að verði heimiluð á næsta fisk- veiðiári, boðin til leigu. Steingrímur segir hugmyndir Samfylkingar í grundvallaratrið- um ólíkar stefnu VG þrátt fyrir að sama orðalag sé notað að ein- hverju leyti. Magnús Þór Haf- steinsson, varaformaður Frjáls- lynda flokksins, lýsir einnig yfir andstöðu við tillögu Samfylkingar- innar. Steingrímur J. segist vilja tengja aflaheimildir við ákveðin byggðarlög. Til þess að það gerist þurfi að mynda nýja ríksstjórn þar sem Sjálfstæðisflokkurinn sé harð- astur í vörninni fyrir óbreyttu kerfi. Frjálslyndir andvígir stefnu Samfylkingar „Ég skrifa að sjálfsögðu ekki upp á þetta því þetta [hugmyndir Samfylkingar] er ekki okkar stefna og ég hef þvert á móti goldið talsverðan varhug við þessari upp- boðsleið Samfylkingarinnar,“ sagði Steingrímur J. „Við erum að tala um verulega byggðartengingu réttarins sem skapar sjávarbyggð- unum allt aðra stöðu heldur en að keppa um hvert einasta kíló á upp- boði. Maður spyr sig að því hvort afl peninganna muni ekki ráða úr- slitum þegar allar veiðiheimildir fara á uppboð. Okkar sjávarút- vegsstefna er í grundvallaratrið- um ólík og á í raun ekkert sameig- inlegt með uppboðsleið Samfylk- ingarinnar nema þá helst þetta nafn sem mikil tilhneiging er til að skella sem samheiti á allar hug- myndir um breytingar, það er að segja nafnið fyrningarleið,“ sagði Steingrímur. Steingrímur sagði ótímabært að ræða aukinn kvóta þar sem ekki væri komin endanleg niðurstaða um slíkt frá Hafrannsóknastofnun. Magnús Þór Hafsteinsson, vara- formaður Frjálslynda flokksins, er heldur ekki hlynntur hugmyndum Samfylkingarinnar. „Ég tel að fyrningarleið Samfylkingarinnar gangi ekki upp því menn ætla að vera áfram í kvótakerfi. Mér líst ekki á það, ef það verður einhver aukning í haust, að það eigi að fara að leigja það strax út. Ég tel frekar að menn ættu að fara eftir okkar tillögum og skipta um kerfi og taka upp aflaaukningu í gegnum þær breytingar,“ sagði Magnús. Andstaða við til- lögu Samfylkingar Morgunblaðið/Alfons ÞAÐ hefur færst í vöxt að eiginkonur trillukarla skreppi á sjóinn með bóndanum til þess að taka þátt í vinnunni um borð. Ingibjörg Stein- þórsdóttir brá sér á dögunum í róður með eiginmanni sínum, Ómari Maríassyni, en þau gera út trilluna Rakel SH frá Ólafsvík. Saman á trillunni MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. FYLGNI er á milli hasarleikjanotkunar ís- lenskra unglinga og beitingar þeirra á lík- amlegu og andlegu ofbeldi. Þetta er nið- urstaða nýrrar íslenskrar rannsóknar á tengslum notkunar tölvuleikja og árás- arhneigðar unglinga sem dr. Guðbjörg Hild- ur Kolbeins, lektor við Háskóla Íslands, vann. Þá sýnir rannsóknin að einn af hverjum tíu unglingum er beittur líkamlegu ofbeldi á heimilinu af foreldri eða forráðamanni og einn af hverjum fimm verður vitni að ofbeldi heima fyrir. Guðbjörg segir að niðurstöðurnar séu í samræmi við erlendar rannsóknir sem gerð- ar hafa verið á áhrifum tölvuleikjaofbeldis á börn. „Við getum ekki sagt til um hvað er orsök og hvað afleiðing hér þótt tengslin séu ljós. Sumir vilja meina að ofbeldisfullir tölvuleikir kenni börnum að ofbeldi sé skemmtilegt og að þeir geri þau ónæm fyrir ofbeldi. Við getum hins vegar ekkert fullyrt um það út frá þessari rannsókn.“ Rannsóknin var gerð í 15 grunnskólum haustið 2002 og fór þannig fram að 965 ung- lingar á aldrinum 13-15 ára svöruðu spurn- ingalistum. Guðbjörg segir að sumir telji að tölvu- leikir þjálfi börn í að drepa. Þannig hafi bandaríski herinn notað lítillega breytta út- gáfu af sjónvarpstölvuleiknum Duck Hunt í skotþjálfun hermanna sinna. „Vakið hefur athygli í Bandaríkjunum hvað börn og ung- lingar eru ótrúlega leikin í að skjóta úr byssum. Komið hefur í ljós að þau eru jafn- vel betri í að hitta með skambyssum en þjálfaðir hermenn og lögreglumenn þrátt fyrir að hafa aldrei komið nálægt skamm- byssum áður.“ Hún nefnir dæmi af dreng í Bandaríkjunum sem fór með byssu í skólann og skaut á skólafélaga sína fyrir nokkrum árum. „Menn voru forviða á því að hann skaut átta skotum og hitti úr þeim öllum, auk þess sem athygli vakti að öll skotin fóru í efri hluta líkamans. Hann hafði aldrei snert á skammbyssu áður en hins vegar leik- ið sér mikið í skottölvuleikjum.“ Rannsóknin sýnir að 10% barna spila tölvuleiki meira en 10 tíma á viku, 20% í 3– 10 tíma, en 20% spila aldrei tölvuleiki. Guð- björg bendir á að samkvæmt sínum rann- sóknum og annarra séu tengslin á milli áhorfs á ofbeldisfullt sjónvarpsefni og árás- arhneigðar sterkari en tengslin á milli tölvuleikjanotkunar og árásarhneigðar. Ef til vill megi skýra það með því að börn eyði meiri tíma í að horfa á sjónvarp og það skipi stærri sess í lífi þeirra. Tengsl ofbeldis og heimilisaðstæðna voru könnuð í rannsókninni og kom í ljós að heimilisaðstæður hafa gífurlega mikil áhrif á hvort unglingur beitir ofbeldi. Það á við hjá báðum kynjum en tengslin eru þó mun sterkari hjá stúlkum. Þá sýnir rannsóknin að strákar beita frekar líkamlegu ofbeldi en stelpur en stelpur beita andlegu ofbeldi jafnmikið og strákar. Tengsl milli tölvuleikja og árásar- hneigðar hjá íslenskum unglingum AP Um 20% vitni að ofbeldi heima fyrir TÖLVURUSLPÓSTUR sem netþjónustan Snerpa hefur hafnað fyrir hönd viðskipta- vina sinna hefur aukist úr 7,63% í septem- ber árið 2001 í 49,7% af almennum tölvu- pósti í liðnum mánuði. Svipuð almenn þróun kemur fram í upplýsingum frá fyrirtækinu Brightmail í nýjasta hefti tímaritsins Econ- omist. Hlutfall ruslpósts virðist vera á bilinu 45-70% af allri tölvupóstumferð að því er fram kemur í grein undir yfirskrift- inni Kæfa eða kræsingar í sunnudags- blaðinu. Í greininni kemur fram að ruslpóstur er álitinn sífellt alvarlegra vandamál í Banda- ríkjunum. Um helmingur allra ríkja Banda- ríkjanna hefur mótað sér löggjöf til að stemma stigu við ruslpósti og sífellt meiri þrýstingur myndast á stjórnvöld um mótun heildarlöggjafar fyrir ríkið allt. Fyrirbyggjandi bann hérlendis Hér á landi hefur samkvæmt lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga aðeins ver- ið leyfilegt að senda almennum töluvunot- endum ein óumbeðin skilaboð með tölvu- pósti í markaðsskyni. Ef notandinn veitir ekki samþykki sitt fyrir fleiri skilaboðum úr sömu átt eru áframhaldandi sendingar óheimilar samkvæmt lögunum. Á þessu verður breyting þegar ný lög um fjarskipti taka gildi í júlí í sumar. Lögin segja fyrir um að notkun sjálfvirkra uppkallskerfa, símbréfa eða tölvupósts fyrir beina mark- aðssetningu sé aðeins heimil þegar áskrif- andi hafi veitt samþykki sitt fyrirfram. Björn Davíðsson, þróunarstjóri Snerpu, segir bannið fyrst og fremst fyrirbyggj- andi. „Þó að ruslpóstur af íslenskum upp- runa sé afar sjaldgæfur er ekkert óeðlilegt miðað við þróunina að setja inn í íslensk lög fyrirbyggjandi bann um ruslpóstsending- ar.“ Í Kæfu og kræsingum er fjallað um fyr- irbærið ruslpóst og til hvaða ráða er gripið til að stemma stigu við honum hérlendis og erlendis. 45–70% af sendum tölvupósti ruslpóstur  Kæfa/12 BANDARÍSKI leikarinn og leik- stjórinn Tim Blake Nelson, sem þekktur er m.a. fyrir leik sinn í O Brother Where Art Thou og The Good Girl, hefur tekið að sér aðal- hlutverkið í Hvíslaranum, kvikmynd eftir Ragn- ar Bragason, en handrit hennar var tilnefnt til verðlauna á Sundance- hátíðinni í ár þar sem Nelson var formaður dómnefndar. Að sögn Ragnars eru ýmsir fleiri þekktir leikarar vestra að íhuga þátttöku í myndinni, m.a. fyrir milligöngu Nelsons. „Ég hafði ekki gert mér neinar stórar grillur um að Hvíslarinn yrði mynd sem ég fengi fjármagnaða á næstu árum enda mjög viðamikið verkefni og kostnaðaráætlun hljóð- ar upp á rúmar 500 milljónir króna,“ segir Ragnar í samtali við Morgunblaðið. „En eftir að ég var tilnefndur til Sundance-verð- launanna fór boltinn að rúlla.“ Hvíslarinn verður þó ekki gerður í ár, en í sumar mun Ragnar taka bíómynd í samstarfi við Vesturport, sem hefur vinnutitilinn Kvikyndi. Tim Blake með meðleikkonu sinni í The Good Girl, Jennifer Aniston. Tim Blake Nelson í Hvíslaranum Ragnar Bragason: 500 millj. verkefni.  Vil bæta/Sunnudagur 20 VG og frjálslyndir gagnrýna tillögu Samfylk- ingar um úthlutun á 30 þúsund tonna þorskkvóta  Tillögur/4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.