Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Netsalan ehf., Garðatorgi 3, 210 Garðabæ Sími 565 6241, 544 4210 - fax 544 4211, netf.: netsalan@itn.is Heimasíða: www.itn.is/netsalan. Opið á virkum dögum frá kl. 10–18. Opið í dag, sunnudag frá kl. 11-16 McLOUIS HÚSBÍLAR Fyrsta sending UPPSELD - önnur á leiðinni SÖLU- OG KYNNINGARSÝNING Landsins besta verð! Fellihýsin eru tilbúin á götuna með bremsubúnaði. Takmarkað magn. Til afgreiðslu strax Epic 1906 9 fet. Verð kr. 798.000 *himinn fylgir ekki VIKING FELLIHÝSI * Eigum til Grand Cherokee jeppa, Limited og Overland. Splunkunýja! KÓPAVOGSBÆR stendur um þess- ar mundir fyrir Kópavogsdögum 2003 sem lýkur 11. maí nk. Í tilkynningu frá Kópavogsbæ seg- ir að í boði séu fjölmargir lista- og menningarviðburðir, s.s. listsýningar, menningarganga, tónleikar og hag- yrðingakvöld, auk þess sem ungir Kópavogsbúar og eldri borgarar sýna afrakstur verka sinna frá nýliðnum vetri. Í tilefni Kópavogsdaga verður opið hús í félagsmiðstöðvum Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs (ÍTK), hjá listamönnum í bænum, leikskól- um Kópavogs og hjá eldri borgurum í Gullsmára og Gjábakka. Leiðsögn í Gerðarsafni í dag Kópavogsdögum lýkur með sér- stakri afmælisdagskrá 11. maí á 48 ára afmæli Kópavogsbæjar. Verður af því tilefni m.a. boðið upp á gospel- messu í Vetrargarðinum í Smáralind með prestum úr öllum söfnuðum þjóðkirkjunnar í Kópavogi. Í dag kl. 15 gefst fólki kostur á að skoða yf- irlitssýningu Gerðar Helgadóttur í Gerðarsafni undir leiðsögn forstöðu- manns safnsins auk þess sem gengið verður að Kópavogskirkju og skoðað- ir steindir gluggar eftir Gerði. Fjölbreytt dagskrá á Kópavogs- dögum TENGLAR .............................................. Heimasíða Kópavogsbæjar: www.kopavogur.is VERZLUNARMANNAFÉLAG Reykjavíkur bauð venju samkvæmt til kaffisamsætis á Broadway í til- efni af baráttudegi verkalýðsins 1. maí, sl. fimmtudag. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, lét sig ekki vanta og sést hann hér á spjalli við nokkra gesti, þ.á m. Guðmund H. Garðarsson, fyrrverandi formann VR, sem situr fyrir miðju gegnt Halldóri. Fjölmenni í 1. maí-kaffi hjá VR ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra segir hugmyndir Samfylk- ingarinnar um breytta úthlutun á aflaheimildum, útboð veiðiheimilda og svokallaða fyrningarleið, geta orð- ið til þess að koma höggi á lands- byggðina. „Ef Samfylkingin vill virkilega koma höggi á landsbyggð- ina þá er þetta leiðin til þess,“ sagði Árni. „Yfir 90% þeirra sem eru handhaf- ar að veiðiheimildunum í byggðarlög- um utan Reykjavíkur hafa þurft að taka á sig niðurskurð aflaheimilda á undanförnum árum. Ef þeir eiga ekki að fá aflaheimildirnar til baka þegar betur árar þá er þetta virkilega leiðin til þess að koma höggi á landsbyggð- ina og sveitarfélögin úti á landi. Þetta er ekki leiðin til að gefa öllum al- menningi hlutdeild í arðinum af auð- lindinni. Við erum búin að gera það með lögunum um veiðigjaldið sem Alþingi er búið að samþykkja og sátt var um í auðlindanefndinni þótt Sam- fylkingin hafi hlaupið frá þeirri sátt í pólitískum tilgangi,“ sagði Árni. Árni sagði grundvöll þess að sjó- menn og útvegsmenn hafi verið til- búnir til að taka á sig skerðingu afla- heimilda hafa verið þann að þeir fengju kvótann aftur þegar aflaheim- ildir yrðu auknar að nýju. „Ef þessi regla hefði ekki verið í gildi á undanförnum árum hefði okk- ur aldrei tekist að ná eins góðu sam- starfi á milli stjórnvalda, fiskifræð- inga, sjómanna og útvegsmanna um það að draga úr aflaheimildum til þess að byggja fiskistofnana upp. Ár- angri í uppbyggingu fiskistofnanna er teflt í hættu með svona tillögum og aðgerðum,“ sagði sjávarútvegsráð- herra. Friðrik Arngrímsson fram- kvæmdastjóri LÍÚ sagði það sömu flokka nú, undir nýju nafni, sem stóðu að setningu laga um stjórn fisk- veiða með framsali aflaheimilda en vilja nú taka aflaheimildir af þeim sem hafa keypt þær og bjóða þær upp. „Alþýðuflokkur og Alþýðu- bandalag ásamt Framsóknarflokki settu lög um framsal aflaheimilda ár- ið 1990 með þeim hætti sem það er núna. Þeir sem eru að nýta kvótann hafa keypt hann á verði hvers tíma. Svo ætla þessir flokkar núna, undir nýju nafni, að koma og taka kvótann af þessum sömu aðilum. Það er und- arlegt að þessir flokkar skuli fara fram með svona lagað,“ sagði Friðrik og bætti við að fátt kæmi honum orð- ið á óvart í þessum efnum. „Það voru þeir sömu sem settu lögin um fram- salið sem gagnrýna hástöfum núna og tala um allt óréttlætið. Það er vegna þess að sumir hafa selt kvót- ann og hætt í greininni og þá á að taka af þeim sem eiga kvótann og bjóða það upp. Ég verð að segja al- veg eins og er að ég skil ekki svona siðferði.“ Friðrik sagði fólk í sjávarútvegi hafa tekið á sig skerðingu aflaheim- ilda þar sem verið væri að hugsa um framtíð atvinnugreinarinnar. „Þess vegna voru menn viljugir að taka á sig skerðingar, til þess að byggja upp og umgangast fiskinn af varfærni því við ætlum að lifa af þessu um alla framtíð. Ef það á að fara að bjóða upp kvótann, þá fer öll langtímahugsun úr greininni. Þá hafa menn enga hagsmuni af því að hugsa til lengri tíma, því þeir vita ekkert hvað þeir hafa á morgun,“ sagði Friðrik. Varar við uppboðsleið Samfylkingar Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur VG, sagði hugmyndir Samfylking- arinnar vera í grundvallaratriðum frábrugðnar stefnu Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs þrátt fyrir að sama orðalag væri notað að ein- hverju leyti, eða orðið fyrningarleið. „Ég hef goldið talsverðan varhug við þessari uppboðsleið Samfylking- arinnar, enda er þar í grundvallarat- riðum um ólíka nálgun að ræða að markaðsvæða sjávarútveginn allan í gegnum uppboð. Við erum á hinn boginn að tala um að byggðatengja verulegan hluta veiðiréttarins. Ég er alls ekkert svartsýnn á það að ein- hvers konar tengingar við byggðar- lög gætu komið á nýju aflaheimild- irnar að því tilskildu að okkur takist að skipta um ríkisstjórn,“ sagði Steingrímur. „Okkar sjávarútvegsstefna er í grundvallaratriðum ólík og á lítið sameiginlegt með uppboðsleið Sam- fylkingarinnar. Okkar sjávarútvegs- stefna gengur út á það að losa veiði- heimildir út úr núverandi kerfi, því það verða engar breytingar öðruvísi. Hún er í grundvallaratriðum ólík, hvað varðar endurráðstöfunina og við myndum að sjálfsögðu vilja leggja af stað í átt til okkar kerfis hvort sem það væri gert með því að taka einhvern hluta kvótaaukningar og byrja að byggðatengja þær. Ég veit ekki hversu skynsamlegt það er að fara að gera greinarmun á þeim hluta veiðiheimildana sem verð- ur kannski aukning á í haust. Vissu- lega eru breytingar auðveldari þegar þannig stendur á að hægt sé að auka kvótann,“ sagði Steingrímur. Hann sagði þó ótímabært að ræða aukinn kvóta þar sem ekki væri kom- in endanleg niðurstaða um slíkt frá Hafrannsóknastofnun. „Það á nátt- úrulega ekki að vera þannig að menn finni 30.000 tonn af þorski í ræðustól norður í landi. Við skulum nú bíða eftir ráðgjöf Hafrannsóknastofnun- ar,“ sagði Steingrímur sem vill vera viss um aukinn kvóta áður en hann talar um úthlutunarleiðir. Frjálslyndir andsnúnir leið Samfylkingarinnar Magnús Þór Hafsteinsson sem sit- ur í 1. sæti Suðurkjördæmis hjá Frjálslyndum er ekki hlynntur nýj- um leiðum sem Samfylkingin hyggst fara. „Ég tel að fyrningarleið Samfylk- ingarinnar gangi ekki upp því menn ætla að vera áfram í kvótakerfi. Mér líst ekki á það, að ef það verður ein- hver aukning í haust, að það eigi að fara að leigja það strax út. Ég tel frekar að menn ættu að fara eftir okkar tillögum og skipta um kerfi og taka upp aflaaukningu í gegnum þær breytingar,“ sagði Magnús. Andstaða við hugmyndir Samfylkingar að breyttri úthlutun á kvóta Tillögur sem koma höggi á landsbyggðina ÍSLAND hefur verið kosið í nefnd Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um stöðu kvenna, en þetta er í fyrsta skipti sem Ísland tekur sæti í nefndinni. Fulltrúar félagsmála- ráðuneytisins og fastanefndar Ís- lands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York voru áheyrnarfulltrúar á síðasta fundi nefndarinnar um miðj- an mars en tvö meginefni voru á dagskrá fundarins, útrýming alls ofbeldis gegn konum annars vegar og aðild og aðgangur kvenna að fjölmiðlum og upplýsinga- og sam- skiptatækni hins vegar. Nefndin hefur farið fram á að niðurstöður hennar um aðild og aðgang kvenna að fjölmiðlum verði hafðar til hlið- sjónar á leiðtogafundi um upplýs- ingasamfélagið sem haldinn verður í Genf í desember á þessu ári. Ekki tókst að ná samkomulagi um loka- niðurstöður um útrýmingu alls of- beldis gegn konum þrátt fyrir um- fangsmiklar samningaviðræður og lýstu mörg aðildarríki yfir þungum áhyggjum vegna þeirrar afgreiðslu og afleiðinga sem hún hefði við úr- lausn jafnréttismála á alþjóðavett- vangi. Næsti fundur nefndarinnar verður haldinn í mars árið 2004 og verða meginefni þess fundar hlut- verk karla og drengja í jafnrétt- ismálum og þátttaka kvenna í frið- arviðræðum, friðargæslu og friðar- uppbyggingu. Ísland kosið í kvennanefnd SÞ SAMKVÆMT nýrri skoðana- könnun sem Gallup gerði fyrir Ríkisútvarpið í Reykjavík suð- ur eykst fylgi Framsóknar um 6 prósentustig frá í apríl og mælist nú 13% eða nærri tvö- falt meira en þá. Fylgi Sam- fylkingar í Reykjavík suður dalar um sex prósentustig og mælist nú samkvæmt könnun- inni 30,9%. Fylgi Frjálslynda flokksins minnkar lítillega og mælist nú 7,7% en fylgi Vinstri grænna eykst og mælist 10%. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 38,3%. Samkvæmt þessu fengi Framsóknarflokkur einn mann kjörinn í kjördæminu, Sjálf- stæðisflokkur fengi fjóra menn, Samfylking fjóra, Frjálslyndir fengju einn mann og Vinstri grænir einn. Næstum 86% gáfu upp hvað þau myndu kjósa yrði kosið í dag, tæplega 7% voru óákveðin, 5% neituðu að gefa upp hvað þau ætluðu að kjósa og 2% sögðust skila auðu eða kjósa ekki. Fram- sókn bæt- ir við sig fylgi Reykjavík suður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.