Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SIGRÚN KRISTINSDÓTTIR, Rauðalæk 67, Reykjavík, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju mánu- daginn 5. maí kl. 15.00. Jón Erlendsson, Ingileif Jónsdóttir, Birgir Björn Sigurjónsson, Erlendur Jónsson, Anna Jóna Hauksdóttir, Kristín Jónsdóttir, Þórarinn Eyfjörð, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær amma okkar og systir, BIRNA GUÐMUNDSDÓTTIR, Lindargötu 61, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánu- daginn 5. maí kl. 13.30. Ásgeir Guðnason, Elín Gróa Guðjónsdóttir, Anna Sigríður Guðnadóttir, Hörður Lárusson, Kristín Guðmundsdóttir, Guðmundur Ófeigsson. ESTHER BJARNADÓTTIR, Hvassaleiti 58, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum fimmtudaginn 17. apríl sl. Útför hennar hefur farið fram. Aðstandendur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN JÓNSDÓTTIR, Köldukinn 11, Hafnarfirði, sem lést sunnudaginn 25. apríl á St. Jósefs- spítala Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víði- staðakirkju mánudaginn 5. maí kl. 13.30. Ásgeir Kr. Sörensen, Renate Sörensen, Jón Aðalsteinsson, Guðbjörg Jóna Eyjólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Kær bróðir okkar, KONRÁÐ S. MAGNÚSSON, Uppsölum, Svíþjóð, lést sunnudaginn 20. apríl sl. Jarðsett verður í kyrrþey að ósk hins látna. Ingibjörg Magnúsdóttir, Kristjana Magnúsdóttir. Eiginmaður minn, SIGURÐUR MAGNÚSSON, frá Breiðavaði, Ljósárbrekku 1, Eskifirði, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup- stað föstudaginn 18. apríl síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýnt hafa okkur hlýju og velvild. Sérstakar þakkir til starfsfólks FSN fyrir frábæra umönnun og hlýju í veikindum hans. Oddný Gísladóttir, börn og fjölskyldur. ✝ Esther Olsenfæddist í Hrísey 14. apríl 1932. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja 17. apríl síðastliðin. Foreldrar hennar voru Andreas Jo- hann Olsen vélstjóri, f. í Noregi, og Jón- ína Rósa Jónasdóttir Olsen, húsmóðir, f. í Syðri-Villingadal í Saurbæjarhreppi í Eyjafjarðarsýslu. Systkini Estherar eru tvíburasystir hennar, Valborg, Arvid, og Gunnvor, sem eru búsett í Nor- egi, og Andreas Viðar, búsettur í Reykjavík. Esther giftist 1. janúar 1950 Baldri Árnasyni, skipstjóra og vélstjóra, f. í Kolbeinsvík í Ár- neshreppi í Strandasýslu 7. maí 1930. Foreldrar hans voru hjónin Árni Ólafur Guðmonsson, bóndi, f. á Gautshamri í Kaldrananes- hreppi í Strandasýslu, og Halla Júlíusdóttir húsmóðir, fædd á Kambi í Árnessókn í Stranda- sýslu. Börn þeirra eru: Andreas Árni, f. 16. júní 1950, hann á þrjú börn og eitt barna- barn, Jónína Hrönn, f. 18. febrúar 1954, hún á fjögur börn, Sólveig Björk, f. 18. febrúar 1954, d. 18. febrúar 1954, Hörð- ur, f. 14. október 1958, hann á þrjú fósturbörn og fimm barnabörn, og Viðar Arnar, f. 22. sept- ember 1964, hann á fjögur börn. Esther er fædd í Hrísey, fer til Noregs 14 vikna gömul og elst þar upp til 14 ára aldurs er hún flytur með fjöl- skyldu sinni aftur til Íslands, fyrst í Hrísey, síðan Akureyri og svo á Skagaströnd. Esther og Baldur hófu búskap sinn á Skagaströnd en fluttu um 1964 á Suðurnesin, fyrst í Garðinn og síðan Sandgerði þar sem þau hafi búið síðan, að frátöldum tveimur árum er þau voru í Garðabæ. Útför Estherar var gerð 25. apríl frá Hvalsneskirkju í kyrr- þey, að ósk hinnar látnu. Okkar elskulega móðir og amma er farin yfir móðuna miklu. Við söknum þín sárt og orðin „enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“ sanna sig vel á þessari stundu. Allir tala um fal- lega heimilið sem þú og pabbi eigið og þegar við komum þar inn eftir að þú fórst þá liggur við að maður læðist á tánum og helst megi ekki snerta neitt eða hreyfa sig, svo mikil er virðing okkar fyrir því sem þú skildir eftir þig og þannig allt í röð og reglu og hver hlutur á sínum stað. Þú skilaðir okkur börnunum vel út í lífið með því að vera ákveðin við okkur en samt svo ástrík og góð móðir, kenndir okkur að gefast ekki upp þótt á móti blési og að erf- iðleikarnir væru til að sigrast á. Elsku mamma, enn eru minning- arnar ljóslifandi í huga mér um fínu kjólana sem þú saumaðir á mig og alltaf voru slaufur í stíl sem þú bast í hár mitt, og alltaf leið mér eins og prinsessu þegar þú varst búin að punta mig upp. Næsta aðfangadags- kvöld verður eflaust frábrugðið, þá verður engin elskuleg amma til stað- ar, eingöngu elskulegur afi okkar með ístertuna sem við fáum alltaf hjá þeim. En nú kveðjum við elsku hjartans mömmu og ömmu og þökkum fyrir allt sem hún gaf okkur í lífinu. Kveðja, þín dóttir Jónína og börn. Elsku mamma mín, nú ertu farin í annan og betri heim, eftir stundum erfiða göngu í gegnum lífið, nú ert þú laus við þín veikindi og líður vel. En þrátt fyrir allt varst þú alltaf kát og glöð og alltaf var brosið til staðar. Alltaf tókstu á móti mér með opinn faðminn og einn eða tveir kossar með, og alltaf spurðirðu hvernig ég hefði það. Heima var alltaf svo fínt og fágað og alltaf var passað uppá að við krakkarnir værum hrein og fín, hvort sem við vorum að fara í skólann eða eitthvað annað, sem var líklega oft erfitt þar sem um þrjá fjöruga stráka og tápmikla stelpu var um að ræða. Alltaf man ég eftir fyrstu bíóferð okk- ar saman, bara við tvö, fórum að sjá „Kofi Tómasar frænda“, ég var klæddur í mitt fínasta púss og þú varst svo fín og falleg þennan dag og ekki minnkaði spennan við það að þurfa að fara með rútunni inní Kefla- vík. Fyrir 4 árum eignaðist ég dá- samlega fjölskyldu, sem þú tókst opnum örmum, samgladdist mér inni- lega og varst alltaf að minna mig á að vera góður við Biddý, börnin og barnabörnin, þau væru svo dásamleg. Þú kenndir mér mamma mín að elska og virða náungann og hvað kær- leikur er, trúa á Guð og líf eftir dauðann og hversu máttug bænin er. Þetta hjálpar mér mikið núna þar sem að ég sakna þín mikið en ég veit að þú lifir áfram í minningunni og hjarta mínu. Elsku mamma mín, mig langar að þakka þér fyrir að hafa fengið að eiga þig sem mömmu og njóta þeirrar ánægju sem við áttum saman. Elsku pabbi minn og systkini, megi góður Guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar. En vit þú það, sem þreyttur er, og þú, sem djúpur harmur sker, þótt hrynji tár og svíði sár, að mest er miskunn Guðs. (Sig. Einarsson.) Kveðja, þinn sonur Hörður. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Mig langar með fáum orðum að kveðja þig Esther mín. Ævi þín var ekki alltaf dans á rósum, fékkst löm- unarveikina innan við ársgömul, og stór var skerfur þinn af sjúkdómum, upplifðir hörmungar seinni heims- styrjaldarinnar í Noregi og núna síð- ast illkynja vágest sem slökkti þitt síðasta ljós. En þrátt fyrir allt þetta varst þú umhyggjusöm og hjálpsöm við allt og alla, og aldrei var langt í brosið þitt eða kímnigáfu. Fylgdist vel með öllu sem gekk á í fjölskyldunni. Og þakkir sendi ég þér fyrir hvað þú tókst mínum börnum vel, fylgdist með þeim eins og þau væru þín eigin barnabörn, varst orðin jafn spennt og við Hörður þegar yngsta barnabarnið okkar fæddist. Esther mín, það sem við ræddum saman tveimur dögum fyrir andlát þitt verður vel geymt í hjarta mér og mun ég af fremsta megni standa við loforð mitt við þig. Elsku Baldur, megi Guð styrkja þig og fjölskyldu þína í þessari sorg. Nú kveð ég þig tengdamóðir mín, megi Guð ávallt geyma þig. Þá ég hníg í djúpið dimma, Drottinn, ráð þú hvernig fer. Þótt mér hverfi heimsins gæði, – hverfi allt, sem kærst mér er: Æðri heimur, himnafaðir, hinumegin fagnar mér. (M. Joch.) Þín tengdadóttir Jóhanna (Biddy). Elsku amma. Ég hef ekki þekkt þig mjög lengi en þú tókst mjög vel á móti mér er ég flutti til móður minnar og þessi þrjú ár sem ég hef þekkt þig hefur þú verið mér svo indæl. Nú hugsa ég með mér að þessi ljúfa, indæla kona er farin og það eina sem eftir lifir eru minning- arnar og eru það allt góðar minning- ar. Ég mun aldrei gleyma því síðasta sem þú sagðir við mig þegar ég kom og heimsótti þig á spítalann, þá vorum við báðar nýbúnar að vera í hár- greiðslu, þú fékkst þér krullur og ég litaði hárið mitt og þér fannst það svo fallegt. Og svo vorum við að tala um hann Baldur afa, ég sagði að við ætt- um að fá hann til að leggja bílnum svo hann fengi smáhreyfingu. Og þú sagðir: „Hildur, þú tekur hann afa þinn undir handlegginn og ferð bara í göngutúr með hann.“ Þá fóru allir að hlæja sem voru þar inni. Ég veit að fólk les þetta nú og skilur ekkert hvað er fyndið við þetta, en þá eigum við bara eitthvað sameiginlegt sem við getum hlegið að þegar við hittumst seinna. Takk fyrir að vera sú ljúfasta í lífi mínu síðustu þrjú árin. Elsku Baldur afi, megi Guð vera með þér og styrkja þig í gegnum sorgina. Hildur Byström. Á föstudag 25. apríl fylgdi ég elsku- legri systur minni til grafar. Kom andlát hennar ekki alveg á óvart þar sem Esther hefur átt við veikindi að stríða undanfarin ár og var nýlega greind með ólæknandi sjúkdóm. Systkini okkar Gunvor og Arvid gerðu sér sérstaklega ferð frá Noregi til þess að hitta hana áður en um sein- an yrði og reyndist það vera heillaráð þar sem þau áttu góða daga saman. Valborg sem er tvíburasystir Esther- ar varð eftir í Noregi og átti ekki að heimangengt. Þegar þau komu var Esther bara mjög hress og þótti gam- an að hitta systkini sín, sem hún hafði ekki séð í nokkur ár. Hún gantaðist með að hún mundi nú hafa af þeim jarðarförina í þetta sinn, sem svo og varð. En þegar þau voru farin út aft- ur, versnaði Esther til muna aftur og viku síðar andaðist hún svo. Mínar fyrstu minningar af Esther eru frá Skagaströnd, þegar ég og móðir okkar komum í heimsókn frá Noregi. Var þá Esther komin í sam- búð með Baldri og man ég vel eftir þeirri heimsókn sem varð þess að mig langaði alltaf að koma aftur. Svo liðu nokkur ár og þegar ég fermdist kom hún til Noregs í ferminguna. Þegar ég var 18 ára kom ég aftur í heimsókn til Íslands í nokkra mánuði. Þá bjuggu hún og Baldur í Glaumbæ í Garðinum. Var mjög vel tekið á móti litla bróður og ekkert var of gott fyrir hann og var hann alltaf sem einn af heimilisfólk- inu. Þetta var eftirminnilegur og góð- ur tími. Tími sem ég aldrei gleymi og er þakklátur fyrir. Esther var hrjáð af sjúkdómum á síðari árum ævinnar og var oft á spít- ölum á milli þess sem hún dvaldist heima og hefði litli bróðir kannski átt að koma oftar í heimsókn. Nú þegar ég kveð þig í síðasta sinn elskulega systir mín bið ég Guð föður um að taka sérstakega vel á móti þér. Þinn bróðir Vidar. Elskulega mágkona mín Esther. Nú ertu farin í þína hinstu ferð úr þessu jarðlífi inn í annan heim. Mér þótti gott að geta kvatt þig og tekið ut- an um þig síðast þegar við hittumst og finna vináttu og hlýju streyma frá þér. Ég átti samt von á að hitta þig aftur um páskana, en úr því varð ekki. Megi góður Guð varðveita þig og veita fjöl- skyldu þinni styrk í þeirra sorg. Nanna. ESTHER OLSEN MINNINGARGREINUM þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minningar- greina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.