Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 57
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 57 KEN THOMAS ólst upp áferðalagi eins og hann lýsirþví sjálfur, í Afríku; Zimb- abve, Malaví og Mósambík, og einn- ig Írlandi og Wales, en faðir hans var bílahönnuður og starfaði fyrir Ford víða um heim að því. Hann segir að Ísland minni sig að nokkru leyti á árin í Afríku, víðáttan sé sú sama. Sem unglingur fór Thomas að fást við tónlist, spilaði á tromm- ur í hljómsveitum með vinum sín- um, en hann hafði þó fyrst og fremst áhuga á hljóðum og hljóm- um. Tólf ára gamall segist hann þannig hafa haft mikinn áhuga á djasstónlist og tónlist án söngs al- mennt en smám saman fóru hljóðin sjálf að skipta hann meira máli en tónlistin. Thomas segist ekki hafa verið í neinni hljómsveit af alvöru og það hafi aldrei heillað hann að starfa sem tónlistarmaður. „Ég gat ekki hugsað mér að fara að læra á hljóð- færi eða fara í skóla að læra eitt- hvað yfirleitt,“ segir hann og kímir. „Ég átti aftur á móti marga félaga sem voru í hljómsveitum og um- gekkst því tónlistarmenn mikið.“ Byrjaði á Queen Thomas segir að meðfram áhuga á hljóðum hafi hann ekki haft minni áhuga á listsköpun yfirleitt, enda voru vinir hans að fást við listir hvort sem það var tón- eða mynd- list, og hönnun. „Ég komst síðan að í Trident-hljóðverinu í Lundúnum, sem var vel af sér vikið því ekki voru þá nema sex hljóðver í Lund- únum og mjög erfitt að komast þar að.“ Hjá Trident byrjaði hann sem aðstoðarmaður við upptökur á fyrstu Queen-plötunum, en sveitin var einskonar hússveit hjá Trident framan af. Síðar kom pönkið og þá segist hann hafa meðal annars unn- ið með þeim Martin Rushent og Martin Hamnett og tekið upp fjölda af pönkskífum, meðal annars með Buzzcocks, Wire og Public Image Limited. „Í næsta húsi við hljóðverið var fyrirtæki sem steypti í Perspex- plast og ég fór að hirða afganga hjá þeim, fór með þá heim og bjó til skúlptúra. Þá gerðist það að Glen Matlock, bassaleikari Sex Pistols, kom heim til mín eitt sinn og sá eitt verkanna og hreifst af. Kærasta hans var tískuhönnuður og bað mig að búa til fyrir sig allskyns skraut úr plasti og áður en varði var ég orðinn myndhöggvari í fullu starfi,“ segir Thomas og skellir uppúr að minningunni. „Ég vissi að þetta var bölvað rugl, að verkin voru ekkert sérstök, en þetta var ágæt vinna.“ Aftur í tónlist Thomas segist hafa verið svo upptekinn af skúlptúrunum að hann sagði upp vinnunni hjá Trident, en sneri sér síðan að tónlist aftur er hann kynntist liðsmönnum hljóm- sveitarinnar Throbbing Gristle, tók að starfa við útgáfu sem kallaðist Fetish Records og gaf út plötur með ýmsum af framsæknustu hljómsveitum þess tíma, undir lok áttunda áratugarins, hljómsveitum eins og Bongos, Bush Tetras og 23 Skidoo og einnig industrial-sveitum eins og Test Department og Ein- stürzende Neubauten. Á þessum tíma voru menn ekki bara að hugsa um tónlistina, sem var vissulega byltingarkennd, held- ur var hún bara hluti af þeirri bylt- ingu sem aðstandendur útgáfunnar og hljómsveitanna voru að reyna að hrinda af stað og fólst meðal annars í nýjum viðhorfum í myndlist, hönn- un og lífsstíl almennt. „Þetta var mjög skemmtilegur tími og tónlist- armennirnir voru flestir á kafi í allskyns hönnun og listsköpun, til að mynda þeir Peter Christopher- son og Genesis P-Orridge sem voru báðir í Throbbing Gristle og síðar í Psychic TV, en Christopherson var í Hipgnosis-hópnum sem hafði gríð- arleg áhrif á hönnun plötuumslaga og Genesis var á kafi í allskyns list- sköpun, báðir snillingar að mínu mati.“ Hilmar Örn kemur til sögunnar Hilmar Örn Hilmarsson var með- al meðlima Psychic TV um tíma og Ken Thomas segist hafa kynnst honum þá og síðar Einari Erni Benediktssyni, sem þá var í Kukli og síðar Sykurmolunum, en Einar var úti við nám. Thomas segist muna vel eftir Kuklinu því hann sat eitt sinn við takkana er hljómsveitin var að spila ytra, en hann komst fyrst í tæri við Sykurmolana er hann var að setja upp hljóðver fyrir félaga sinn 1987, en um það leyti sem þeirri vinnu lauk hringdi Der- ek Birkett, stjóri útgáfunnar One Little Indian og vinur og einskonar umboðsmaður Sykurmolanna, í leit að ódýru hljóðveri til að hljóðblanda breiðskífu Molanna. „Ég man að ég var steinhissa á músíkinni og hreifst sérstaklega af þessari sér- íslensku hráslagalegu galsakímni sem ég kunni vel að meta.“ Næstu kynni hans af íslenskri tónlist voru svo annarrar tegundar: „Í ársbyrjun 1989 hringdi Hilmar Örn svo í mig og spurði hvort ég væri ekki til í að koma til Íslands og hjálpa til við að taka upp plötu með Bubba Morthens,“ segir Thomas og hann sló til. Platan var Nóttin langa sem tekin var upp í febrúar 1989, en þeir Ken Thomas, Hilmar Örn og Christian Falk stýrðu upptökum og útsetningum. Síðan hefur Thomas komið að nokkrum plötum sem hann segir allar hafa verið skemmtilegar þó ólíkar séu. Hann minnist á upp- tökur á breiðskífunni Fame and Fossils með Risaeðlunni sem hann segir hafa verið sérstaklega gaman; allt unnið á tíu dögum sem upp full- ir voru með fíflagang og íslenska kímni. „Þau unnu allt meira og minna jafnóðum, spiluðu nánast allt beint inn, man sérstaklega hvað trommuleikarinn var snjall, og svo voru þessir óborganlegu textar, margir skrifaðir rétt áður en þeir voru sungnir. Frábær skemmtun.“ Féll fyrir Sigur Rós og Mínus Kynni Ken Thomas af Sigur Rós segir hann hafa hafist er hann sat yfir skál með Þór Eldon eitt sinn og Þór spilaði fyrir hann fyrstu plötu Sigur Rósar, Von. „Ég varð strax mjög hrifinn af því sem ég heyrði og eftir að ég hafði séð hljómsveit- ina á tónleikum í fyrsta sinn bað ég þá um að fá að stýra upptökum á næstu plötu.“ Það gekk og eftir, því Ken Thomas var við takkana þegar Ágætis byrjun var tekin upp og svo aftur þegar kom að því að taka upp (). Áður en að því kom tók hann þátt í að koma upp hljóðveri með Sigur Rós og hjálpaði meðal annars til að finna stað fyrir hljóðver hljómsveitarinnar í Álafossi, velja tæki og koma þeim upp. Nú síðast stýrði Ken Thomas upptökum á Halldóri Laxness, þriðju plötu Mínus, og kom reyndar einnig við sögu á plötunni Jesus Christ Bobby sem kom út fyrir tveimur árum. Í stuttu spjalli við hann á síðasta ári, eftir að vinnu lauk við (), var hann einmitt spurð- ur hvaða hljómsveit íslenskri hann vildi helst vinna með og svaraði án umhugsunar: Mínus, en það var áð- ur en hann var beðinn um að taka það verk að sér. Alltaf átt nóg af peningum Ken Thomas segir brosandi að ís- lenskir útgefendur hafi sennilega leitað til sín vegna þess hvað hann var ódýr. „Ég hef alltaf átt nóg af peningum og þó mér hafi stundum verið boðin verkefni sem gáfu vel í aðra hönd þá tek ég ekkert að mér sem mér finnst ekki skemmtilegt og áhugavert að gera; ég vil ekki fást við upptökustjórn nema það sé við tónlist sem gefur mér eitthvað annað og meira en bara peninga. Ég hef líka verið ótrúlega heppinn og það eru örugglega margir sem hefðu viljað fá að vinna með Sigur Rós. Það er mér heiður að fá að koma hingað til Íslands, ég kann af- skaplega vel við mig, og þegar ég fæ að vinna með frábærum lista- mönnum í þokkabót er ég þakk- látur fyrir hvern dag.“ Bubbi Morthens og „Lamarnir ógurlegu“, Christian Falk, Hilmar Örn Hilm- arsson og Ken Thomas, við upptökur á Nóttinni löngu snemma árs 1989. Ken Thomas með Georg Hólm í hljóðveri Sigur Rósar í Mosfellsbæ. Björg Sveinsdóttir Þegar Ken Thomas fór af landi brott eftir að hafa lokið við síðustu plötu Sigur Rósar, (), sagðist hann langa mest af öllu til að taka upp aðra plötu með Mínus. Honum varð að ósk sinni því hann sat við takkana á Halldóri Laxness. Frá tónleikum Mínuss í Austurbæ.Þakklátur fyrir hvern dag Breski upptökustjórinn Ken Thomas hefur komið við sögu á ansi mörgum íslenskum skífum síðustu árin og nægir að nefna plötur með Risaeðlunni, Botnleðju, Sigur Rós og Mínus. Árni Matthíasson ræddi við hann í tilefni af því að hann hefur nýlokið við væntanlega plötu með Mínus sem kallast Halldór Laxness. Moggabúðin Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr. Moggabúðin Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.