Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 59 Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 Sýnd kl. 10.20. B.i 12 www.regnboginn.is HK DV X-97,7  HJ MBL  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 4 og 6. B.i 16. HOURS Sýnd kl. 4 og 6. SV MBL HK DV  Kvikmyndir.com Vegna fjölda áskorana aukasýningar á þessari mögnuðu hrollvekju FRÁ LEIKSTJÓRA TRAINSPOTTING Sýnd kl. 8 og 10.20. Heims frumsýning Sagan heldur áfram. Enn stærri og magnaðri en fyrri myndin. Missið ekki af þessari! Sýnd kl. 3, 5.30, 8.30 og 11 ( Power sýning). B.i 12. Powe rsýni ng kl. 1 1. Sýnd kl. 3, 5.40, 8 og 10.20. B.i 12. Sýnd kl. 8. B.i. 12. ...Þetta er fyrsta stóra hasarmynd sumarsins 2003 og gæti hæglega endað sem ein sú besta ... Kvikmyndir.com ... tt r fyr t t r r y r i ti l i t ... vik y ir.c Kvikmyndir.is X-men 2 er mynd með boðskap, brellur og brjálaðan hasar... Hvað viltu meira? - r , r ll r rj l r... il ir 400 kr Sýnd kl. 6, 8 og 10. www.laugarasbio.is Brjálaður hasar og geggjuð áhættuatriði. Heims frumsýning Sagan heldur áfram. Enn stærri og magnaðri en fyrri myndin. Missið ekki af þessari! ...Þetta er fyrsta stóra hasarmynd sumarsins 2003 og gæti hæglega endað sem ein sú besta ... Kvikmyndir.com ... tt r fyr t t r r y r i ti l i t ... vik y ir.c Kvikmyndir.is Sýnd kl. 4, 6.30 og 9. B.i. 12 Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. 400 kr. Sýnd kl. 2. Ísl. tal. 400 kr. Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15. 400 kr X-men 2 er mynd með boðskap, brellur og brjálaðan hasar... Hvað viltu meira? - r , r ll r rj l r... il ir DAÐUR við ofbeldi ogglæpi hefur verið snarþáttur í hiphopinu ognýst mörgum vel við að selja plötur; bófarapparinn með gullkeðjurnar, byssurnar, húðflúrið og gellurnar upp á arminn er löngu orðinn teiknimyndafígúra, mörgum skrípamynd. Ekki verður þó á móti því mælt að oftar en ekki eru rapp- arar einmitt sprottnir úr slíku um- hverfi, búa í blökkumannahverfum þar sem obbinn er atvinnulaus, ein- stæðar mæður algengasta fjöl- skylduformið og lífsbaráttan einatt hörð og hættuleg. Úr slíku um- hverfi var Biggie Smalls, sem var myrtur fyrir rétt rúmum sex árum, og Jay-Z, sem er nú með helstu rapphetjum heims, svo dæmi séu tekin. Aðrir hafa gert út á erfitt líf, nefni þá félaga Ice Cube og Ice-T, þó deila megi um það hversu erfitt líf þess fyrrnefnda hafi verið, og Eminem (sem átti þó helst erfitt fyrir það hve hann átti vonda móð- ur). Fáir hafa þó átt eins erfiða ævi og rapparinn 50 Cent, en fyrsta breiðskífa hans sló öll sölumet þeg- ar hún kom út vestanhafs fyrir nokkru. 50 Cent heitir fullu nafni Curtis Jackson og ólst upp hjá einstæðri móður sinni líkt og svo margir litir Bandaríkjamenn. Hann naut þó móður sinnar ekki lengi því þegar hann var átta ára var hún myrt, lík- lega vegna starfa síns, en hún fram- fleytti sér og syninum með krakk- sölu. Drengurinn ólst því upp hjá ömmu sinni og með tímanum tók hann við sölusvæði móður sinnar og vann sig upp í að selja fyrir hálfa milljón á dag. Sagan segir að hann hafi aldrei verið gripinn vegna þess að hann faldið efnið í skónum, en þegar hann fór í vitlausum skóm í skólann var hann gripinn og næstu ár var hann meira og minna í fang- elsi. 1994 var 50 Cent búinn að fá nóg af bófalífinu og ákvað að gerast rappari, sem hefur reynst mörgum vel við að auðgast á heiðarlegan hátt. Hann fór að semja rímur og taka þátt í rímnastríði hvar sem hann komst að og komst þannig í kynni við Jam Master Jay, einn liðs- manna Run DMC, sem tók piltinn að sér, kenndi honum að ríma við takt og að flytja rímurnar. Jay gerði samning við 50 Cent, en ekk- ert varð af plötu að svo stöddu en sambandið við Jay kom honum á framfæri við útsetjaragengi sem kallar sig Trackmasters, þá Poke og Tone. Þeir sömdu við 50 Cent fyrir hönd Columbia og tóku upp með honum bunka af lögum sem síðan var valið úr á plötuna Power of the Dollar. Áður en sú kom út komu þrjár smáskífur, þar á meðal ein sem átti eftir að vekja mikið umtal, How to Rob (An Industry Nigga). Snar þáttur í textum Jay-Z, Bigg- ie og 50 Cent er gamansemi, víst hafa þeir átt erfiða daga, 50 verið stunginn og skotinn, en hann er ekki síst þekktur fyrir gamansemi og How to Rob (An Industry Nigga) var einmitt gamanvísa, en í því seg- ir hann frá því er hann rænir alla helstu rappara þess tíma. Ekki kunnu allir þó að taka gamninu, og þannig svöruðu þeir Jay-Z, Big Pun, Sticky Fingaz og Ghostface Killah harkalega fyrir sig – Ghost- face Killah lét víst hendur skipta – og komu 50 Cent rækilega á kortið, því betra er illt umtal en ekkert. Ekki þó bara umtalið illt, því margur vildi piltinn feigan eins og kom í ljós skömmu áður en platan kom út, fyrir nærfellt þremur árum, því þá veittist óþekktur maður að 50 Cent þar sem hann sat í bifreið sinni fyrir utan heimili ömmu sinn- ar og skaut hann níu skotum. 50 Cent lifði tilræðið af eftir nokkra dvöl á sjúkrahúsi, en Col- umbia-samningurinn ekki; menn þar á bæ vildu ekki vera með slíkan nagla á mála hjá sér og sögðu upp samningnum án þess að breiðskífan kæmi nokkurn tímann út. 50 Cent var kominn aftur á byrj- unarreit en var þó kominn með orð- spor sem átti eftir að reynast hon- um dýrmætt. Næstu mánuði sendi hann frá sér lög á snældum og brenndum diskum sem ýtti enn undir áhugann og smám saman spannst mikill áhugi útgáfufyrir- tækja á að gera við pilt samning. Á endanum samdi hann við nýja út- gáfu Eminem og fékk fyrirfram milljón dali að því hermt er. Þeir Eminem og Dr. Dre véla líka um á fyrstu eiginlegu plötu 50 Cent, nokkuð sem nánast gulltryggir milljónasölu. Allt varð þetta til að ýta undir gríðarlegan áhuga fyrir plötunni, Get Rich or Die Trying, og hún sló líka öll sölumet þegar hún kom út; fyrstu vikuna seldust af plötunni ríflega 872.000 eintök og vikuna á eftir 822.000 – 1,7 milljónir eintaka á tveimur vikum er met sem seint verður slegið en í dag hafa selst af plötunni fjórar milljónir ein- taka vestan hafs, hún er í öðru sæt- inu eftir tólf vikur á lista. Get Rich or Die Trying er fín bófarappplata en það er líka þess virði að hlusta á plötuna Guess Who’s Back, sem kom út fyrir stuttu. Á henni eru lögin sem 50 Cent gaf út á mixsnældum og brenndum diskum áður en hann komst á samning hjá Eminem. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Hæfileikaríkur bófi Í hiphopinu vestan hafs skiptir miklu máli að vera harður. Í því kemst enginn með tærnar þar sem 50 Cent hefur hælana.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.