Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 52
DAGBÓK 52 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Sylvia, Dellach og Eld- borg koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Brúarfoss kemur til Straumsvíkur í dag. Kleifarberg og Flor- inda koma í dag. Mannamót Aflagranda 40. Vinnu- stofa og leikfimi kl. 9, boccia kl. 10, vinustofa kl. 13, söngstund á morgun kl. 14. Árskógar 4. Kl. 9-12 opin handavinnustofa, kl. 11 boccia, kl.13- 16.30 opin smíðastofa/ útskurður, opin handa- vinnustofa, kl. 13.30 fé- lagsvist, kl. 16 mynd- list. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9- 16 handavinna, kl. 9-12 bútasaumur, kl. 9-17 fótaaðgerð, kl. 10-11 samverustund, kl. 13.30-14.30 söngur við píanóið, kl. 13-16 búta- saumur. Félagsstarf eldri borg- ara í Mosfellsbæ, Kjal- arnesi og Kjós. Fé- lagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánu- dagur kl. 16 leikfimi. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 kl. 20.30. Fótaaðgerð frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin kl. 16.30-18, s. 554 1226. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð og mynd- list, kl. 10-12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarfið Dalbraut 18-20. Kl. 10, leikfimi, kl. 13 brids. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 9-16 opin handa- vinnustofan, kl. 9-12 myndlist, kl. 13-16 körfugerð, kl. 11-11.30 leikfimi, kl. 13-16 spil- að, kl. 10-13 verslunin opin. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Bað kl. 9- 12, handavinna kl. 9- 16.30, félagsvist kl. 14, kl. 9-14 hárgreiðsla. Félag eldri borgara, Garðabæ. Æfing hjá Garðakórnum, kór eldri borgara Garða- bæjar, mánudaga kl. 17.30 í safnaðarheim- ilinu Kirkjuhvoli. Söngfólk er hvatt til að koma og taka þátt í starfi með kórnum. Stjórnandi kórsins er Kristín Pjetursdóttir. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Kl. 9.30, 10.15 og 11.10 leikfimi, kl. 13 tréskurður í Garðabergi. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Pútt kl. 10, kóræfingar kl. 10.30 tréskurður kl. 13 og félagsvist kl. 13.30 Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Brids kl. 13. S. 588 2111. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Fjölbreytt dagskrá alla virka daga kl. 9-16.30. S. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, kl. 9.30 gler- og postulínsmálun, kl. 10.50 leikfimi, kl. 13 skák og lomber, kl. 20 skapandi skrif. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 leikfimi, kl. 9.55 stólaleikfimi, kl. 10 ganga, kl. 13 brids, kl. 20.30 félagsvist. Hraunbær 105. Kl. 9 perlusaumur og fótaað- gerð, kl. 10 bænastund, kl. 13.30 sögustund og spjall, kl. 13 postulíns- málun og hárgreiðsla. Hvassaleiti 56-58. Kl. 9 föndur, kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 13 spilað, kl. 14.15 spænska. Fóta- aðgerðir. Norðurbrún 1. Kl. 10- 11 ganga, kl. 9-15 fóta- aðgerð, kl. 9-12 mynd- list, kl. 13-16.45 opin handavinnustofa. Vesturgata 7. Kl. 9-16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15-12 postulínsmálun, kl. 9.15-15.30 handavinna, kl. 9.30-10.30 boccia, kl.11-12 leikfimi, kl. 12.15-13.15 dans- kennsla, kl. 13-16 kór- æfing. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband, búta- saumur og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerð og boccia, kl. 13 handmennt, gler- bræðsla og spilað, kl. 15.30 jóga. Gullsmárabrids. Brids í Gullsmára. Skráning kl. 12.45, spilamennska hefst kl. 13. Félag eldri borgara, Suðurnesjum. Bingó í Selinu, Vallarbraut 4, Njarðvík, öll mánu- dagskvöld kl. 20. Kvenfélag Lágafells- sóknar. Gönguferð verður farin í Grasa- gaðinn mánudaginn 5. maí, mæting við Nóa- tún kl. 19.30. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, félagsheim- ilið Hátúni 12. Kl. 19 brids. Minningarkort Líknarsjóður Dóm- kirkjunnar, minning- arspjöld seld hjá kirkjuverði. Í dag er mánudagur 5. maí, 125. dagur ársins 2003. Orð dagsins: Eitt sinn voruð þér myrkur, en nú eruð þér ljós í Drottni. Hegðið yð- ur eins og börn ljóssins. (Efes. 5, 8.)     Vefþjóðviljinn fjallarum þá stjórn, sem hann segir að líklegust sé, missi núverandi stjórnarflokkar meiri- hluta sinn. Hann vill meina, að henni muni ekki fylgja mikil end- urnýjun í íslenskum stjórnmálum.     Í pistlinum segir: „Þaðer kominn tími til að breyta. Það er vor í lofti. Tími breytinganna. Nýir vendir sópa best. Ferska og fríska takk. Verðum að fá nýtt blóð. Það er ekki eins og þær séu innihaldslausar klisjunar sem streyma frá auglýs- ingastofu Samfylking- arinnar þessa dagana.     Við síðustu þingkosn-ingar fór Jóhanna Sigurðardóttir fyrir Sam- fylkingunni í Reykjavík og lýsti því yfir að hún væri „fjármálaráðherra- efni Samfylkingarinnar“. Nú fer hún fyrir Sam- fylkingunni í Reykjavík- urkjördæmi syðra og er engin ástæða til að ætla að hún hafi slegið af kröfum um áhrifamikinn ráðherrastól.     Ekki mun hún þó verðafjármálaráðherra í yfirvofandi vinstri stjórn, því þar sem vinstri græn- ir munu ekki fá utanrík- isráðuneytið verður Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Og þarf þá ekki að hafa fleiri orð um skattalækk- anir.     Össur Skarphéðinssonverður utanrík- isráðherra og mun tryggja að Ísland njóti virðingar á alþjóðavett- vangi, Mörður Árnason verður svo mennta- málaráðherra og mun bregða Birtu sinni yfir mannlífið.     Þetta er allt mjögferskt fólk. Jóhanna Sigurðardóttir hefur þannig setið á þingi í ald- arfjórðung. Steingrímur Sigfússon hefur setið samfleytt síðan hann var 27 ára gamall. Og það er langt síðan það var.     Þegar Steingrímur J.Sigfússon settist á þing var Andropov ný- orðinn leiðtogi Sovétríkj- anna, það var langt í Chernenko og enginn hafði heyrt Gorbatshovs getið. Nýir vendir sópa best,“ segir Vefþjóðvilj- inn.     Að lokum segir Vef-þjóðviljinn að Sam- fylkingin, vinstri-grænir og Frjálslyndi flokkurinn hafi allir lýst því yfir, að stefnt sé að stjórnarsam- starfi þessara þriggja flokka.     Því skipti ekki málihver þeirra sé kos- inn; þessi ríkisstjórn fáist með því að kjósa hvern þeirra sem er. STAKSTEINAR Yrði vinstri stjórn skipuð nýliðum? Davíð Oddsson ÞÚ segir í DV hinn 28. apríl sl. að fátækt hafi farið minnkandi, það komi fram hjá Félagsþjónustu Reykjavíkurborgar. Veistu ekki að það þýðir ekki að biðja um aðstoð þar, ef maður hefur yfir 67.000 kr. til framfærslu? Hver einstaklingur á að geta lifað af því. Þú verður að fylgjast með, Davíð. Það er ekki nógu gott að lifa bara á núðlum og gömlu brauði t.d. vegna þess að í núðlupökkunum er yfirleitt MSG sem eykur verki, en það er sennilega ódýrasta fæða sem völ er á. Þeir sem ekki geta unnið vegna lík- amlegra veikinda eiga mjög erfitt með að standa í 2–3 klukkutíma í von um ein- hverja mataraðstoð hjá Mæðrastyrksnefnd. Öryrki. Fyrirspurn MIG langar að koma fyr- irspurn á framfæri til þeirra sem sjá um dagskrá sjónvarpsstöðvanna í Morgunblaðinu. Er ekki hægt að þýða á íslensku nöfn þeirra mynda sem sýndar eru á Bíórásinni? Því miður eru svo margir hér á landi sem ekki kunna ensku. Margt eldra fólk sem ekki hafði tök á því að menntast og svo þeir sem ekki hafa þroska til þess að læra ensku, en skilja vel sitt móðurmál. Með von um skjóta úrlausn. Öryrki. Nói albínói KRISTÍN hafði samband við Velvakanda og langaði að hvetja fólk til þess að sjá myndina Nói albínói. Hún er hreint alveg stórkostleg, það ætti enginn að láta hana framhjá sér fara. Sefjunin hefur borið árangur ÉG er sammála þeim sem halda því fram að sumir stjórnmálaflokkar keyri mikið út á fátækt um þess- ar mundir. Fjölmiðlamenn störtuðu fátæktarsíbylj- unni sem síðan hefur ekki linnt og nú er svo komið að margir sem spjöruðu sig ágætlega finnst nú ágætt að sníkja hjá hjálparstofn- unum. Sefjunin hefur borið árangur. Eldri borgari. Áskorun ÉG undirritaður skora hér og nú á yfirstjórn lögreglu að fara að gera eitthvað róttækt í umferðarómenn- ingunni hér á Reykjavíkur- svæðinu. Það er alveg hryllilegt að sjá hversu kærulaus almenningur er og hraðinn vaxandi vanda- mál. Umferðarlögreglan er ekki sjáanleg. Ökumenn aka jafnvel eftir einstefnu- götum til þess að stytta sér leið, hafa ekki tíma til þess að bíða eftir græna ljósinu og stefnuljósa notkun er í algjöru lágmarki. Vonandi verður eitthvað gert í þess- um málum strax og lögregl- an gerð sýnilegri í umferð- inni. Hafliði Helgason. Ísland í þúsund ár Í MORGUNBLAÐINU 29. apríl sl. skrifaði Ursula Giger grein sem heitir Ís- land í þúsund ár. Mig lang- ar að þakka henni fyrir frá- bæra grein. Þetta eru orð í tíma töluð. Sonja. Tapað/fundið Húslyklar í óskilum HÚSLYKLAR fundust í Melgerði í Reykjavík. Upp- lýsingar í síma 897-3133. Dýrahald Kasper er fundinn ÉG vil þakka öllum kær- lega fyrir hjálpina við leit- ina að Kasper. Sérstaklega starfsfólkinu á hárgreiðslu- stofunni Grímu í Álfheim- um. Kisumamma. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Gréta, Barbara, Svana og Sigrún í MK dimmitera. LÁRÉTT 1 stúlka, 4 þjófnaður, 7 gól, 8 niðurfelling, 9 reið, 11 anga, 13 rækta, 14 drekkum, 15 hörfi, 17 heylaupur, 20 beiðni, 22 regnið, 23 skolli, 24 svar- ar, 25 skjóða. LÓÐRÉTT 1 vangi, 2 huldumönnum, 3 nytjalandi, 4 mas, 5 alda, 6 slá, 10 spjarar, 12 hraði, 13 bókstafur, 15 bein, 16 kóngssonur, 18 þung, 19 gremjast, 20 eldstæði, 21 misklíð. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 tækifærið, 8 músin, 9 illur, 10 iðn, 11 teinn, 13 náðin, 15 stúss, 18 kasta, 21 trú, 22 Guddu, 23 liður, 24 kardínáli. Lóðrétt: 2 ærsli, 3 iðnin, 3 ærinn, 5 illúð, 6 smit, 7 Frón, 12 nes, 14 áta, 15 siga, 16 úldna, 17 studd, 18 kúlan, 19 seðil, 20 aðra. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Víkverji skrifar... STJÓRNMÁLAFLOKKAR kepp-ast við að auglýsa sína menn og hvað þeir hafa fram að bjóða þessa dagana og hafa margar auglýsing- arnar vakið athygli. Það eru fleiri sem auglýsa. Atli Eðvaldsson, lands- liðsþjálfari, kom heldur betur á óvart eftir landsleik gegn Finnlandi í Vantaa, sem tapaðist 3:0 – hann lýsti eftir leiðtoga í landsliðs- hópnum, sem hann sjálfur valdi fyrir leikinn. Atli sagði að það sem stæði upp úr eftir þennan leik væri að þegar á bjátaði væri enginn í liðinu sem bretti upp ermarnar og drifi félaga sína áfram. „Þegar á móti blæs þarf einhver leikmannanna að taka að sér forystuhlutverkið, og ég lýsti eftir því þegar ég talaði við þá eftir leikinn. Það verður einhver að stíga fram sem leiðtogi hópsins, geta bar- ið hann saman þegar við lendum í vandræðum, og ég vona að þeir hugsi vel um þetta á næstu dögum og vikum.“ Þessi ummæli þjálfarans eru væg- ast sagt með ólíkindum. x x x ÞAÐ voru spaugarar sem auglýstuí smáauglýsingum DV í vikunni, undir flokknum Tapað – fundið. Fyrst mátti sjá þessa smáauglýs- ingu: „Stefnumál Samfylkingarinnar! Auglýst er eftir stefnumálum Samfylkingarinnar sem týndust 3 vikum fyrir kosningar. Finnandi hafi samband við Sollu.“ Síðan kom þessi auglýsing: Frambjóðendur Samfylking- arinnar! Þingframbjóðendur Samfylking- arinnar týndust í janúar þegar nýr talsmaður var skipaður. Finnandi hafi samband við Sollu.“ Gárungar töldu að ungir sjálf- stæðismenn hefðu líklega komið þessum auglýsingum á framfæri. Ekki var talið að ungir framsókn- armenn ættu hlut að máli, þar sem gárungar töldu að þeir hefðu hvorki húmor né hugmyndaflug til þess. Landsliðsmenn Íslands í knattspyrnu fagna á góðum degi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.