Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 04.05.2003, Blaðsíða 39
SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2003 39 Í MBL. 23. apríl sl. getur að lesa eftirfarandi texta frá félagsmálaráðu- neytinu um aðkomu Vestmannaeyja- bæjar að Þróunarfélagi Vestmanna- eyja: „Þá kemst ráðuneytið að þeirri nið- urstöðu að bæjarstjórn Vestmanna- eyja hafi verið óheimilt, samkvæmt sveitarstjórnarlögum, að samþykkja ábyrgðir fyrir skuldbindingum.“ Í framhaldinu átelur ráðuneytið greiðslur án sýnilegs mótframlags frá ÞV. Þessi texti vakti sérstaka athygli mína eftir ráðslag félagsmálaráðu- neytisins í máli mínu. Ef haldið yrði á málum með sambærilegum hætti yrði oddviti Vestmannaeyjabæjar krafinn persónulega um andvirði þeirra ábyrgða sem á sveitarfélagið hafa fallið. Ég bíð þess að ríkissak- sóknari láti bóka ábyrgðarkröfur á viðskiptareikninga allra sveitar- stjórnarmanna þar í bæ. Í ljósi at- burða þykir mér hæfa að benda á hvernig gengið var fram gegn mér einum en þó voru sveitarstjórnar- menn alls fimm. Þáttur hinna löggiltu endurskoðenda Mikil umræða hefur verið um störf endurskoðenda í kjölfar mikilla hremminga stórfyrirtækja í Banda- ríkjunum. Sýnist lítið fara fyrir op- inberri umræðu hér en áhrif endur- skoðenda á líf mitt tel ég til stórslysa. Ég hef reynt að ná eyrum stéttar- félags löggiltra endurskoðenda með mjög alvarlegar ávirðingar á hendur tveimur löggiltum endurskoðendum en þar var mér kurteislega vísað á dyr og passar víst hver sitt. Magnús Benediktsson var ráðinn sem löggiltur endurskoðandi Vestur- Landeyjahrepps en hefur að eigin sögn einvörðungu stillt upp ársreikn- ingum og endurskoðaði aðeins eitt ár. Hann hefur játað fyrir dómi að vera ókunnugt um gildandi reglur og lög um bókhald og ársreikningagerð sveitarfélaga en allt að einu hefur hann komist upp með að vinna verk sem hann hefur að eigin sögn ekki getu til. Hremmingar mínar má rekja beint til þess að Magnús kunni ekki til verka. Þegar upp komst um bók- haldsmistök Magnúsar í árslok 1998 endurgreiddi hann þóknun vegna vinnu sinnar til Vestur-Landeyja- hrepps eða tæplega kr. 700.000. Enn fremur lét hann lögmann sinn greiða Vestur-Landeyjahreppi inn á við- skiptareikning minn kr. 500.000 en meintur þjófnaður minn á þessari fjárhæð er það eina sem stendur eftir af ákærum á mig. Ef þetta segir ekki til um sök þá má langt leita. Það hlá- lega í málinu er þó að fjárhæðina kr. 500.000 þurfti Magnús ekki að greiða þar sem nú hefur óyggjandi verið leitt í ljós að hvorki hann né ég stálu nokkru. Vinnubrögð Magnúsar eru ógæfa mín. Ekki tók betra við þegar hið mikla endurskoðendafyrirtæki KPMG tók til hendinni og sendi fulltrúa sinn út af örkinni, löggilta endurskoðandann Einar Sveinbjörnsson. Þar tekur steininn úr og er árangurinn af verk- um hans meðal annars sá að tvíákært var fyrir meintan glæp, sem ég var þó alfarið sýknaður af. Þessi ágæti end- urskoðandi hefur meðal annars gerst sekur um ósannsögli, eiðsvarinn fyrir dómi, og er tvísaga um einföld bók- haldsatriði. Að geðþótta segir hann mig skuldlausan í lok árs 1995 en skulda með óskýranlegum hætti 500.000 í byrjun næsta árs. Á ekki öll- um löggiltum endurskoðendum að vera ljóst að bókhaldstölur liðins árs skuli vera jafnar upphafstölum næsta árs á eftir? Einar Sveinbjörnsson var sérstak- lega ráðinn til að betrumbæta verk Magnúsar. Það liggur þó skýrt fyrir nú að flest sem mátti teljast mér í hag er enn óleiðrétt, svo sem verulega vanreiknuð oddvitalaun. Samkvæmt útreikningum Einars sjálfs voru laun mín árlega vanreiknuð svo nam hundruðum þúsunda hvert ár. Í bók- haldi Vestur-Landeyjahrepps færði Einar þessi vanreiknuðu laun að hluta til bókar en af einhverjum ástæðum dregur hann þessa leiðrétt- ingu til baka. Á sama tíma og Einari er ljóst að ég á inni vanreiknuð laun reiknar hann hæstu dráttarvexti á „viðskiptaskuld“ mína við hreppinn. Fulltrúi minnihlutans, Hjörtur Hjartarson, krafðist þess að dráttar- vextir yrðu reiknaðir með þessum hætti en ekki liggur fyrir samþykkt hreppsnefndar um þetta efni. Má þar glöggt sjá að ekki var réttsýnin ein höfð að leiðarljósi hjá hinum löggilta endurskoðanda. Þar til viðbótar færði Einar að eigin frumkvæði skuldir hreppsins án vafninga beint á við- skiptareikning minn. Einar dæmdi mig þannig til sektar án dóms og laga og var sektin jafnhá þeim ábyrgðar- kröfum sem Vestur-Landeyjahrepp- ur varð að greiða vegna ábyrgða sem kaup á jörðinni Eystra-Fíflholti leiddu til. Einar Sveinbjörnsson þáði 2,7 milljónir króna úr sveitarsjóði við að reikna út rangar sakir á mig. Eftir sýknudóma Hæstaréttar liggur fyrir að ársreikningur 1997 og síðari reikn- ingar, sem Einar gerði, eru verulega rangir. Hreppsnefndarmenn og skoð- unarmenn voru blekktir til aðskrifa undir. Hvort tveggja er að oddvita- laun mín eru samkvæmt útreikning- um Einars sjálfs verulega vanreiknuð árið 1997 sem og að færslur ábyrgð- arkrafna á viðskiptareikning minn eru án stoðar í lögum. Ég leyfi mér að spyrja: Til hvers er sú stétt manna sem ekki kann skil á þeim lögum sem hún á að vinna eftir og gefur sannleikanum frí þegar eitt- hvað liggur við? Á hvaða vegferð er sú stétt manna sem slíkt stundar og samþykkir með þögninni og aðgerða- leysi sínu? Framsóknarmennskan Níu sveitungar mínir, þar af átta húskarlar framsóknar í Vestur- Landeyjarhreppi, flestir þeirra eru ættingjar fólks sem var á eftir föður mínum fyrir hálfri öld. Persónulega átti ég þátt í því að bægja ákæru frá einstaklingi nátengdum þessum hópi. Þakkirnar fæ ég í þessari mynd. Nefndir skulu til sögunnar Hún- bogi Þorsteinsson, fyrrverandi ráðu- neytisstjóri í félagsmálaráðuneytinu, og Halldór Hróarr, löggiltur endur- skoðandi frá KPMG. Eftir sífelldar kærur Hjartar Hjartarsonar til fé- lagsmálaráðuneytisins kröfðust þeir þess af mér að Einar Sveinbjörnsson yrði ráðinn til að taka upp ársreikn- ing Vestur-Landeyjahrepps fyrir ár- ið 1997. Endurskoðendur þurfa salt í grautinn rétt eins og aðrir. Á þeim tíma taldi ég Húnboga og Halldór til vandaðra manna en mér er nú orðið ljóst að Halldór Hróarr hafði í hæsta máta óeðlileg áhrif á gang mála á bak við tjöldin meðan skýrslugerð Einars samverkamanns hans var í mótun. Húnbogi og Hall- dór töldu mér trú um að bókhaldsmál Vestur-Landeyjahrepps væru með þeim hætti að ég væri kominn í hóp stórglæpamanna vegna bókhalds- óreiðu. Hringdu þeir í framhaldinu ítrekað í mig að kvöldlagi og kröfðust þess að ég segði af mér oddvitaemb- ætti. Mín stóru mistök voru að fara að ráðum þeirra og sér í lagi að hafa uppsögn mína fyrirvaralausa. Lagði ég þar óþurftarmönnum mínum vopnin í hendur og var þeim vægð- arlaust beitt gegn mér. Ég spyr nú: Hvað gekk þeim félögum til að koma mér úr embætti, hvað gekk mönnun- um yfirhöfuð til? Bágt á ég að sjá hvar ég leita réttar míns gagnvart þessum óþurftamönn- um mínum en samtrygging endur- skoðenda tryggir þeim trúlega skálkaskjól hvað svo sem líður að- gengi að opinberum embættismönn- um. Félagsmálaráðuneytið lætur sér sæma að taka afstöðu með ákærend- um mínum og af bréfaskriftum ráðu- neytisins má sjá að sýknudómur af stærstum hluta ákæruatriðanna dug- ar ráðuneytinu ekki til sinnaskipta í minn garð, ég skal sekur hvað sem sýknudómum annars líður. Fjölskyldumál saksóknara ríkisins Þegar litið er til baka virðist sam- nefnari ógæfu minnar einfaldlega vera skammstafaður KPMG. Í DÓMSMORÐ Eftir Eggert Haukdal „Mín stóru mistök voru að fara að ráðum þeirra og sér í lagi að hafa uppsögn mína fyrirvaralausa.“ ANDSTÆÐINGAR Kárahnjúka- virkjunar verða að játa að fátt virð- ist geta komið í veg fyrir virkjun og þó er málið langt frá því útrætt. Þeir saka stjórnvöld um að hafa brugðist lýðræðinu en á móti saka stjórnvöld umhverfisverndarsinna um að standa í ólýðræðislegri baráttu. Hvað skyldi vera til í þessum ásök- unum? Getur orðið lýðræði haft svona gjörólíka merkingu? Tvennskonar lýðræði Lýðræði er annars vegar tiltekin stjórnskipan, hins vegar aðferð til að taka bindandi ákvarðanir. Sem stjórnskipan gerir lýðræðið fólki kleift að skipta um valdhafa á frið- saman hátt. Það hefur verið raunin á Íslandi. Sem aðferð til að taka bind- andi ákvarðanir snýst lýðræði ekki um að útdeila valdi heldur um það hvernig skuli taka ákvörðun í hópi fólks um atriði sem varða hagsmuni þess en sem það gæti verið ósam- mála um. En hverjar eru leikreglur lýðræð- islegrar hópákvörðunar? Ef sá sem er sterkastur ákveður að farið skuli í fótbolta, vegna þess að hann er sterkastur og hann langar í fótbolta, þá kúgar hann aðra í hópnum, óháð fótboltalöngun þeirra. Ákvörðunin er í engum skilningi hinna í hópnum jafnvel þótt hún sé þeim í hag. En er lýðræðinu fullnægt ef sá sterki leyfir að kosið skuli á milli fótbolta og blaks? Ekki endilega. Hvers vegna þessa kosti en ekki einhverja aðra? Lýðræðinu er ekki einungis fullnægt með kosningum, því ef kostirnir eru ekki þeir sem máli skipta, er ákvörð- unin ekki sjálfráð ákvörðun þeirra sem kjósa. Í lýðræðislegri ákvörðun er kosn- ing einungis lokaskref á langri leið og jafnvel þótt lokaskrefið sé tekið eftir settum reglum dugir það ekki ef ákvörðunarferlið er að öðru leyti gallað. En hvernig þarf þá ferlið að vera til að lokaniðurstaðan sé rétt- nefnd lýðræðisleg ákvörðun? Upp- fylla þarf þrjú skilyrði. (1) Bindandi ákvarðanir skulu ein- ungis teknar af þeim sem eiga hags- muna að gæta. (2) Allir þeir sem málið varðar skulu hafa sömu tækifæri til að leggja sínar skoðanir á vogarskálarnar, bæði um hvaða kosti valið eigi að standa og hvers vegna skuli velja einn kost frekar en annan. (3) Allir þeir sem málið varðar skulu hafa jöfn tækifæri til að meta þá kosti sem kosið er um með tilliti til eigin hagsmuna og verðmæta- mats. Skilyrði (2) segir að áður en til kosninga kemur skuli hafa farið fram umræða sem er opin, bæði í þeim skilningi að fólk geti látið í ljósi hvort það sé með eða á móti tiltekn- um kostum, en einnig þannig að fólk hafi haft um valið á kostunum að segja. Þegar taka á bindandi ákvarð- anir er sjaldnast fyrirfram gefið hverjir kostirnir eru heldur þarf í umræðunni að setja fram og af- marka valkosti. Þetta skilyrði gerir þá sérstöku kröfu til alþingismanna, að þegar fyrir löggjafarþingi liggja mál sem fjallað er um í opinberri umræðu utan þings, þá taki þeir mið af þeirri umræðu. Við getum orðað þetta svo að opinber umræða al- mennings verði að geta náð inn í sali Alþingis. Skilyrði (3) leggur sérstakar skyldur á herðar stjórnvalda, há- skóla, fjölmiðla og annarra stofnana sem ráða yfir sérþekkingu og getu til að miðla upplýsingum og þekk- ingu. Það gerir einnig þá kröfu til stjórnvalda að þau haldi úti stofn- unum eins og háskólum og fjölmiðl- um og tryggi sjálfstæði þessara stofnana og þeirra sem þar vinna. Af þessum sökum vega stjórnmála- menn beinlínis að stoðum lýðræðis- ins þegar þeir reyna, í krafti stöðu sinnar, að þagga niður í vísinda- og fræðimönnum. En skilyrði (3) gerir einnig ráð fyrir því að fólk geti skipt um skoðun á því hvað séu hagsmunir þess í lýðræðislegri umræðu. Að þessu leyti er grundvallarmunur á lýðræðislegum ákvörðunum, þar sem lokaskrefið er kosning, og ein- földum atkvæðagreiðslum. Lýðræði sem stjórnskipan og sem tæki til að taka bindandi ákvarðanir skarast þegar lýðræðislega kjörnir fulltrúar taka bindandi ákvarðanir um hagsmuni heillar þjóðar. Á hvaða forsendum eiga hinir kjörnu fulltrú- ar að taka ákvarðanir? Hér skiptir hlutverk Alþingis sem umræðuvett- vangs grundvallarmáli. Það er vett- vangur til að rökræða ólík sjónarmið og, þegar um réttlætismál er að ræða, verða ákvarðanir að vera nið- urstaða af slíkum rökræðum með þeim hætti að unnt sé að réttlæta þær án þess að mismuna fólki m.t.t. eigin verðmætis eða lífsviðhorfa. Al- þingi er því ekki einber atkvæða- greiðsluvettvangur. Þegar við segjum að ákvörðun Al- þingis sé lýðræðisleg má líta á það sem e.k. gæðastimpil. Lýðræðisleg ákvörðun er niðurstaða af umræðu sem hefur fullnægt formlegum skil- yrðum um leikreglur og mismunar ekki fólki með óréttmætum hætti. Er barátta náttúruverndar- sinna ólýðræðisleg? Lítum nú á þá ásökun, sem m.a. hefur komið frá Valgerði Sverris- dóttur iðnaðarráðherra, að barátta náttúruverndarsinna sé ólýðræðis- leg. Hún hefur sagt að baráttan sé ólýðræðisleg vegna þess að hún skaði íslenska hagsmuni og ákvörð- un um málið hafi þegar verið tekin af réttum lýðræðislega kjörnum aðil- um. Er nóg að réttir aðilar taki ákvörðun til þess að andstaða við hana sé ólýðræðisleg? Nei, því þótt réttir aðilar taki ákvörðun getur ým- islegt brugðist, t.d. geta annarlegir hagsmunir ráðið ferðinni. Hvað með þá ásökun Valgerðar að gagnrýni náttúruverndarsinna skaði íslenska hagsmuni? Það er ljóst að gagnrýnin skaðar það sem íslensk stjórnvöld telja sína hagsmuni, en hagsmunir stjórnvalda eru ekki það sama og hagsmunir Íslendinga. Ein af grundvallarhugsjónum lýðræðis- ins er einmitt að hagsmunir stjórn- valda vegi ekki þyngra en aðrir hagsmunir. Ef taka á ásökun Val- gerðar alvarlega verður að vera sýnt að gagnrýni náttúruverndarsinna skaði ekki einungis hagsmuni stjórnvalda heldur almenna íslenska hagsmuni. Það er raunar eitt meg- ineinkenni ofríkis, eins og það birtist t.d. í harðræði Austur-Evrópu á síð- ustu öld, að stjórnvöld dæma um hvað séu hagsmunir almennings. Það er því ekki nóg með að ásakanir Valgerðar og fleiri missi marks, heldur eru þær beinlínis ólýðræðis- legar. Er virkjun nauðsynleg? Ákvörðun um virkjun er byggð á þrennskonar forsendum, (a) að virkjun sé nauðsynleg eða æskileg, (b) að arðsemin sé jákvæð og (c) að umhverfisáhrif séu viðunandi. Það hefur aldrei verið sýnt fram á að virkjun sé nauðsynleg, hvað þá virkjun af þeirri stærðargráðu sem þarna er ráðist í. Vissulega hafa Austfirðir átt undir högg að sækja, en fólk hefur ekki flutt þaðan vegna þess að þar vantaði álver og virkjun. Að vísu hafa stjórnvöld komið því svo fyrir að Austfirðingar hafa beðið lengi eftir álveri og kannski hefur það bitnað á annarri uppbyggingu. Auk þess er ekki ljóst að sú upp- bygging sem álver á Reyðarfirði hef- ur í för með sér sé heppilegasta lausnin á þeim byggðavanda sem fyrir liggur. Í nýlegri rannsókn kem- ur fram að menntun umfram stúd- entspróf er misskipt eftir landshlut- um. Hlutfall menntafólks hefur lækkað á landsbyggðinni en hækkað á Reykjavíkursvæðinu. Það úrræði að reisa virkjun og álver til að stemma stigu við fólksfækkun á Austfjörðum mun gera lítið til að snúa þessari þróun við og þó er hún ekki síður varhugaverð en einber fólksfækkun. Hver er arðsemin, hver eru umhverfisáhrifin? Að því gefnu að arðsemiskrafan sé fullnægjandi og að aðrar forsendur séu réttar er arðsemin ekki deilu- efni. En hverjar eru þessar forsend- ur? Virkjun við Kárahnjúka nýtir eina auðlind á kostnað annarrar, stöðuorka uppsafnaðs vatns úr jök- ulfljótum er nýtt á kostnað ósnort- innar náttúru. En er rétt að fórna náttúrunni án þess að meta hana til fjár? Ekki dugir að bera því við að erf- itt sé að meta náttúruna til fjár. Það er raunar býsna nærtækt. Íslensk stjórnvöld stefna að því að stórauka ferðamannastraum til landsins á næstu árum og markaðssókn erlend- is leggur áherslu á hreina og ósnortna náttúru landsins. Fram- kvæmd eins og Kárahnjúkavirkjun gerir þessi áform vissulega ekki að engu, en hún þrengir kosti þeirra sem koma til með að vinna við ferða- mannaþjónustu. Hvernig skuli meta óumdeilt og sívaxandi verðmæti ósnortinna víð- erna er hagsmunamál allra Íslend- inga og ákvörðun um að fórna þeim ætti að taka með lýðræðislegum hætti. Um þessi efni hefur raunar verið mikil umræða en sú pólitíska ákvörðun að fórna víðernunum hefur algerlega sniðgengið þessa um- LÝÐRÆÐI OG VIRKJANIR Eftir Ólaf Pál Jónsson „Stjórnvöld hafa brugð- ist lýðræð- inu.“  
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.