Morgunblaðið - 12.05.2003, Síða 10
KOSNINGAR 2003
10 MÁNUDAGUR 12. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Steingrímur J. Sigfússon Guðjón Arnar Kristjánsson Guðmundur G. Þórarinsson
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, talsmaður
Samfylkingarinnar, segist telja að niðurstaða
viðræðna Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks um áframhaldandi stjórnarsamstarf
ráðist fyrst og fremst af tvennu. Annar vegar
hver verði forsætisráðherra, en framsóknar-
menn hljóti að gera kröfu til forsætisráð-
herraembættisins. Hins vegar hljóti niður-
staðan að ráðast af því hvort flokkarnir nái
samkomulagi um að hrinda skattalækkunar-
áformum Sjálfstæðisflokks í framkvæmd, en
framsóknarmenn hafi lýst því yfir að tillög-
urnar þýði annaðhvort ógnun við stöðugleik-
ann eða niðurskurð í velferðarkerfinu.
„Þetta eru að mörgu leyti mjög söguleg úr-
slit. Í fyrsta lagi kemst Samfylkingin yfir
þennan 30% múr sem við ætluðum okkur að
komast yfir. Það hefur ekki gerst síðan 1931 að
nokkrum flokki, fyrir utan Sjálfstæðisflokkinn,
hafi tekist það. Í öðru lagi er það sögulegt að
það sé kominn annar flokkur uppi við hliðina á
Sjálfstæðisflokknum. Það munar afskaplega
litlu á Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki. Sam-
fylkingin er að staðfesta sig þarna sem hinn
stóri flokkurinn á þessu pólitíska leiksviði, en
það var markmið sem við settum okkur. Þetta
eru hvorttveggja mjög söguleg tíðindi.“
Ingibjörg Sólrún sagði að í þriðja lagi vekti
afgerandi fylgistap Sjálfstæðisflokksins at-
hygli. Það væri athyglisvert að fylgistapið væri
mest í kjördæmi flokksformannsins. „Það hlýt-
ur að lýsa ákveðinni óánægju kjósenda. Við
hljótum að gera ráð fyrir því þegar slíkt ger-
ist.“
Skoðanakannanir sýndu Samfylkinguna
með yfir 40% fylgi í upphafi kosningabarátt-
unnar. Ingibjörg Sólrún sagðist telja ómark-
tækt að bera þessar kannanir saman við úrslit
kosninganna. „Skoðanakannanir sýna allt
mögulegt á hverju kjörtímabili. Spurningin er
þá hvar menn ætla að núllstilla. Eini saman-
burðurinn sem gildir er samanburðurinn við
síðustu kosningar og síðan að skoða úrslitin í
sögulegu ljósi. Þá kemur í ljós að fylgi Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hefur aldrei
verið minna í 25 ár fyrir utan kosningarnar
þegar Borgaraflokkurinn bauð fram eftir
klofning innan Sjálfstæðisflokksins. Þetta eru
því að ýmsu leyti söguleg úrslit.
Svo er ég mjög ánægð með þetta góða fylgi
sem Samfylkingin fær í Reykjavík norður þar
sem hún er stærsti flokkurinn.“
Ingibjörg Sólrún sagði að þótt ríkisstjórnin
hefði haldið velli fengi hún í þessum kosn-
ingum sterk skilaboð um óánægju sem hún
yrði að hlusta á hvernig svo sem hún færi með
það.
Ingibjörg Sólrún náði ekki inn á þing þrátt
fyrir að Samfylkingin fengi góða kosningu í
kjördæmi hennar. Hún var spurð hvort það
skipti ekki máli fyrir hana að hafa ekki þennan
vettvang, þ.e. Alþingi, til að tala máli flokksins.
„Ég hefði vissulega kosið að komast inn en
ég vissi allan tímann að þetta yrði tvísýnt. Það
þýðir bara að maður er í heldur lengri leið-
angri en til stóð í upphafi.“
Til viðræðu um
forsætisráðherraembættið
Ingibjörg Sólrún var spurð hvort hún teldi
eitthvað benda til þess að stjórnarskipti yrðu
eftir þessar kosningar. „Það er ómögulegt að
segja. Spurningin hlýtur að vera sú hvort þess-
ir flokkar komi sér saman, annars vegar um
hver verði forsætisráðherra í ríkisstjórn
Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks ef hún
heldur. Það er líklegt að framsóknarmenn geri
kröfu til forsætisráðherraembættisins. Það
hlýtur líka að spila sterkt inn í þessar stjórn-
armyndunarviðræðurnar, að Sjálfstæðisflokk-
urinn gaf afgerandi loforð um að lækka skatta
um tæplega 30 milljarða. Ég get ekki ímyndað
mér að það sé eitthvað umsemjanlegt af þeirra
hálfu. Framsóknarflokkurinn hefur lýst því yf-
ir að þetta þýði annaðhvort ógnun við stöðug-
leikann eða niðurskurð í velferðarkerfinu.
Maður hlýtur aðeins að velta fyrir sér hvernig
menn ætla að ná saman um þetta.“
Ingibjörg Sólrún var spurð hvort Samfylk-
ingin ætlaði að bjóða Halldóri Ásgrímssyni
embætti forsætisráðherra í hugsanlegri sam-
stjórn Framsóknarflokks og Samfylkingar.
„Það fer eftir því hvernig úr málum spilast, en
það er hægt að ræða það eins og fleiri hluti.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
um viðræður framsóknarmanna
við sjálfstæðismenn
Hljóta að
gera kröfu
til forsætisráð-
herraembættis
„ÞAÐ eru mikil vonbrigði að ekki tókst að fella
ríkisstjórnina eða komast nær því en raun ber
vitni,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.
„Það er sárgrætilegt að Frjálslynda flokk-
inn eða okkur vantaði aðeins nokkra tugi at-
kvæða til að við tækjum tólfta manninn af
Framsóknarflokknum. Það er í lagi fyrir þá
vini okkar í Samfylkingunni, sem ráku stífan
áróður fyrir því að eina leiðin til að fella ríkis-
stjórnina væri að kjósa Samfylkinguna, að
horfast í augu við þá staðreynd að útkoman
varð sú að fáein atkvæði í viðbót til annars
hvors hinna stjórnarandstöðuflokkanna hefði
minnkað meirihluta ríkisstjórnarinnar um tvo
menn,“ segir Steingrímur.
Lögðum áherslu á málefni
alla kosningabaráttuna
Hann segir að heildarárangur Vinstrihreyf-
ingarinnar í kosningunum valdi ákveðnum
vonbrigðum. „Við ætluðum okkur a.m.k. að
halda okkar hlut og helst bæta við hann. En ég
get varla sagt annað en að í ljósi þess hvernig
baráttan þróaðist á lokasprettinum, þá munar
mjög litlu að við getum kallað þetta varnar-
sigur. Við verjum okkar stöðu að mestu leyti,
erum með nánast óbreytt fylgi en erum svo
óheppnir að það kostar okkur einn mann. Ef
heppnin hefði dottið okkar megin á síðustu
metrunum væri ég þokkalega sáttur,“ segir
hann.
Steingrímur segist vera mjög stoltur af
kosningabaráttu VG. „Ég tel að við getum litið
stolt til baka. Við héldum okkar striki og háð-
um þessa baráttu á okkar forsendum. Við fór-
um aldrei út í auglýsingapeningaausturinn og
ekki út í loforðayfirboðaflauminn. Við lögðum
áherslu á málefni allan tímann og mér hlýnar
um hjartarætur þegar maður sér tekið til þess
í fjölmiðlum eins og gert er í leiðara Morgun-
blaðsins í dag [sunnudag]. Það litla sem við
auglýstum voru massífar málefnaauglýs-
ingar,“ segir hann.
VG er sterkari í dag en hún
hefur nokkru sinni verið
Steingrímur segir einnig ánægjulegt að öfl-
ug ung kynslóð er komin til starfa með VG.
„Ég fullyrði að kosningarannsóknir eiga eftir
að sýna að fylgi okkar var mjög mikið í yngsta
aldurshópnum,“ segir hann.
„Vinstrihreyfingin – grænt framboð er
sterkari í dag en hún hefur nokkru sinni verið,
þó að við verðum að sætta okkur við að vera
einum manni fáliðaðri á þinginu.“
Reiknum ekki með öðru
en að vera í stjórnarandstöðu
Spurður um stjórnarmöguleika segir Stein-
grímur að því miður sé meirihluti ríkisstjórn-
arinnar traustur. „Það eru hins vegar nokkuð
breytt styrkleikahlutföll. Þetta er því í þeirra
höndum í bili en eins og þetta snýr við okkur
reiknum við í sjálfu sér ekki með öðru en að
vera í stjórnarandstöðu.
Mér þykir langlíklegast að í fyrstu umferð
þreifi þessir núverandi samstarfsflokkar hvor
á öðrum. Það er þá ekki nema Sjálfstæðis-
flokkurinn telji sína útkomu það lélega að hann
þurfi að hugsa sinn gang og/eða Halldór telji
sína stöðu svo sterka að hann eigi rétt á að
þreifa fyrir sér. Það kemur þá í ljós á næstu
dögum,“ segir Steingrímur.
Miðjuviðhorf virðast
eiga upp á pallborðið
Hann segist telja að niðurstaða kosninganna
sýni ákveðna sveiflu inn á miðjuna í íslenskum
stjórnmálum. „Hægri vængurinn stórtapar og
sá flokkur sem skilgreinir sig lengst til vinstri
er heldur í vörn, en miðjuviðhorf virðast eiga
mjög upp á pallborðið um þessar mundir,“ seg-
ir hann.
Steingrímur segir einnig merkilegt að
Frjálslyndi flokkurinn sé að festa sig í sessi.
„Það tel ég vera meiri söguleg tíðindi að flokk-
ur sem er hægra megin við miðjuna sé að festa
sig í sessi heldur en útkoma Samfylking-
arinnar, þótt ég viðurkenni að sjálfsögðu að
hún er góð og óska ég þeim til hamingju með
hana. Ég útlegg hana hins vegar ekki með
sama hætti og aðrir gera sem segja að Sam-
fylkingin sé komin upp að Sjálfstæðis-
flokknum. Það er ekki rétt. Það er Sjálfstæð-
isflokkurinn sem er kominn niður að
Samfylkingunni. Það er mikill munur á því.“
Steingrímur telur að VG hafi tekist að verja
stöðu sína bærilega í hans eigin kjördæmi,
Norðausturkjördæmi. „Auðvitað söknum við
sárlega vinar okkar og félaga Árna Steinars
Jóhannssonar, sem mikill missir er að,“ segir
Steingrímur.
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður VG
Verjum okkar
stöðu að
mestu leyti
„RÍKISSTJÓRNIN heldur velli og er ekki
sjáanlegt annað við fyrstu yfirsýn en að hún
muni halda áfram,“ segir Guðjón A. Krist-
jánsson, formaður Frjálslynda flokksins.
Sárt að örfá atkvæði vantaði svo
Margrét Sverrisdóttir næði kjöri
Guðjón er mjög ánægður með að Frjáls-
lynda flokknum tókst að tvöfalda þing-
mannafjölda sinn en segir jafnframt sárt að
aðeins örfá atkvæði vantaði upp á að Margrét
Sverrisdóttir, efsti maður á lista flokksins í
Reykjavík suður, næði kjöri. „Hún er mikil
baráttukona og dugnaðarforkur en við búum
auðvitað að henni áfram sem framkvæmda-
stjóra þingflokks og flokksins,“ segir Guðjón.
Aðspurður segist Guðjón gera ráð fyrir að
málflutningur og stefna flokksins í sjávar-
útvegsmálum hafi átt stóran þátt í fylgisaukn-
ingu Frjálslynda flokksins.
Guðjón er mjög ánægður með góðan árang-
ur Frjálslynda flokksins í hans kjördæmi,
Norðvesturkjördæmi, en þar fengu Frjáls-
lyndir 14,2% atkvæða og tvo menn. Segist
hann vera mjög þakklátur stuðningsmönnum,
frambjóðendum og öðrum sem lögðu flokknum
lið í öllum kjördæmum.
Ekki annað að sjá í spilunum
en að stjórnin haldi áfram
Guðjón segist ekki sjá annað í spilunum
núna en að stjórnarflokkarnir endurnýi stjórn-
arsamstarf sitt. „Þó að Sjálfstæðisflokkurinn
missi svolítið fylgi hafa stjórnarflokkarnir
nægilegt fylgi til að stjórna landinu ef þeir
vilja. Ég sé alla vega ekki neitt tilefni hjá þeim
að rjúfa stjórnarsamstarfið á stundinni, heldur
hljóta þeir að skoða málin hver sem niður-
staðan verður svo að lokum.
Það getur svo sem vel verið að Halldór hafi
einhverjar aðrar væntingar eða áætlanir en
það er ekki hægt að lesa það út úr kosninga-
baráttunni. Hún gekk öll út á að þeir héldu
velli,“ segir Guðjón.
Ánægður með
góðan árangur
flokksins
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins
„HVORKI ég né Davíð Oddsson náðum þeirri
útkomu sem við höfðum vonast eftir. Ég er nú
samt að vona að við höfum gert svolítið gagn í
þessari baráttu og okkur hafi tekist að festa
sviðsljósið á ákveðin mál sem ástæða er til að
ræða,“ sagði Guðmundur G. Þórarinsson, for-
maður Nýs afls, um úrslit kosninganna, en
flokkurinn fékk 1% atkvæða.
Guðmundur sagði að kosningabaráttan hefði
að stórum hluta farið fram í auglýsingum, sér-
staklega síðustu vikuna fyrir kosningar. „Ég
tel þetta dálítið hættulegt fyrir lýðræðið, af
ýmsum ástæðum. Í fyrsta lagi vegna þess að
lítill og nýr flokkur sem er að koma með
ákveðin sjónarmið inn í kosningabaráttuna,
eins og Nýtt afl, hefur engan stuðning og get-
ur ekki tekið þátt í slíku auglýsingaflóði. Mér
virðist þetta stefna meira og meira í átt að
bandarískum stjórnmálum, að peningarnir
ráði gríðarlegu miklu á lokastigi baráttunnar.
Það er umhugsunarefni fyrir lýðræðið að aug-
lýsingarnar snúist mest um ímynd manna og
flokka en ekki um efnisatriði eða baráttumál.“
Guðmundur sagði umhugsunarefni hvaðan
þessir peningar koma. Hann minnti á að það
væri óvíða á Vesturlöndum að stjórn-
málaflokkarnir þyrftu ekki að gera grein fyrir
þessum peningum. Það væri hættulegt fyrir
lýðræðið ef það væri hægt að kaupa sér rík-
isstjórn.
Lentum á milli
„Þessi úrslit eru talsvert lakari en við gerð-
um okkur vonir um. Ég held að það sé ljóst að
við lentum dálítið á milli. Kosningarnar sner-
ust mjög um það að ríkisstjórnin væri á hníf-
seggjum. Menn veltu fyrir sér hvernig þeir
ættu að kjósa eftir því hvort þeir væru með
ríkisstjórninni eða á móti henni. Það er út af
fyrir sig mjög eðlilegt. Skoðanakannanir
drógu allan mátt úr okkur jafnóðum vegna
þess að í þeirri baráttu myndum við ekki hafa
nein áhrif á úrslit kosninganna.“
Guðmundur sagði að Nýtt afl hefði boðað til
fundar í dag til að ræða framtíð hreyfing-
arinnar. Hann sagðist ekki heyra annað en að
stuðningsmenn væru ákveðnir í að halda
áfram að vinna að málefnabaráttunni.
Gerðum gagn
í þessari
baráttu
Guðmundur G. Þórarinsson,
formaður Nýs afls