Morgunblaðið - 12.05.2003, Side 26
KOSNINGAR 2003
26 MÁNUDAGUR 12. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NIÐURSTÖÐUR síðustu skoðana-
könnunar sem Gallup gerði fyrir Rík-
isútvarpið um fylgi stjórnmálaflokk-
anna fór næst raunverulegu fylgi
þeirra í kosningunum. Þær skoðana-
kannanir sem fjölmiðlarnir birtu dag-
ana fyrir kosningar voru almennt
nokkuð nálægt úrslitum kosning-
anna.
Mestu munar á skoðanakönnunum
og fylgi hjá Sjálfstæðisflokknum sem
Félagsvísindastofnun, Gallup og
IBM ofmátu um 2 til 3,3%. Hefur það
oft áður gerst að flokkurinn fær færri
atkvæði upp úr kjörkössunum en
skoðanakannanir hafa gefið til
kynna. Fyrir síðustu alþingiskosn-
ingar, vorið 1999, sýndu skoðana-
kannanir að bæði Sjálfstæðisflokkur
og Samfylking fengju meira fylgi en
raun varð á. Að þessu sinni voru frá-
vik nokkur hjá Samfylkingunni en
það var í báðar áttir.
Niðurstaða Sjálfstæðisflokksins
kom mest á óvart
Gallup gerði sína síðustu raðkönn-
un fyrir Ríkisútvarpið á miðvikudag
og fimmtudag fyrir kosningar. Þegar
upp er staðið reyndist hún fara næst
um endanleg úrslit kosninganna. Á
meðfylgjandi töflu sést að samanlagt
frávik könnunarinnar frá fylgi þeirra
flokka sem náðu meira en 1% fylgi
var 5,2%. Mestu munaði hjá Sjálf-
stæðisflokknum sem Gallup ofmat
um 2,1% eins og flestir aðrir sem
gerðu kannanir fyrir kosningarnar.
Önnur frávik voru um og innan við
1% hjá Gallup.
Þorlákur Karlsson, framkvæmda-
stjóri hjá Gallup, kveðst ánægður
með hvað könnun fyrirtækisins fór
nálægt úrslitunum en tekur fram að
skoðanakannanir hafi almennt farið
nálægt úrslitum kosninganna. Hann
segir að niðurstaða Sjálfstæðis-
flokksins hafi komið mest á óvart,
fylgi hans hafi orðið minna en hann
hefði getað ímyndað sér fyrirfram.
Kveðst hann ekki hafa skýringar á
því en stjórnmálafræðingar væru
sjálfsagt að velta því fyrir sér þessa
dagana.
Ef frávik skoðanakönnunar sem
Fréttablaðið gerði einnig á miðviku-
dag og fimmtudag er metið með sama
hætti sést að samanlagt frávik henn-
ar frá úrslitum er 5,9%. Tiltölulega
jafnt frávik var á öllum tölum, sé það
borið saman við aðrar kannanir í að-
draganda kosninganna.
Hreyfing í lokin
Könnun sem Félagsvísindastofnun
gerði fyrir Morgunblaðið á mánudag,
þriðjudag og miðvikudag sýnir 6,7%
heildarfrávik frá niðurstöðum kosn-
inga. Þar munar mest um að Sjálf-
stæðisflokkurinn mældist 2,4% of hár
en Samfylkingin 2,5% lægri en raun
varð á í kosningunum.
Friðrik H. Jónsson, forstöðumaður
Félagsvísindastofnunar, segir að Fé-
lagsvísindastofnun sé í miðjum hópi
þegar litið er til frávika frá kosning-
um. Það sé í sjálfu sér viðunandi.
Hann kveðst þó óánægður með
hversu mikið frávik hafi verið á stóru
flokkunum frá könnun stofnunarinn-
ar. „Það virðist hafa verið hreyfing í
lokin sem við höfum ekki náð. Raunar
grunaði okkur þetta, vísbendingar
komu í þessa átt þegar fólk var spurt
hvað það hefði kosið síðast. En við
verðum að treysta því sem fólk seg-
ir,“ segir Friðrik.
Vísar hann þar til þess að fylgi
Sjálfstæðisflokksins var ofmetið en
Samfylkingarinnar vanmetið. Friðrik
segir að könnun Félagsvísindastofn-
unar hafi aftur á móti reynst vera ná-
lægt fylgi annarra flokka og fram-
boða og væri hann ánægður með það.
Miklar sveiflur tvo
síðustu dagana
Könnun sem DV gerði á fimmudag
sýnir 7,9% heildarfrávik. Þetta er sú
skoðanakönnun sem síðust var gerð
fyrir kosningarnar. Frávik var á
bilinu 1,5 til 2% á öllum flokkum,
nema Vinstri grænum.
Sú könnun sem vék mest frá úrslit-
um kosninganna var skoðanakönnun
sem IBM viðskiptaráðgjöf gerði fyrir
Stöð 2 frá mánudegi til fimmtudags.
Heildarfrávik í því tilviki er 8,7%.
Mest munar um að Sjálfstæðisflokk-
urinn var ofmetinn um 3,3%.
Hafliði Ingason hjá IBM segir að
hafa verði í huga að kannanirnar hafi
verið gerðar á mismunandi tímum.
Segir hann að könnunin sem IBM
gerði fyrir Stöð 2 fyrri hluta vikunnar
hafi sýnt svipaða niðurstöðu og aðrar
kannanir sem gerðar voru á þeim
tíma, svo sem Félagsvísindastofnun,
og Gallup hafi ekki verið langt frá.
Frávik Sjálfstæðisflokksins telur
hann hugsanlega skýrast af því að
könnunin hafi ekki náð fylgishreyf-
ingum sem orðið hafi í lok vikunnar, á
föstudag og kjördag. „Það er engin
leið að mæla síðustu tvo dagana en
það er einmitt sá tími sem fylgist
virðast sveiflast mikið. Ef kosið hefði
verið 8. maí má búast við að fylgið
hefði skipst nokkurn veginn eins og
okkar könnun sýndi,“ segir Hafliði.
Heildarfrávik í skoðanakönnun-
um var á bilinu 5,2 til 8,7%
Gallup fór
næst úrslit-
um kosninga
, ,+** +
**
- !. , !!"
'6 47(
/-.-2
3 /0"
"'01
20"
"0/
/0
'8(
.-2
3 '0
"'0/
0"
0'
10
'
9
+ /-.-2
3 20/
" 0/
10
" 02
10!
':;<
'!
,-
.-2
3 20
/0!
/01
0&
20
932-
<+ ,-
/-2
3 10'
"20
/02
10'
10&
3 ,+** +
-*
# #*
# #
!
" (
)-
+-
=
$- 4* %# # *
+* ,
**.
# #*
# #
.
* (+*
$ *
56. ( 7.
!
"
#
$
%
!
38
/0/
""0/
/0&
"0!
101
/
/
/
//
/ / /
//
ATLI Gíslason varaþingmaður, Kol-
brún Halldórsdóttir alþingismaður
og Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, ræddu kosningaúrslitin
á kosningavöku VG í Reykjavík. Það
var baráttuhugur í Atla þrátt fyrir
að VG missti einn þingmann í kosn-
ingunum. Steingrímur hlustaði
brosandi á hvatningarræðu Atla.
Morgunblaðið/Ómar
Baráttuhugur hjá Vinstri grænum
ENGIN kærumál voru í Reykja-
víkurkjördæmunum og Norðvest-
urkjördæmi, en fáein í öðrum
kjördæmum.
Jón Kr. Sólnes, formaður yf-
irkjörstjórnar í Norðaustur-
kjördæmi, segir að tvö atkvæði
sem merkt hafi verið V-lista hafi
verið úrskurðuð ógild og umboðs-
maður U-listans hafi vísað málinu
áfram til dómsmálaráðuneytisins.
Karl Gauti Hjaltason, formaður
yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi,
segir að ýmsar athugasemdir hafi
borist. Tveir ágreiningsseðlar
hafi orðið til og hafi annar
þeirra, merktur D, verið úrskurð-
aður gildur en hinn, hugsanlega
merktur S, ógildur, og hafi þeim
verið vísað áfram. VG hafi sent
bréf og óskað eftir að öll atkvæði
merkt V yrðu úrskurðuð þeim en
ekki hafi reynt á þetta þar sem
ekkert atkvæði hafi verið merkt
V. Eftir sé að fara yfir hvort
formlegar kærur hafi borist
vegna umboðsmanna í kjör-
deildum, en hugsanlega hafi slík
mál verið leyst á viðkomandi
stöðum.
Bjarni S. Ásgeirsson, formaður
yfirkjörstjórnar í Suðvestur-
kjördæmi, segir að eitt kærumál
sé í gangi. Fjórir af fimm mönn-
um í yfirkjörstjórn hafi verið
sammála um að sjö utankjör-
fundaratkvæði, sem hafi verið
merkt V, væru ógild og umboðs-
menn U-listans hafi vísað málinu
áfram.
Fáar kær-
ur vegna
ágrein-
ingsmálaEKKI hafa allir meðmælend-ur framboðs Nýs afls kosið
framboðið því það fékk færri
atkvæði en nemur samanlögð-
um lágmarksfjölda meðmæl-
enda og frambjóðenda.
Nýju afli tókst á síðustu
stundu að afla nægilega
margra frambjóðenda og
meðmælenda til að geta boðið
fram í öllum kjördæmum. Til
þess þurfti liðlega 2.000
manns að lágmarki en fram-
boðið fékk 1.791 atkvæði þeg-
ar talið var upp úr kjörköss-
unum.
Þeir sem stóðu að framboð-
inu með þessum hætti virðast
hafa skilað sér í kjördæm-
unum þremur á höfuðborg-
arsvæðinu, þar sem framboð-
ið fékk 400 til 500 atkvæði en
þurfti að lágmarki til að bjóða
fram 352 nöfn á framboðs- og
meðmælendalista.
Slæmar heimtur á
landsbyggðinni
Aftur á móti fékk framboð-
ið ekki nema 122 til 166 at-
kvæði í landsbyggðakjör-
dæmunum þremur sem er
innan við helmingur af sam-
anlögðum lágmarksfjölda
meðmælenda og frambjóð-
enda en þeir eru 320 í þessum
kjördæmum. Greinilegt er að
ekki hafa allir þeir sem voru í
framboði fyrir Nýtt afl í þess-
um kjördæmum eða mæltu
með framboði þess greitt
framboðinu atkvæði sitt.
Meðmæl-
endur Nýs
afls skiluðu
sér ekki
LANDSKJÖRSTJÓRN kom saman til vinnufundar í
gær þar sem safnað var saman gögnum frá yfirkjör-
stjórnum allra kjördæma og formlegur fundur und-
irbúinn sem halda á næstkomandi föstudag.
Að sögn Þorvaldar Lúðvíkssonar, formanns lands-
kjörstjórnar, verða kjörbréf gefin út á fundinum á
föstudag og þingsætum úthlutað til flokkanna með
formlegum hætti. Umboðsmönnum flokkanna er boðið
til þess fundar.
Þorvaldur segir engar kærur hafa borist á fram-
kvæmd kosninganna þó að deilumál hafi komið upp á
stöku stað. Viðkomandi yfirkjörstjórnir hafa gefið
skýrslu um þau mál og fara þau til umfjöllunar í dóms-
málaráðuneytinu.
Aðspurður hvernig nýtt kosningakerfi hafi virkað
segir Þorvaldur að reynslan sé nokkuð góð.
Fyrir almenning hafi þetta kerfi virkað spennandi en
meginmarkmið breytinga hafi verið að mynda jöfnuð
milli þingflokkanna. Engir sjáanlegir hnökrar hafi kom-
ið upp, á heildina litið.
Engir hnökrar komu fram
að mati landskjörstjórnar