Morgunblaðið - 22.05.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 . TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Syngur
Wagner
Magnea Tómasdóttir syngur ein-
söng með Sinfóníunni Listir 24
Guðmundur E. Stephensen stóð sig
vel á HM í borðtennis Íþróttir 47
Nokkur
ný korn
Mannakorn frumflytja nokkur
ný lög á tónleikum Fólk 51
Í fremstu
röð
MÚSLÍMAR voru hvattir til að gera
fleiri sjálfsmorðsárásir á Vestur-
landabúa, ráðast meðal annars á
Norðmenn, í hljóðritaðri yfirlýsingu
sem send var út í gær og sögð koma
frá næstæðsta foringja hryðjuverka-
samtakanna al-Qaeda.
Arabíska sjónvarpsstöðin al-Jaz-
eera birti yfirlýsinguna og sagði að
Ayman al-Zawahiri, hægri hönd
Osama bin Ladens, hefði lesið hana.
„Ó, múslímar, herðið vilja ykkar
og ráðist á sendiráð Bandaríkjanna,
Englands, Ástralíu og Noregs, hags-
muni þeirra, fyrirtæki og starfs-
menn,“ sagði í yfirlýsingunni. Talið
er að hún hafi verið tekin upp þegar
stríðið geisaði í Írak.
Norska stjórnin undrandi
Utanríkisráðuneyti Bandaríkj-
anna skýrði frá því í gærkvöld að
sendiráði landsins í Ósló yrði lokað
af öryggisástæðum. Talsmaður
norska utanríkisráðuneytisins sagði
að norska stjórnin væri undrandi á
hótun al-Qaeda
og hefði óskað
eftir aukinni ör-
yggisgæslu við
norsk sendiráð.
Danska ríkissjón-
varpið sagði í
gærkvöld að al-
Zawahiri hefði
líklega ruglast á
Noregi og Dan-
mörku í yfirlýs-
ingunni þar sem hann virtist skír-
skota til ríkjanna sem tóku þátt í
hernaðinum í Írak. Auk Bandaríkj-
anna, Bretlands og Ástralíu tóku að-
eins Danmörk og Pólland þátt í
hernaðinum, ekki Noregur.
„Leyfið ekki Bandaríkjamönnum,
Bretum, Áströlum, Norðmönnum og
öðrum krossförum, sem myrtu
bræður ykkar í Írak, að vera í lönd-
um ykkar og njóta góðs af auðlindum
ykkar,“ sagði al-Zawahiri.
Í yfirlýsingunni voru múslímar
einnig hvattir til að líkja eftir hryðju-
verkunum í Bandaríkjunum 11. sept-
ember 2001.
Yfirvöld í Sádi-Arabíu skýrðu frá
því í gær að þrír al-Qaeda-liðar hefðu
verið handteknir vegna gruns um að
þeir hefðu ætlað að ræna flugvél og
fljúga henni á byggingu í sádi-arab-
ísku borginni Jeddah. Þeir voru með
hnífa í fórum sínum þegar þeir voru
handteknir á flugvelli borgarinnar.
Al-Qaeda hótar Norð-
mönnum hryðjuverkum
Helsti ráðgjafi bin Ladens ruglaðist
hugsanlega á Noregi og Danmörku
Dubai, Ósló. AFP.
Ayman
al-Zawahiri
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsóknar-
flokksins, tekur við embætti forsætisráðherra af
Davíð Oddssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, 15.
september á næsta ári. Á sama tíma koma utanrík-
isráðuneytið og umhverfisráðuneytið í hlut Sjálf-
stæðisflokksins til viðbótar fyrri ráðuneytum
flokksins. Þar með verður Sjálfstæðisflokkurinn
með sjö ráðuneyti, auk Hagstofu Íslands, en Fram-
sóknarflokkurinn með fimm.
Að sögn Davíðs kemur það til greina að hann taki
þá við embætti utanríkisráðherra eða fjármálaráð-
herra. Taki Davíð ekki við embætti utanríkisráð-
herra mun Geir H. Haarde verða utanríkisráðherra
og Davíð fjármálaráðherra.
Halldór og Davíð kynntu þingflokkum sínum
drög að nýjum stjórnarsáttmála í gær. Davíð sagði
að fundi loknum að sanngirnisrök hefðu ráðið því að
ákveðið hefði verið að skipta ráðuneytunum milli
flokkanna með þessum hætti. Flokkarnir hefðu
starfað mjög vel saman í átta ár. Og formaður
Framsóknarflokksins hefði verið ráðherra í sextán
ár með miklum ágætum og væri með víðtæka
reynslu. Halldór sagði við fréttamenn eftir þing-
flokksfundinn að hann væri ánægður með að taka
við forsætisráðherraembættinu haustið 2004 þótt
hann hefði ekki haft það sem markmið í sjálfu sér að
taka við einu ráðuneyti fremur en öðru.
Að sögn formannanna tveggja ríkti algjör sátt
um nýjan stjórnarsáttmála í þingflokkunum. Sátt-
málinn verður borinn undir atkvæði í æðstu stofn-
unum flokkanna síðar í dag. Í kjölfarið koma þing-
flokkarnir saman, þar sem gengið verður frá skipan
í ráðherraembætti. Formenn flokkanna hitta þing-
menn sína einslega í dag til þess að ræða skipan rík-
isstjórnarinnar. Gert er ráð fyrir að ný ríkisstjórn
komi saman á Bessastöðum kl. 13.30 á morgun.
Halldór tekur við af
Davíð haustið 2004
Morgunblaðið/Jim Smart
Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson ræða við blaðamenn að loknum þingflokksfundum í gær.
Flokkarnir skiptast á
forsætisráðuneyti og
umhverfis- og
utanríkisráðuneytum
Fullt traust/28
Miklir möguleikar/28
ÍBÚUM bæjarins Zaporizhia í Suð-
vestur-Úkraínu hefur verið ráðlagt
að halda sig fjarri
Lenín-styttunni
sem trónir yfir
miðbæjartorginu.
Ástæðan er geisla-
virkni.
Yfirvöld á
staðnum hafa upp-
lýst, að mælingar
sýni að geisla-
virknin frá Lenín-styttunni sé fjór-
um sinnum meiri en eðlilegt sé.
Engin skýring hefur verið gefin á
geislavirkni styttunnar, en haft var
eftir sérfræðingi að menn yrðu að
dvelja heilt ár í skugga hennar til að
verða fyrir heilsuspillandi áhrifum.
Í grennd við Zaporizhia er Zap-
oria, stærsta kjarnorkuver Evrópu.
Geislavirk
Lenín-stytta
Kænugarði. AFP.
♦ ♦ ♦
AÐ MINNSTA kosti 250 manns létu
lífið og 1.600 slösuðust í öflugum jarð-
skjálfta sem reið yfir norðurhluta Als-
írs í gær, að sögn innanríkisráðuneyt-
is landsins seint í gærkvöld.
Fregnir hermdu að manntjónið
hefði verið mest í iðnaðarborginni Ro-
uiba og nálægum bæjum. Einnig var
skýrt frá dauðsföllum í höfuðborg-
inni, Algeirsborg, og tugir manna
biðu bana í Boumerdes-héraði, um 50
kílómetra austan við Algeirsborg.
Jarðskjálftinn mældist 6,7 stig á
Richterskvarða og stóð í fimm mín-
útur. Hann varð klukkan 19.45 að
staðartíma og skjálftamiðjan var um
60 km austan við Algeirsborg, nálægt
Rouiba. Skelfingu lostnir íbúar höf-
uðborgarinnar þustu út á göturnar og
margir þeirra héldu kyrru fyrir á göt-
unum af ótta við annan skjálfta.
Mannskæð-
ur skjálfti
í Alsír
Algeirsborg. AFP.
Í DRÖGUM að nýjum stjórnarsáttmála Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks er lögð til
veruleg lækkun á tekjuskatti einstaklinga.
Stefnt er að allt að 4% lækkun tekjuskattspró-
sentunnar á kjörtímabilinu. Samkvæmt hug-
myndum stjórnarflokkanna yrðu slíkar breyt-
ingar framkvæmdar í tengslum við
kjarasamninga.
Lækkun tekjuskattsprósentu um fjögur pró-
sentustig myndi þýða um átta þúsund króna
hækkun skattleysismarka.
Í drögum að stjórnarsáttmála er einnig lagt til
að erfðafjárskattur verði lækkaður og sam-
ræmdur á kjörtímabilinu og eignarskattur af-
numinn. Þá kemur fram að stefnt sé að því að
endurskoða virðisaukaskattskerfið á kjör-
tímabilinu.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins náðist
hins vegar ekki samkomulag um að fella niður
hátekjuskatt, líkt og Sjálfstæðisflokkur hafði
lagt til, og er ekki minnst á hátekjuskatt í hinum
nýja stjórnarsáttmála flokkanna.
Stefnt að 4% lækkun tekjuskatts