Morgunblaðið - 22.05.2003, Side 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SKIPST Á RÁÐUNEYTUM
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins, tekur við
embætti forsætisráðherra af Davíð
Oddssyni, formanni Sjálfstæðis-
flokksins, 15. september á næsta ári.
Þá munu utanríkisráðuneytið og
umhverfisráðuneytið flytjast til
Sjálfstæðisflokksins til viðbótar
fyrri ráðuneytum flokksins. Verður
Sjálfstæðisflokkurinn með sjö ráðu-
neyti, auk Hagstofu Íslands, en
Framsóknarflokkurinn með fimm.
Al-Qaeda hótar Noregi
Múslímar voru hvattir til að gera
sjálfsmorðsárásir á Vesturlandabúa,
meðal annars Norðmenn, í yfirlýs-
ingu sem birt var í gær og sögð
koma frá Ayman al-Zawahiri, næst-
æðsta foringja hryðjuverkasamtak-
anna al-Qaeda. Danska ríkissjón-
varpið sagði líklegt að al-Zawahiri
hefði ruglast á Noregi og Danmörku
í yfirlýsingunni þar sem hann skír-
skotaði til hernaðarins í Írak, sem
Danir tóku þátt í en ekki Norðmenn.
Hæsta mögulega einkunn
Íslendingur fékk hæstu mögulegu
einkunn í MA-námi í rafbassa frá
djassdeild tónlistarskóla í Hollandi í
vikunni. Róbert Þórhallsson tók
námið sem er sex ár á fimm árum og
dúxaði við skólann.
Styðja afnám bannsins
Frakkar, Þjóðverjar og Rússar
ætla að greiða atkvæði með tillögu
Bandaríkjamanna um að við-
skiptabanni öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna á Írak verði aflétt.
Utanríkisráðherra Frakklands
skýrði frá þessu í gærkvöld og
Bandaríkjamenn vona að tillagan
verði samþykkt einróma í öryggis-
ráðinu í dag.
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
Glitnir er sérfræ›ingur í fjármögnun atvinnutækja. Rétt val á fjármögnun
getur skipt miklu um heildarkostna› vi› fjárfestingu. Glitnir b‡›ur fjórar
ólíkar lei›ir vi› fjármögnun atvinnutækja. Umsóknir eru afgreiddar á
skjótanháttflegarnau›synleggögn liggja fyrir.
Haf›u sambandvi› rá›gjafaGlitnis e›akíktuáwww.glitnir.isogfá›ua›sto›
vi›a›veljafláfjármögnunarlei›semhentarbest.
F T
T
E
R F E T
O
T P
E
O
P
E Sér›u atvinnutæki›
sem flig langar í?
– traustur samstarfsa›ili í fjármögnun
G l i t n i r e r h l u t i a f Í s l a n d s b a n k a K i r k j u s a n d i 1 5 5 R e y k j a v í k g l i t n i r . i s s í m i 4 4 0 4 4 0 0
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F
FJÁRMÖGNUN FASTEIGNIR BÓKHALD
Íslendingar hafa stofnað
fyrirtækið Carta Capital
sem sérhæfir sig í milli-
lagsfjármögnun.
Fasteignafélög verða sí-
fellt meira áberandi í ís-
lensku viðskiptalífi en
þeirra stærst er Stoðir.
Hollenska matvörufyr-
irtækinu Ahold hefur
verið líkt við Enron
vegna bókhaldsbrellna.
GLUGGI FYRIR/4 OFT HAGKVÆMARA/6 ENRON EVRÓPU/5
Í PENINGAMÁLUM, ársfjórðungsriti
Seðlabanka Íslands, segir: „Í byrjun sept-
ember sl. hóf Seðlabanki Íslands að kaupa
gjaldeyri af viðskiptavökum á innlendum
millibankamarkaði, fyrst í stað tvisvar í viku
1½ milljón Bandaríkjadala í senn, þrisvar í
viku frá janúar sl. og loks daglega frá byrjun
febrúar. Alls keypti bankinn gjaldeyri í þess-
um viðskiptum að andvirði 12,8 ma.kr. frá
byrjun september 2002 til aprílloka 2003.
Í janúar sl. keypti bankinn gjaldeyri í ein-
um viðskiptum af einum viðskiptavaka að
andvirði tæplega 4 ma.kr. Þegar ákvörðun
var tekin um regluleg gjaldeyriskaup í ágúst
2002 var kynnt að áformað væri að kaupa
gjaldeyri fyrir 20 ma.kr. fyrir árslok 2003.
Það var nærri stöðu erlendrar skammtíma-
fjármögnunar gjaldeyrisforðans á þeim
tíma.
Vegna sölu gjaldeyris, m.a. til ríkissjóðs í
tengslum við greiðslu vaxta af erlendum lán-
um, hefur skammtímafjármögnun gjaldeyr-
isforðans ekki minnkað til samræmis við
keyptan gjaldeyri og nam hún um 11 ma.kr. í
lok apríl. Gjaldeyrisforði Seðlabankans var í
lok apríl 38,5 ma.kr. og hafði erlend staða
bankans styrkst um 6,8 ma.kr. frá lokum
ágúst 2002.
Sala á gjaldeyri til ríkissjóðs vegna vaxta-
greiðslna af erlendum lánum nemur nokkr-
um milljörðum króna þessi árin. Þegar litið
er til lengri framtíðar og Seðlabankinn hefur
byggt upp gjaldeyrisforða sinn stefnir hann
að því að afla gjaldeyris vegna þarfa ríkis-
sjóðs á innlendum gjaldeyrismarkaði fremur
en að ganga á gjaldeyrisforðann.“
„Styrkja erlenda stöðu“
Þá segir að nú séu aðrar aðstæður á gjald-
eyrismarkaði en í ágúst 2002. Innflæði gjald-
eyris og hækkandi gengi gefi tækifæri á að
kaupa gjaldeyri umfram þá 20 ma. sem
ákveðið hafi verið að kaupa í ágúst. Því hafi
bankinn ákveðið að kaupa daglega 2,5 millj-
ónir Bandaríkjadala á innlendum gjaldeyr-
ismarkaði. Með þessu séu hagstæðar að-
stæður nýttar til að styrkja erlenda stöðu
bankans. „Miklu skiptir að erlend staða
bankans sé rúm, m.a. vegna erlendra
skammtímaskulda innlendra aðila og í ljósi
þess að erlend staða bankans skiptir tölu-
verðu fyrir lánshæfi íslenska ríkisins og ann-
arra innlendra aðila á erlendum mörkuðum.“
S E Ð L A B A N K I Í S L A N D S
Ekki gengið
á gjaldeyr-
isforðann
GENGI krónunnar lækkaði á
mánudag og þriðjudag, um ríflega
1,6%, í kjölfar þess að Seðlabank-
inn hefur ákveðið að dagleg kaup á
gjaldeyri verði 2,5 milljónir
Bandaríkjadala. Lækkun krón-
unnar gekk til baka að hluta í gær
og sérfræðingar virðast vera sam-
mála um að hún haldi áfram að
styrkjast vegna fyrirhugaðra stór-
iðjuframkvæmda.
Ólafur Frímann Gunnarsson,
deildarstjóri millibankaborðs hjá
Kaupþingi, segir að aukning á
kaupum Seðlabankans á gjaldeyri
hafi verið nokkru meiri en mark-
aðurinn hafi átt von á. „Með þessu
er bankinn sennilega að kaupa allt
það innstreymi gjaldeyris sem von
er á í ár, vegna stóriðjufram-
kvæmdanna. Því veiktist krónan í
kjölfarið, en er nú að styrkjast á
nýjan leik. Markaðsaðilar eru aft-
ur byrjaðir að kaupa krónur.“
Tilhneiging að kaupa krónur
Spurður hvort inngrip Seðlabank-
ans hafi áhrif til lengri tíma segir
Ólafur: „Upplýsingar eins og þess-
ar, um að bankinn hyggist kaupa
meiri gjaldeyri í framtíðinni, eiga
að hafa áhrif um leið og þær ber-
ast.“ Hann segist frekar eiga von á
því að krónan haldi áfram að
styrkjast. „Tilhneigingin á mark-
aðnum hefur verið að kaupa krón-
ur og selja aðra gjaldmiðla. Sú til-
hneiging er enn til staðar.“
Arnar Jónsson, sérfræðingur
hjá Landsbanka, segist telja að
veiking krónunnar vegna upp-
kaupanna sé að mestu yfirstaðin,
þótt ef til vill sé fullsnemmt að full-
yrða um það. „Fyrstu áhrif upp-
kaupanna eru komin fram, en síð-
an þarf markaðurinn auðvitað að
venjast þeirri staðreynd að keypt-
ur sé gjaldeyrir fyrir 2,5 milljónir
dollara á dag. Við sjáum ekki fyrir
okkur að krónan þurfi að veikjast
umtalsvert frá því sem nú er.“
Greining Íslandsbanka sagði á
mánudaginn að þau kaup sem
Seðlabankinn geri það sem eftir
lifi af árinu jafngildi 25–30 millj-
örðum króna og nemi því kaupin í
heild um tvöfaldri þeirri upphæð
sem upphaflega hafi verið áætluð.
Segir að tilkynning um aukin
gjaldeyriskaup hafi verið í takt við
spá Greiningar, en fjárhæðin þó
heldur hærri. „Að mati Greiningar
ÍSB er hér einungis um tímabund-
in áhrif að ræða [veiking krónunn-
ar] og er spá Greiningar ÍSB um
að krónan verði áfram undir þrýst-
ingi til hækkunar á næstu miss-
erum óbreytt.“
Sterkt gengi áfram
Í Hálffimmfréttum Búnaðarbank-
ans segir: „Þessi auknu gjaldeyr-
iskaup Seðlabankans er varla
hægt að túlka sem annað en inn-
grip á gjaldeyrismarkaði, þó
Seðlabankinn kjósi að tína til aðrar
ástæður, svo sem styrkingu á er-
lendri stöðu sinni. Kaupin verða
væntanlega til þess að veikja gengi
krónunnar um tíma, en krónan
veiktist um 0,8% í dag [mánudag].
Greiningardeild gerir þó áfram
ráð fyrir sterku gengi krónunnar á
næstu misserum vegna stóriðju-
framkvæmdanna.“
Samtök atvinnulífsins hafa
miklar áhyggjur af stöðu gengis-
mála um þessar mundir. Stjórn
samtakanna sendi í gær frá sér
ályktun, þar sem segir að núver-
andi gengi krónunnar fái ekki
staðist til lengdar. „...Seðlabank-
inn spáir því að raungengi hækki
um 10% á þessu ári og að sam-
keppnisstaðan versni sem því
nemur. Til mótvægis við stóriðju-
framkvæmdir er afar brýnt að
skýr aðhaldsstefna í opinberum
fjármálum verði mótuð og þurfa
stærstu sveitarfélögin einnig að
koma að þeirri stefnumótun, til
þess að viðhalda stöðugleika og
tryggja samkeppnisstöðu atvinnu-
veganna,“ segir í ályktuninni.
Gengi fær ekki staðist
Þá segir að samkeppnisstaða at-
vinnuveganna hafi versnað undan-
farið ár vegna hækkunar gengis.
„Raungengi krónunnar, sem er
mælikvarði á samkeppnisstöðu at-
vinnuveganna, mun hækka um
rúm 10% á þessu ári að mati Seðla-
bankans. Að mati bankans verður
raungengið hærra á þessu ári en á
árinu 2000 en þá féll gengi krón-
unnar á markaði þar sem það var
ekki talið fá staðist til lengdar.
Núverandi gengi krónunnar
fær heldur ekki staðist til lengdar
þar sem það samrýmist hvorki
jafnvægi í utanríkisviðskiptum né
skapar útflutnings- og samkeppn-
isgreinum eðlilegan rekstrar-
grundvöll. Það er því brýnt að
stjórnvöld geri það sem í þeirra
valdi stendur til að sporna gegn
þeim kröftum sem ýtt hafa upp
gengi krónunnar,“ að því er segir í
ályktun stjórnar SA.
Gengislækkun vegna
dollarakaupa tímabundin
Markaðsaðilar aftur byrjaðir að kaupa krónur. SA með áhyggjur af háu gengi krónunnar
Miðopna: Oft hagkvæmara að leigja en eiga húsnæði
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 34
Erlent 12/16 Minningar 32/37
Höfuðborgin 17 Skák 38
Akureyri 18 Bréf 40
Suðurnes 19 Kirkjustarf 43
Landið 20/21 Dagbók 42/43
Neytendur 22 Fólk 48/53
Listir 23/24 Bíó 50/53
Menntun 25 Ljósvakamiðlar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir blaðið Tækniháskólinn, háskóli
atvinnulífsins. Blaðinu er dreift um
allt land.
Júróbíll
VOLVO V40 W/G 04/98.
Ekinn 116 þ. km. Vél 2000 cc. Sjálfskiptur.
Verð 1.250 þ. www.toyota.is
„Diggi-loo diggi-ley. Alla tittar på mej.“
Kauptu Júróbíl fyrir 24. maí.
Þú gætir unnið bíl til ókeypis afnota í heilt ár!
RÓBERT Þórhallsson frá Húsavík
lauk MA-námi í rafbassa frá djass-
deild Conservatorium van Amst-
erdam í Hollandi í vikunni, fékk
hæstu mögulegu einkunn og dúx-
aði.
„Ég er fyrsti nemandinn sem út-
skrifast með hæstu mögulegu ein-
kunn í MA-námi frá þessum
skóla,“ segir Róbert, en hann tók
sex ára námið á fimm árum. „Þeir
hleyptu mér yfir eitt ár í fyrri
hluta námsins,“ segir dúxinn, sem
er að pakka saman í Hollandi og
undirbúa flutning til Íslands um
helgina. „Nú langar mig til að
komast í kennslu og spilamennsku
heima, en er reyndar ekki með
neitt fast í hendi,“ bætir hann við
en unnusta hans, Sólrún Snæþórs-
dóttir, vann hjá Flugleiðum í
Amsterdam og hefur fengið vinnu
hjá fyrirtækinu á Íslandi.
Róbert, sem verður 32 ára í ár,
hefur stundað tónlistarnám und-
anfarin 13 ár, þar af um sjö ár hjá
FÍH, og starfaði sem atvinnu-
tónlistarmaður í fimm ár áður en
hann fór út. Hann hefur meðal
annars unnið mikið með Jóni
Ólafssyni og Björgvini Halldórs-
syni auk þess sem hann var lausa-
maður í hljóðveri en hann hefur
leikið inn á 16 geisladiska. „Ég
hóf að spila á hljóðfæri þegar ég
var 10 ára, byrjaði í trompetnámi
og fór síðan á trommurnar en
þegar ég var 16 ára keypti ég mér
fyrsta bassann og hef haldið mig
við hann síðan,“ segir Húsvíking-
urinn, sem er sonur Þórhalls
Gíslasonar og Helgu Sigurbjörns-
dóttur.
Hann byrjaði í náminu í Amst-
erdam haustið 1998. „Það var al-
gjör tilviljun. Ég las grein eftir
Sigurð Flosason í skólablaði FÍH,
þar sem hann sagði frá nokkrum
skólum í Hollandi, og mér fannst
þessi skóli einkar áhugaverður
vegna þess að það er svo erfitt að
komast í rafbassakennslu sem
slíka. Flestallar djassdeildir eru
með kontrabassakennara en mig
langaði að sérhæfa mig á raf-
magnsbassa.“
Fyrri hluta MA-námsins í Amst-
erdam lýkur með kennaraprófi og
í seinni hlutanum er farið dýpra í
sérhæfinguna, að sögn Róberts.
Hann er fyrsti Íslendingurinn sem
sérhæfir sig á rafmagnsbassa við
þennan skóla, en nokkrir Íslend-
ingar hafa verið í skólanum og
eru þar nú. „Agnar Már Magn-
ússon píanóleikari var sennilega
fyrsti Íslendingurinn við skólann
en hann var þar 1994 til 1998.
Margir Íslendingar hafa verið í
klassísku deildinni, í fiðlunámi,
hörpunámi og öðru, og aðeins er
farið að tínast inn í djassdeildina.“
Róbert segir að upphefðin hafi
komið sér mjög á óvart, en hann
hafi verið mjög virkur nemandi og
stjórnendur skólans hafi ekki síð-
ur verið að verðlauna sig fyrir
frammistöðuna utan námsins.
„Þetta er mjög mikil upphefð og
ég svíf á rósrauðum skýjum.“
Róbert Þórhallsson dúx í MA-námi í rafbassa í Hollandi
Fyrstur til
að fá hæstu
mögulegu
einkunn
Róbert Þórhallsson frá Húsavík er fyrsti nemandinn sem útskrifast með
hæstu mögulegu einkunn í MA-námi við Conservatorium van Amsterdam.
SÝSLUMAÐURINN á Ísafirði hef-
ur ákært karlmann fyrir manndráp
af gáleysi vegna banaslyss sem varð
er kona og tvær dætur hennar létust
í bílslysi í Skutulsfirði í október 2002.
Ákærði var bílstjóri í umrætt sinn og
er gefið að sök að hafa ekið bílnum
án nægjanlegrar tillitssemi og var-
úðar og of hratt miðað við aðstæður.
Samkvæmt ákæruskjali missti bíl-
stjórinn stjórn á bílnum þegar vind-
hviða kom á hann svo hann snerist á
veginum og valt út af.
Ákærður fyrir
manndráp
af gáleysi
TÖLUR um eignarhlut stærstu
hluthafa í þeim 15 félögum sem
mynda úrvalsvísitölu Kauphallar
Íslands sýna að 10–20 stærstu
hluthafar geta í öllum tilfellum
myndað öruggan meirihluta í fé-
lögunum. Þetta kemur fram í riti
Greiningar Íslandsbanka sem
ber yfirskriftina „Flótti úr Kaup-
höllinni?“ Þar segir einnig að 10–
20 stærstu hluthafarnir í félög-
unum í úrvalsvísitölunni hafi í
flestum tilvikum nægilegt afl til
breytinga á samþykktum félag-
anna.
„Kjölfestu virðist því hvergi
skorta á markaðinum og spurn-
ingar vakna fremur um hvort
þröngt eignarhald standi að ein-
hverju leyti í vegi fyrir veltu-
hraða og virkri verðmyndun,“
segir Greining ÍSB.
Eignarhlutur tíu stærstu hlut-
hafa í félögum í úrvalsvísitölunni
er í 13 tilfellum af 15 yfir 50%.
Yfirtökutilboð hafa nú þegar ver-
ið gerð í Baugi og Keri. Lægstur
er eignarhlutur tíu stærstu hlut-
hafa í Sjóvá-Almennum trygg-
ingum og Eimskipi eða 47%.
Eignarhlutur 20 stærstu hluthafa
er í öllum tilfellum yfir 60%, að
undanskildum Íslandsbanka þar
sem hann er 58%.
Ekki að sjá að
kjölfestu skorti
á markaðinum
JÓHANNA Guðrún Jónsdóttir
söngkona og Hljóðsmiðjan ehf. hafa
gert samning við bandaríska útgáfu-
fyrirtækið The
Mottola Comp-
any um útgáfu á
efni með Jóhönnu
Guðrúnu utan Ís-
lands. Jóhanna
Guðrún er fyrsti
íslenski listamað-
urinn sem fyrir-
tækið gerir
samning við en
það er í eigu Tommy Mottola sem lét
af störfum sem forstjóri eins stærsta
útgáfufyrirtækis heims, Sony Music
Entertainment, um síðustu áramót.
Ákveðið hefur verið að hinn þekkti
upptökustjóri Ric Wake stjórni upp-
tökum á plötu Jóhönnu sem vænt-
anleg er fyrri hluta næsta árs. Áætl-
að er að upptökur hefjist í júní og
þeim ljúki fyrir árslok. María Björk
Sverrisdóttir verður umboðsmaður
Jóhönnu Guðrúnar.
Jóhanna Guð-
rún semur
við Mottola
TÍU manns var sagt upp hjá Kaup-
þingi í gær og tíu hjá Búnaðar-
banka. Starfsmenn Kaupþings á Ís-
landi voru 186 fyrir uppsagnirnar
og starfsmenn Búnaðarbanka hátt í
átta hundruð. Að sögn Sólons R.
Sigurðssonar, bankastjóra Búnað-
arbankans, og Hreiðars Más Sig-
urðssonar, forstjóra Kaupþings, er
þetta liður í hagræðingu og breyt-
ingum sem meðal annars tengjast
samruna fyrirtækjanna.
Auk þess var gerður starfsloka-
samningur við fjóra starfsmenn
Búnaðarbanka sem voru nálægt
eftirlaunaaldri en Sólon segir að
samningurinn eigi að tryggja að
þeir glati ekki réttindum sínum til
eftirlauna. Að sögn Sólons hefur 23
starfsmönnum Búnaðarbanka auk
þess verið fundið annað starf innan
bankans. „Það gátum við gert með-
al annars af því að við höfum ekki
ráðið í stöður sem hafa losnað í svo-
lítinn tíma og vorum búnir að búa
okkur undir þetta,“ segir Sólon.
Starfsfólk fyrirtækjanna beggja
fékk uppsagnarbréfin í gær en um
er að ræða fólk úr ýmsum deildum
og er misjafnt hversu langan starfs-
aldur það hefur.
Björk Felixdóttir, trúnaðarmaður
starfsmanna hjá Kaupþingi, segir
að fólk þar hafi átt von á upp-
sögnum í sameiningarferlinu þar
sem bæði fyrirtæki hefðu lýst því
yfir strax að það gæti orðið.
Fólk viðbúið uppsögnum
„Fólk var því búið að búa sig
undir þetta. Að sjálfsögðu er þetta
áfall fyrir alla eins og það er alltaf,
alveg sama hversu langan undir-
búning fólk fær,“ segir Björk. Hún
segir að þeim sem sagt hafi verið
upp verði boðin einstaklingsbundin
aðstoð hjá ráðningarfyrirtæki. For-
svarsmenn starfsmannafélaga Bún-
aðarbanka og Kaupþings vildu ekki
tjá sig um uppsagnirnar hjá bönk-
unum.
Uppsagnir hjá Búnaðar-
banka og Kaupþingi
♦ ♦ ♦
GENGI hlutabréfa í deCODE
genetics, móðurfélagi Íslenskrar
erfðagreiningar, hækkaði um 17,83%
á bandaríska Nasdaq-hlutabréfa-
markaðinum í gær. Lokaverð bréf-
anna var 2,71 bandaríkjadalur á hlut.
Alls voru viðskipti með 267 þúsund
hluti í félaginu.
Gengi hlutabréfa deCODE hefur
ekki hækkað þetta mikið á einum
degi síðan 10. janúar síðastliðinn
þegar það hækkaði um rúmlega 41%
og fór í 2,97 dali á hlut. Hækkunin þá
kom í kjölfar þess að JP Morgan
mælti með kaupum á hlutabréfum í
félaginu. Gengi hlutabréfa í
deCODE hefur lægst farið í 1,55 dali
á hlut.
Gengi de-
CODE hækkar
um tæp 18%