Morgunblaðið - 22.05.2003, Síða 8
FRÉTTIR
8 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Það var snjallt að eyða óvissunni með smá Hafnarfjarðar-djóki.
Vor í Árborg
Á að höfða til
sem flestra
VOR í Árborg er yf-irskrift umfangs-mikillar menning-
arhátíðar í sveitarfélaginu
Árborg, sem samanstend-
ur af Selfossi, Stokkseyri
og Eyrarbakka auk nær-
liggjandi sveita. Menning-
arhátíðin hefst í dag og
stendur til sunnudags.
Inga Lára Baldvinsdóttir
er formaður menningar-
nefndar sveitarfélagsins
Árborgar og svaraði hún
nokkrum spurningum
Morgunblaðsins.
– Segðu okkur fyrst
eitthvað meira, frá tilurð
hátíðarinnar og fleira …
„Eftir síðustu sveitar-
stjórnarkosningar var eitt
af markmiðum nýs meiri-
hluta sveitarstjórnarinnar
að komið yrði á menningarhátíð
og það kom í hlut menningar-
nefndarinnar að hrinda þeim
áformum í framkvæmd. Árborg
er til þess að gera nýtt sveitarfé-
lag, aðeins fimm ára, og slík hátíð
hefur ekki verið haldin þar áður,
þó að gömlu sveitarfélögin geti
státað af ýmsu hátíðarhaldi sem
sumt mætti flokka undir menn-
ingardaga. Menningarnefndin
hefur svo notið liðveislu fjölda að-
ila sem hafa verið reiðubúnir að
leggja þessu verkefni lið.“
– Hver er tilgangurinn með
„Vori í Árborg“?
„Tilgangur hátíðar sem þess-
arar er margþættur. Verið er að
vekja athygli á því fjölbreytta
menningarstarfi sem fram fer
innan sveitarfélagsins og hvetja
íbúana, svo og þá nágranna okkar
sem hug hafa á að njóta menning-
ar í heimabyggð. Eitt af mark-
miðunum í nýju sveitarfélagi, sem
er með þrjá þéttbýliskjarna, hlýt-
ur að vera að skapa samkennd og
samhug meðal íbúanna og gera
þá meðvitaðri um að þeir búi í
einu og sama sveitarfélaginu. Á
menningarhátíð hefur fólk tilefni
til þess að fara á milli staða,
heimsækja hvað annað og blanda
geði. Er það ekki aðalsmerki allra
góðra hátíða?“
– Hverjar verða helstu áhersl-
urnar?
„Að dagskráin höfði til sem
flestra aldurshópa og sé sem fjöl-
breyttust. Það eiga allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Jafn-
framt er áhersla lögð á að hafa
ókeypis aðgang að sem flestum
dagskrárliðum og það hefur tek-
ist að mestu leyti með liðstyrk
sveitarfélagsins, þátttakenda og
styrktaraðila.“
– Segðu okkur eitthvað frá
dagskránni, hversu víðtæk hún er
og hvernig hún dreifist um svæð-
ið.
„Hátíðin hefst í dag og stendur
fram á sunnudag. Það verða um
tuttugu myndlistar- og ljós-
myndasýningar, sem dreifast um
þéttbýlisstaðina þrjá, m.a. opnar
Elfar Guðni nýja sýningu og
Linda Ásdísardóttir sýnir ljós-
myndir. Það verður
einnig samsýning
þriggja myndlistar-
kvenna, Dóslu, Dóru
Kristínar Halldórs-
dóttur og Helenar Du-
pont. Á Selfossi verður
ein myndasýningin til meðan á
hátíðinni stendur því þar gefst
fólki kostur á að bregða á leik og
standa við glugga á Hótel Selfossi
og mála mynd af Ölfusárbrú og
þar sýnir líka Jón Ingi Sigur-
mundsson málverk og Sigga á
Grund útskurð. Tónleikar verða
af mörgu tagi. Hrólfur Sæmunds-
son og Valgerður Guðnadóttir
syngja einsöngslög úr óperum og
söngleikjum og Samkór Selfoss
syngur einnig á þeim tónleikum.
Kristjana Stefánsdóttir syngur
lög Ellu Fitzgerald, Kór Háteigs-
kirkju sækir okkur heim og Erla
Berglind Einarsdóttir syngur
einsöng með honum. Kór Selfoss-
kirkju og Samkór Selfoss verða
með tónleika og síðan verða ung-
lingahljómsveitir úr Árborg með
útitónleika svo eitthvað sé nefnt.
Þá er allt hitt ónefnt, innlit í
vinnustofur, sögulegar göngu-
ferðir, heimsókn Sellófóns, Hinn-
ar smyrjandi jómfrúr og Brúðu-
bílsins og fjölmargt fleira.“
– Hvað telur þú að verði há-
punktur hátíðarinnar?
„Auðvitað geta verið margir
hápunktar á einni hátíð, allt eftir
því hver svarar. Upphafið með
skrúðgöngu og þátttöku barna er
einn af hápunktunum, en leik-
skólakennarar og grunnskóla-
kennarar hafa unnið að undirbún-
ingi göngunnar með börnum úr
tveimur árgöngum. Hátíðardag-
skráin um kvöldið er annar há-
punktur og síðan verður auðvitað
spennandi að heyra í unglinga-
hljómsveitunum sem spila á Sel-
fossi á laugardag svo ég nefni það
fyrsta sem kemur upp í hugann.“
– Á þessi hátíð að vera árleg?
„Það er stefnt að því að gera
þetta að árvissum viðburði, alla
vega næstu þrjú árin. Lengra
hugsum við ekki í bili.“
– Er mikill hugur í heima-
mönnum vegna þessar-
ar hátíðar og reiknar
þú með góðri þátttöku
þeirra?
„Ég held að það hafi
komið heimamönnum á
óvart að sjá hversu
fjölbreytt og mikil dagskráin er
og ég er viss um að þeir nota
þetta einstæða tækifæri til að
eiga góða og skemmtilega daga á
Vori í Árborg. Við njótum þess
auðvitað að vera í sunnudagsbíl-
túrsfæri frá höfuðborgarsvæðinu
og menningarhátíð er gott tilefni
fyrir þá sem þar búa til þess að
sækja Árborg heim.“
Inga Lára Baldvinsdóttir
Inga Lára Baldvinsdóttir er
fædd í Reykjavík 1956. Stúdent
frá MR, BA í fornleifafræði og
sögu frá University College í
Dyflinni og Cand. Mag. í sagn-
fræði frá Háskóla Íslands. Hefur
starfað við myndadeild Þjóð-
minjasafns Íslands frá 1991. Er
búsett á Eyrarbakka og hefur
verið í menningarnefnd sveitar-
félagsins Árborgar frá 1998 og
er nú formaður þeirrar nefndar.
Hún er gift Magnúsi Karel Hann-
essyni, sviðsstjóra hjá Sambandi
íslenskra sveitarfélaga, og eiga
þau einn son.
Markmið
að efla sam-
kennd og
samhug