Morgunblaðið - 22.05.2003, Qupperneq 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 15
PETER Struck, varnarmálaráð-
herra Þýzkalands, kynnti í gær ný
áform um skipulagsbreytingar á
þýzka hernum,
Bundeswehr.
Þau marka tíma-
mót að því leyti
að með þeim er
snúið baki við því
skipulagi sem
miðað var við að-
stæður kalda
stríðsins. Mark-
miðið er að gera
herinn „straum-
línulagaðri“ og hæfan til að takast á
við hryðjuverkaógnina og til að
verða sendur í verkefni erlendis
með skömmum fyrirvara.
Skipulagsbreytingunum er ætlað
að gera herinn hæfan til að „vernda
öryggi okkar hvar sem því kann að
verða ógnað,“ eftir því sem Struck
sagði, þar á meðal í hryðjuverka-
vörnum innan Þýzkalands. Slík inn-
anríkisverkefni hafa að öllu leyti
verið á höndum annarra aðila en
hersins, allt frá því þýzka Sam-
bandslýðveldið var stofnað eftir síð-
ari heimsstyrjöld.
Samkvæmt áætluninni, sem
þýzka ríkisstjórnin samþykkti í gær,
stendur til að spara um einn milljarð
evra, andvirði 85 milljarða króna,
með því að loka nokkrum her-
stöðvum og taka allt að 90 orr-
ustuþotur og 10 herbáta úr umferð.
En jafnvel þótt breytingarnar
geri ráð fyrir fækkun hermanna er
ekki sagt skilið við herskylduna eða
að hún verði stytt til muna, eins og
sumir gagnrýnendur – þ. á m. græn-
ingjar, sem aðild eiga að stjórninni –
hafa lagt til.
Allt frá því Bundeswehr var kom-
ið á laggirnar á sjötta áratugnum
hefur skipulag hans byggzt upp á
herskyldu og þröngt skilgreindu
landvarnahlutverki, sem miðaðist
við ógnina úr austri. Frá því kalda
stríðinu lauk fyrir rúmum áratug
hefur þetta skipulag verið að mjak-
ast frá þessu þrönga varn-
arhlutverki í áttina að því að gera
hann hæfan til að takast á við
„ósamhverfar ógnir“ 21. aldarinnar.
Breytingarnar sem voru ákveðnar í
gær eru áfangi í þessa átt og taka
mið af hinu breytta landslagi örygg-
ismála eftir hryðjuverkaárásirnar á
Bandaríkin 11. september 2001.
Stjórnarskrárbreyting
nauðsynleg
Þar sem enn er haldið í herskyld-
una (Frakkar ákváðu fyrir nokkru
að breyta alveg yfir í atvinnu-
mannaher og mörg ár eru síðan
Bretar gerðu það) felst veigamesta
breytingin í nýja skipulaginu í því
að beita má hernum ásamt lögregl-
unni gegn hvers konar hryðjuverka-
ógnum sem upp kunna að koma í
Þýzkalandi. Þessi breyting útheimt-
ir breytingu á stjórnarskrá Sam-
bandslýðveldisins frá 1949, þar sem
skýrt var kveðið á um að óheimilt
væriað beita hernum í öryggis-
málum innanlands.
Skipulag
Bundeswehr
stokkað upp
Berlín. AFP.
Peter Struck
HREYFING sjálfstæðissinna í Aceh-héraði í Indónesíu,
GAM, hvatti í gær til þess að Sameinuðu þjóðirnar hæfu
afskipti af átökunum í héraðinu. Indónesíski herinn hóf í
vikunni umfangsmiklar aðgerðir gegn einum 5.000
skæruliðum GAM en hreyfingin vill að stofnað verði
sjálfstætt, íslamskt ríki í Aceh. Íbúarnir eru aðallega
múslímar og þar er mikil olía.
„Við hvetjum Sameinuðu þjóðirnar til að hefja taf-
arlaust tilraunir til að reyna að finna lausn á Aceh-deil-
unni,“ sagði í yfirlýsingu Malik Mahmoods, sem segist
vera forsætisráðherra útlagastjórnar Aceh. Yfirlýsing
hans barst AFP-fréttastofunni frá Svíþjóð. Malik hvatti
til þess að send yrði rannsóknarnefnd á vettvang til að
kanna mannréttindabrot sem framin hefðu verið gegn
íbúum héraðsins en átök hafa verið þar með hléum í nær
þrjá áratugi. Indónesíuher hefur verið sakaður um að
beita mikilli hörku í baráttunni við skæruliða.
Friðarviðræður milli deiluaðila fóru nýlega út um þúf-
ur og sögðu forystumenn GAM að þeir gætu ekki sam-
þykkt kröfur Indónesíustjórnar um að hreyfingin drægi
endanlega til baka kröfur um sjálfstæði og legði niður
vopn.
Hart var barist í Aceh í gær og fyrradag og fullyrti
GAM að 13 manns, þar af 10 óbreyttir borgarar, hefðu
fallið við borgina Bireuen. Talsmenn stjórnarhersins
sökuðu skæruliða um að brenna fjölda barnaskóla til að
reyna þannig að fá nær 30.000 manna lið stjórnarhersins
til að dreifa kröftunum við að verja skólana.
Indónesíustjórn ákvað í gær að setja hömlur á frétta-
flutning af átökunum. Á þriðjudag hvatti yfirmaður
Indónesíuhers, Endriartono Sutarto hershöfðingi, liðs-
menn sína til að drepa skæruliða sem ekki vildu gefast
upp. „Eltið þá uppi. Látið ekki nægja að tala um það, ger-
ið einfaldlega út af við þá,“ sagði hann.
SÞ miðli málum í Aceh
Jakarta. AFP.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13,SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Með kveðju
Hákon, sími 898 9396
HÚSEIGENDUR
VESTAN ELLIÐAÁA
Ég hef verið beðinn um að leita eftir einbýl-
ishúsi miðsvæðis í Reykjavík eða á Seltjarn-
arnesi. Æskilegt að húsið sé með fjórum
svefnherbergjum, helst á einni hæð, þó ekki
skilyrði en með bílskúr. Um er að ræða
sendiráðsstarfsmann og fjölsk. hans. Verð-
hugmynd er frá 25-30 millj. Áhugasamir
vinsamlegast hafið samband og ég mun
fúslega veita nánari upplýsingar.
Hafðu samband - það kostar ekkert