Morgunblaðið - 22.05.2003, Síða 25

Morgunblaðið - 22.05.2003, Síða 25
MENNTUN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 25 GJÖLD Háskóla Íslands umfram tekjur á árinu 2002 voru 293,5 millj- ónir króna og versnaði greiðslu- staða skólans við ríkissjóð um 328 milljónir króna, var í árslok neikvæð um 301 milljón króna. Ingjaldur Hannibalsson, formaður fjár- laganefndar háskólaráðs, kynnti fjárhagsstöðu Háskóla Íslands á árs- fundinum og greindi frá því að meg- inorsök þessarar neikvæðu stöðu væri sú að vöxtur háskólans hefði orðið umfram markmið kennslu- samnings. „Síðastliðin tvö ár hafa 300 virkir nemendur stundað nám við skólann án þess að greiðslur hafi fengist fyrir þá,“ sagði hann. Ingjaldur hóf erindi sitt á því að greina frá atriðum í kennslusamn- ingi fyrir árin 2000–2002 sem und- irritaður var 5. október 1999. Í samningnum segir að skólinn skuli senda menntamálaráðuneytinu áætlun um fjölda nemendaígilda á næsta skólaári og ráðuneytið til- kynni síðan um hvaða forsendur það leggi til grundvallar fjármálagerðar næsta almanaksárs. Að hans sögn hefur áætlun um fjölda virkra nem- enda verið send til mennta- málaráðuneytisins síðustu þrjú ár en háskólanum hafi aldrei verið til- kynnt um hvaða forsendur yrðu lagðar til grundvallar fjár- lagagerðar næsta árs. „Í júní 2001 var ljóst að fjöldi virkra nemenda færi væntanlega yfir hámark skóla- árið 2000–2001 og myndi örugglega gera það á skólaárinu 2001–2002,“ sagði Ingjaldur og rakti ástæður þess að yfir 300 nemendur hefðu stundað nám við skólann án þess að greitt hefði verið fyrir þá. Með viðauka undirrituðum 3. mars 2003 var kennslusamning- urinn framlengdur um eitt ár og í fjárlagafrumvarpi hafa hámörk ver- ið hækkuð fyrir skólaárið 2002– 2003 í samræmi við það sem fram kemur í viðaukanum. „Háskóli Ís- lands hafði óskað eftir að þessi aukning tæki til skólaársins 2001– 2002,“ benti Ingjaldur á. Heildarútgjöld Háskóla Íslands á árinu voru 5,8 milljarðar króna. 79% fóru til kennslu og rannsókna, 14% í rekstur og framkvæmdir og 7% stóðu straum af sameiginlegri stjórnsýslu. Ekki greitt fyrir 300 virka nemendur SKRÁÐUM nemendum í Há-skóla Íslands hefur fjölgaðum 44% frá árinu 1997, enskráðir nemendur voru 8.027 á 45 fræðasviðum í 11 deildum árið 2002. Þetta kom fram í erindi Páls Skúlasonar, rektors Háskóla Ís- lands, á ársfundi háskólans sem haldinn var í gær. Páll fór yfir starf- semi síðasta árs, auk þess sem hann ræddi brýnustu verkefni skólans. Þá fór Ingjaldur Hannibalsson, formað- ur fjárlaganefndar háskólaráðs, yfir fjármál og ársreikning Háskóla Ís- lands fyrir árið 2002. Páll skýrði frá því að flestir hefðu stundað nám í félagsvísindadeild á nýliðnum vetri, en flestir kennarar og námsleiðir væru í heimspekideild og raunvísindadeild. „Skráðum nem- endum hefur fjölgað verulega frá því fyrir 6 árum, en brautskráðum nem- endum hefur ekki fjölgað eins á sama tíma, eða um 30%. Það er stundum sagt að hagkvæmni stærð- arinnar sé aðalkostur Háskóla Ís- lands miðað við aðra skóla. Þetta er ekki rétt því Háskóli Íslands er að mörgu leyti óhagstæð rekstrarein- ing,“ sagði hann og benti á að ef vel ætti að vera þyrfti meðalfjöldi nem- enda að vera í kringum 30 í hópi. Í Háskóla Íslands er meðalfjöldinn 22 nemendur og er það mjög óhag- kvæm stærð að mati Páls. Á sama tíma hefur fjöldi framhaldsnema fimmfaldast og farið langt fram úr áætlunum. Háskóli Íslands verði enn öflugri rannsóknarháskóli Páll kom inn á það stefnumótunar- starf sem farið hefur fram á árinu. Meðal annars var innleitt gæðakerfi háskólans og nýtt skipurit sameig- inlegrar stjórnsýslu tók gildi. Hann rakti nokkur helstu markmiða gæða- kerfisins, en þau eru meðal annars að kennsla og rannsóknir standist al- þjóðlegar kröfur, að prófgráður séu viðurkenndar og nemendur og kenn- arar eftirsóttir, að háskólinn svari sí- breytilegum kröfum samfélagsins og að stjórnsýslan sé sveigjanleg og skilvirk. Hann benti enn fremur á að allt þetta starf væri í nánum tengslum við það sem væri að gerast í Evrópu. „Þar hefur heilmikið starf átt sér stað í gæðamótun, en síaukn- ar kröfur eru gerðar til háskóla,“ sagði Páll og bætti því við að við vær- um að upplifa mjög spennandi tíma í gæðamálum. Að sögn Páls hefur Háskóli Ís- lands sett sér þrjú meginmarkmið sem stefnt er að í öllu starfi hans á næstu þremur árum. Í fyrsta lagi að gera Háskóla Íslands að enn öflugri rannsóknarháskóla. „Því fer víðs- fjarri að Háskóli Íslands sé orðinn fullburða rannsóknarháskóli. Það er markmið á næstu árum fyrir Há- skóla Íslands og þá sem að honum standa að sjá til þess að hann verði fullburða rannsóknarháskóli. Þetta er okkar vilji og á að vera. Þjóðir heimsins þarfnast skóla af þessu tagi.“ Í öðru lagi er ætlunin að auka fjölbreytni námsins og efla alþjóða- samskipti og í þriðja lagi að bæta starfsskilyrði háskólans í háskóla- samfélaginu. Rannsóknarvirkni kennara við Háskóla Íslands hefur aukist um 14%, en í háskólanum hefur hvatn- ingarkerfi til rannsókna virkað mjög vel. Páll benti á að kennarar hefðu stóraukið rannsóknir sínar á síðustu árum. „Þetta tengist að sjálfsögðu því að laun kennara tengjast því að þeir séu virkir í rannsóknum. Það er einmitt eitt af markmiðum háskólans að auka virkni í rannsóknum,“ sagði hann. Fastráðnir kennarar við Há- skóla Íslands eru nú 438 og fjölgaði þeim um 15 á árinu. Stundakennarar eru um 1.800 sem jafngildir 184 kennurum í fullu starfi. 67% kennara hafa doktorsgráðu en 33% eru með meistarapróf. Fastráðnir starfs- menn eru alls 889, 54% þeirra eru karlar og 46% konur. Laun og launa- tengd gjöld námu 3.846 milljónum króna árið 2002, en það svarar til 66,5% af útgjöldum háskólans. 570 erlendir stúdentar af 63 þjóð- ernum stunduðu nám við Háskóla Ís- lands síðasta vetur og sagði Páll al- þjóðasamskiptin farsæl. Um 200 stúdentar Háskóla Íslands fara utan sem skiptinemar árlega, en háskól- inn hefur á þriðja hundrað samninga við erlenda háskóla. Bráðaþörf fyrir húsnæði er 11.600 fermetrar Páll ræddi húsnæðismál Háskóla Íslands á fundinum og benti á að bráðaþörf fyrir húsnæði væri 11.600 fermetrar umfram það sem verið væri að taka í notkun árið 2003. „Þær deildir sem hve verst eru sett- ar eru félagsvísindadeild og við- skipta- og hagfræðideild. Oddi er sprunginn og það er brýnt að koma með lausn á því,“ sagði hann. Hinn 23. ágúst næstkomandi verður Nátt- úrufræðihús tekið í notkun og er þá gert ráð fyrir að öll starfsemi verði komin í byggingar háskólans á há- skólasvæðinu, sem nær frá Haga að Skógarhlíð. Fest var kaup á fyrstu hæð Haga á árinu fyrir starfsemi lyfjafræði læknadeildar. Páll nefndi að það sem hann teldi hafa verið mikilvægast í samskiptum Háskóla Íslands og stjórnvalda hin síðari ár væri kennslusamningurinn sem undirritaður var 5. október 1999 fyrir árin 2000–2002. „Þar með var samskiptum háskólans við stjórn- völd komið í miklu fastara, skilvirk- ara og rökvísara form en verið hafði,“ lagði hann áherslu á og sagði að samningurinn hefði skilað háskól- anum umtalsverðum ávinningi. Hann lýsti þó yfir áhyggjum sínum yfir því hversu lítið hefði gerst í end- urskoðun hans, en 3. mars 2003 var undirritaður viðauki við kennslu- samning fyrir árið 2003. 22. desem- ber 2001 var undirritaður rannsókn- arsamningur fyrir árin 2001–2003 en ekki hefur verið lokið við líkan til þess að meta fjárþörf rannsókna fyr- ir mitt ár 2002 eins og kveðið var á um í samningum. Á að takmarka aðgang að Háskóla Íslands? Páll sagði að hin gífurlega aðsókn í háskólanám af öllu tagi væri alvar- legur vandi sem Háskóli Íslands, stjórnvöld og þjóðin öll stæðu frammi fyrir. „Þetta er aukning umfram það sem áætlaðar spár gerðu ráð fyrir. Meðalaukningin á síðustu 20 árum hefur verið um 7% á ári og ef eitt- hvað er þá fer hún heldur vaxandi. Aukning hjá okkur á síðasta ári var 10%. Það segir sig sjálft að þetta kallar á verulega aukna fjármuni frá ríkinu inn í háskólastarfsemina,“ hélt hann áfram. Hann benti á að vandi Háskóla Íslands stafaði af því að kennslusamningurinn um fjölgun nemenda fyrir árið 2002 hefði ekki verið endurskoðaður og því hefði ekki fengist greitt fyrir alla virka nemendur á árinu 2002. Páll velti því upp þeirri spurningu hvort tak- marka ætti aðgang að Háskóla Ís- lands, þar sem útilokað væri fyrir skólann að halda uppi gæðum kennslu ef fram heldur sem horfir. Að sögn Páls verða nemendur 33.700 á háskólastigi eftir tíu ár ef árlegur vöxtur verður sami og með- altal síðustu fimm ára, þar af 19.200 í Háskóla Íslands. Fjöldi háskóla- menntaðra á vinnumarkaðnum verð- ur 41.300 eftir tíu ár. Hann sagði vöxt háskólakerfisins eðlilegan og nauðsynlegan og að meginverkefni næstu ára væri að tryggja atvinnu fyrir æ betur menntað vinnuafl, svo Ísland yrði ekki eftirbátur annarra landa. Þetta væri forsenda uppbygg- ingar þekkingarþjóðfélags á Íslandi og Vísindagarðar í Vatnsmýrinni væru mikilvægir í því skyni. „Alþingi hefur samþykkt heimild til fjármála- ráðherra um að heimila Háskóla Ís- lands að stofna einkahlutafélag um Vísindagarða og nú bíðum við leyfis fjármálaráðuneytisins til að nýta þessa heimild,“ lagði hann áherslu á. Háskóli Íslands Flestir stunda nám í félagsvísindadeild, fjöldi framhaldsnema hefur fimm- faldast og bráðaþörf fyrir húsnæði er 11.600 fermetrar, var meðal þess sem fram kom á árs- fundi Háskóla Íslands í gær. Fanney Rós Þorsteinsdóttir hlýddi á ræður um starfsemi skólans. Morgunblaðið/Kristinn Fjölmargir sóttu ársfund Háskóla Íslands í hátíðarsal skólans.  !    6 6 6 6 6 6 6! 6 6 6 6     !"    $  % # &  '(  ) & '(  #   $ %    "  &   '    () * $ %    "  + *  $ %    "   6! 6 6 6 6 6 6! 6 6 6 6 6 5 7-##/ 5 7-##/ .)'1 =1%#  .)'1 =1%#  .)'1 #%%#1 B= 7#1 fanneyros@mbl.is Skráðum nemendum í HÍ hefur fjölgað um 44% á 6 árum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.