Morgunblaðið - 22.05.2003, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DAGUR Arngrímsson sigraði í
eldri flokki og Svanberg Pálsson í
yngri flokki á Landsmótinu í skóla-
skák sem háð var í Vestmannaeyj-
um um síðustu helgi. Keppnin í
eldri flokki, fyrir 8.–10. bekk, var
afar hörð. Hjörtur Jóhannsson náði
forystunni strax í upphafi og eftir
sjö umferðir var hann með fullt hús
og hálfum vinningi meira en þeir
Dagur Arngrímsson og Guðmund-
ur Kjartansson. Þá þegar var orðið
ljóst að þessir þrír skákmenn
mundu berjast um sigurinn á
mótinu, enda með tveggja vinninga
forystu á næstu menn. Eftir tap
Hjartar í áttundu umferð náðu þeir
Dagur og Guðmundur hálfs vinn-
ings forystu, en Hjörtur var áfram í
þriðja sæti. Þessi röð hélst síðan til
loka mótsins:
1.-2. Dagur Arngrímsson (Haga-
skóla) og Guðmundur Kjartansson
(Árbæjarskóla) 10½ v.
3. Hjörtur Ingvi Jóhannsson
(Ölduselsskóla) 8½ v.
4. Ágúst Bragi Björnsson
(Brekkuskóla, Akureyri) 8 v.
5.–6. Atli Freyr Kristjánsson
(Hjallaskóla, Kópavogi) og Hilmar
Þorsteinsson (Hagaskóla) 6 v.
o.s.frv.
Þeir Dagur og Guðmundur tefldu
síðan bráðabana og þar tryggði
Dagur sér meistaratitilinn með
tveimur vinningum gegn einum.
Keppnin í yngri flokki var ekki
síður spennandi. Helgi Brynjarsson
var með forystu eftir fimm umferð-
ir, en missti hana til Hjörvars
Steins Grétarssonar í sjöundu um-
ferð. Spennan var mikil og eftir níu
umferðir hafði Svanberg Pálsson
náð hálfs vinnings forystu á Hjörv-
ar Stein, en Helgi var í þriðja sæti,
hálfum vinningi á eftir honum. Úr-
slitin réðust loks í tíundu umferð
þegar Hjörvar Steinn tapaði sinni
skák og Svanberg náði þannig 1½
vinnings forystu. Lokastaða efstu
manna í yngri flokki (1.–7. bekkur):
1. Svanberg Már Pálsson (Hval-
eyrarskóla, Hafnarfirði) 10 v.
2. Hjörvar Steinn Grétarsson
(Rimaskóla) 8½ v. (41 st.)
3. Helgi Brynjarsson (Hlíða-
skóla) 8½ v. (35,5 st.)
4.–5. Hjörtur Halldórsson (Sala-
skóla) og Gylfi Davíðsson (Breiða-
gerðisskóla) 7 v.
6. Ingvar Ásbjörnsson (Rima-
skóla) 6½ v.
o.s.frv.
Sigurvegarinn, Svanberg Páls-
son, er aðeins 10 ára og einn sá
yngsti sem hreppt hefur þennan tit-
il. Hann er fyrsti Hafnfirðingurinn
og jafnframt fyrsti félagsmaður
Taflfélags Garðabæjar sem það
gerir.
Landsmótið fór fram í Ásgarði í
Vestmannaeyjum, en þar var Ís-
landsmótið í skák haldið árið 1994.
Skáksamband Íslands og Skákskóli
Íslands ásamt Skákfélagi Vest-
mannaeyja stóðu sameiginlega að
mótinu.
Úrslitakeppni Landsmótsins er
lokahnykkurinn á mjög umfangs-
miklu skákmótahaldi í skólum
landsins og í Vestmannaeyjum
mættust þeir sem best höfðu staðið
sig af þeim þúsundum sem þátt
tóku í undankeppninni. Fyrst var
keppt í einstökum skólum, síðan á
sýslumótum og þá taka við lands-
hlutamót. Meistari hvers lands-
hluta fær þátttökurétt í úrslita-
keppninni, en að auki gefa þrjú
efstu sæti hvors flokks (1.–7. bekkj-
ar og 8.–10. bekkjar) rétt til þátt-
töku árið eftir.
Landsmótin eru fjölmennasta
skákkeppni hvers árs og mikil bar-
átta um efstu sæti. Að þessu sinni
tóku 24 skákmenn af öllu landinu
þátt í úrslitakeppninni.
Stigamót Hellis
Taflfélagið Hellir fyrirhugar að
halda Stigamót félagsins í annað
sinn, dagana 29. maí–1. júní. Móts-
haldið er þó með þeim fyrirvara að
þátttaka verði næg, en markið er
sett við 25 keppendur. Mótið er op-
ið fyrir alla skákmenn með a.m.k.
1.800 alþjóðleg eða íslensk skák-
stig. Þátttökugjald er kr. 3.000 og
rennur óskipt í verðlaunasjóð
mótsins. Auk þess verða veitt veg-
leg fegurðarverðlaun. Umferða-
tafla:
1. fimmtud. 29. maí kl. 13–17
2. fimmtud. 29. maí kl. 19–23
3. föstud. 30. maí kl. 19–23
4. laugard. 31. maí kl. 11–15
5. laugard. 31. maí kl. 17–21
6. sunnud. 1. júní kl. 11–15
7. sunnud. 1. júní kl. 17–21
Eins og áður segir er stigalág-
mark 1.800 stig, en mögulegt er að
veittar verði 1–3 undanþágur frá
þeirri reglu verði sótt um það.
Verðlaun: 1. vl. 50%, 2. vl. 30% og
3. vl. 20% af þátttökugjöldum. Taki
25 skákmenn þátt í mótinu verða
verðlaunin: 1. vl. 37.500, 2. vl.
22.500 og 3. vl. 15.000.
Aukaverðlaunin eru Chess Ass-
istant 7.0 í fegurðarverðlaun. Hver
skákmaður getur tilnefnt eina af
sínum skákum. Chess Assistant er
skákgagnagrunnur með á þriðju
milljón skáka, en auk þess fylgja
kerfinu sterk skákforrit.
Skákgagnagrunnurinn uppfær-
ist sjálfkrafa yfir Netið á vikufresti
með nokkur þúsund skákum.
Tekið er við skráningu í tölvu-
pósti (hellir@hellir.is). Skráning-
arform er einnig á www.hellir.is
þar sem hægt verður að fylgjast
með skráningu.
Mikilvægt er að skrá sig sem
fyrst, en endanleg ákvörðun um
mótshaldið verður tekin eigi síðar
en 23. maí.
Dagur Arngríms-
son og Svanberg
Pálsson landsmeist-
arar í skólaskák
SKÁK
Skáksamband Íslands
25. LANDSMÓTIÐ Í SKÓLASKÁK
15.–18. maí 2003
Aftari röð: Hjörtur Jóhannsson, Dagur Arngrímsson og Guðmundur
Kjartansson. Fremri röð: Helgi Brynjarsson, Svanberg Pálsson og
Hjörvar Steinn Grétarsson.
dadi@vks.is
Daði Örn Jónsson
Bikarkeppni BSÍ 2003
Bikarkeppnin verður með hefð-
bundnum hætti í ár. Hægt er að skrá
sig í
bikarinn til sunnudagsins 25. maí
kl. 14 og dregið verður í 1. umferð
sama
dag. Fyrirliðum er bent á að við
skráningu verður að tilkynna sér-
staklega
ef sveit á rétt á að sitja yfir í 1. um-
ferð.
Keppnisgjald er kr. 4.000 fyrir
hverja umferð. Skráning
www.bridge.is eða
s. 587 9360.
Síðasti spiladagur hverrar umferðar:
1. umf. sunnudagur 22. júní
2. umf. sunnudagur 20. júlí
3. umf. sunnudagur 17. ágúst
4. umf. sunnudagur 14. sept.
Undanúrslit og úrslit verða spiluð
27. og 28. september.
Tveir spiladagar eftir
í Gullsmára
Tveir spiladagar eru eftir hjá
Bridsdeild FEBK Gullsmára fyrir
sumarhlé: 22. og 26. maí. Síðari dag-
inn verður hefðbundið sumarkaffi.
Mánudaginn 19. maí var spilaður tví-
menningur á 9 borðum. Beztum ár-
angri náðu:
NS
Ari Þórðarson – Guðmundur Guðv. 202
Kristinn Guðm. – Jóhann Ólafsson 200
Helga Helgad. – Þórhildur Magnússon 181
Hlaðgerður Snæbj. – Halldóra Thoro. 171
AV
Sigurjón H. Sigurj. og Þórhalldur Árnas. 205
Unnur Jónsdóttir og Jónas Jónsson 200
Bragi Salomonsson og Haukur Ísaksson 196
Ernst Backman og Karl Gunnarsson 176
Bridsfélag eldri borgara
í Hafnarfirði
Spilaður var Mitchel tvímenningur hinn
16. maí 2003. Úrslit urðu þessi:
Norður/suður riðill
Sigurður Hallgrímss. – Ólafur Gíslason 118
Ásgeir Sölvason – Friðrik Hermannss. 109
Sverrir Gunnarsson – Einar Markúss. 104
Austur/vestur riðill
Sveinn Jensson – Jóna Kristinsdóttir 134
Hans Linnet – Ragnar Jónasson 102
Jón Gunnarsson – Kristján Þorlákss. 91
Spilað er í Hraunseli við Flatahraun. Hús-
ið er opnað klukkan 12.30 og er byrjað að
spila klukkan 13. Nýir spilarar eru velkomnir.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
UPPBOÐ
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Hörðuvöllum 1,
Selfossi (við Lögreglustöðina), föstudaginn 30. maí 2003,
kl. 10.00:
BB-667
RG-647
KS-591
RY-014
LI-515
SD-364
MP-965
UB-730
MS-795
VA-641
OO-572
XD-2311
R74502
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
21. maí 2003.
Uppboð
Eftirtaldir munir verða boðnir upp á Hafnarskeiði 17, Þorláks-
höfn, föstudaginn 30. maí 2003 kl. 14:00:
Iceclean dælustöð 350-L/70-140 bar, Iceclean sápuúttaki, tvær véla-
samstæður, AKVA vélar, vélar frá Vatnsfélagi Suðurnesja hf. og
þvotta- byssa o.fl. skv. tilboði dags. 16. febrúar 2001.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
21. maí 2003.
Uppboð
Eftirtaldir munir verða boðnir upp á Hörðuvöllum 1, Selfossi
(við Lögreglustöðina), föstudaginn 30. maí 2003 kl. 9:30:
Auglýsingatölva, Compressor limiter, geislaspilarar, hljóðnemar,
tölvur og útsendingartölva.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
21. maí 2003.
Uppboð
Eftirtalinn hlutur verður boðinn upp að Bakka I, Ölfusi,
(fiskeldishús), föstudaginn 30. maí 2003 kl. 13:00:
Ljósavél, Perkins 50 kw.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
21. maí 2003.
Uppboð
Eftirtalinn hlutur verður boðinn upp á Hörðuvöllum 1, Selfossi
(við Lögreglustöðina), föstudaginn 30. maí 2003 kl. 10:00:
JF sláttuvél (vörunr. GX 320) árg. 2000.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
21. maí 2003.
VEIÐI
Laxveiðileyfi
Til sölu laxveiðileyfi í Álftá á Mýrum og
Brennu, ármót Þverár og Hvítár í Borgarfirði.
Upplýsingar gefur Dagur Garðarsson í símum
893 5337 og 568 1200 alla virka daga frá
kl. 8.00—18.00.
Stýrimannskólinn í Reykjavík,
sími 551 3194, fax 562 2750,
netfang: styr@ismennt.is,
veffang: styrimannaskoli.is
Skólaslit 23. maí
Stýrimannaskólanum verður slitið í hátíðarsal
Sjómannaskólans á morgun, föstudaginn
23. maí, kl. 14.00.
Afmælisárgangar og allir velunnarar skólans
eru boðnir sérstaklega velkomnir. Kvenfélagið
Aldan verður eins og venjulega með veglegar
veitingar að loknum skólaslitum.
Skólameistari.
KENNSLA
TILKYNNINGAR
Fluguhátíð í Síðumúla
fimmtudagskvöldið 22. maí í verslununum
Útivist & Veiði og Veiðihorninu kl. 20
Kynnt verða úrslit í fluguhnýtingakeppni
Landssambands Stangaveiðifélaga og verð-
laun afhent í Útivist & Veiði.
* Verðlaunaflugurnar til sýnis.
* Kunnir hnýtarar sýna í verslununum.
* Nýstárlegar silungaflugur verða hnýttar.
* Fjallkonan verður hnýtt á staðnum og fleira
forvitnilegt er í boði.
Útivist & Veiði, Síðumúla 11,
Veiðihornið, Síðumúla 8.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R