Morgunblaðið - 22.05.2003, Síða 43
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 43
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghóp-
ur undir stjórn Kára Þormar organista.
Kaffi og með því eftir sönginn. Allir vel-
komnir.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl.
10–12 í umsjá Lovísu Guðmundsdóttur.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Orgelleikur, íhugun. Léttur máls-
verður í safnaðarheimili að stundinni
lokinni.
Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20. Eldri
borgara starf. Á morgun kl. 13.30 sam-
vera í Setrinu (brids aðstoð).
Landspítali – háskólasjúkrahús, Arnar-
holt. Guðsþjónusta kl. 15. Sr. Gunnar
Rúnar Matthíasson.
Langholtskirkja. Kl. 10–12 foreldra- og
ungbarnamorgunn. Brynja Örlygsdóttir
hjúkrunarfræðingur, fjallar um vellíðan
mæðra í nútímaþjóðfélagi. Söngstund
og kaffisopi. Síðasta samvera á þessu
vori.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Orgeltónlist, hugvekja, altaris-
ganga og bænastund. Léttur málsverð-
ur í safnaðarheimili að samveru lokinni.
Samvera eldri borgara kl. 14. Systurnar
Guðlaug og Svana Hróbjartsdætur
skemmta ásamt sínum vinkonum. Kaffi-
veitingar og stjórnun í umsjá þjónustu-
hóps kirkjunnar, kirkjuvarðar og sóknar-
prests. (Sjá síðu 650 í Textavarpi).
Neskirkja. Nedó, unglingaklúbbur Nes-
og Dómkirkju kl. 19.30. Umsjón Munda
og Hans.
Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og
helgistund í Gerðubergi kl. 10.30–12.
Starf fyrir 8–10 ára stúlkur kl. 16.30.
Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10. Aðalfundur Safnaðarfélags Digra-
neskirkju verður haldinn í fræðslusal
kirkjunnar kl. 20.30. Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl.
10–12. Fræðandi og skemmtilegar
samverustundir, ýmiss konar fyrirlestr-
ar. Alltaf heitt á könnunni, djús og brauð
fyrir börnin.
Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara
í dag kl. 14.30–17 í safnaðarheimilinu
Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl.
17. Fyrirbænaefnum má koma til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Gott er að ljúka deg-
inum og undirbúa nóttina í kyrrð kirkj-
unnar og ber þar fram áhuggjur sínar og
gleði. Bænarefni eru skrá í bænabók
kirkjunnar af prestum og djákna. Boðið
er upp á molasopa og djús að lokinni
stundinni í kirkjunni.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Op-
ið hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheim-
ilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl.
17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund í dag kl.
13. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi
foreldra með ung börn að koma saman í
notalegu umhverfi og eiga skemmtilega
samverustund. Barnastarf fyrir 10–12
ára börn í dag kl. 17.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10.
Mömmumorgunn í Safnaðarheimilinu.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir
velkomnir.
Fíladelfía. Eldur unga fólksins kl. 21. All-
ir velkomnir.
Safnaðarstarf
Rímur af Þorsteini uxafæti
Þrjátigi mönnum safnar sönnum seima geymir
næsta dag, en gjarða glæstir
ganga fílar þreyttir, svangir.
Báru hjálma, hreina málma og Herjans serki;
skildir blika, brátt til hildar
búnir voru, ekki lúnir.
Riðu án þrauta rétt til Gauta- ríkis -víkur.
Senn má vara sig brynþvara
sekur Týr á Ránar dýri.
Kippti bryggjum álma yggur, atker skatnar
draga upp og dúkum haga;
dynur í seglum elda vinur.
Leikur stýri um laxa mýri liðugt viður,
blóðughadda, böndin hljóða,
beljar dröfn á fróni skelja.
– – –
Árni Böðvarsson
LJÓÐABROT
50 ÁRA afmæli. Laug-ardaginn 24. maí
verður Ragnheiður Sigurð-
ardóttir fimmtug. Af því til-
efni tekur hún á móti vinum
og vandamönnum í Euro-
visiongleði í Haukahúsinu á
Ásvöllum frá 21. Blóm vin-
samlega afþökkuð, en ferða-
baukurinn góði verður á
staðnum.
DEMANTSBRÚÐKAUP. Í dag, fimmtudaginn 22. maí, eiga
60 ára brúðkaupsafmæli hjónin Áslaug Jónína Einarsdóttir
og Haraldur Helgason Goðabyggð 2, 600 Akureyri. Þau eru
að heiman.
ALLTAF sér maður
eitthvað nýtt. Ítalirnir
ungu, Fulvio Fantoni og
Claudio Nunes, eru rís-
andi stjörnur á brids-
himninum, en þeir vöktu
fyrst verulega athygli
þegar þeir urðu heims-
meistarar í tvímenningi á
HM í Montreal í haust.
Þeir voru meðal þátttak-
enda í Cavendish-
keppninni í Las Vegas og
urðu í fjórða sæti í tví-
menningnum. En hvað er
nýtt á nálinni? Það er
tveggja tígla opnun Ítal-
anna:
Suður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ KDG43
♥ G2
♦ 8
♣D10832
Vestur Austur
♠ 1097 ♠ Á82
♥ D1087 ♥ Á9543
♦ KG2 ♦ ÁD75
♣G6 ♣9
Suður
♠ 65
♥ K
♦ 109643
♣ÁK754
Í kerfi Ítalanna sýnir
opnun á tveimur tíglum
9-13 punkta og a.m.k.
fimmlit í tígli. Ekkert
stórfenglegt, svo sem, en
óvenjulegt. Sjáum hvern-
ig þetta kemur út í
reynd:
Vestur Norður Austur Suður
Stansby Nunes Martel Fantoni
-- -- -- 2 tíglar
Pass 2 spaðar Pass 3 lauf
Pass Pass Pass
Þetta spil er úr sveita-
keppninni. Opnunin er
eins og fyrr segir, og
svarið á tveimur spöðum
er eðileg sögn, en ekki
krafa. Suður segir frá
lauflitnum í næsta hring
og þar deyja sagnir út:
130 í NS þegar fjögur
hjörtu vinnast í AV.
Spilið sýnir að fæling-
armáttur opnunarinnar
er allnokkur, en fleira
hangir sjálfsagt á spýt-
unni. Augljóslega verður
opnun á einum tígli
veigameiri þegar um ekta
lit er að ræða og það létt-
ir allt framhald í þeirri
stöðu. Og annað sem
virkar vel er svarið á
tveimur í hálit við tveim-
ur tíglum – eðlilegt, en
ekki krafa. Þetta er
skemmtileg hugmynd,
sem áhugamenn um kerfi
ættu að velta fyrir sér.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarsson
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. c4
Bg7 4. Rc3 O-O 5. Bg5 d6
6. e3 Rbd7 7. Be2 c6 8. h3
a6 9. O-O Dc7 10. Hc1 e5
11. He1 h6 12. Bh4
g5 13. Bg3 Re8 14.
e4 Da5 15. d5 c5 16.
Rd2 Rdf6 17. Ha1
Dd8 18. Rf1 Kh7 19.
Re3 Hh8 20. a3 Kg8
21. b4 b6 22. Hb1
h5 23. Hb3 Bd7 24.
bxc5 bxc5 25. Dd3
Bh6 26. Heb1 Kh7
27. Hb7 Bc8 28.
H7b6 Hg8 29. Ra4
g4 30. h4 Bd7
Staðan kom upp í
bresku deilda-
keppninni sem lauk
nýverið. Gamla
kempan, Jonathan
Speelman (2578), hafði
hvítt gegn Andrew Bigg
(2292). 31. Rxc5! dxc5 32.
Bxe5 De7 33. Bxf6 Rxf6
34. e5+ Hg6 35. Hxf6
Bxe3 36. fxe3 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Þekkjum við einhverja Jóhönnu sem segist vera móðir þín?
ÁRLEG kirkjuferð eldri borgara
frá Fella- og Hólakirkju verður
að þessu sinni farin fimmtudag-
inn 29. maí á uppstigningardag –
kirkjudegi aldraðra – til Kefla-
víkurkirkju. Lagt af stað með
rútu í boði Fella- og Hólabrekku-
sókna frá kirkjunni kl. 12.45.
Guðsþjónusta hefst í Keflavík-
urkirkju kl. 14. Heimaprestarnir
sr. Ólafur Oddur Jónsson og sr.
Sigfús Baldvin Ingvason þjóna
ásamt Lilju G. Hallgrímsdóttur,
djákna í Fella- og Hólakirkju og
sr. Svavari Stefánssyni sókn-
arpresti Fellasóknar sem predik-
ar. Eldey, kór eldri borgara á
Suðurnesjum og Gerðubergskór-
inn syngja. Organisti Keflavík-
urkirkju Hákon Leifsson leikur á
orgelið. Meðhjálpari verður
Björgvin Skarphéðinsson. Eldri
borgarar lesa ritningarlestrana.
Eftir guðsþjónustu býður sókn-
arnefnd Keflavíkurkirkju til
kaffidrykkju í Kirkjulundi. Um kl.
16 verður farið í skoðunarferð
um Keflavík og Njarðvíkurnar
undir leiðsögn heimamannsins
Sturlaugs Björnssonar. Heim-
koma er áætluð um kl. 18. Skrán-
ing sem fyrst og eigi síðar en
mánudaginn 26. maí hjá Lilju
djákna í s. 557 3280 eða 862 0574.
Kirkjuferð til
Keflavíkurkirkju
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert til í að leggja ýmislegt
á þig til að láta drauma þína
rætast. Þetta vekur aðdáun
annarra.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú virðist eiga í látlausri
valdabaráttu við maka eða
nána vini. Þetta mun halda
svona áfram langt fram á
sumar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Valdabarátta við vini þína
gæti fengið þig til að breyta
markmiðum þínum eða
framtíðaráformum lítils-
háttar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Náinn vinur þarfnast sam-
úðar þinnar svo þú skalt búa
þig undir að hlusta á vand-
kvæði hans en mundu bara
að gera þau ekki að þínum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er allt í lagi að láta sig
dreyma um framtíðina ef þú
bara gleymir því ekki að það
eru handtökin sem skipta
máli en ekki hugarflugið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þótt samningar virðist auð-
veldir er góð fyrirhyggja að
lesa smáa letrið vandlega svo
að ekkert komi á óvart eftirá.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er allt í lagi að taka
smááhættu, þegar aðstæður
eru hagstæðar. En mundu
að í raun er lífið fyrst og
fremst vinna og aftur vinna.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það eru ýmis öfl í gangi í
kringum þig í dag svo þú
þarft að taka þér tak og
reyna að sigla fram hjá þeim
sem þú getur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Vandamálin hverfa ekki þó
að þú sópir þeim undir tepp-
ið svo það er eins gott að ráð-
ast strax á þau meðan þú
hefur tækifæri til.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Ef þú ert ósáttur við lífið og
tilveruna skaltu gefa þér
tíma til þess að líta í kringum
þig og þá muntu vonandi sjá
hversu ríkur þú ert.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt þú hafir í mörg horn að
líta skaltu samt gefa þér
tíma til að hlusta á það sem
þínir nánustu hafa fram að
færa.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Láttu ekki undan minnstu
löngun til lausungar í fjár-
málum því allt slíkt hefnir
sín grimmilega. Taktu þér
tíma til að sinna heilsurækt
og íhugun.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er klókt að líta vel í
kringum sig áður en þú
ákveður að kaupa einhverja
hluti. Og í raun á þetta við
um flestar hliðar mannlífs-
ins.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
KIRKJUSTARF
Skólavörðustig 10, s. 511 2100
HÁR & HEILSA
Dóróthea Magnúsdóttir, gsm 892 5941.
Hugrún Stefánsdóttir, gsm 861 2100.
Nýjung
Handunnar
hárkollur
úr ekta hári.
Formaðar eftir
þörfum.