Morgunblaðið - 22.05.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR
44 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu er í 70. sæti á nýjum
styrkleikalista Alþjóða knatt-
spyrnusambandsins, FIFA, sem
gefinn var út í gær. Íslendingar
falla niður um tvö sæti frá því í
síðasta mánuði og hafa alls fallið
niður um tólf sæti frá áramótun
en þá voru þeir í 58. sæti á listan-
um.
Heimsmeistarar Brasilíumanna
eru sem fyrr í toppsætinu, Frakk-
ar og Spánverjar eru jafnir í
öðru til þriðja sæti, Þjóðverjar
eru í fjórða, Argentínumenn í
fimtta, Hollendingar í sjötta,
Englendingar í sjöunda, Tyrkir í
áttunda, Mexíkóbúar í níunda og
Bandaríkjamenn ásamt Dönum er
í tíunda sæti.
Færeyingar, sem leika við Ís-
lendinga á Laugardalsvellinum 7.
júní, eru í 113. sæti og Litháar,
sem taka á móti Íslendingum
hinn 11. júní, eru í 99. sæti.
Svíar eru í 20. sæti, Norðmenn
í 24. sæti og Finnar sem lögðu Ís-
lendinga fyrir skömmu eru í 45.
sæti.
Georgíumenn eru „hástökkv-
arar“ á listanum en eftir 1:0 sig-
ur þeirra á Rússum í und-
ankeppni EM fara þeir upp um 9
sæti og skipa 84. sæti listans.
Ísland í 70. sæti
á FIFA-listanum
NORSKU landsliðsmennirnir í
knattspyrnu fá góðan bónus takist
þeim að tryggja Norðmönnum sæti í
úrslitakeppni EM í Portúgal á næsta
ári. Hver leikmaður landsliðsins fær í
sinn hlut 270.000 norskar krónur sem
er jafnvirði tæpra 3 milljóna íslenskra
króna og fari Norðmenn alla leið og
hampi Evrópumeistaratitlinum fá
leikmenn 8,2 milljónir króna.
BAYERN München hefur áhuga á
að fá Frakkann Sylvain Wiltord frá
Arsenal í sínar raðir en Wiltord, sem
keyptur var til Lundúnaliðsins á 11
milljónir punda fyrir þremur árum,
hefur ekki léð máls á því að endurnýja
samninginn við Arsenal sem rennur
út á næsta ári.
ARSENAL hefur boðið Wiltord
nýjan samning sem Frakkinn er ekki
sáttur við og fari samningaviðræð-
urnar út um þúfur er líklegt að Wilt-
ord verði settur á sölulista. Wiltord
hefur leikið 94 leiki fyrir Arsenal og
skorað í þeim 28 mörk.
LANCE Armstrong, hjólreiða-
kappi frá Bandaríkjunum, og banda-
ríska tenniskonan Serena Williams
hafa verið kjörin íþróttakarl og
íþróttakona ársins 2002 og fá svo köll-
uð Laureus-verðlaun. Íþróttafrétta-
menn víðs vegar um veröldina standa
að kjörinu og sérstök nefnd sem í sitja
Pelé, John McEnroe, Franz Klam-
mer, Franz Beckenbauer, Miguel
Indurain, Katarina Witt og Mark
Spitz leggja blessun sína yfir kjörið.
RONALDO fékk sérstaka viður-
kenningu fyrir endurkomu ársins en
þessi snjalli framherji vann bug á
meiðslum og varð markakóngur HM
og var kjörinn besti leikmaður keppn-
innar. Heimsmeistarar Brasilíu-
manna voru útnefndir lið ársins.
REDBERGSLID hefur unnið tvo
fyrstu úrslitaleikina gegn Drott um
sænska meistaratitilinn í handknatt-
leik og með sigri í þriðja leiknum á
heimavelli í kvöld tryggir liðið sér tit-
ilinn. Redbergslid vann fyrsta leik-
inn, 31:24, og annan leikinn, 32:25.
Með Redbergslid leikur Magnus
Wislander en hann skoraði 5 mörk í
fyrrakvöld.
GIANFRANCO Zola, Ítalinn knái
hjá Chelsea, gæti fetað í fótspor ann-
arra knattspyrnumanna, sem eru
komnir af léttasta skeiði og eru á leið
til Katar en meistaraliðið þar í landi,
A-Katar, ku hafa mikinn áhuga á að
fá Zola til liðs við sig. Á undanförnum
vikum hafa tveir frægir gert samning
við félög í Katar, Frakkinn Frank
Leboeuf, fyrrverandi leikmaður
Chelsea, og Þjóðverjinn Stefan Eff-
enberg, sem gerði garðinn frægan
með Bayern München.
STOKE hefur sett sig í samband
við norska knattspyrnumanninn Jon
Olav Hjelde en samningur hans við
Nottingham Forest er útrunninn og
verður ekki endurnýjaður. Stoke
reyndi í vetur að fá leikmanninn að
láni en án árangurs.
FÓLK DAVÍÐ Þór Viðarsson skor-
aði sitt fyrsta mark fyrir
norska knattspyrnuliðið
Lilleström í gærkvöld þegar
það sigraði 3. deildarlið
Mercantile, 7:2, í 2. umferð
bikarkeppninnar. Davíð kom
inn á sem varamaður
snemma í síðari hálfleik og
gerði sjötta mark liðsins níu
mínútum fyrir leikslok. Indr-
iði Sigurðsson var einnig í
liði Lilleström og spilaði all-
an leikinn.
Fyrsta
mark
Davíðs
Ég er mun taugaóstyrkari nú enég var þegar ég gekk upp að
altarinu,“ sagði sú sænska við blaða-
menn en hún er fyrsta konan sem et-
ur kappi við karlmenn á atvinnu-
mannamóti í 58 ár. Stuttu eftir að
Sörenstam hafði yfirgefið svæðið
mætti Nick Price á blaðamannafund
en hann sigraði fyrir ári – og aðeins
¼ af blaðamönnunum sat fund Price.
Segir ekki hvert
markmiðið er
Sörenstam sló á létta strengi á
fundinum og virkaði örugg með
sjálfa sig þrátt fyrir gríðarlegt ytra
áreiti frá fjölmiðlum og áhugamönn-
um um íþróttina. „Fyrir mér er
þetta mót svipað verkefni og að klífa
fyrsta skipti á Mount Everest. Ég
tel að ég sé reiðubúin að takast á við
þetta enda hef ég haft þetta sem
markmið undanfarin ár. Hér er ég í
dag og persónulega finnst mér að ég
hafi engu að tapa. Það býst enginn
við að ég geti spjarað mig á þessu
móti,“ sagði Sörenstam en það er
ljóst að hún þarf að leika öðruvísi
golf en hún en vön að gera þar sem
vegalengdirnar eru miklar frá karla-
teigum. Hún náði ekki að slá inn á
flötina á fjórðu brautinni sem er 225
metra löng og par fjórir. Flestir
keppinautar hennar ná að slá þar
inn á. Sörenstam náði ekki að slá inn
á í tveimur höggum á fimmtu braut
sem er par 5 og aðeins 430 metrar að
lengd – á þessari braut slá nánast
allir karlar inn á í öðru höggi sínu.
Sörenstam vildi ekki segja hver
markmið hennar væru en talaði hins
vegar af sér þegar hún sagðist vilja
fara frá Colonial á sunnudag vitandi
það að hún hefði leikið eins vel og
hugsast gæti.
Nick Price og Vijay Singh eru
þeir einu sem hafa gagnrýnt veru
Sörenstam á mótinu opinberlega en
aðrir keppendur hafa látið sér fátt
um finnast eða tekið henni fagnandi.
Sergio Garcia, Tim Clark og Jesper
Pärnevik léku æfingahring með
henni á dögunum og sýndu henni
hvað bæri að varast.
Sörenstam hefur ekki svarað um-
mælum Singh þar sem hann sagði
m.a. að Sörenstam ætti ekki heima á
atvinnumannamótaröð fyrir karla.
„Mér finnst það leitt að Singh sé
ekki hér í dag. Að mínu mati er hann
frábær kylfingur, einn af sjö bestu
kylfingum heims og það er slæmt að
hann hafi tekið sér frí að þessu
sinni,“ sagði Sörenstam sem verður í
kastljósi fjölmiðla næstu tvo dagana
í það minnsta og hver veit nema
dagarnir verði fjórir þegar upp
verður staðið.
Reuters
Sænska stúlkan Annika Sörenstam horfir á eftir golfboltanum rúlla eftir flöt, eftir að hún sló hann
upp úr glompu á æfingu. Þátttaka hennar í karlamóti í Texas hefur heldur betur vakið athygli.
Annika baðar sig í
sviðsljósinu í Texas
Reuters
Það var fullt út úr dyrum á blaðamannafundi sem Annika Sörenstam hélt á Colonial.
Ef það var markmiðið hjá
mótshöldurum Colonial-
atvinnumannamótsins að fá
aukna athygli með því að
bjóða sænsku konunni Annika
Sörenstam að taka þátt í
mótinu hafa þeir sömu hitt
naglann á höfuðið en mótið
hefst í dag í Bandaríkjunum
og verður án vafa miðdepill
íþróttalífsins vestanhafs sem
og annars staðar. Færri kom-
ust að en vildu er Sörenstam
hélt blaðamannfund í gríð-
arlegum þrengslum á Colonial
og varð henni að orði að svo
margir hefðu ekki mætt í
brúðkaupið hennar.