Morgunblaðið - 22.05.2003, Side 45
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 45
Opna Lancome
kvennamótið
hjá Golfklúbbi Hellu laugardaginn 24. maí
Glæsileg verðlaun frá
Sýning á fatnaði frá Galvin Green og Backtee.
Siggi Hafsteins, golfkennari, kynnir kvenkylfur og
konur geta kynnst því nýjasta í
Ræsum út á öllum teigum kl. 11.00
1. fl. forgj. 24,0
2. fl. forgj. 24,1-30,0
3. fl. forgj. 30,1-36,0
Skráning í síma 487 8208
netfang: ghr@simnet.is
Opna-Nike/Top-Flite mótið
Laugardaginn 24. maí
Ræst út kl. 8-15.
Skráning fer fram
á www.golf.is og
í síma 421 4100.
Höggleikur
með og án forgjafar.
Hámarksforgj.
karlar 24, konur 28.
Mjög góð verðlaun fyrir:
Sæti 1-3 án/forgj.
Sæti 1-3 m/forgj.
Nándarverðl. á 3. og 16. braut.
Heildarverðmæti vinninga 170 þús.
Keppnisgjald kr. 2.500.
FÓLK
BENEDIKT Sigurðarson var end-
urkjörinn formaður Sundsambands
Íslands á 51. ársþingi sambandsins í
Hafnarfirði um sl. helgi. Á þinginu
kom fram að fjárhagsstaða sam-
bandsins er mjög góð, en á árinu 2002
var það rekið með hagnaði upp á 1,8
millj. kr. Mest munar um að hagn-
aður af lottó var mjög mikill á árinu
en hann jókst um 2 millj. króna, úr 3,2
millj. í 5,2 millj. króna.
Á þinginu var samþykkt tillaga um
að fjölga aðalmönnum í stjórn sam-
bandsins úr 5 í 9, en samhliða því var
ákveðið að hætta að kjósa varamenn.
Stjórn SSÍ sem kosin var á þinginu er
skipuð eftirfarandi: Benedikt Sig-
urðarson, Ásdís Vatnsdal, Elías
Atlason, Hlín Ástþórsdóttir, Hörður
Oddfríðarson, Jóhannes Benedikts-
son, Aðalsteinn Ómarsson, Elsie G.
Einarsdóttir og Þórunn Guðmunds-
dóttir, sem er ný í stjórninni.
DOUG Ellis, stjórnarformaður
Aston Villa, segist mjög ánægður
með að vera búinn að fá David
O’Leary í starf knattspyrnustjóra
hjá liðinu. Ellis segir að O’Leary hafi
alltaf verið efstur á óskalista sínum
en 35 knattspyrnustjórar lögðu form-
lega inn umsókn um starfið og var
Guðjón Þórðarson einn þeirra.
ÞÝSKA knattspyrnuliðið Schalke
er með Norðmanninn Trond Sollied
undir smásjánni sem næsta þjálfara
félagsins, en árangur Sollied með
belgíska liðið Club Brügge hefur vak-
ið mikla athygli. Sollied hefur ekki
framlengt samning sinn við belgísku
meistarana og eftir því sem fram
kemur í belgíska blaðinu Het Niuws-
blad hafa forvígismenn Schalke sýnt
áhuga á að fá hann til starfa.
Ekki vantaði spennuna í leikinnþví leikmenn Detroit Pistons
voru með knöttinn á lokasekúndun-
um – líkt og í fyrsta leik liðsins. Í
þetta sinn brást þriggja stiga skot
Chaunceys Billups, sem var mjög
óánægður að leik loknum. Hann
hann taldi Jason Kidd hafa brotið á
sér þegar hann tók skotið, en ekkert
var dæmt.
Grunnurinn að góðum sigri New
Jersey var góður varnarleikur liðs-
ins og stórleikur Kenyons Martins í
lokafjórðungnum, þá gerði hann 16
af 25 stigum sínum í leiknum. Einn-
ig var Jason Kidd sterkur, skoraði
20 stig, tók 7 fráköst og átti 5 stoð-
sendingar. Hjá Detroit skoraði
Richard Hamilton 24 stig, Chauncey
Billups 15 og þá tók Ben Wallace 19
fráköst og kom engum á óvart.
Fyrrverandi bakvörður Los Ang-
eles Lakers, Byron Scott, sem nú
þjálfar New Jersey Nets, var sáttur
að leik loknum; „Við sýndum það
hversu hugaðir við erum í lokafjórð-
ungnum og strákarnir gáfust aldrei
upp. Nú eru afstaðnir tveir há-
spennuleikir á útivelli. Ég er viss
um að þessi spenna verður ekki síðri
heima í New Jersey.“
AP
Kenyom Martin, sem skoraði 25 stig fyrir New Jersey, er hér
búinn að troða knettinum í körfu Detroit án þess að Clifford
Robinson komi vörnum við.
New
Jersey
með
vænlega
stöðu
NEW Jersey Nets sigraði Detr-
oit Pistons á útivelli í annarri
viðureign liðanna sem fram fór
í Auburn Hills höllinni í Detroit
aðfaranótt miðvikudags,
88:86. Leikmenn Nets halda nú
heim til New Jersey með 2:0
forystu í einvígi liðanna í úr-
slitum austurdeildar NBA-
deildarinnar. Óhætt er að segja
að hefðin sé með New Jersey,
því aðeins tvisvar í sögu NBA
hefur lið sem hefur unnið
fyrstu tvo leikina á útivelli í sjö
leikja seríu dottið úr keppni.
JÓN Arnór Stefánsson, körfu-
knattleiksmaður með Trier í
Þýskalandi, er sagður undir smásjá
hjá NBA-liðinu Dallas Mavericks.
Jón Arnór, sem er aðeins 20 ára,
ákvað fyrir skömmu að gefa kost á
sér í nýliðaval NBA-deildarinnar.
Dallas hefur á undanförnum árum
leitað í auknum mæli til Evrópu að
leikmönnum. Nægir í því sambandi
að benda á Þjóðverjann Dirk No-
witzki, sem lék í þýsku annarri
deildinni áður en hann gekk til liðs
við Dallas Mavericks.
Það er annars að frétta af Jóni
Arnóri að hann er meiddur og tek-
ur hvorki þátt í landsleikjunum við
Noreg um helgina né Smáþjóða-
leikunum sem fram fara í Möltu í
byrjun júní. Aðeins einn Íslend-
ingur hefur leikið í NBA-deildinni.
Pétur Guðmundsson lék 68 leiki
með Portland keppnistímabilið
1981–1982 og átta leiki með Los
Angeles Lakers keppnistímabilið
1985–1986, en í herbúðum liðsins
voru þá leikmenn eins og Kareem
Abdul-Jabbar, James Worthy, Ma-
gic Johnson og Byron Scott, undir
stjórn þjálfarans Pat Railey. Pétur
fékk að spreyta sig í 128 mín. í
leikjunum átta og skoraði 37 stig í
þeim.
Pétur lék síðan tvö tímabil með
San Antonio Spurs, fyrra tímabilið
var 1987 til 1988 og lék hann þá 69
leiki og á næstu leiktíð þar á eftir
spilaði Pétur fimm leiki.
Jón Arnór til
Dallas Mavericks?
Jón Arnór Stef-
ánsson í landsleik.
GYLFI Einarsson, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu, sem leikur með norska liðinu Lille-
ström var í gær úrskurðaður í fjögurra leikja
bann vegna óprúðmannlegarar framkomu í leik
með varaliði Lilleström á mánudagskvöldið.
Gylfi missti stjórn á skapi sínu í leiknum og lét
dómara leiksins, stúlkuna Bente Skogvang,
heyra það með miður fögrum orðum. Skogv-
ang, sem er í miklum metum sem dómari og
dæmdi meðal annars úrslitaleik Bandaríkjanna
og Kína í kvennaflokki á Ólympíuleikunum árið
1996, rak Íslendinginn umsvifalaust af leikvelli
undir lok leiksins sem Lilleström tapaði, 5:0.
„Ég sé mjög eftir því sem ég gerði og ég hef
beðiðdómarann og félag mitt afsökunar á fram-
ferði mínu. Svona lagað á ekki að gerast hjá at-
vinnumanni,“ segir Gylfi við norska Dagbladet.
Gylfi tók út fyrsta leikinn í banni í gær þegar
Lilleström lék við Mercantile í þriðju umferð
bikarkeppninnar.
Gylfi í fjögurra
leikja bann
RÍKHARÐUR Daðason, leikmað-
ur Lilleström í Noregi, er allur að
koma til eftir meiðsli. Hins vegar
getur verið að stjórnarmenn fé-
lagsins sjái til þess að hann spili
ekki með aðalliðinu á næstunni,
ekki fyrr en hann hefur náð sér
fullkomlega.
Ástæðan er sú, að þegar Rík-
harður var keyptur frá Stoke var
samningurinn þannig að Lille-
ström greiddi ekkert fyrir hann og
fyrsta greiðsla átti að koma þegar
hann hefði leikið tíu leiki. Rík-
harður er búinn að leika níu leiki
fyrir Lilleström og þegar hann
verður settur inn á næst þarf fé-
lagið að greiða um fjórar milljónir
íslenskra króna til Stoke.
„Ég skil vel sjónarmið stjórn-
armanna, þeir vilja ekki eiga það á
hættu að ég meiðist aftur, en það
er auðvitað meiri hætta á því þeg-
ar maður er ekki kominn í al-
mennilegt stand. Hins vegar er
þetta dálítið súrt fyrir mig því
núna er einmitt sá tími sem maður
þyrfti að fá að koma inn á, við og
við, til að ná fullum styrk,“ sagði
Ríkhaður í samtali við Morgun-
blaðið.
Hann sagði að þetta hefði þegar
snert sig nokkuð. „Það hafa verið
mikil meiðsli hjá framlínumönnum
okkar og þjálfararnir spurðu mig
um daginn hvort ég væri tilbúinn
að vera á bekknum. Þeir sögðust
vera að vinna að því að fá mig á
bekkinn, en úr því varð ekki og
það er vegna afstöðu stjórnarinn-
ar. Þetta ákvæði um greiðslu nær
hins vegar ekki til leika B-liðsins
hjá okkur, sem leikur í þriðju
deildinni, þannig að ég má spila
þar,“ sagði Ríkharður.
Stjórnin
heldur
Ríkharði
frá liðinu