Morgunblaðið - 22.05.2003, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Sími 588 1200
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
www.isb.is
flaki›?
rennurnar?
málninguna?
gluggana?
klæ›ninguna?
hur›irnar?
Er kominn tími á ...
NÚORÐIÐ tíðkast að fyrirtæki selji
fasteignir sínar sérstökum eignar-
haldsfélögum og leigi síðan eignirnar
af þeim aftur. Fasteignafélög lands-
ins, þ.e. félög sem kaupa og reka at-
vinnuhúsnæði til útleigu, hafa yfir að
ráða hundruðum þúsunda fermetra
atvinnuhúsnæðis að flatarmáli.
Verðmæti eignasafna nokkurra af
stærstu félögunum hleypur á millj-
örðum króna.
Stærst félaganna er Fasteigna-
félagið Stoðir, sem er í meirihluta-
eigu Baugs og Kaupþings, en eigna-
safn þess félags nemur röskum 25
milljörðum króna. Einnig má nefna
Landsafl, sem er í eigu ÍAV, Lands-
bankans og Framtaks (áður EFA),
og nemur eignasafn þess félags um 7
milljörðum króna. Þá mun eignasafn
Eignarhaldsfélagsins Fasteignar,
sem er í eigu nokkurra banka og
sveitarfélaga, nema um 8 milljörðum
króna.
Stoðir eiga um 170 þúsund fer-
metra húsnæðis að flatarmáli,
Landsafl á ríflega 90 þúsund fer-
metra og gert er ráð fyrir að Fast-
eign muni eiga um 100 þúsund fer-
metra í lok sumars, en félagið er nýtt
og enn verið að vinna að undirbún-
ingi þess. Auk þessara félaga eru
fjölmörg minni starfandi.
Fasteignafélög eru fremur ný af
nálinni hérlendis en slík félög eru vel
þekkt í nágrannalöndum okkar. Þar
þykir jafnvel fráleitt að fyrirtæki
bindi fjármuni sína í fasteignum eða
noti til þess lánafyrirgreiðslur sem
það gæti annars notað til uppbygg-
ingar í fyrirtækinu.
Skóla- og spítalahúsnæði leigt
Opinberi geirinn er líka að færast í
átt til þessa fyrirkomulags, að leigja
hvers kyns mannvirki, s.s. íþrótta-
hús og skóla, af einkahlutafélögum.
Þannig var sveitarfélögum gert skylt
um síðustu áramót að skilja rekstur
fasteigna frá öðrum rekstri. Land-
spítali - háskólasjúkrahús hefur enn-
fremur sýnt slíku fyrirkomulagi
áhuga. Ingólfur Þórisson, fram-
kvæmdastjóri tækni og eigna LSH,
segir að fjármögnun húsnæðis gæti
með þessu orðið með þeim hætti sem
gerist í einkafyrirtækjum. Spítala-
deildir myndu þá greiða fyrir leigu
húsnæðis eins og annan rekstrar-
kostnað. Það gæti aukið kostnaðar-
vitund varðandi húsnæði sem ætti að
skila sér í betri nýtingu þess.
Hundruð þúsunda fermetra í
útleigu hjá fasteignafélögum
7" -)' '*+-D
/E0000
F0000
/00000
G+
(H'-1"'I
**
J
E
K
*"1 5--$#
(H'-1" D
7.'$ ". ". ". Oft/B6
ÆFINGAR standa nú yfir hjá ís-
lenska Evróvisjón-hópnum, en
keppnin fer fram í Skontó-
tónleikahöllinni í Ríga á laug-
ardagskvöld. Blaðamaður náði tali
af Birgittu Haukdal þar sem hún
var að gæða sér á pitsu eftir langan
dag: „Ég er orðin rosalega spennt.
Við höfum æft tvisvar á stóra svið-
inu, sem er alveg hreint æðislegt.
Ég hef aldrei á ævi minni farið á
jafn fallegt svið. Æfingarnar hafa
gengið mjög vel svo við hlökkum
til, frekar en að kvíða fyrir.“
Birgitta segir bæði bæinn og
aðdáendurna hafa komið sér á
óvart, Ríga sé fallegri en hún hafi
gert sér í hugarlund og ágangur
aðdáenda komi henni á óvart: „Það
er mjög skrýtið að hitta útlenska
aðdáendur sem biðja um eiginhand-
aráritun og vita nákvæmlega hver
maður er og eru hlaupandi á eftir
manni. Ef manni fannst þetta skrýt-
ið á Íslandi, þá er þetta stór-
furðulegt hérna!“ segir Birgitta og
hlær.
Segir samkeppnina harða
Birgitta segir samkeppnina
harða og segir sex lög öll geta hæg-
lega náð fyrsta sæti, en hún hefur
ekki hitt marga af hinum keppend-
unum. „Ég hef ekki enn hitt hinar
umtöluðu Tatu-stelpur, en hef
heyrt að þær séu með svolitla stæla.
Þær eru kannski að geyma það
besta þangað til á laugardag. Aust-
urríski gæinn er stórfurðulegur og
hálfgerður gjörningamaður – virð-
ist eiginlega eiga betur heima í
sirkus en Evróvisjón. En það er
auðvitað bara gaman að þessu og
sýnir fjölbreytnina í keppninni.“
Lagi Birgittu, „Open Your
Heart“, er spáð góðu gengi í keppn-
inni en Birgitta tekur öllum slíkum
fréttum með jafnaðargeði: „Ég
vona bara að við stöndum okkur vel
og getum gert Íslendinga stolta
hvort sem við lendum í fyrsta sæti
eða ekki.“ Með þessum orðum
kvaddi Birgitta og bætti við: „Ég
bið að heilsa öllum heima!“
„Bið að heilsa öllum heima“
MYND Sólveigar Anspach,
Stormviðri, hefur hlotið jákvæð
viðbrögð eftir að hún var frum-
sýnd á kvikmyndahátíðinni í
Cannes á þriðjudaginn. Á frum-
sýningunni voru viðtökur góðar
og leikurunum Diddu, Ingvari E.
Sigurðssyni og Baltasar Kor-
máki, sem auk þess er einn fram-
leiðenda myndarinnar, klappað
lof í lófa. Gagnrýnandi Screen
International segir Sólveigu
draga upp trúverðuga og nýstár-
lega mynd af sambandi geðlækn-
is og sjúklings og hrósar leikur-
unum, sérstaklega Diddu í
hlutverki geðsjúklingsins.
Leikur
Diddu
rómaður
Stormurinn/52–53
FÆREYSKA rannsóknaskipið
Magnus Heinason hefur fundið tölu-
vert af norsk-íslenzku síldinni rétt
norðan færeysku lögsögunnar og
austan þeirrar íslenzku. Hólma-
borgin var komin á miðin í gær og
fékk 80 tonn eftir þriggja tíma
prufuhal. Fleiri skip eru á leiðinni.
„Þetta er stór og falleg síld og
greinilega svolítið af henni hérna,“
sagði Þorsteinn Kristjánsson skip-
stjóri í samtali við Morgunblaðið en
hann var þá að kasta trollinu í ann-
að sinn og vongóður um þokkalegan
afla.
Elfar Aðalsteinsson, forstjóri
Eskju á Eskifirði, sem gerir út
Hólmaborgina auk fleiri skipa, segir
þetta afar góð tíðindi: „Þetta er á
svipuðum slóðum og norsk-íslenzka
síldin veiddist á árunum 1995 til
1996, þegar þessar veiðar voru að
hefjast. Það eru góðar fréttir að
síldin skuli vera komin þetta ná-
lægt. Það munar meira en sólar-
hring í siglingu og styrkir auk þess
stöðu okkar í baráttunni fyrir rétt-
látum skerf úr þessum mikilvæga
síldarstofni. Það er hins vegar
ómögulegt að segja til um það hvort
hún gengur í einhverjum mæli inn í
íslenzku lögsöguna, enda er síldin
afar styggur og dyntóttur fiskur,“
segir Elfar.
Hann segir að Jón Kjartansson sé
nú á landleið norðan úr Smugunni
með fullfermi, en þangað sé um 600
sjómílna sigling eða 40 til 44 tíma
stím. Veiðin þarna úti hafi verið
gloppótt og nótaskipin séu nú á leið
á hin nýju nálægu mið. „Þetta er allt
mikið kapphlaup og afar mikilvægt
að við náum þeim kvóta sem íslenzk
stjórnvöld gáfu einhliða út í vor, en
hann er um 110.000 tonn,“ segir Elf-
ar Aðalsteinsson.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, tekur í sama
streng og segir þetta ákaflega góðar
fréttir. Síldin standi að vísu djúpt,
hún sé stygg og það sé áta í henni,
en engu að síður sé þetta mjög mik-
ilvægt. Hugsanlega eigi hún eftir að
ganga inn í lögsögu okkar en það
styrki stöðu okkar gífurlega í hinum
erfiðu samningum við Norðmenn
um skiptingu veiða úr síldarstofn-
inum.
Norsk-íslenzka
síldin fundin syðst
í Síldarsmugunni
D
! D
D
D
D<
&-)
)
-
&-)
Síldin er stór
og falleg
LÖGREGLAN á Akranesi hefur að undanförnu rann-
sakað mál manna sem grunaðir hafa verið um dreifingu
fíkniefna í bænum. Í gær var látið til skarar skríða og
voru tveir menn handteknir þar sem þeir voru að stíga út
úr bifreið í bænum. Við leit á öðrum þeirra fundust um 40
grömm af hassi. Einnig var ráðist í húsleit að undan-
gengnum úrskurði Héraðsdóms Vesturlands.
Í íbúð í bænum voru tveir til viðbótar handteknir. Við
húsleitina fundust um 250 grömm af hassi, ofskynjunar-
sveppir og neysluáhöld. Þá var gerð önnur húsleit og
fannst þá dálítið af amfetamíni auk neysluáhalda.
Lögreglan í Reykjavík sendi leitarhund og tvo lög-
reglumenn til aðstoðar við leitina. Átti hundurinn Barth-
es og þjálfari hans hvað stærstan þátt í að efnin fundust,
að sögn lögreglunnar á Akranesi. Tveir menn eru enn í
haldi vegna málsins sem er í rannsókn.
Tveir menn í haldi
vegna fíkniefnamáls