Morgunblaðið - 20.06.2003, Síða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 19
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins (ESB) brást á
þriðjudag ókvæða við ásökunum
breska blaðsins Financial Times þess
efnis að hún hefði
látið hjá líða að
taka á spillingu
sem átt hefði sér
stað innan Euro-
stat, tölfræði-
stofnunar ESB.
Blaðið fullyrðir að
Romano Prodi,
forseti fram-
kvæmdastjórnar-
innar, og þrír aðr-
ir stjórnarmenn hafi vitað meira en
þeir létu uppi um meint fjársvikamál
innan stofnunarinnar sem varðar
900.000 evrur, rúmar 78 milljónir
króna.
„Það er ekkert í greininni,“ sagði
Prodi fréttamönnum á þriðjudag og
talsmaður hans Reijo Kemppinen
bætti við að greinin væri „tómt bull“.
Ásakanir blaðsins eru sérlega vand-
ræðalegar fyrir framkvæmdastjórn-
ina sem hefur gefið sig út fyrir að
vera stofnun sem hefur „ekkert um-
burðarlyndi“ gagnvart misferli.
Financial Times vísar í umræddri
grein til sjónvarpsviðtals við Yves
Franchet, fyrrum forstjóra Euro-
stat, þar sem hann fullyrðir að Prodi
hafi verið hafður með í ráðum er
meint misferli innan stofnunarinnar
var fyrst rannsakað. Franchet sagði í
viðtalinu að varaforseti fram-
kvæmdastjórnarinnar, Neil Kinnock,
og þau Michaele Schreyer, sem fer
með málefni er varða fjárlög ESB, og
Pedro Solbes, sem fer með peninga-
mál, hafi einnig verið meðvituð um
gang mála innan Eurostat.
Klúður fremur en samsæri
Allir fyrrnefndir framkvæmda-
stjórnarliðar mættu fyrir nefnd Evr-
ópuþingsins sem hefur umsjón með
fjármálaáætlunum ESB á þriðjudag
til að verja gjörðir sínar. Þar neituðu
þau öll að hafa vitað um meint mis-
ferli innan Eurostat fyrr en í maí á
síðasta ári, þrátt fyrir að rannsókn
málsins innan ESB hefði hafist
þremur árum fyrr.
Að sögn Herbert Boesch sem fer
fyrir fjármálanefndinni eiga fulltrúar
framkvæmdastjórnarinnar enn
margt óútskýrt. „Ég verð að segja að
mér sýnist litlar breytingar hafa orð-
ið frá því Santer fór fyrir fram-
kvæmdastjórninni,“ sagði Boesch og
vísaði þar til þess tíma er Jacques
Santer fór fyrir framkvæmdastjórn-
inni, en hún sagði öll af sér árið 1999
eftir að uppvíst varð um spillingu inn-
an hennar.
Að því er fram kemur í leiðara Fin-
ancial Times á miðvikudag virðast yf-
irlýsingar þremenninganna fyrir
Evrópuþinginu benda til þess að
framkvæmdastjórn ESB hafi fremur
orðið uppvís að klúðri en samsæri
eða yfirhylmingum í þessu máli.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur verið sökuð um vanrækslu
Prodi bregst illa við ásökunum
Brussel. AP, AFP.
Romano Prodi
LEIÐTOGI aðskilnaðarsinna Téts-
níu, Aslan Maskhadov, stefnir ekki
lengur að fullu sjálfstæði landsins.
Þess í stað vill
hann taka upp
viðræður við
rússnesk yfirvöld
til að binda enda á
stríðið í landinu
sem varað hefur í
fjögur ár. Leið-
togi tétsneskra
Rússlandssinna,
Akhmad Kadyr-
ov, vísaði yfirlýs-
ingu Maskhadovs
hins vegar á bug og sagði hana mál-
inu óviðkomandi í ljósi þess að
skæruliðar væru enn í stríði og að
enn félli fólk beggja vegna landa-
mæranna.
Vill samkomulag við Rússa
Talsmaður Maskhadovs tjáði
fréttamönnum á miðvikudag að hann
hefði nú gert sér ljóst að fullt sjálf-
stæði íslamskrar Tétsníu væri úti-
lokað. „Ég get dregið þá ályktun af
samræðum mínum við Maskhadov
að áform um aðskilnað [Tétsníu] frá
Rússlandi eru út úr myndinni. Hann
vill komast að samkomulagi,“ sagði
hann.
Kadyrov hefur hins vegar útilokað
viðræður við Maskhadov. „Að hvers
konar samkomulagi er hægt að kom-
ast við glæpa- og hryðjuverkamann
sem ber ábyrgð á þeirri ógæfu sem
dunið hefur yfir tétsnesku þjóðina?“
sagði hann. Hann sagði jafnframt að
eina samkomulagið sem komist verði
að við Maskhadov er að hann leggi
niður vopn og gefi sig fram við rúss-
nesk stjórnvöld.
Leiðtogi aðskilnaðar-
sinna í Tétsníu
Segir fullt
sjálfstæði
útilokað
Aslan
Maskhadov
www.nowfoods.com
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Vínrauðir
leðurjakkar
kr. 19.990
Stuttkápur