Morgunblaðið - 20.06.2003, Blaðsíða 24
AKUREYRI
24 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRARBÆR stóð fyrir
könnun um hve margir 17 ára og
eldri með lögheimili á Akureyri séu
án sumarstarfs. Að sögn Sigríðar
Stefánsdóttur, sviðsstjóra þjónustu-
sviða Akureyrarbæjar, létu á milli
125 og 130 ungmenni skrá sig en það
er um 25% aukning frá fyrra ári.
„Verið var að ganga frá umsókn til
atvinnuleysistryggingarsjóðs um
stuðning við átaksverkefni sem við
höfum fullan hug á að fara í, til þess
að skapa sem flest störf. Það mun
fara eftir því hvernig þeirri umsókn
verður tekið hvað hægt verður að
gera fyrir þá unglinga sem eru at-
vinnulausir.“
Áður en könnunin fór fram var
Akureyrarbær búinn að ráða um 300
manns 17 ára og eldri til sumarstarfa
og afleysinga. Fyrirhugað er að
leysa vanda þeirra sem eru enn án
atvinnu að einhverju leyti með til-
boði um 6 vikna vinnu. „Það er ekki
öruggt að allir fái vinnu sem vilja, en
við erum að vinna í þessum málum
og teljum það mjög alvarlegt að ungt
fólk og fleiri gangi um atvinnulaus-
ir.“
Sigríður sagði einnig að aðsókn að
vinnuskólanum væri heldur meiri en
áður. „Það virðist sem árgangarnir
séu að skila sér mjög vel til okkar en
allir fá vinnu sem óska þess.“
Könnun á atvinnuhorfum í sumar
Um 130 ungmenni
eru án atvinnu
Morgunblaðið/Kristján
Aðsókn að vinnuskólanum er held-
ur meiri en áður og fá allir vinnu.
www.islandia.is/~heilsuhorn
MULTIDOPHILUS
Ómissandi fyrir meltinguna
PÓSTSENDUM
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889
Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum,
Árnesapóteki, Selfossi og
Yggdrasil, Kárastíg 1.
FERÐAFÉLAGIÐ Hörgur efnir til
kvöldgöngu á Staðarhnjúk í Möðru-
vallafjalli á sumarsólstöðum á morg-
un, 21. júní. Mæting við Möðruvelli 3
í Hörgárdal kl. 20. Hnjúkurinn er
820 m hár og gangan á flestra færi.
Nokkuð bratt þó upp síðasta spölinn.
Þá verður árleg Jónsmessuvaka
að eyðibýlinu Baugaseli í Barkárdal
að kvöldi 23. júní þar sem dvalið
verður við söng og gleði fram yfir
miðnætti. Menn hittast við Bug í
Hörgárdal kl. 21 og sameinast þar í
jeppa. Algengt er að menn fari einn-
ig ríðandi eða gangandi þessa 7 km
fram Barkárdal, en þeir þurfa að
leggja af stað aðeins fyrr.
Allir eru velkomnir og þátttaka er
ókeypis. Fólki er ráðlagt að hafa með
sér nesti.
Gengið og vak-
að um helgina
Fyrsta söngvaka sumarsins á vegum
Minjasafnsins á Akureyri verður í
Minjasafnskirkjunni í kvöld kl.
20.30, en á söngvökum er farið í
söngferðalag um íslenska tónlist-
arsögu. Í boði eru dróttkvæði, ver-
aldleg þjóðlög og danskvæði, trúar-
legur söngur, tvísöngur, rímnalög og
stemmur og síðast en ekki síst ljúfir
söngvar frá nítjándu og tuttugustu
öld. Flytjendur eru Íris Ólöf Sigur-
jónsdóttir og Hjörleifur Hjartarson
og er miðaverð 1.000 kr.
Í DAG
TRYGGVI Gíslason, fráfarandi
skólameistari Menntaskólans á
Akureyri, vék að nemendagörð-
unum nýju í ræðu sinni á skólahátíð
MA 17. júní. Edduhótelið er þar til
húsa.
„Með nýju nemendagörðunum
verður unnt að bjóða nemendum af
höfuðborgarsvæðinu og landinu
öllu að stunda nám í hollu skóla-
umhverfi í skólabænum Akureyri
og er samvinna skólanna tveggja
byggð á því að laða fleiri nemendur
til Akureyrar. Auk þess hefur
menntaskólinn sett sér það mark-
mið að verða skóli fyrir Íslendinga
sem búsettir eru erlendis, s.s. börn
sendiráðsstarfsmanna, starfs-
manna alþjóðlegra stofnana og
starfsmanna við íslensk fyrirtæki
erlendis, en þessu fólki fer fjölg-
andi með auknum samskiptum
þjóða.“
MA verði
skóli fyrir
Íslendinga
sem búsettir
eru erlendis
SS BYGGIR er að hefja fram-
kvæmdir við byggingu um 50 íbúða í
tveggja hæða raðhúsum og fjölbýlis-
húsum á svæði neðan Glerárkirkju.
Nokkur töf hefur orðið á því að hægt
hafi verið að hefja framkvæmdir,
m.a. vegna deilna um skipulag svæð-
isins. Tillögur að deiliskipulagi og
breytingu á aðalskipulagi svæðisins
voru auglýstar í apríl sl. og bárust
nokkrar athugasemdir við þær. Guð-
mundur Jóhannsson, formaður um-
hverfisráðs, sagði að verulega hefði
verið komið til móts við hagsmuna-
aðila þarna en athugasemdir bárust
m.a. frá fulltrúum Glerárkirkju og
leikskólans Krógabóls í kjallara
kirkjunnar.
Íbúar og húseigendur við Linda-
síðu sendu mótmæli til bæjarstjórn-
ar gegn fyrirhuguðum bygginga-
framkvæmdum og skoruðu m.a. á
bæjaryfirvöld að hætta við fram-
kvæmdirnar og skoða frekar vand-
lega nýtingu svæðisins til útivistar
en höfðu ekki erindi sem erfiði. Guð-
mundur sagði að það hefði legið ljóst
fyrir lengi að þarna yrðu byggðar
íbúðir en að byggingamagnið verði
mun minna en upphaflega var gert
ráð fyrir og íbúðirnar færri. Hann
sagði að þétting byggðar væri mjög
hagkvæm fyrir bæjarfélagið, bæði út
af vegalengdum og nýtingu mann-
virkja eins og skóla. Í deiliskipulagi
svæðisins er jafnframt gert ráð fyrir
8 íbúðum í einnar hæðar raðhúsum
við Arnarsíðu og verða þær lóðir
auglýstar lausar til umsóknar fljót-
lega að sögn Guðmundar.
Framkvæmdir að hefjast við byggingu 50 íbúða
Minna byggt neðan Glerár-
kirkju en fyrst var ráðgert
Morgunblaðið/Kristján
Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri SS Byggis, og Benedikt Hjaltason
verktaki fara yfir stöðuna áður en jarðvegsvinnan hófst í vikunni.
NÝTT og endurbætt Edduhótel var
formlega opnað á Akureyri þjóðhá-
tíðardaginn 17. júní. Tekin voru í
notkun 78 herbergi af 120 herbergj-
um í nýrri heimavist MA og VMA og
eru þau öll með baði, síma og sjón-
varpi. Í eldri hluta hótelsins, í gömlu
heimavist MA, eru 84 herbergi og á
næsta ári bætast við 42 herbergi í
nýju gistiálmunni. Þar með verður
hótelið það fjórða stærsta á landinu
með samtals 204 herbergi og eykst
gistirými á Akureyri því um 30%.
Það er sjálfseignarstofnunin
Lundur sem á húsnæði heimavistar-
innar en leigir það Hótel Eddu til
rekstrar. Hótel Edda er hótelkeðja
með 15 sumarhótelum víðs vegar um
landið, sem eru rekin af Flugleiða-
hótelum hf. Kári Kárason, fram-
kvæmdastjóri Flugleiðahótela, sagði
við opnunina á Akureyri að með
stækkun hótelsins opnuðust nýir
möguleikar fyrir bæinn sem ferða-
mannabæ, þar sem nokkur skortur
hafi verið á gistirými um sumartím-
ann. Nokkur fjölgun hafi orðið á
gistirými í nágrenni Akureyrar und-
anfarin ár að sögn Kára en ekki inn-
an bæjarfélagsins.
Hótel Edda hefur verið starfrækt
í heimavist MA í 42 ár, eða frá 1961
þegar Edduhótelin voru opnuð. Hót-
elið er starfrækt í um tvo og hálfan
mánuð á ári, frá miðjum júní til
ágústloka. Í veitingasal hótelsins
verður boðið upp á morgunverð og
hlaðborð á kvöldin með fjölbreyttu
úrvali rétta. Í tengslum við gesta-
móttökuna er rekið lítið kaffihús sem
er opið allan daginn. Alls starfa 40–
50 manns við hótelið og er áætluð
velta þess á annað hundrað milljónir
króna á árinu.
Nýtt og endurbætt Edduhótel formlega opnað
Gistirými
í bænum
eykst
um 30%
Morgunblaðið/Kristján
Björg Ágústsdóttir, hótelstjóri Hótel Eddu á Akureyri, lengst til vinstri,
sýnir gestum eitt af nýju herbergjunum við opnunina 17. júní.
LISTASUMAR 2003 var formlega
sett í Ketilhúsinu í gær og er þetta í
ellefta skipti sem þessi 10 vikna
listahátíð er haldin á Akureyri.
Nokkrir listamenn komu fram við
þetta tækifæri; Jón Laxdal mynd-
listarmaður opnaði t.d. sýningu
sína „Tilraun um prentað mál“ og
Jóhann Friðgeir Valdimarsson ten-
ór, Michael Jón Clark og Sif Ragn-
hildardóttir sungu. Þá las bæjar-
listamaðurinn Jóhann Árelíuz úr
væntanlegri bók sinni.
Á myndinni eru, frá vinstri, lista-
mennirnir Jón Laxdal og Aðal-
heiður S. Eysteinsdóttir, Hannes
Sigurðsson forstöðumaður Lista-
safnsins á Akureyri og Þröstur Ás-
mundsson fyrrverandi formaður
menningarmálanefndar bæjarins.
Til hægri sést í eitt listaverka Jóns.
Morgunblaðið/Kristján
Listasumar hafið í 11. sinn