Morgunblaðið - 20.06.2003, Qupperneq 26
LANDIÐ
26 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SAMKAUP hf. opnaði nýja og mjög
breytta verslun í fyrrum húsakynn-
um verslunarinnar Grund á Flúðum
á dögunum undir merkinu STRAX.
Þetta fyrirtæki rekur 27 verslanir
víðs vegar um landið og hér bætist
ein við.
Að sögn Gísla Gíslasonar, rekstr-
arstjóra hjá Samkaupum hf., verður
lögð áhersla á að vera með á boð-
stólum almenna matvöru og einnig
sérstakar vörur fyrir ferðafólk. Or-
lofshús eru yfir 200 í sveitarfélaginu
og mikil umferð ferðafólks. Ís og
pylsur eru einnig að sjálfsögðu til
sölu og byggð verður kaffitería
vestan við húsið þar sem aðalinn-
gangur er nú. Lögð verður mikil
áhersla á að vera með fjölbreytt úr-
val af margs konar grænmeti á lág-
marksverði enda verslunin í því
sveitarfélagi sem framleitt er mest
og fjölbreyttast af grænmeti. Sam-
kaup hf. er nú þriðja stærsta versl-
unarkeðjan á matvörumarkaði hér á
landi með 16% hlutdeild á mark-
aðinum. Afgreiðslutími í sumar er
mjög rúmur, opið er á virkum dög-
um frá kl. 9 til 22, laugardögum kl.
10 til 22 og sunnudögum kl. 10 til
20. Verslunarstjóri er Agnes Böðv-
arsdóttir.
Olíufélagið hf. verður með sjálfs-
afgreiðslu á bensíni og olíu og verð-
ur afgreiðslan færð til frá því sem
nú er norður fyrir húsið.
Þau Sólveig Ólafsdóttir og Sig-
urgeir Ó. Sigmundsson hófu versl-
unarrekstur á Grund árið 1967 en
eftir lát Sigurgeirs 1997 hefur Sól-
veig annast reksturinn ein en ákvað
að selja verslunarhúsnæðið nú.
Ljósmynd/Sigurður Sigmundsson
Frá vinstri: Sólveig Ólafsdóttir fyrrverandi verslunareigandi, Guðjón Stef-
ánsson framkvæmdastjóri hjá Samkaupum hf., Agnes Böðvardóttir versl-
unarstjóri og Gísli Gíslason rekstrarstjóri.
Samkaup hefja versl-
unarrekstur á Flúðum
Hrunamannahreppur
ÞAÐ var „bongóblíða“ á þjóðhátíð-
ardaginn á Húsavík og hátíðahöldin
vel sótt. Skrúðganga var farin frá
íþróttavelli að Borgarhólsskóla þar
sem fjölbreytt hátíðardagskrá fór
fram.
Hátíðarræðu flutti Ágúst Óskars-
son, formaður Verslunarmanna-
félags Húsavíkur, og fjallkona var
Sandra Kristinsdóttir. Vinsælasta
atriðið hjá yngri kynslóðinni virtist
vera að fá að skella sér á hestbak.
Félagar úr Hestamannafélaginu
Grana mættu með hesta sína að
venju og teymdu undir börnunum.
Hátíðahöldunum lauk síðan að
kveldi þjóðhátíðardagsins með fjöl-
skyldudansleik með diskó-
hljómsveitinni The Hefners.
Íþróttafélagið Völsungur og
skátafélagið Víkingur sáu um há-
tíðahöld þjóðhátíðardagsins að
þessu sinni.
„Bongó-
blíða“ á
þjóðhátíð-
ardaginn
Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Fjölmenn skrúðganga var á Húsavík á lýðveldisdaginn og veðrið gott.
BORGFIRÐINGAHÁTÍÐ, sem
hófst föstudaginn 13. júní, lauk með
17. júní-hátíðahöldum en þetta var í
fjórða sinn sem hún var haldin. Að
venju var dagskrá hátíðarinnar fjöl-
breytt og við hæfi allrar fjölskyld-
unnar. Má t.d. nefna ljósmynda-
maraþon, baðstofukvöld, Brákar-
hlaup, markaðstorg, leiktæki,
tónleika, leiksýningar o.fl.
Á sunnudagsmorgninum var öll-
um landsmönnum boðið til morgun-
verðar í Skallagrímsgarði þar sem
fyrirtæki í matvælaiðnaði gáfu af-
urðir sínar og foreldrar verðandi 10.
bekkinga unnu í fjáröflunarskyni
fyrir ferðasjóð barna sinna. Um 800
manns mættu í morgunverðinn og
voru þeirra á meðal útlendingar sem
þökkuðu fyrir sig með því að gefa
rauðvínsflösku. Flaskan sú var boðin
upp og andvirðið lagt í ferðasjóðinn.
Yfir morgunkaffinu spilaði Steinunn
Pálsdóttir á harmoniku og séra Þor-
björn Hlynur Árnason predikaði í
útimessu.
Framkvæmdastjóri Borgfirðinga-
hátíðar var Margrét Björk Björns-
dóttir og sagði hún að hátíðin hefði
gengið mjög vel í alla staði og verið
skemmtileg. Í öllum Borgarfirði
hefði verið margt um manninn og
mikið um að vera.
800 manns mættu í morgunverðinn
Borgarnes
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Börnin skemmtu sér í leiktækjum.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Biðröð myndaðist við morgunverðarborðið þegar flest var.
OPNUÐ hefur verið sýning á völd-
um gripum frá Þjóðminjasafni Ís-
lands á Skriðuklaustri. Á henni eru
til sýnis altarisklæði frá Hofi í
Vopnafirði, betur þekkt sem álf-
konudúkurinn frá Bustarfelli. Sagan
segir að sýslumannskonu á Bustar-
felli hafi verið gefinn dúkurinn af álf-
konu sem hún hjálpaði í barnsnauð.
Einnig eru á sýningunni brjóstnæla
fundin á Skriðuklaustri, hurðar-
hringur frá Stafafelli og bollasteinn
frá Gautlöndum.
Sýningin ber yfirskriftina Í
skuggsjá fortíðar og er samstarfs-
verkefni Þjóðminjasafns Íslands,
Landsvirkjunar og Gunnarsstofn-
unar. Hún er opin alla daga frá kl.
10-18 í allt sumar.
Álfkonudúkurinn
frá Bustarfelli
Álfkonudúkurinn frá Bustafelli.
Skriðuklaustur
Sýning á völdum þjóðminjum á Skriðuklaustri
VERSLUNIN Tákn hefur opnað
verslun á hafnarstéttinni á Húsavík,
í hluta húsnæðis sem Útgerðarfélag-
ið Langanes hf. á. Húsnæðið var áð-
ur í eigu KÞ og hefur Bjarni Aðal-
geirsson útgerðarmaður verið að
láta gera það upp með miklum
myndarskap undanfarin misseri.
Húsið er á milli Gamla Bauks og
Hvalamiðstöðvarinnar og gegnt
bryggjulægi hvalaskoðunarbátanna
og því mikil umferð ferðamanna
þarna. Eigendur Tákns eru hjónin
Ingibjörg Jónsdóttir og Þráinn
Gunnarsson. Í versluninni eru þau
m.a. með til sölu útivistarfatnað frá
66°N og ullar- og prjónavörur frá
Icewear, auk ýmissa minjagripa.
Að sögn Ingibjargar hefur versl-
uninni verið vel tekið til þessa, sér-
staklega af ferðamönnum. Þau hjón-
in hyggjast reka þessa verslun yfir
ferðamannatímann en verslunin
Tákn sem er á Garðarsbrautinni
verður rekin áfram í óbreyttri mynd.
Tákn opnar
verslun
Húsavík
Í LOK maímánaðar gaf séra Guðjón
Skarphéðinsson, prestur á Staða-
stað, saman ung brúðhjón í kirkjunni
á Búðum. Það væri svo sem ekki í
frásögur færandi nema vegna þess
að þau komu sérstaklega frá Þýska-
landi til að láta pússa sig þar saman.
Og eins og venjulega er saga á bak
við slíka ákvörðun. Brúðguminn sem
ennþá á erfitt með að vísa til fyrrum
kærustu sinnar sem nýbakaðrar eig-
inkonu brosir við þegar hann er
spurður að því hvers vegna þau hafi
valið einmitt Búðir fyrir giftinguna.
Christoph Kalthoff segir að hann
og Urte kona hans hafi þrisvar áður
komið til Íslands og þeim hafi alltaf
fundist jafnmikið til landsins koma. Í
fyrstu ferðinni voru þau á leið til New
York og bauðst að stoppa hér í sjö
daga. Þau keyptu sér rútupassa og
þeyttust þvers og kruss um landið.
Næstsíðasta daginn tóku þau rútuna
vestur á Snæfellsnes og gengu niður
að Búðum í grenjandi rigningu, en
þrátt fyrir slagveðrið fannst þeim
staðurinn dásamlegur. Ekki spillti
fyrir að á Búðum voru menn að vinna
við endurbætur á gamla hótelinu og
buðu þeim upp á heitt kaffi og húsa-
skjól og keyrðu þau síðan aftur í rút-
una, sem þau hefðu sennilega ella
misst af. Þau voru bæðu sammála um
það að Búðir væru hinn fullkomni
staður til að gifta sig á, svo að þegar
þau ákváðu loks að ganga í það heil-
aga kom bara einn staður til greina.
Þau tilkynntu fjölskyldunni um
ákvörðun sína og áttu svo sem ekki
von á því að þau myndi koma með
þeim til Íslands en reyndin varð önn-
ur.
Gestir víða að úr heiminum
Foreldrar Urte komu frá Spáni
þar sem þau búa, systir hennar frá
Namibíu í Afríku og frænka hennar
frá Svíþjóð. Hinir gestirnir komu frá
Þýskalandi. Veislan var haldin á
Gistiheimilinu Brekkubæ að Helln-
um, þar sem hin nýbökuðu hjón
eyddu brúðkaupsnóttinni en næsta
dag héldu þau í fjögurra daga brúð-
kaupsferð um Vestfirði og í fram-
haldi af því í tveggja vikna brúð-
kaupsferð til Maldíveyja í
Indlandshafi.
Fullkominn staður
fyrir brúðkaup
Hellnum, Snæfellsnesi
Urte og Christoph Kalthoff töldu
Búðir hinn fullkomna stað til að
gifta sig á og létu verða af því.
Þýsk hjón gengu í hjónaband á Búðum ♦ ♦ ♦
DAGANA 10.–12. júní sl. var haldið
sveinspróf í húsasmíði í húsnæði
tréiðnadeildar Fjölbrautaskóla
Norðurlands
vestra á Sauð-
árkróki. Próf-
dómarar voru
Guðmundur S.
Jóhannsson
og Hólm-
steinn Snæ-
dal. Sjö nem-
endur,
brautskráðir
frá FNV,
þreyttu prófið
að þessu sinni,
en þetta er í
annað sinn sem sveinspróf í húsa-
smíði er haldið í FNV.
Próftakendur voru: Emil Dan
Brynjólfsson, Grétar Þór Steinþórs-
son, Guðjón Þórarinn Loftsson, Guð-
mundur Þór Elíasson, Hákon Ingi
Sveinbjörnsson, Ingvar Daði Jó-
hannsson og Óskar Már Atlason.
Allir stóðu próftakarnir sig með
sérstökum ágætum. Meðaleinkunn
nemenda í verklegum hluta prófsins
var 8,64. Athygli vakti árangur Ingv-
ars Daða Jóhannssonar, en hann
fékk einkunnina 9,8 fyrir smíði
sveinsstykkisins, sem mun vera
hæsta einkunn sem prófdómararnir
hafa gefið fyrir verklegan hluta
sveinsprófsins. Prófdómarar lýstu
yfir ánægju sinni með árangur nem-
anna.
Sveinspróf
í húsasmíði
Ingvar Daði Jó-
hannsson við
sveinsstykki sitt.
Sauðárkrókur