Morgunblaðið - 20.06.2003, Qupperneq 40
MINNINGAR
40 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Ingvi GunnarEbenhardsson
fæddist á Akureyri
11. júní 1921. Hann
andaðist á líknar-
deild Landspítala –
háskólasjúkrahúss,
Landakoti 10. júní
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Jónína Anna Magn-
úsdóttir, f. 20. apríl
1895, d. 15. október
1980, og Ebenhard
Jónsson, f. 10. maí
1896, d. 2. júlí 1983.
Fósturfaðir Ingva
var Hermann Árnason, f. 15.
september 1901, d. 4. september
1978. Systkini Ingva sammæðra
eru: Friðbjörn Hermannsson, f.
25. febrúar 1927, d. 20. apríl
1995; Árni Baldvin Hermannsson,
f. 3. janúar 1930; og Sigríður
Hermannsdóttir, f. 23. mars
1934. Systkini Ingva samfeðra
eru: Ásta Ebenhardsdóttir, f. 26.
júlí 1923; Unnur Ebenhardsdótt-
ir, 2. apríl 1925; og Ebba Eben-
hardsdóttir, f. 10. mars 1927.
Hinn 29. nóvember 1958
1963; þeirra börn eru Hjörtur
Ingvi, f. 7. september 1987, og
Sigurlaug Guðrún, f. 16. júní
1993.
Ingvi ólst upp í Svarfaðardal
og á Dalvík. Að loknum unglinga-
skóla vann hann við fiskverkun
og sjómennsku. Ingvi stundaði
nám við Héraðsskólann á Laug-
arvatni og síðar Samvinnuskól-
ann í Reykjavík, þaðan sem hann
lauk prófi 1946. Eftir það settist
Ingvi að á Selfossi og starfaði hjá
Kaupfélagi Árnesinga til 1958.
Það ár var hann skipaður aðal-
bókari og skrifstofustjóri við
embætti Sýslumannsins á Sel-
fossi, þar sem hann starfaði óslit-
ið allt þar til hann lét af störfum
fyrir aldurs sakir 1991. Ingvi var
hreppstjóri Selfosshrepps frá
1958 til 1978, þegar Selfoss hlaut
kaupstaðarréttindi. Hann sat sem
fulltrúi framsóknarmanna í bæj-
arstjórn Selfoss frá 1978–1986,
þar af í fjögur ár sem forseti bæj-
arstjórnar og forseti bæjarráðs.
Ingvi gegndi ýmsum öðrum fé-
lags- og trúnaðarstörfum, var
m.a. formaður Bridgefélags Sel-
foss og Stangaveiðifélags Selfoss
og sat lengi í sýslunefnd Árnes-
sýslu.
Útför Ingva Ebenhardssonar
verður gerð frá Selfosskirkju í
dag og hefst athöfnin klukkan
13.30.
kvæntist Ingvi eigin-
konu sinni, Emmu
Guðrúnu Carlsson, f.
16. október 1922, d.
18. október 1985.
Foreldrar Emmu
voru Johan Olav Hin-
rik Carlsson sem var
danskur að ætt, f. 23.
júní 1896, d. 1981, og
kona hans Guðrún
Gunnlaugsdóttir frá
Selfossi, f. 25. júlí
1893, d. 1967. Emma
Guðrún var fædd á
Íslandi, en ólst upp í
Kaupmannahöfn og
bjó þar þangað til hún fluttist á
Selfoss eftir að hún kynntist
Ingva. Börn Ingva og Emmu eru:
1) Guðrún Erla Ingvadóttir, sér-
kennari, f. 22. desember 1958,
gift Heiðari Pétri Guðjónssyni
húsasmíðameistara, f. 24. júlí
1960; þeirra börn eru Emma
Guðrún, f. 27. júní 1990, og Sæ-
unn Sif, f. 27. september 1993. 2)
Jónína Ingvadóttir, deildarstjóri,
f. 31. maí 1962, gift Jóhanni
Hjartarsyni héraðsdómslögmanni
og stórmeistara, f. 8. febrúar
Í dag er tengdafaðir minn, Ingvi
Ebenhardsson, kvaddur hinstu
kveðju.
Ingvi fæddist á Akureyri 1922.
Fyrstu árin ólst hann upp á Há-
nefsstöðum í Svarfaðardal hjá föð-
urforeldrum sínum, Jóni Stefáns-
syni og Júlíönu Hallgrímsdóttur,
en síðar hjá móður sinni og fóstur-
föður á Sæbakka á Dalvík. Ingvi
átti góða og ástríka æsku í fögru
umhverfi sem hann minntist ætíð
með þakklátum huga. Á þeim tíma
sem Ingvi var að alast upp bjó allur
þorri manna við kröpp kjör og að-
gangur að menntun var langt frá
því að vera jafnsjálfsagður og nú
tíðkast. Hugur Ingva stóð engu að
síður til náms enda gæddur góðum
gáfum. Þótt efnin væru ekki mikil
heima fyrir lét hann ekkert aftra
sér í þeim ásetningi sínum að afla
sér menntunar, þótt fjarri væri
heimahögum. Með dugnaði og
harðfylgi náði hann að láta þann
draum rætast með því að stunda
sjómennsku á vertíðarbátum, þar
til hann hafði safnað nægu fé til að
fjármagna námið.
Ingvi lagði stund á nám við Hér-
aðsskólann á Laugarvatni og síðar
við Samvinnuskólann í Reykjavík.
Á námsárunum kynntist Ingvi
þeim merka manni Agli Thoraren-
sen, kaupfélagsstjóra Kaupfélags
Árnesinga, sem útvegaði honum
vinnu á Selfossi í námsleyfum.
Þetta urðu afdrifarík spor, því
Ingvi festi strax rætur á Selfossi,
settist þar að og starfaði alla sína
starfsævi. Hann hugsaði þó ætíð
með hlýju til heimahaganna og
lagði sig fram við að halda góðu
sambandi við fjölskyldu sína og
frændgarð fyrir norðan á Dalvík og
Akureyri, sem þar hefur búið allt
fram á þennan dag.
Sjálfsagt hefur vistin í Sam-
vinnuskólanum haft áhrif á póli-
tískar skoðanir Ingva enda sveif
þar andi Framsóknarflokksins og
Jónasar frá Hriflu yfir vötnum. Í
þeim efnum tjaldaði Ingvi ekki til
einnar nætur frekar en öðrum og
fylgdi hann Framsóknarflokknum
að málum alla ævi og gegndi ýms-
um trúnaðarstörfum fyrir flokkinn.
Árið 1958 tók Ingvi við starfi að-
albókara og skrifstofustjóra hjá
embætti sýslumannsins á Selfossi
og vann þar allan sinn starfsaldur
eftir það, eða í meira en þrjá ára-
tugi. Ingvi var embættismaður af
gamla skólanum sem gekk til starfa
sinna af mikilli nákvæmni og sam-
viskusemi. Ingvi þótti t.d. tölu-
glöggur með afbrigðum. Hann var
mjög bóngóður við þá sem þurftu á
þjónustu embættisins að halda og
reyndi að leysa vanda þeirra sem
til hans leituðu eins og kostur var
og þótti vera eins við alla. Hann var
einnig síðasti hreppstjóri Selfoss-
hrepps. Því embætti fylgdu ýmsar
skyldur á borð við aðstoð við gerð
skattframtala fyrir þá sem þess
óskuðu. Stundum var stofan á Víði-
völlunum eins og læknabiðstofa,
þegar saman var kominn fjöldi
fólks sem beið eftir aðstoð við
framtalsgerðina.
Eftir að Ingvi hafði búið á Sel-
fossi um skeið kynntist hann
Emmu Guðrúnu Carlsson sem
þangað var komin í heimsókn til að
vitja skyldmenna sinna. Þótt
Emma væri uppalin í Danmörku
var hún hálfíslensk og rakti ættir
sínar til frumbýlinganna á Selfoss-
bæjunum. Þeir sem urðu vitni að
kynnum Ingva og Emmu hafa borið
að þar hafi farið ást við fyrstu sýn
og varð strax ljóst að heimsóknin á
Selfoss yrði lengri en í fyrstu var
ætlað. Ingvi og Emma giftu sig árið
1958 og reistu sér hús á Víðivöllum
18 á Selfossi. Þar bjuggu þau upp
frá því á meðan bæði lifðu. Emma
var mikil dama og heimsborgari,
enda alin upp á miklu menningar-
heimili í stórborginni Kaupmanna-
höfn. Hún hafði gaman af ferðalög-
um og kveikti áhuga á þeim hjá
eiginmanni sínum. Ferðuðust þau
Ingvi reglulega til Danmerkur til
að heimsækja skyldmenni hennar
þar og síðar til sólarlanda þegar
ferðir þangað komust í tísku. Sólar-
landaferðirnar gerðu og Emmu
gott, enda þjáðist hún lengi af liða-
gigt sem olli henni miklum erfið-
leikum sem hún bætti upp með
léttri lund sem aldrei brást. Emma
náði aldrei fullkomnu valdi á ís-
lenskunni eins og títt er með þá
sem hafa dönsku að móðurmáli, en
það gerði þó minnst til. Hún var
hluti af stórmerkilegu samfélagi
Selfyssinga af dönskum uppruna
sem e.t.v. þarfnast meiri athygli, en
allmargir Danir sem unnu við upp-
setningu og starfrækslu Mjólkur-
bús Flóamanna á sínum tíma sett-
ust t.d. að á Selfossi. Það var því
oft talaður skemmtilegur kokkteill
af íslensku og dönsku í kaffiboð-
unum á Víðivöllum. Það var Ingva
mikið áfall þegar Emma veiktist af
krabbameini og lést árið 1985 eftir
erfiða sjúkdómslegu.
Ingvi var maður afar hlédrægur
að eðlisfari og skipti sjaldan skapi.
Aldrei heyrði ég hann hækka róm-
inn og hygg að þannig sé farið um
flesta sem kynntust honum. Hann
sóttist ekki eftir metorðum og gekk
hljóðlega og átakalaust til starfa
sinna sem hann rækti af mikilli
samviskusemi. Hann var sjálfum
sér nægur og virtist ekki þurfa að
sækja margt til annarra, honum
virtist standa mun nær að gera öðr-
um greiða en að leita eftir þeim
sjálfur. Ekki var þó því að skipta að
hann treysti ekki öðru fólki eða
væri þjakaður af áhyggjum eða tor-
tryggni. Ég man t.d. eftir því hvað
hann tók því létt þegar hann fór í
erfiða hjartaaðgerð fyrir nokkrum
árum. Það var eins og aðgerðin
væri ekkert mál, enda hresstist
hann allur við eftir hana og náði
góðum bata.
Þrátt fyrir hlédrægnina var
Ingvi mjög virkur maður að mörgu
leyti. Þannig fylgdist hann vel með
öllum fréttum, sérstaklega þó af
pólitík og íþróttum enda greinar af
sama meiði, og fann sér alltaf eitt-
hvað til að dunda við innan húss
eða utan. Undir niðri var Ingvi
einnig kappsamur og metnaðarfull-
ur hvort sem var í starfi eða leik.
Þannig keppti hann með góðum ár-
angri í fótbolta og frjálsum íþrótt-
um á yngri árum og síðar í brids.
Ingvi hélt sér afar vel líkamlega,
enda hreyfði hann sig reglulega og
stundaði m.a. sundferðir af miklu
kappi. Þá hafði hann gaman af
stangaveiði í ám og vötnum.
Þrátt fyrir að Ingvi væri manna
ólíklegastur til að trana sér fram
og sækjast eftir vegtyllum eða at-
hygli annarra höguðu örlögin því
engu að síður svo að hann var kall-
aður til margháttaðra trúnaðar-
starfa á opinberum vettvangi.
Þannig var hann leiðtogi framsókn-
armanna í bæjarstjórn Selfoss í tvö
kjörtímabil á árunum 1978–1986.
Eitt sinn hafði Ingvi á orði við mig í
gríni að um tíma hefði hann verið
hættur að þora að gerast félags-
maður í frjálsum félagasamtökum
vegna þess, að það hefði oftast end-
að þannig að hann hefði verið kom-
inn í stjórn eða orðinn formaður í
viðkomandi félagi áður en hann
vissi af.
Ingvi var mikill fjölskyldumaður
og lét sér mjög annt um velferð
dætra sinna tveggja. Veikindi
Emmu urðu einnig til þess að hann
tók meiri ábyrgð á uppeldi þeirra
og rekstri heimilisins almennt.
Seinni árin var fátt sem veitti
Ingva meiri ánægju en samneyti
við barnabörnin fjögur, enda ríkti
gagnkvæm vinátta og trúnaðar-
traust á milli þeirra allra. Ekkert
vakti meiri eftirvæntingu en heim-
sóknir til afa á Selfossi og var oft
glatt á hjalla þegar fjölskyldan kom
saman á Víðivöllunum á stórhátíð-
um. Það var gaman að renna í hlað
og mæta Ingva skælbrosandi, enda
var það oftast þannig að hann var
búinn að hrifsa yngstu fjölskyldu-
meðlimina úr aftursætinu og
hlaupa með þá inn í hús áður en
hann gaf sér tíma til að kasta
kveðju á hina fullorðnu.
Síðustu þrjú árin bjó Ingvi í
þjónustuíbúð í Árskógum 6 í
Reykjavík þar sem hægara var að
leita til barna og barnabarna. Þar
kunni hann afar vel við sig og eign-
aðist hann marga góða vini í hópi
nágranna sinna sem gjarnan styttu
sér stundir með því að spila brids.
Síðustu mánuðirnir voru erfiðir því
að glíman við krabbameinið er
óvægin. Ingvi hélt þó reisn sinni til
síðustu stundar og ætlaði sér sigur
í baráttunni, þótt það gengi ekki
eftir.
Að leiðarlokum færi ég tengda-
föður mínum alúðarþakkir fyrir
trausta samfylgd á lærdómsríkri
vegferð um leið og ég votta þeim
mörgu ættingjum og vinum samúð,
sem nú eiga um sárt að binda
vegna fráfalls hans.
Jóhann Hjartarson.
Nú ert þú farinn, afi minn, farinn
til ömmu, sem þú saknaðir alltaf
svo mikið. Þegar ég fékk fréttirnar
af andláti þínu varð mér hugsað til
þess að ég var ekki bara að missa
afa minn, ég var einnig að missa
besta vin minn, vin sem var alltaf
til staðar þegar ég þarfnaðist hans.
Þrátt fyrir að vera búinn að missa
þig frá þessu jarðlífi mun ég ætíð
búa að minningunum um þig, öllum
veiðidögunum við Hlíðarvatn og
Iðu og heimsóknunum til þín á Sel-
fossi og seinna í Árskógana. Ég
man líka eftir öllum jólunum sem
við áttum saman á Víðivöllunum og
auðvitað þegar þú komst til okkar.
Við vorum líka alltaf mjög duglegir
að fara í sund saman og fylgjast
með íþróttum.
Ég veit að þú varst aldrei maður
sem vildir láta mikið á þér bera,
vannst þín góðverk í hljóði og varst
alltaf tilbúinn að hjálpa án endur-
gjalds. Þegar allt kemur til alls eru
það þó svona menn sem mesta virð-
ingu hljóta og minning þín mun lifa
í hjarta allra þeirra sem voru svo
heppnir að kynnast þér og njóta
góðs af þeirri einstöku mannúð sem
þú hafðir að bjóða.
Þinn
Hjörtur Ingvi.
INGVI GUNNAR
EBENHARDSSON
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON
húsasmíðameistari,
Langholtsvegi 59,
Reykjavík,
sem andaðist á hjartadeild Landspítala við
Hringbraut fimmtudaginn 12. júní, verður
jarðsunginn frá Áskrirkju mánudaginn 23. júní
kl. 13.30.
Björk Sigurðardóttir, Einar Hilmar Jónmundsson,
Sigurður Einarsson,
Eyrún Einarsdóttir, Carlos Cardoza.
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður og afa,
ÓLAFS OLGEIRSSONAR,
Arnarási 6,
Garðabæ,
fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstu-
daginn 20. júní kl. 15.00.
Helga Jörundsdóttir.
Ingibjörg Ólafsdóttir, Gísli G. Jóhansson,
María Kolbrún Ólafsdóttir,
Kristjón Hafberg Ólafsson, Elín G. Kristjánsdóttir,
Ólafur Björnsson,
Kristján Hafberg Kristjónsson.
Útför elskulegrar móður okkar, ömmu og
langömmu,
KRISTRÚNAR ÞORSTEINSDÓTTUR
CORTES,
verður gerð frá Fossvogskapellu í dag, föstu-
daginn 20. júní, kl. 15.00.
Erla Cortes,
Kristín Björg Gunnarsdóttir,
Guðrún Cortes,
Gunnar J. Árnason, Soffía Karlsdóttir,
Kristinn H. Árnason,
Snorri Ö. Árnason, Ásdís Ásbjörnsdóttir,
Torfi Magnússon,
Gunnar Cortes Heimisson
og barnabarnabörnin.
Jarðarför
SIGRÍÐAR HERDÍSAR HELGADÓTTUR,
Hafnarbraut 26,
Höfn,
fer fram frá Hafnarkirkju laugardaginn 21. júní
kl. 14.00.
Heimir Þór Gíslason,
Helga Nína Heimisdóttir,
Hrafn Margeir Heimisson,
Sigurþór Albert Heimisson,
Gísli Björn Heimisson
og aðrir ættingjar.