Morgunblaðið - 20.06.2003, Side 46
DAGBÓK
46 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í
dag eru væntanleg
Venus HF og Thekla
og út fara Skógafoss
og Mánafoss.
Hafnarfjarðarhöfn: Í
dag er væntanlegt
Ludvig Andersen og
út fara Tsefey, Orlik,
Sherelye, Gemini og
Olshana.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 er smíða- og
handavinnustofan op-
in. Púttvöllur opinn. .)
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 bað, kl. 9–
16 handavinna, kl. 9–
17 fótaaðgerð, kl. 13–
16 spilað í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og opin handavinnu-
stofa.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 er
handavinnustofan op-
in, kl. 9–12 appliker-
ing, kl. 10–13 er versl-
unin opin.
Félagsstarfið Hæðar-
garði 31. Kl. 9.30
gönguhópur, allir vel-
komnir, kl. 9–12 bað,
kl. 9–16 opin vinnu-
stofa.
Félagsstarfið Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
er verslunin opin, kl.
11 leikfimi, kl. 13 „opið
hús“, spilað á spil.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Skrifstofan er lokuð
frá og með 30. júní til
6. ágúst. Viðvera í Gjá-
bakka fellur niður á
sama tíma.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Biljarð-
ur kl. 13.30 og brids kl.
13. Púttæfingar á
Hrafnistuvelli kl. 14 og
16.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði í
Glæsibæ. Sími
588 2111. Dagsferð 4.
júlí, Rangárvellir:
Komið að Odda, í
Sögusetrið á Hvolsvelli
o.fl. Súpa og brauð á
Hvolsvelli. Leiðsögn
Pálína Jónsdóttir, laus
sæti. Norðurland 6.–
10.júlí – 5 daga ferð:
Akureyri, Grímsey,
Svarfaðardalur, Dal-
vík, Ólafsfjörður, o.fl.
Leiðsögn: Þórunn Lár-
usdóttir. Þeir sem hafa
skráð sig þurfa að
greiða inn á ferðina f.
helgi. Nokkur sæti
laus.
Gerðuberg, félags-
starf. Í dag kl. 9–16.30
eru vinnustofur opnar.
Frá hádegi er spilasal-
ur opinn. Miðvikudag-
inn 25. júní verður
Jónsmessufagnaður í
Skíðaskálanum í
Hveradölum. Ólafur B.
Ólafsson harmonikku-
leikari stjórnar
skemmtun. Kaffihlað-
borð. Dregnir út vinn-
ingar o.fl. Lagt af stað
frá Gerðubergi kl.
13.30. Skráning hafin í
síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan
opin, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30–16.
Klukkan 13.15 brids,
kl. 20.30 félagsvist.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17,
heitt á könnunni.
Hraunbær 105. Klukk-
an 9 baðþjónusta, fóta-
aðgerð og hárgreiðsla,
kl. 11 leikfimi (út júní),
kl. 10 pútt. Bingó kl.
14.
Hvassaleiti 58–60.
Hársnyrting og fótaað-
gerðir.
Norðurbrún 1. Klukk-
an 9–13 tréskurður, kl.
9–17 hárgreiðsla, kl.
10–11 boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl. 10–11
kántrídans, kl. 11–12
stepp, kl. 13.30–14.30
sungið við flygilinn, kl.
14.30–16 dansað í aðal-
sal.
Vitatorg. Klukkan
8.45 smíði, kl. 9 hár-
greiðsla og opin vinnu-
stofa, kl. 9.30 bókband
og morgunstund, kl. 10
fótaaðgerð, kl. 12.30
opin vinnustofa, kl.
13.30 bingó.
FEBK. Brids spilað kl.
13.15 í Gjábakka.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10 á laugar-
dögum.
SÍBS-félagar í Reykja-
vík og nágrenni. Árleg
Jónsmessuferð verður
farin um Reykjanes
sunnudaginn 22. júní.
Sjá nánar auglýsingu í
blaðinu í gær.
Brúðubíllinn
Brúðubíllinn verður
næst mánudag 23. júní
kl. 10 í Safamýri og kl.
14 á Njálsgötu.
Minningarkort
Minningarkort
Hjartaverndar fást á
eftirtöldum stöðum á
Reykjanesi: Kópa-
vogur: Kópavogs Apó-
tek, Hamraborg 11.
Hafnarfjörður: Lyfja,
Setbergi. Sparisjóður-
inn, Strandgötu 8–10,
Keflavík: Apótek
Keflavíkur, Suðurgötu
2, Landsbankinn Hafn-
argötu 55–57.
Í dag er föstudagur 20. júní, 171.
dagur ársins 2003. Orð dagsins:
Vertu ekki hrædd, litla hjörð,
því að föður yðar hefur þóknast
að gefa yður ríkið.
(Lúk. 12,32).
Davíð Oddsson forsætis-ráðherra sagði á þingi
Sambands ungra sjálf-
stæðismanna á Seltjarnar-
nesi í september 2001 að
tóbaksvarnarfrumvarpið,
sem þá hafði nýlega verið
samþykkt, gengi of langt í
tóbaksvörnum. Síðan þá
hefur margt breyst í þá átt
að fólki, sem kýs að
kveikja sér í sígarettu, er
gert erfitt fyrir. Stundum
vilja andstæðingar reyk-
inga ganga svo langt að
skerða tjáningarfrelsið og
eignarréttinn til að fram-
fylgja markmiðum sínum.
T.d. má ekki fjalla um tób-
akstegundir á Íslandi í
fjölmiðlum öðruvísi „en að
vara sérstaklega við skað-
semi þeirra“.
Sigurður Hólm Gunn-arsson, ritstjóri Skoð-
unar, fjallar um hugmynd
um bann við reykingum
inni á heimilum í nýjum
pistli: „Gro Harlem
Brundtland, aðalfram-
kvæmdastjóri WHO og
fyrrverandi forsætisráð-
herra Noregs, hefur lagt
það til að bannað verði að
reykja inni á heimilum þar
sem börn búa. Hefur hún
fengið afar misjöfn við-
brögð við þessari skoðun
sinni. Þetta er áhugavert
því ég hef lengi verið
þeirrar skoðunar að
vernda eigi börn fyrir
reykingum foreldra
þeirra.
Margir eru eflaust
þeirrar skoðunar að til-
laga Brundtlands feli í sér
alltof mikla forræðis-
hyggju, en ég er því ein-
faldlega ekki sammála.
Óbeinar reykingar eru
hættulegar og foreldrar
hafa ekki rétt á því að
vera með börn sín í skað-
legu umhverfi.
Menn eru sammála þvíað foreldrar sýna
mikla vanrækslu t.d. með
því að búa börnum sínum
umhverfi þar sem mikil
hætta er á slysum. For-
eldrar sem hafa börn sín í
heilsuspillandi umhverfi
(t.d. slæmu húsnæði) eru
vart taldir hæfir o.s.frv.
Sama hlýtur því að eiga
við um foreldra sem
reykja ofan í börnin sín
dag hvern.
Fullorðið fólk getur að
sjálfsögðu ákveðið að
reykja og stofnað heilsu
sinni í hættu. Um það deili
ég ekki. Það hefur hins
vegar engan rétt á því að
misþyrma börnum sínum
með óbeinum reykingum.
Foreldrar og forráða-
menn geta einfaldlega
ekki tekið slíka ákvörðun
fyrir börnin sín. Foreldrar
eru nefnilega verndarar
barna sinna, ekki eig-
endur,“ segir Sigurður.
Samkvæmt íslenskutóbaksvarnarlögunum
skulu þeir sem bera
ábyrgð á barni stuðla að
því að það njóti réttar „til
að þurfa ekki að anda að
sér lofti sem er mengað
tóbaksreyk af völdum
annarra“. Hins vegar er
hægt að réttlæta ýmis af-
skipti ríkisvaldsins af at-
höfnum einstaklinga með
sömu rökum. Og þótt tak-
markið sé göfugt er leiðin
hættuleg einstaklings-
frelsinu.
STAKSTEINAR
Tóbaksvarnir og
einstaklingsfrelsið
Víkverji skrifar...
ÍMORGUNBLAÐINU í gær komfram að aldrei hafi fleiri útskrifazt
frá Háskóla Íslands en í ár. Næst-
komandi laugardag verða 779 kandí-
datar brautskráðir frá skólanum. Í
frétt Morgunblaðsins segir: „Vegna
mikillar fjölgunar brautskráninga í
júní-útskrift Háskóla Íslands hefur
umræða skapast um það hvort leita
þurfi að stærra húsnæði en Laugar-
dalshöll til þess að hýsa athöfnina.
Búast má við að húsfyllir verði á
laugardag. Á síðustu árum hefur
nokkuð verið kvartað yfir þrengslum
og hita og eru þess dæmi að fólk hafi
fallið í yfirlið.“
x x x
VÍKVERJA finnst það hreint ekkiaugljósasta lausnin á vandanum
að finna flugskýli eða fótboltahöll
undir útskriftarathöfn Háskólans –
en stærra húsnæði en Laugardals-
höll er væntanlega af þeirri tegund.
Slíkt myndi e.t.v. leysa þann vanda,
sem snýr að yfirliðum og hita, en
ekki hitt að útskriftarathöfnin er ein-
faldlega orðin alltof löng og leiðinleg
fyrir gestina. Aðstandendur kandí-
data koma auðvitað fyrst og fremst
til að fylgjast með útskrift „síns“
kandídats og hafa kannski líka gam-
an af að sjá til nánustu vina hans og
samnemenda, ef þeim er til að dreifa,
en þeir hafa engan áhuga á að fylgj-
ast með öllum hinum 778 trítla til
rektors að sækja skírteinið sitt.
x x x
VÍKVERJI útskrifaðist á sínumtíma úr erlendum háskóla, sem
var talsvert minni en Háskóli Íslands
er nú, með um 5.000 stúdenta, og þar
voru haldnar fjórar útskriftar-
athafnir. Hver athöfn varð styttri
fyrir vikið, andrúmsloftið varð per-
sónulegra, háskólinn gat haldið út-
skriftina í eigin húsnæði. Sennilega
þýddi þetta þó aðeins meiri vinnu
fyrir rektor, sem þurfti að skrifa
fjórar útgáfur af ræðunni sinni, og
háskólabókavörðinn, sem spilaði
Gaudeamus igitur á orgel við allar
athafnirnar.
x x x
STJÓRNENDUR Háskólans ættuað huga að því að skipta útskrift-
arathöfninni upp með þessum hætti.
Nóg eiga þeir af hæfilega stóru hús-
næði, sem hæfir virðulegri útskrift-
arathöfn betur en íþróttahöll eða
flugskýli, t.d. einhvern salinn í Há-
skólabíói eða jafnvel gamla Hátíða-
salinn. Ekki ætti háskólarektor held-
ur að verða í vandræðum með að
semja svo sem eins og fjórar ræður.
Ef hægt væri að halda útskriftina
á háskólasvæðinu væri sömuleiðis
orðið mögulegt að bjóða kandídötum
og aðstandendum þeirra til móttöku í
hinum ýmsu háskólabyggingum eftir
útskriftarathöfnina, sem var gert í
háskóla Víkverja ytra og jók enn á
hátíðleik og persónulegan brag út-
skriftardagsins. Þá þegar var mikill
munur á þeirri útskrift og færi-
bandavinnunni, sem Víkverja fannst
útskrift hans úr Háskóla Íslands fá-
einum árum áður vera.
Morgunblaðið/Kristinn
Hiti, yfirlið, leiðindi í marga
klukkutíma – er ekki tímabært að
breyta til?
LÁRÉTT
1 kroppur, 4 syfjuð, 7
stundum, 8 sálir, 9 kven-
dýr, 11 hleyp, 13 kon-
ungsflokkur, 14 bæjar-
nafn, 15 úrskurður, 17
skýlaus, 20 stubb, 22 bíll,
23 úrkomu, 24 kaka, 25
sól.
LÓÐRÉTT
1 gerir við, 2 gamansöm,
3 vítt, 4 úrþvætti, 5 ól, 6
lyftiduftið, 10 spöng, 12
lík, 13 skar, 15 fljót, 16
tré, 18 goð, 19 hirsla, 20
hagga, 21 úrgangsfiskur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 pörupilts, 8 ruddi, 9 ljóst, 10 níu, 11 rúðan, 13
rósir, 15 skans, 18 sussa, 21 áll, 22 liður, 23 órögu, 24
munnharpa.
Lóðrétt: 2 önduð, 3 urinn, 4 iglur, 5 tjóns, 6 ýrur, 7 stór,
12 ann, 14 ólu, 15 sæll, 16 auðnu, 17 sárin, 18 slóra, 19
skörp, 20 akur.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Prýðileg
grein
Í MORGUNBLAÐINU 14.
júní sl. birtist prýðisgrein,
„Bandaríkjamenn og varn-
arsamningurinn“, eftir
Michael T. Corgan prófess-
or. Ég held að óhætt sé að
segja að sú grein lýsi
grundvallaratriðum sem
varða samskipti Íslands og
Bandaríkjanna almennt
séð.
Það er ósk okkar allra að
stöðugleiki milli landanna
haldist óbreyttur.
Vilhjálmur Alfreðsson.
Ánægja og gleði
með Birgittu
ÁSDÍS hafði samband við
Velvakanda og vildi koma á
framfæri ánægju sinni yfir
framgöngu Birgittu Hauk-
dal, sem söng í Hafnarfirði
17. júní sl.
Að sögn Ásdísar náði
Birgitta vel til ungviðisins
sem tók henni fagnandi;
kunnu börnin flesta textana
og sungu hástöfum með.
Fossvogskirkjugarður
til fyrirmyndar
HÚSMÓÐIR í Vesturbæn-
um hafði samband og vildi
lýsa þeirri skoðun sinni að
Fossvogskirkjugarður
væri til fyrirmyndar.
Að hennar sögn er það
lítið mál að láta lagfæra,
séu einhver vandamál fyrir
hendi.
Tapað/fundið
Taska með
upptökuvél tapaðist
SVÖRT taska með lítilli
Sony-myndbandsupptöku-
vél o.fl. týndist í miðbæ
Reykjavíkur 17. júní sl.
Skilvís finnandi hringi í
síma 551 9725. Góð fundar-
laun í boði.
Hálsmen tapaðist
HJARTALAGA hálsmen,
formað úr semelíusteinum,
tapaðist á Akureyri eða ná-
grenni um hvítasunnu-
helgina. Menið hefur mikið
tilfinningalegt gildi fyrir
eiganda. Skilvís finnandi
hafi vinsamlegast samband
í síma 568 4193 eða
820 4193. Fundarlaun.
Dýrahald
Yndislegir norskir
skógarkettir
NORSKA skógarketti
vantar gott heimili til að
búa á. Þeir eru hreinrækt-
aðir og tilbúnir til þess að
flytjast frá móður sinni.
Þeim gengur vel að alast
upp með börnum og eru
góðir félagar. Frekari upp-
lýsingar í síma 567 8008 eða
896 2202.
Sesar vantar heimili
SESAR er tveggja ára
köttur, geldur og eyrna-
merktur. Vegna breyttra
heimilisaðstæðna vantar
hann nýtt heimili hið snar-
asta. Sesar er afskaplega
fallegur og góður. Með hon-
um fylgir heilsufarsbók.
Frekari upplýsingar er
hægt að nálgast í síma
899 9894.
Pjakk og Pílu vantar
góð heimili
PJAKKUR og Píla eru
tveir fjörugir og skemmti-
legir hvolpar. Þau fást gef-
ins á góð heimili þar sem
hundavinir búa. Upplýsing-
ar í síma 566 6094, 864 2994
eða 693 2552.
Kettling vantar
heimili
ÁTTA vikna blíðan og góð-
an kettling vantar heimili.
Kettlingurinn er svartur
með hvíta blesu á nefinu og
hvítar loppur, auk þess er
hann kassavanur. Upplýs-
ingar í síma 865 9510.
Læða fannst
STEINGRÁ, nokkurra
mánaða gömul læða fannst
í Heimunum. Upplýsingar í
síma 861 3716.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ingó