Morgunblaðið - 20.06.2003, Qupperneq 54
54 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KURT Russell er mættur til leiks í
dramatískum trylli sem gerist í Los
Angeles í apríl 1991, nokkrum dög-
um áður en fjórir hvítir lögreglu-
menn eru sýknaðir af drápinu á
Rodney King í L.A.-uppþotinu mikla.
Russell leikur Eldon Perry,
reynda leynilöggu, þekkta fyrir mik-
ið skap og harðar vinnuaðferðir.
Hann leysir nú stórt ferfalt morðmál,
og sýnir um leið nýliðanum Bobby
Keough hvernig lífið gengur fyrir sig
í grimmum raunveruleika götunnar.
Yfirmenn Perrys eru þó ekki alls-
kostar sáttir við hvernig hann fær
„réttlætinu“ framgengt á sinn eigin
hátt þannig að um leið og hann eltir
morðingja í hættuhverfum Engla-
borgarinnar verður hann að berjast
við eigin djöfla sem eiga það til að
vera verri en hættulegustu morð-
ingjar.
Innri djöflar og ytri
Háskólabíó og Sambíóin frumsýna kvik-
myndina Dökkblár (Dark Blue). Leik-
stjórn: Ron Shelton. Aðalhlutverk: Kurt
Russell, Scott Speedman, Michael
Michele, Brendan Gleeson, Ving Rham-
es og Kurupt.
Hasar í hættuhverfum L.A.
HEIMSKUR, heimsk-
ari, mynd Farelli-
bræðra frá 1994, hlaut
kannski ekki náð fyrir
augum gagnrýnenda.
Þrátt fyrir það er hún
án efa ein af stærstu
„költ“ grínmyndunum,
og nú er komin fram-
haldsmynd, sem reynd-
ar á að gerast á undan
þeirri upprunalegu.
Árið er 1986 og þeir
Harry og Lloyd hittast í
gaggó. Þeir reyna hvað
þeir geta að komast úr
sérkennsludeildinni til
þess að fá að vera með venjulegum
krökkum. Á vegi þeirra verður skóla-
stjóri nokkur, hrikalega illgjarn, og
svo nokkrir aðrir krakkar, álíka gáfu-
legir og þeir sjálfir.
Leikararnir þykja standa sig ágæt-
lega og skemmtilegt er víst að sjá
hversu ótrúlega líkir þeir eru fyrir-
rennurum sínum, Jim Carrey og Jeff
Daniels. En ætli þeir séu jafnfyndnir?
Klikkað gaggólið
Alltaf jafn gáfulegir.
Laugarásbíó, Smárabíó, Regnboginn og Borgarbíó á Akureyri frumsýna grínmynd-
ina Heimskur, heimskarari (Dumb, Dumberer). Leikstjórn: Troy Miller. Aðal-
hlutverk: Eric Christian Olsen, Christmas Derek Richardson, Luis Guzmán, Eugene
Levy, Rachel Nichols og Mimi Rogers.
KVIKMYNDALEIKARINN
Hume Cronyn er látinn, 91 árs að
aldri. Cronyn var kanadískur að
uppruna og átti
að baki rúmlega
hálfrar aldar
leikferil og lék í
á sjötta tug
kvikmynda og
sjónvarpsmynda.
Fyrsta stóra
hlutverk hans
var í mynd
Hitchcocks Shadow of a Doubt
frá 1943. Sama ár lék hann í The
Cross of Lorraine en ári síðar var
hann tilnefndur til sinna fyrstu og
einu Óskarsverðlauna, fyrir auka-
hlutverk í mynd Freds Zinnem-
anns The Seventh Cross. Í þeirri
mynd lék Cronyn í fyrsta sinn á
móti eiginkonu sinni, Óskars-
verðlaunahafanum Jessicu Tandy,
en þau voru ein kunnustu og lang-
lífustu leikarahjón sem sögur fara
af í Hollywood. Saman léku þau í
fjölda mynda og leikrita á löngum
leikferli sínum en það var þó
kannski ekki fyrr en í ellinni sem
einstakur samleikur þeirra vakti
fyrst verulega athygli en það var í
myndunum Cocoon (1985) og Batt-
eries Not Included (1987). Tandy
hlaut síðan Óskarsverðlaun sem
besta leikkona í aðalhlutverki fyrir
Driving Miss Daisy en fjórum ár-
um síðar missti Cronyn ástkæra
eiginkonu sína. Hann lét það þó
ekki á sig fá og hélt áfram að
leika í myndum, þ.á m. dramanu
Marvin’s Room þar sem hann lék
dauðvona afa Leonardos DiCapr-
ios og í sjónvarpsendurgerðinni á
12 Angry Men … Kvikmyndagerð
vísindasýrusögunnar Hitchhiker’s
Guide To The Galaxy eftir Dougl-
as Adams er enn í burðarliðnum
en búist hafði verið við að ekkert
yrði úr myndinni eftir fráfall
Adams árið 2001. Hann hafði þá
verið að vinna að handriti með
leikstjóra Austin Powers-
myndanna Jay Roach og lét
Roach þau orð falla eftir andlát
Adams að myndin væri varanlega
komin í salt eftir 10 ára undirbún-
ing. Nú hafa hins vegar breskir
framleiðendur ættleitt verkefnið
og fengið leikstjóra Ali G-
þáttanna, Garth Jennings, til að
gera mynd eftir bókinni.
FÓLK Ífréttum
ELÍSA er ung og
einstæð tveggja
barna móðir. Stóri
draumur hennar í líf-
inu er að opna hár-
greiðslustofu ásamt
Lúlú, bestu vinkonu
sinni, í góðu hverfi í
höfuðborginni Monte-
video. Einhvern veg-
inn virðist eina leiðin
fyrir þær til að fjár-
magna stofuna vera
að selja sig. Og Elísa blessunin,
sem hefur aldrei átt láni að fagna
þegar karlmenn eru annars vegar,
verður fljótt ástfangin af hór-
mangara nokkrum, Placido að
nafni, sem starfar víða.
Þannig komast þær vinkonur inn
í vítahring, vinna langt að heiman í
hörmulegum hverfum, algerlega
varnarlausar. Elísa gerir sér fljótt
grein fyrir að hún getur engum
treyst nema sjálfri sér.
Að láta drauminn rætast
Háskólabíó frumsýnir
úrúgvæsku kvikmyndina
Gjálífi (En La Puta
Vida). Leikstjórn:
Beatriz Flores Silva. Að-
alhlutverk: Mariana
Santagelo, Josep Lin-
uesa, Andrea Fantoni,
Rodrigo Speranza, Ag-
ustin Abreu og Fermi
Herrero.
Vongóðar vinkonur á leið út á hálan ís.
Fyndnasta myndin sem
þú sérð á árinu!
Losaðu þig við reiðina og
hlæðu þig máttlausan!
2 vik
ur
á top
pnum
í USA
!
Sýnd kl. 5.50 og 8. B.i. 12. Sýnd kl. 10.10.
Sýnd kl. 6, 8, 10 og miðnætursýning kl 12.
HK DV
X-97,7
HJ MBL
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
Ef þú hélst að þú værir
heimskur, þá hefurðu ekki hitt
Harry og Lloyd. Þeir eru komnir
aftur, heimskari en nokkru
sinni fyrr í geggjaðri
grínmynd!
FRUMSÝNING
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára
Kvikmyndir.comX-ið 977
HJ MBL
HK DV
Sýnd kl. 10.15. B.i. 12
2 vik
ur
á to
ppnu
m
í US
A!
Fyndnasta myndin
sem þú sérð á árinu!
Losaðu þig við reiðina
og hlæðu þig máttlausan!
YFIR 17.000 GESTIR!
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 6 og 8.30.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 3.40, 5.50 og 8. Sýnd kl. 4. Ísl. tal. 500 kr.
FRUMSÝNING
Ef þú hélst að þú værir heimskur, þá hefurðu ekki hitt
Harry og Lloyd. Þeir eru komnir aftur,
heimskari en nokkru sinni fyrr í geggjaðri grínmynd!